05.05.1965
Sameinað þing: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í D-deild Alþingistíðinda. (2787)

65. mál, vigtun bræðslusíldar

Sverrir Júlíusson:

Herra forseti. Það er ekki vegna þess, að ég þurfi að tjá hug minn í sambandi við þáltill. þá, sem hér er til umr., þar sem fyrir liggur afstaða mín til þáltill., þar sem ég er meðflm. að henni. En ég vil leggja áherzlu á þetta mál og tel. að þetta sé réttlætis- og nauðsynjamál. En sérstaklega kvaddi ég mér hljóðs vegna, ummæla hv. 5. þm. Austf. við fyrri umræðu þessa máls. Hann vildi halda því fram, að með tilvísun til l. nr. 38 9. maí 1930, þá væri þessi till. alveg óþörf, því að ef farið væri fram á vigtun, t.d. af samtökum seljenda, sjómanna og útvegsmanna eða eigendum síldarinnar sjálfum, þá væri ekki hægt annað, en verða við þeirri beiðni. Viðvíkjandi þessu atriði get ég ekki látið hjá líða að benda á, að þessar óskir hafa verið uppi um 6–8 ára skeið. Það mun fyrst hafa verið, sem formlega var farið fram á þetta, á árinu 1958 og var þá samþ. till. um það á aðalfundi Landssambandsins, að athugað yrði um vigtun á síld. Ég vil biðja þingheim að taka eftir því, að þetta er á þeim tímum, þegar hv. 5. þm. Austf. fór með sjávarútvegsmál, en framkvæmd þessara mála var sú, að skrifað var til allra, síldarverksmiðja, bæði einkaverksmiðja og Síldarverksmiðja ríkisins, en afstaða síldarverksmiðjanna kemur fram í bréfi, sem skrifað er 9. maí 1958, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Í tilefni af bréfi yðar, dags. 10. marz s.l., viljum við taka fram, að SR hafa á undanförnum árum mælt bræðslusíld þá, sem þær hafa tekið á móti, í löglegum mælitækjum. Síldinni er landað með löndunartækjum á eigin bryggjum verksmiðjanna, bryggjur þessar eru úr tré og erfitt og kostnaðarsamt að koma vigtum fyrir á þeim og hætta á að vigtirnar bili vegna mikils hristings á bryggjunum í sambandi við notkun tækjanna og vegna súgs, sem stundum er við bryggjurnar. Þar sem ekki getur leikið neinn vafi á því, að síldin sé rétt mæld í mælitækjum SR, sem löggilt eru árlega, þá telur verksmiðjustjórnin ekki ástæðu til þess að taka upp kostnaðarsamari og ef til vill ónákvæmari aðferð við ákvörðun þess bræðslusíldarmagns, sem tekið er á móti hverju sinni.“

Það kemur fram í bréfinu einnig, að þessi till. var samþ. með atkv. allra stjórnenda síldarverksmiðjanna, en þar eiga allir stjórnmálaflokkar sína fulltrúa. Ég er ekki í neinum vafa um það, að þegar hv. 5. þm. Austf. fór með þessi mál. þá hefur þetta einnig verið í fullu samræmi við hans vilja. En það er sama, hver hefur farið með sjávarútvegsmálin á þessum árum, þá hefur einatt verið skotið sér á bak við þessa skoðun, en þetta hefur verið mjög mikið alvöru- og hitamál hjá sjómönnum og útvegsmönnum.

Hv. 5. þm. Austf. vildi einnig halda því fram, að það skipti ekki öllu máli, hvor aðferðin væri notuð, mælt eða vigtað, ef hið sama væri lagt til grundvallar í sambandi við verðlagningu. Þá sagði hann, að einhver breyting hefði orðið á við tilkomu verðlagsráðs. Ég vil taka það fram, að hið sama er lagt til grundvallar, bæði magn og nýting, við ákvörðun á þessu, eins og var áður. Breytingin er aðeins sú í sambandi við verðlagsráðið, að áður var það háð till. stjórnar verksmiðjanna og staðfest af sjútvmrh., en nú er þetta, má segja, á samningsgrundvelli á milli kaupenda og seljenda, en að sjálfsögðu tekið tillit til þess, hvernig útkoman hefur verið á hverjum tíma. Ég vil þess vegna leggja mikla áherzlu á, að þessi athugun fari fram, svo að rutt verði úr vegi gömlu ágreiningsmáli, sem uppi hefur verið um langan tíma.

Ég get að vissu leyti verið sammála hv. 5. þm. Austf. um það, að ef alltaf væri gengið út frá sömu forsendu í öllum tilfellum, þá mundi niðurstaðan verða sú sama. En þessu er alls ekki þannig farið. Í mörgum tilfellum er síldin misjöfn til mælingar. Ef hún er ný og spriklandi, fer mun minna í málið, en ef hún er slegin og kunnugir segja mér, að munur geti verið allt að 10%. Í heild kemur þetta vissulega framleiðendunum til góða í sambandi við verðákvörðunina. Það dylst engum. En svo er annað, sem vert er að benda á í sambandi við þetta: Í vaxandi mæli og sérstaklega á 2 síðustu árum, sér í lagi síðustu síldarvertíð, sem kom til vegna þess, hve síldin var smærri og mikið magn síldarinnar fór til söltunarstöðvanna, er ekki samræmi í því, þegar síld er lögð inn frá söltunarstöðvunum eða beint úr skipunum. Vigtað er í þeim tilfellum það, sem kemur frá síldarsöltunarstöðvunum, en mælt í hinum tilfellunum, svo að þetta skapar einmitt misræmi, svo sem hv. 11. landsk. tók fram við 1. umr. þessa máls.

Ég vil svo að síðustu leggja áherzlu á það, að till. þessi verði samþ. og ég vil einnig leggja áherzlu á það, að þessari athugun verði hraðað sem allra mest. Þetta mál kom fram snemma á þessu þingi, en nú er komið að þingslitum og þess vegna er sú brtt. fram komin, að þetta verði látið gilda frá 1. jan. 1968, í staðinn fyrir 1. okt. 1965, eins og var upphaflega í till.

Þá vil ég að lokum, til þess að sýna hug þeirra manna, sem eiga mikið undir þessu, með leyfi hæstv. forseta, lesa till., sem samþ. var á aðalfundi Landssambandsins nú í haust:

„Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir fram kominni þáltill. frá Matthíasi Bjarnasyni o.fl. um vigtun á síld og skorar á Alþ. að samþykkja hana, enda verði gerðar tilraunir með vigtun a.m.k. í tveim síldarverksmiðjum á næsta sumri.“

Ég vil leggja áherslu á, að hæstv. sjútvmrh. hlutist til um, að þessar tilraunir verði framkvæmdar í tveim verksmiðjum nú á næstu síldarvertíð. Mér hefur verið tjáð, að með þeim miklu framförum, sem átt hafa sér stað á ýmsum sviðum, m.a. hafa átt sér stað í vigtun, séu möguleikar á því með elektrónískum vigtaraðferðum að framkvæma þetta með litlum tilkostnaði, en till. þessi gerir ráð fyrir, að þetta verði athugað, bæði kostnaðarhliðin og annað. Ég vil, eins og ég sagði áðan, beina því til hæstv. sjútvmrh., að hann hlutist til um að koma þessu í framkvæmd eins fljótt og möguleikar leyfa.