04.11.1964
Sameinað þing: 8. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í D-deild Alþingistíðinda. (2832)

13. mál, stóriðjumál

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Sú till., sem framsóknarmenn flytja hér, er góðra gjalda verð, margar góðar hugsanir, sem fram komu í ræðu hv. 1. þm. Austf., formanns Framsfl., þegar hann ræddi um þessi mál. Þó eru nú þau vandræði fyrir okkur hérna í stjórnarandstöðunni í sambandi við þessa till., að við eigum þar undir náð stjórnarmeirihl. að sækja, hvort hún verði samþykkt. Ég álít það vera mjög rétt, sem hv. frummælandi gerði, að bjóða fram samstarf um lausn þessara mála af hálfu Framsfl. og vil taka undir það fyrir hönd okkar Alþb.-manna, að við erum reiðubúnir til slíks samstarfs. En þó verð ég að láta þá persónulegu skoðun í ljós, að enn þá æskilegra álít ég, að það hefði verið, ef Framsfl. hefði fengizt til að leggja fram starf til þess að vinna í þeirri nefnd, sem þegar er skipuð og kosin af Alþingi til þess að starfa að þeim málum, sem um fjallar í þessari þáltill. Það er alltaf hægara að halda sér við það, sem maður hefur og reyna að hagnýta það til fulls heldur en að sækja, þegar maður er í stjórnarandstöðu, undir náð ríkisstj. og ætla þar að fara að koma nýjum till. fram.

Það er svo, að fyrir 9 árum var kosin hér á Alþingi nefnd, mþn., 7 manna mþn., sem hafði eftirfarandi verkefni, með leyfi hæstv, forseta:

„Alþingi ályktar að kjósa 7 manna mþn. til að gera till. um eflingu núverandi atvinnuvega og nýjar atvinnugreinar til framleiðslu- og atvinnuaukningar og hagnýtingar náttúruauðæfa landsins. N. er heimilt að ráða sérfróða menn til að vinna úr gögnum, sem fyrir hendi eru og til vísindalegra rannsókna, eftir því sem hún telur nauðsynlegt vegna starfa sinna. Skulu rannsóknarstofnanir, sem starfa á vegum ríkisins, veita n. aðstoð eftir þörfum. Enn fremur skulu aðrar opinberar stofnanir og embættismenn greiða svo sem verða má fyrir störfum hennar. N. skal gera till. um framkvæmdir og rekstrarform, gera grein fyrir þjóðhagslegri þýðingu framkvæmdanna og fjárþörf og benda á leiðir til fjáröflunar.“

Enn fremur segir í þessari till.:

„Þá skal n. gera till. um, hvernig bezt verði til frambúðar skipulögð og samræmd starfsemi þeirra rannsóknarstofnana, sem nú vinna að rannsóknum á náttúruauðlindum landsins og leita úrræða til að auka og endurbæta afköst í þeim atvinnugreinum. Skal n. endurskoða gildandi lagaákvæði um þessar stofnanir. Nefndarkostnaður greiðist úr ríkissjóði.“

Þetta var samþykkt á Alþingi 20. apríl 1955. Þessi nefnd hlaut síðan nafnið atvinnumálanefnd ríkisins. Hún átti, eins og fram gengur greinilega af ákvörðun Alþingis í sambandi við kosningu hennar, að búa til áætlanir um þróun þeirra gömlu atvinnuvega á Íslandi og um sköpun nýrra atvinnugreina og hafði allar heimildir og allt ráð frá Alþingi til þess að vinna að þessu og fyrirheit um þær fjárveitingar, sem nauðsynlegar væru til slíks. Enda var ekki stílað neitt lágt, þegar þessi n. var sett á laggirnar. Sjálfur formaður Framsfl. þáverandi, hv. 1. þm. Vestf., var kosinn formaður hennar og var það, þangað til hann varð forsrh. Þá var látinn taka við maður, sem ég býst við að hafi verið öllu valdameiri en forsrh. Framsfl., a.m.k. var sú reynsla okkar, sem höfðum með vinstri stjórnina að gera. Það var þáverandi miðstjórnarmeðlimur Framsfl., Vilhjálmur Þór bankastjóri og hefur hann verið formaður þeirrar n. síðan. Og ég býst við, að Framsfl. hafi þótt sínum málum vel fyrir komið, að það væri þar með öruggt og tryggt, hve stórhuga yrði unnið að þessum málum, þar sem valdamesti maður flokksins var settur til þess að vinna í þessu og hafa þar forustu.

Ég skal ekki rekja starfsemi þessarar n. Mönnum er kunnugt um, hv. þm., að hún hefur skilað fyrir nokkrum árum áliti um síðari hluta eða síðasta hluta þessarar ályktunar, um rannsóknarstofnanirnar, en höfuðverkefnið, sem hún átti að vinna, hefur hins vegar farið nokkuð öðruvísi um. Að vísu hefur n. unnið ýmislegt á því sviði. N. hefur rætt um ýmis einstök hugsanleg stóriðjumál. Alúminíumverksmiðja, kísilgúr og ýmislegt annað fleira hefur verið í n. rætt. Enda býst ég við, að verið hafi í n., þegar framkvæmdastjóri hennar er talinn með, sem líka er náskyldur Framsfl., þá hafi verið í n. tveir áhugamestu menn Framsfl. um alúminíumvinnslu á Íslandi. Og þessi mál voru þarna þó nokkuð rædd, en hins vegar aldrei tekin fyrir sem heild: íslenzkt atvinnulíf, möguleikar á þróun þeirra gömlu atvinnugreina og möguleikar á myndun þeirra nýju atvinnugreina, sem var aðalverkefni nefndarinnar.

Nú gerðist það, ég held í s.l. viku, að fulltrúi Framsfl. og formaður n., Vilhjálmur Þór bankastjóri, kallaði þessa n. saman, eftir að hún hafði sofið nokkurn tíma og lagði til, að þar sem n. liti svo á, að hún hefði ekki verkefni að vinna og ýmis verkefni hefðu verið tekin frá henni, þá sæi hún ekki sérstaka ástæðu til starfa. Og þessi till. frá fulltrúum Framsfl. í n. og forustumönnum n. var þar samþ. Ég var einn á móti henni, en ég átti sæti í þessari n. Ég lýsti mig andvígan því, vegna þess að ég áleit, að þessi n. ætti sínu höfuðverkefni ólokið og ætti að vinna að því og þó að ég vissi, að þessi ágæta till. framsóknarmanna var fram komin, þá var ég ekki eins bjartsýnn á góðan vilja hæstv. ríkisstj. eins og Framsfl., að það væri nú öldungis víst, að við fengjum þetta mál gegnum þingið. Það gæti verið alveg eins öruggt að reyna að halda í það gamla, sem maður fékk í gegn fyrir 9 árum, þó að gamalt væri orðið, heldur en að treysta á að geta smíðað nýtt far til þess að hrinda á flot. Ég álít þess vegna, að n. ætti að halda áfram að starfa. N. hefur ekki, svo að mér sé kunnugt um, af hálfu hæstv. ríkisstj. verið neitað um fé til sinna starfa. Það hafa verið tekin einstök mál þarna út og sett í sérstakar n., slíkt getur ríkisstj. alltaf gert. Hún hefur tekið þarna mál eins og kísilgúrmálið. Það hefur síðan verið afgreitt hér á Alþingi. Við það er út af fyrir sig ekkert að athuga. Og þó að sett verði t.d. sérstök stóriðjunefnd af hálfu ríkisstj., þá þýðir það náttúrlega ekki, að fulltrúar Alþingis eigi endilega að líta svo á, að þeir eigi þar með að hætta störfum í nefnd, sem Alþingi hefur falið þeim að sitja í. Það verður þá að reyna á það, hvort stjórnarmeirihl., sem nú er annar en þá, vilji leggja þá n. niður, sem áður hefur verið kosin á Alþingi til að vinna að þessum verkefnum.

Ég álít þess vegna órétt að láta n. raunverulega hætta eða svæfa hana þannig. Hins vegar skal ég segja það, að þó að ég sé á móti því að svæfa þær n., sem við höfum kosið hér áður fyrr á Alþingi og Framsókn hefur haft langa forustu fyrir, þá verð ég náttúrlega ekki á móti því að vekja nýjar n. til lífsins, ef meiningin er, að þessar gömlu n. eigi að svæfa svefninum langa. Þess vegna er náttúrlega út af fyrir sig sjálfsagt að vera með þessari till., svo framarlega sem engin ráð finnast til þess að fá Framsfl til þess að vekja þessa gömlu n. aftur, sem hann svona lengi hefur skipað forustu fyrir.

Ég hef lengi litið svo á, að þessi spursmál um stóriðju á Íslandi væru einhver allra veigamestu málefni, sem yfirleitt við gætum rætt og oft komið með þau hér á Alþingi, venjulega í sambandi við áætlunarráð, sem þau í raun og veru heyra fyrst og fremst undir. Ég skal þess vegna aðeins, eftir að hafa gert þessa athugasemd um sjálfa till. og minnt á það, að það er að vísu gott að flytja góða till., en það er betra að starfa vel í þeim n., sem mönnum er falin forusta í, þá vil ég nú ræða þetta mál, sem hér liggur fyrir.

Það er alveg hárrétt, sem hv. frsm. sagði, að þetta mál er þess eðlis, að framtíð okkar þjóðar, jafnvel þjóðernis, getur að miklu leyti verið undir því komin, hvernig við bregðumst við svona málum. Alþingi hefur áður fyrr borið gæfu til þess að bregðast hraustlega við, þegar hættur hafa verið á ferðinni í þessum efnum. Ég veit, að allir alþm. muna eftir því, að þeir fossar, sem við ræðum um nú, t.d. í Þjórsá og allir íslenzkir fossar að Soginu og Laxá undanteknum voru komnir í eigu erlendra auðhringa um árið 1919. Og það var Alþingi, sem þá greip þannig inn í, að þeir erlendu auðhringar gátu ekki notað þessar auðlindir okkar. Og það er ekki lengra liðið en 18 ár, síðan við keyptum Þjórsá fyrir 3 millj. kr. af því fyrirtæki, sem hafði þá eignazt hana, því að Alþingi hafði gert því fyrirtæki ómögulegt að nota Þjórsá.

Og það er raunverulega svipað á ferðinni nú, þegar það liggur við, að erlendum stórfyrirtækjum sé hleypt hér inn í landið til þess að geta, ef til vill drottnað yfir íslenzku atvinnulífi. Það er þess vegna mjög heppilegt og mjög eðlilegt, að þegar einmitt svona till. eru fluttar eins og þessi, þá sé tækifærið um leið notað til þess að æskja skýrslna frá hæstv. ríkisstj. um, hvernig stendur í þessum málum. Hæstv. dómsmrh., sem hefur með þessi mál að gera, gaf fyrir tveim árum, ef ég man rétt — (Gripið fram í.) fyrir einu ári, þá gaf hann mjög ýtarlega skýrslu um þetta mál og var svo spurður aftur í fyrra, einu sinni að þessu og hafði þá ekki neinu nýju við að bæta. Og það væri vissulega mjög gott nú að fá að heyra, hvort nokkuð sérstakt hefur gerzt þar síðan.

Ég vil mjög taka undir það, sem hv. 1. þm. Austf. og frsm. þessa máls sagði, að í sambandi við hugsanlegan undirbúning samninga við erlenda auðhringa er það mjög óheppilegt að, að slíkum samningum eða samningatilraunum standi einvörðungu þeir menn, sem hafa áhuga á því að fá slíka samninga í gegn. Og þegar pólitíska skiptingin er þannig í þinginu, að t.d. stjórnarflokkar eru fylgjandi slíkum samningum og álíta slíka samninga æskilega, en stjórnarandstaðan gegn því, þá er það fyrir ríkisstj. sjálfa ákaflega heppilegt, að stjórnarandstaðan taki þátt í slíkum samningum, m.a. til þess að geta bent ríkisstj. á, vegna sinnar andstöðu gegn málinu, hvað hættulegast er í því, vegna þess að ekki er það aðeins, að betur sjá augu en auga, líka þeir, sem eru andvígir þessu, koma til með að sjá miklu betur gallana, þarna á, heldur en þeir, sem því eru hliðhollir.

En ég þykist hins vegar vita, að ástandið muni vera þannig í sambandi við kapphlaupið um alúminíumsamningana, að þar muni þeir, sem fremstir hafa verið í flokki í þeirri stóriðjunefnd, sem starfaði af hálfu ríkisstj., hafa fundið til þess, að ef til vill þurfti þó nokkuð mikið til að vekja áhuga alúminíumhringanna fyrir Íslandi. Mér er ósköp vel kunnugt um það, hvílík stórfyrirtæki það eru, sem alúminíumhringarnir eru að leggja í, sérstaklega í Afríku. Það er t.d. sérstaklega í Ghana og Guinea verið með stórkostleg fyrirtæki. Það er allt upp í 400 þús. tonn af alúminíummálmi, sem á að framleiða í einu af þeim stóru raforkuverum, sem þar er verið að setja upp, svo að við getum gert okkur í hugarlund, hvers konar risavaxnir samningar það eru, sem þarna eru gerðir, og hvernig þessir alúminíumhringar, sem hafa svo að segja einokun á þessu um allan hinn kapítalistíska heim, geta látið aðila jafnt í Afríku, Suður-Ameríku sem hér úti á Íslandi keppa í raun og veru um það að ná fjármagni til sín, ef menn álíta eftirsóknarvert að fá það. Þess vegna er svo mikið um þetta í svipinn, að í þeim fagblöðum, sem um þessi mál skrifa, er almennt talið, að 1966 muni verða offramleiðsla á alúminíum í heiminum, og það er alveg vitað, að menn eru farnir að kippa nokkuð að sér hendinni um þetta, ekki hvað sízt vegna þess, hvað friðvænlega lítur út í veröldinni, þannig að menn halda kannske, að það verði ekki eins mikið um notkun alúminíums til hernaðarþarfa og verið hefur undanfarið.

Í sambandi við alúminíumverksmiðjuna er það eitt mál, sem fyrst og fremst hefur verið haldið fram, að það ætti að gera það eftirsóknarvert fyrir okkur að fá hana og það er, að við gætum lagt í stærri raforkuver með slíku móti.

Ég býst ekki við, að það sé neitt leyndarmál fyrir Alþingi eða alþjóð, að fyrir nokkru var skipuð n. af hálfu ríkisstj., sem stjórnarandstæðingar eiga líka ýmsir aðild að eða einstakir stjórnarandstæðingar eru a.m.k. í, sem átti einmitt að athuga um ný raforkuver og samvinnu þeirra aðila, sem undanfarið hafa starfað að raforkumálum á Íslandi, ríkisins, Reykjavíkurbæjar og Akureyrar, að slíku. Ég hef orðið fyllilega var við það í þeim skýrslum, sem okkur hafa þar verið birtar, að ýmsir sérfræðingar, sem af hálfu þess opinbera eru að athuga þessi mál, virðast leggja eindregið til, að það sé lagt í virkjun við Búrfell og gengið út frá alúminíumvinnslu hér syðra, ef hún eigi að koma upp, og látið til að byrja með nægja með olíustöðvar fyrir norðan, ekki einu sinni gert neitt með þann spotta, sem stundum var talað um, að leggja skyldi norður, þegar alúminíumvirkjun yrði gerð. Ég vil segja það fyrir mig, að ég er mjög andvígur þessu og ég býst við, að svo muni vera með fleiri í n., en það hefur um tíma ekki verið haldinn neinn fundur í þessari n. En mér sýnist, að þessi mál séu að komast í hreint óefni hjá okkur, vegna þess að það sé verið að bíða eftir hugsanlegum samningum um alúminíumverksmiðju og sú raforkuvinnsla, sem orðið er Íslandi lífsnauðsyn að leggja í, sé gerð háð þessum vonum, sem kannske reynast tálvonir, kannske reynist verra en það, skaðsamlegri, ef þær rættust. Mér er farið að finnast, að það sé farið að tefja myndun þeirra nauðsynlegu raforkuvera, sem við þurfum að leggja í, vegna hugmynda um alúminíumvinnsluna. Ég held, að við verðum að fara að taka okkar ákvarðanir um raforkuver alveg án tillits til, hvort við ætlum að leggja í alúminíumvinnslu eða ekki.

Ég held þess vegna, um leið og við ræðum þessi mál. þá komust við ekki hjá því að ræða um raforkumálin. Og ég vil aðeins taka það fram, án þess að fara lengra út í þessi mál, að ég álít það mjög orðum aukið, það sem haldið hefur verið fram, hvað alúminíumverksmiðja mundi bjarga okkur mikið í þeim efnum að gera okkur mögulegt að virkja stærra og virkja þess vegna ódýrara. Ég héld, að það væri stærri spurning og meiri hagsmunir Íslands, sem fengjust fram með því að reyna að tryggja ódýrari lán og lægri vexti til raforkuvera heldur en að leggja í stór raforkuver handa alúminíumverksmiðju. Ég vil bara minna á, út frá því, sem hv. frsm. kom inn á, — hann talaði um, að það væru 30 þús. lestir af hreinum alúminíummálmi, sem ætti að framleiða í þeirri verkamiðju, sem hér yrði sett upp, til að byrja með, — að til þess þyrfti 55–60 þús. kw. Ef þetta er stækkað upp í 90 þús. lesta framleiðslu, sem er meðalframleiðsla í Evrópu, þá þurfum við til þess hvorki meira né minna en 160–180 þús. kw., m.ö.o.: svo að segja allt það rafmagn, sem virkjað yrði í Búrfelli. Og hvað hagsmuni landsins snertir, þá vitum við ósköp vel, að þetta rafmagn yrði alveg hræódýrt, öðruvísi fengjum við ekki þessa hringa, nema selja þeim það alveg hræódýrt og það, sem við hefðum upp úr þessu, ef þetta kæmist upp, er vinna fyrir 300–400–500 manns í mesta lagi. Við skulum segja, að það yrði byggt hér syðra, sem þýddi samsvarandi áhrif eins og af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma, þyrfti að leggja nokkrum bátum upp til þess að taka sjómennina þar í vinnu. Ég er þess vegna hræddur um, að það væri ákaflega lítið fyrir okkur hagsmunalega séð að sækjast eftir í þessum efnum. Ég geri mér nefnilega ekki vonir um, að þeir skattar eða tollar eða annað slíkt, sem alúminíumhringarnir kæra sig um að borga, verði svo miklir, að það væri sérstök eftirsókn í því. Ég held þess vegna, að við eigum að fara að ráða þessum raforkumálum okkar og það nú í haust til lykta og taka ákvarðanir í þeim, án þess að hanga lengur yfir þessum alúminíummálum, sem búin eru að tefja okkur allan þennan tíma.

Svo aðeins nokkur orð út af tveim til þrem atriðum, sem fram komu í ræðu hv. 1. þm. Austf. Í fyrsta lagi kom hann inn á spursmálið um samvinnu við erlent auðmagn. Ég vil leyfa mér að spyrja hann án allra umsvifa um afstöðu Framsfl. til alúminíumverksmiðju á Íslandi, af því að ég gerði mér satt að segja, þó að ég hafi ekki allt of háar hugmyndir um Framsfl., vonir um, að það mundi vera það mikið eftir af því gamla bændaeðli í honum, að hann mundi „prinsipielt“ andvígur erlendu auðvaldi á Íslandi. Ég vil leyfa mér að spyrja formann Framsfl. þess vegna, hvort við eigum að skilja hans hugleiðingar svo, að Framsfl. sé með í að hleypa erlendu auðvaldi inn í landið í sambandi við alúminíumvinnslu, ef Jökulsá á Fjöllum verði virkjuð, en sé á móti því að gera slíkt, svo framarlega sem það er Þjórsá, sem er virkjuð, hvort við án allra umsvifa og umbúða megum ekki skilja afstöðu Framsfl. þannig, að við fengjum þetta hreint út.

Ég vil um leið benda á það, — að vísu skal ég ekki alveg fullyrða, hvert aflið er í Jökulsá á Fjöllum, — en hræddur er ég um það, að alúminíumverksmiðjan, ef hún væri þrefölduð, mundi taka það nokkurn veginn allt. Ég vil hins vegar taka það fram um mína afstöðu, að ég er jafnt á móti alúminíumverksmiðju með erlendu fjármagni, hvort sem það er virkjað fyrir norðan eða sunnan eða hvar sem það er gert og treysti okkur Íslendingum sjálfum til þess að ráða við okkar byggðaþróun á Íslandi, ef við kunnum að stjórna okkar eigin málum.

Í öðru lagi vil ég taka undir það, sem hann sagði um tilhneigingar og eðli auðhringa, þar sem þeir komast inn. Það er engin spurning um það, menn hafa verið að ræða um það í sambandi við alúminíumhringinn t.d., sem er einn voldugasti hringur heims, á sína anga víðast hvar, að þegar yrðu ekki nema 200–300 manns í vinnu þarna, þá gæti hann nú varla orðið voldugur. Það fjármagn, sem þar er í 30 þús. lesta framleiðslu, er í stofnkostnaði 1.100 millj. kr. Það, sem mundi þurfa í 90 þús. lesta framleiðslu, er yfir 3.000 millj. kr., sem er álíka fjármagn og nú er í öllum okkar sjávarútvegi, fiskiskipum og fiskiðnaði, þannig að það fjármagn, sem erlendur auðhringur væri búinn að festa hér á Íslandi eftir slíka ráðstöfun, væri samanborið við það, sem er t.d. í Noregi og öðrum slíkum löndum, það væri margfalt, margfalt meira en þekkist í nokkrum slíkum löndum. Það er eðli auðhringa að reyna að ná pólitískum tökum ekki bara á efnahagslífi þeirra landa, þar sem þeir starfa, sem oft kemur nokkuð af sjálfu sér, heldur líka á stjórnmálalífi þeirra. Það er eðlilegt af hálfu auðhringanna að reyna að gera slíkt, því að þeir eiga framtíð sína undir því og vald sitt í landinu og auð sinn í landinu, að þeir nái slíkum pólitískum tökum.

Ef það er t.d. vitað, að stórir flokkar í landinu og margir hópar manna og samtaka stæðu eindregið að því að krefjast þjóðnýtingar slíkra erlendra auðhringa og þeirra fyrirtækja, þegar þau væru komin hér upp, þá er það ósköp eðlileg sjálfabjargarviðleitni slíks auðhrings að reyna að ná slíkum áhrifum í íslenzkum stjórnmálum, að þeir flokkar kæmust ekki til valda, sem þjóðnýttu eignir þeirra. Og um þetta hefur staðið barátta í þorranum af öllum þeim löndum, sem sjálfstæð hafa orðið nú á þessum síðasta áratug í veröldinni, þannig að við Íslendingar ættum að þekkja þetta ósköp vel. Það er þess vegna alveg sjálfsögð árátta af hálfu auðhrings að reyna að ná stjórnmálalegum ítökum í landi til þess að vernda sína hagsmuni. Og það er vitað, að einstakir auðhringir ráða ríkjum, eins og í sumum Mið-Ameríkuríkjunum og Suður-Ameríkuríkjunum, hringir eins og ávaxtahringurinn United Fruits Co. eða tinhringurinn eða aðrir slíkir, þannig að ég vil gjarnan með hv. 1. þm. Austf. undirstrika það, hver hætta er á slíku, því að það er reynt að gera lítið úr því. Ég vil einnig minna á það, að ég þykist vita, hvers konar skatt- og tollfríðindi og annað slíkt og hve ódýrt rafmagn hringurinn mundi heimta sér til handa. Ég vil minna á, að ég gæti trúað, að mörgum íslenzkum atvinnurekendum þætti líka fært að reka ýmsa nýja atvinnu hér á Íslandi, svo fremi þeir fengju sams konar skilyrði, jafnódýrt rafmagn og sams konar skatt- og tollfríðindi og slíkur hringur fengi sér til handa. Og ég vildi mega spyrja þá, sem eitthvað hafa hugsað um slíka samninga fram að þessu Hefur þeim dottið í hug að láta útlenda auðhringa á Íslandi sem hafa margfalt betri aðstöðu til þess að græða vegna síns stórrekstrar, fá kjör, sem væru betri, en íslenzkir atvinnurekendur hafa eða erum við sokknir svo djúpt, að það á að setja íslenzka atvinnurekendur við einhvern óæðri bekk og veita útlendum aðilum einhver sérréttindi og það þó að þeir séu stærri en allir íslenzkir atvinnurekendur kannski samanlagt?

Þá vil ég aðeins minnast á það, sem hv. 1. þm. Austf. sagði viðvíkjandi byggðaþróuninni og mér virtist í raun og veru, að því er ég heyrði á allri hans ræðu, að hann væri ekki hrifinn af því máli, sem þarna var verið að ræða, um útlenda auðvaldið og þess innrás í Ísland. Mér virtist eins og þetta væri hans siðferðilega afdrep í þessu máli, að ef við gætum fengið alúminíumhringinn til þess að ráða við byggðaþróun á Íslandi, þá væri kannske rétt að hleypa honum inn.

Ég vil taka það fram, að ég álít, að við Íslendingar getum ráðið við byggðaþróunina algerlega sjálfir. Við getum losað okkur sjálfir við allt það handahóf, eyðslu og aðra ókosti, sem hann lýsti sjálfur mjög greinilega, að ríkti í núverandi fyrirkomulagi hjá okkur. En til þess er ekki nóg að stofna einhvern sjóð, sem eitthvert fé er veitt í. Til þess þarf að taka yfirstjórn allrar fjárfestingar í hendur ríkisins með áætlunargerð, með áætlunarbúskap. Það er ekkert minna, sem dugir. Og það er þar, sem satt að segja hafa af hálfu Alþb. í heilan áratug verið gerðar tilraunir til þess að koma vitinu fyrir Framsfl. og jafnvel lengur og það hefur ekki tekizt.

Við höfum lengi lagt það til. Sósíalistaflokkurinn áður og Alþb. nú, hér á Alþingi að reyna að koma á slíkri áætlunargerð, þar sem m. a, miðstjórn í slíkum málum réði staðsetningu atvinnutækjanna og það er staðsetning atvinnutækjanna, sem gerir út um það, hvar byggðin kemur upp. Það er hún, sem er uppistaðan og það er hægt að ráða byggðaþróuninni með því að ráða þeirri staðsetningu atvinnutækjanna og með því að láta ekki það blinda lögmál peninganna ráða þarna lengur.

Ég man eftir því, þegar lítil tilraun var gerð um slíkt á nýsköpunartímanum forðum daga, þegar 4 togarar voru staðsettir á Akureyri. Það kostaði þá Sósíalistaflokkinn í bæjarstjórn Akureyrar 10 ára baráttu að fá það fram að koma upp hraðfrystihúsi á Akureyri til þess að láta vinna úr afla þessara togara, — 10 ára baráttu. Þetta var þá m.a. skilningur Framsfl. á því að efla byggðaþróunina og gera Akureyri að borg, svo að ég ekki tali um afstöðuna til togaranna. Við getum myndað hér aðra stóra bæi og séð um, að svo og svo mikið af þeirri gífurlegu viðbót, sem á hverju ári safnast núna á nokkur nes við Faxaflóann, komi annars staðar á Íslandi, með því að stjórna þessari þróun og þetta höfum við lagt til ár eftir ár. Þetta lögðum við til og þetta sömdum við um við Framsfl., þegar vinstri stjórnin var mynduð og þetta sveik Framsfl. okkur um að gera og neitaði allan tímann, m.a. till., sem bæði Alþb. og Alþfl. voru sammála um, um að koma á áætlunarbúskap og um að tryggja það, að yfirstjórn Seðlabankans væri um leið yfirstjórn í slíkri áætlunargerð, þannig að það væri sameinað í eitt valdið yfir lánveitingunum á Íslandi og lánapólitíkin og þar með möguleikinn til þess að staðsetja atvinnutækin og það væri gert samkv. áætlun. En Framsfl. neitaði slíku.

Þess vegna vil ég aðeins minna á það í sambandi við það frv., sem ég er búinn að flytja ár eftir ár á Alþingi um áætlunarráð ríkisins, þar sem ég tek t.d. fram í grg. um byggðaþróunina, þegar ég er að undirstrika atriði síðustu málsgr. í 3. gr. þess frv., þar sem stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Áætlunarráðið skal og gera áætlanir um, hvar tæki skuli staðsett og tillögur um byggingar, byggðaþróun og aðrar framkvæmdir í því sambandi.“

Og í grg. stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Það skal sérstaklega undirstrika gildi síðustu málsgr. um staðsetningu atvinnutækja, byggðaþróun o.s.frv. Það er mikil nauðsyn eigi aðeins þjóðarbúskap vorum, heldur og þjóðerni voru og þjóðarerfðum, að breytt verði um frá því, sem nú er, að láta blint lögmál peninganna ráða byggðaþróun í landinu með þeim afleiðingum, að aukning þjóðarinnar safnast á einn stað: Reykjavík og nágrenni og Reykjanes. Með viturlegum áætlunarbúskap getur þjóðin sjálf stjórnað þessari þróun, látið allstóra bæi rísa í hinum ýmsu fjórðungum landsins, þar sem skilyrði eru hagstæðust, með því að beina þangað fjármagni og framleiðslutækjum.“

Það er þess vegna í raun og veru ánægjulegt, að Framsfl. skuli nú loksins vera að átti sig ofurlítið á þessum málum. Það er að vísu slæmt, að hann skuli gera það, þegar hann er í stjórnarandstöðu. Það hefði verið betra, að hann hefði gert það, þegar við höfðum sameiginlega völdin til þess að framkvæma þessa hluti, sem við nú erum að óska eftir. Ég vil samt lýsa ánægju minni yfir því, að Framsfl. skuli nú leggja til að lífga við nýja n. í stað þeirrar, sem hann hefur drepið eða svæft og er algerlega fylgjandi því að lífga við og skapa þessa nýju n., fyrst sú gamla á víst að svæfast svefninum langa. Ég vil líka lýsa ánægju minni yfir því, að Framsfl. skuli vera kominn inn á það, að þjóðin verði sjálf að reyna að stjórna sinni byggðaþróun og vil vona, að hann beri gæfu til þess að læra, hvaða tækjum og aðferðum þarf að beita til þess að stjórna á þennan máta. Það þýðir að vísu, að við erum að óska eftir því nú, að beitt sé aðferðum, sem við höfðum aðstöðu til þess að beita 1956–58 og vanrækt var vegna skilningsleysis og þjösnaskapar að beita þá, en við skulum vona það, og ég skal alveg taka undir hans ósk til hæstv. ríkisstj. og stjórnarmeirihl., að þeir mættu bera gæfu til þess að skilja, að þessa till. þurfi að samþ., sem hér er og vinna nú skjótt að því, ekki láta hana sofa í nein 9 ár, heldur vinna nú þegar að því, þannig að á þessu þingi væri hægt að taka upp þau vinnubrögð, sem þurft hefði að taka upp fyrir mörgum árum.