05.05.1965
Sameinað þing: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (2788)
65. mál, vigtun bræðslusíldar
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það var nú aðeins að leiðrétta lítils háttar misskilning, sem kom fram í ræðu hv. 7. landsk. þm., sem var nú síðast að tala. Hann lét orð að því liggja, að hann teldi víst, að sú afstaða, sem fram hefði komið á svari stjórnar síldarverksmiðja ríkisins árið 1958 varðandi kröfu þá um að taka upp vigtun á síld, sem lögð yrði inn til bræðslu, sú afstaða muni hafa verið í samræmi við minn vilja, sem þá hafi verið sjútvmrh. Ég efast ekki um, að þessi hv. þm. veit það mæta vel, að því er ekki þannig farið, að sjútvmrh. stjórni samþykktum, hvorki hjá stjórn síldarverksmiðja ríkisins né annarra slíkra og minn vilji hefur komið mjög skýrt fram í þessu máli oft áður, að ég hef verið á þeirri skoðun, að það ætti að taka upp vigtun á bræðslusíld og hefði verið til mín leitað í sambandi við það á þessum tíma, þá hefði kannske verið unnið að því á annan veg en gert hefur verið. En hitt hlaut ég vitanlega að benda á hér, þegar þetta mál var hér til fyrri umr., að það er vægast sagt einkennilegt að leggja það til, að sett skuli niður sérstök athugunarnefnd til þess að rannsaka a.m.k. í heilt ár, hvernig eigi að bregðast við tilteknum lagaákvæðum, sem eru alveg tvímælalaus og skýr, að það er skylda hvers og elns, sem kaupir síld til bræðslu, að kaupa hana eftir vigtun, ef seljandi krefst þess. Þetta er svo skýrt í l., að fram hjá þessu verður ekki gengið. Ef hins vegar sá, sem kaupir, neitar að hlýða l., eru líka til lagasetningar um það, hvernig með slíkt skuli fara. Og það eru líka ákvæði í þessum l., hvaða sektarákvæði eigi hér að koma til. En hitt er svo annað mál, að það er alveg rétt, að þeir, sem hafa selt síldina á undanförnum árum, hafi engan veginn borið sig að á eðlilegan hátt í þessum efnum. Þeir hafa látið sér það nægja að gera nokkrar samþykktir hér og þar á fundum og senda þær stundum til stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins, sem jafnan hefur sannað þeim það með bréfi aftur á móti, að þetta mundi kosta skolli mikið og þeir þyrftu að breyta bryggjum sínum, ef þeir færu að lögum í landinu. Og við þetta hefur verið látið sitja. En vegna þess að það er nokkur óróleiki í ýmsum útvegsmönnum í sambandi við þetta, þykir mönnum a.m.k., að það sé þá unninn tími á því að setja málið í n. og lofa því að hvíla í n. 1–2 ár enn og gera um það eflaust nokkrar samþykktir í millitíðinni.
Auðvitað vitum við það, að þetta er ekkert vandamál. Það kostar nokkra peninga að taka upp þetta fyrirkomulag hjá þeim, sem ekki hafa það, það er enginn vafi á því. En í þessum efnum er valdið hjá þeim, sem selja síldina samkv. l. og þeir geta gengið eftir þessu, ef þeir vilja og það þarf enga sérstaka n. til þess að athuga málið þess vegna.
Hins vegar kom það skýrt fram hjá mér, þegar málið var hér til fyrri umr., að ekki var ég á móti því, að n. sé sett. Það kannske miðar þá hægt að því, að það verði farið að framkvæma þessi lagaákvæði. Ég tel það alveg sjálfsagt að framkvæma þau. E.t.v. hefst það upp úr þessum ársfresti, sem menn taka sér hér, að þá verði tekin upp þessi regla.
Ég gat þess hér einnig við fyrri umr. málsins, að því verður ekki neitað, að þetta mál hefur tekið talsverðum breytingum við tilkomu þeirra reglna, sem nú er búið að taka upp við verðlagningu á sjávarafurðum. Á því er auðvitað enginn vafi, að nú eru reglurnar um það, hvernig ákveða skuli verðið, fastbundnar í l., en voru það ekki áður. Áður var þetta miklu lausara, hvernig verðið var ákveðið og gat þar oltið á ýmsu og stundum var það beinlínis samningamál, hvað verðið var ákveðið. En nú er þetta fyrir mælt í l., svo að þetta er í sjálfu sér farið að hafa miklu minna gildi ,en það hafði áður, þó að þetta sé miklu eðlilegri viðskiptaháttur, að vigta síldina heldur en mæla hana á þann hátt, sem nú er gert.
Ég minntist einnig á það, að ef ætti að setja þessa n., fyndist mér eðlilegt, að í till. yrði því bætt að, það kæmi hér inn fulltrúi frá Alþýðusambandi Íslands, sem er tvímælalaust sá aðilinn, sem fer með umboð mikils meiri hl. síldveiðisjómanna í landinu. Hins vegar hefði ég ekkert við það að athuga, að þeir aðilar allir, sem nefndir eru í till., hefðu fulltrúa, en að ganga fram hjá Alþýðusambandinu er út af fyrir sig mjög óeðlilegt í þessum málum.
Ég vildi aðeins gera þessar aths., en tek það fram eins og áður, að ég er algerlega því sammála, að tekinn verði upp sá háttur að vigta síld, sem lögð er inn til bræðslu og er að sjálfsögðu ekki á móti því, að þessi n. sé skipuð, en hef bara bent á, að það er hægt að framkvæma þetta mál eftir lögum landsins án þess að skipa í það nefnd.