18.12.1964
Efri deild: 34. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

106. mál, söluskattur

Frsm. 1. minni hl. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Í ræðu minni við 2. umr. þessa máls gat ég þess, að ef ekki tækist að fella þetta frv., væri æskilegt að reyna að fá nokkra bót á ýmsum vanköntum þess, og gat ég í ræðu minni um nokkur atriði, þótt ég flytti ekki um það neinar till. við 2. umr. málsins. Ég vil nú leyfa mér fyrir mína hönd og hv. 1. þm. Norðurl. e. að leggja fram tvær brtt. við þetta mál. Fyrri till. lýtur að því að tryggja sveitarfélögunum hlutfallslega svipaðan þátt í söluskattinum og þeim var ætlaður í upphafi, því að eins og ég gerði nokkra grein fyrir fyrr í dag, vex að sjálfsögðu tilkostnaður sveitarfélaganna eins og ríkissjóðs, þótt kannske sé það ekki jafnmikið, en það a.m.k. er verulegur vöxtur í því, og með þessum söluskattshækkunum, svo að dæmi sé nefnt, hefur ríkissjóður aflað sér tekna til aukinna tryggingargreiðslna, sem falla jafnt á sveitarfélögin og í ýmsum tilfellum fullt eins þungt á sveitarfélögin, án þess að sveitarfélögin hafi fengið auknar tekjur á móti af söluskattshækkuninni. Ég gerði grein fyrir því þá, að til þess að þau héldu hlut sínum, þyrftu þau að fá 12% af skattinum, eins og hann er, eftir að þær breytingar hafa verið gerðar, sem gerðar voru á þessu frv. við 2. umr. málsins.

1. brtt., sem ég leyfi mér að leggja fram og leyfi mér að leggja fram í handskrifuðu formi, sem ég vænti, að hæstv. forseti virði mér til vorkunnar, þar sem ég hafði hugsað mér að nota matartímann til þess að hreinrita þetta, — 1. till. er við 1. gr. frv. og hljóðar svo: „Í stað „8% — átta af hundraði“ komi: 12% — tólf af hundraði.“

Ég ræddi enn fremur um það í ræðu minni í dag, að ég teldi nauðsyn á því, að eftirlit með innheimtu og framtölum söluskattsins væri hert. Það hefur ekki verið tækifæri til þess á þeim stutta tíma, sem d. hefur haft þetta frv. til meðferðar, að kanna það til hlítar, hvernig þessum málum er varið, og hæstv. fjmrh. tjáði mér það áðan, að hann væri ekki fyllilega við því búinn á þessari stundu að gefa mér svar við ýmsum atriðum, sem ég óskaði svars við fyrr í dag. En hins vegar má gera ráð fyrir því, að þær upplýsingar komi í ljós síðar við meðferð málsins á hv. Alþingi. En af þessum ástæðum hefur ekki verið kleift að útbúa ýtarlegar till. Í þessu efni, en við höfum samt viljað gera nokkra bót á með því að leggja fram till. um, að rannsókn skuli fara fram á framtölum samkv. útdrætti með svipuðum hætti og hv. þm. Alþb. og raunar hv. þm. Framsfl. líka hafa flutt við ýmis tækifæri áður. Sú till. er svo hljóðandi:

„Eftir 2. gr. komi ný gr., svo hljóðandi: Við 15. gr. l. bætist ný mgr., svo hljóðandi: Umfram þau framtöl til söluskatts, sem skattyfirvöldum þykir ástæða til að rannsaka, skal fara fram ýtarleg rannsókn á framtölum 5% allra söluskattskyldra aðila. Skulu þau framtöl valin með útdrætti úr öllum söluskattsframtölum landsins af Hagstofu Íslands samkv. reglum, sem hún setur. Framtöl þau, sem tekin eru til rannsóknar, skal athuga vandlega, rannsaka bókhald aðila og leita upplýsinga um hvaðeina, sem máli skiptir.“

Ég gerði það líka að umræðuefni í ræðu minni við 2. umr. þessa máls, að refsingar við brotum á söluskattsl. væru ekki í samræmi við eðli málsins og þyrfti að herða þær. Mér virtist, þegar þetta mál var til umr. í hv. fjhn., og ég held, að það hafi komið fram hjá frsm. meiri hl. hennar í dag, að þar voru hugleiðingar um svipuð efni, sem mér skilst svo að hafi strandað á tekniskum atriðum, sem ekki tókst að leysa nægilega snemma, til þess að n. sem heild treysti sér til þess að bera fram till, um það, og af þeim ástæðum mun ég að þessu sinni ekki bera fram till. af því tagi, heldur láta í ljós þá von mína, að við frekari meðferð málsins á hv. Alþingi geti þau vandamál, sem þarna er um að ræða, verið könnuð og afgreidd á þann hátt, að breyting í þessa átt, sem virðist vera mikill vilji fyrir í hv. d., geti þá komið inn í málið á síðara stigi þess.

Að svo mæltu leyfi ég mér að afhenda hæstv. forseta þessar tvær skrifuðu brtt. mínar og bið velvirðingar á fráganginum, sem er í samræmi við þann hraða, sem hafður hefur verið um hönd í þessu máli.