04.11.1964
Sameinað þing: 8. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í D-deild Alþingistíðinda. (2834)

13. mál, stóriðjumál

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Till. sú, sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir því, að Alþingi kjósi 7 manna nefnd til þess að kynna sér niðurstöður þeirra rannsókna á stórvirkjunarmöguleikum og varðandi stóriðjumálin, sem nú liggja fyrir. Þegar þessi mál voru rædd hér á síðasta þingi, lýsti ég því yfir fyrir hönd okkar Alþb.-manna, að við værum samþykkir þessari till. og við teldum, að full ástæða væri til, að slík nefnd yrði skipuð af Alþingi til þess að taka upp athugun á þessum mjög svo veigamiklu málum. Ég vil ítreka þessa yfirlýsingu hér enn einu sinni.

Við teljum, að það sé ástæða til þess, að Alþingi fái að kynna sér til hlítar þessi mál og fái að skyggnast í öll þau gögn, sem fyrir liggja og fram hafa komið í þeim rannsóknum, sem þarna hafa átt sér stað nú nokkuð á fjórða ár. Ég hygg, að liðin séu rúm 3 ár eða eitthvað nokkuð á fjórða ár, síðan hæstv. ríkisstj. skipaði sína stóriðjunefnd, að vísu með þeim sérstaka hætti, að hún birti enga tilkynningu um það, að slík nefnd hefði verið sett á laggirnar, en það fóru smátt og smátt að berast fréttir af því, að n. væri til og m.a. fréttum við það úr erlendum blöðum, að menn úr þessari nefnd væru þar staddir til þess að ræða þar við ýmsar fjármálastofnanir og ýmsa aðra erlenda aðila um þessi mál. Nú höfum við einnig séð það á ríkisreikningi þeim, sem nýlega var útbýtt hér á Alþingi, að ríkisstj. hefur þegar greitt út allmyndarlegar fjárhæðir til þeirra aðila, sem í þessum rannsóknum hafa staðið. Frá því er m.a. skýrt nú, að á s.l. ári 1963, hafi nm. í þessari svonefndu stóriðjunefnd verið greiddar 225 þús. kr. aðeins í þóknun fyrir sín störf. Sérfræðileg aðstoð hefur einnig verið greidd vegna starfa þessarar n., sem nemur rúmum 203 þús. kr. Og einnig er skýrt frá því, að greitt hafi verið til einhverra aðila vegna rannsóknar á byggingu olíuhreinsunarstöðvar 291 þús. kr. á þessu ári, 1963. Þá vitum við einnig, að rannsóknarkostnaður í sambandi við virkjunarframkvæmdir, sem standa í beinu sambandi við stóriðjumálin, skiptir orðið tugum millj. kr. á síðustu árum, svo að það er vitanlega full ástæða til, eins og unnið hefur verið að þessum málum, að Alþingi fái að skyggnast í þau gögn, sem fyrir liggja og fram hafa komið varðandi þessi stóru mál.

Það er með öllu óviðunandi að heyra það frá hæstv. ríkisstj., eins og hér var endurtekið nú af hæstv. iðnmrh., að það sé ætlun ríkisstj. að leyfa Alþingi að fylgjast með þessum málum og marka afstöðuna um afgreiðslu þessara mála, en halda þó þannig á málinu, að Alþingi sé raunverulega haldið fyrir utan allan undirbúning málsins, alla undirbúningsathugun á málinu. Það er vitanlega ekki nema aðeins að forminu til, að Alþingi verði gefinn kostur á því að marka afstöðu um afgreiðslu í málinu, ef Alþingi á að standa frammi fyrir því á sínum tíma, að ríkisstj. gerir till. um ákveðna lausn á málinu, leggur fram frv., sem hún óskar eftir að verði hér staðfest, sem auðvitað eru byggð á tiltölulega einhliða rannsókn eða athugun á þessum málum af hálfu þeirrar n., sem ríkisstj. hefur í málið sett. Það þýðir í rauninni að svipta Alþingi sem heild möguleika á því að geta tekið afstöðu til málsins með eðlilegum hætti. Slík mál sem þessi eru svo viðamikil og flókin, að það er engin aðstaða til þess, að Alþingi geti tekið afstöðu til afgreiðslu málsins á viðunandi hátt, nema, Alþingi hafi fengið tíma til þess að fylgjast með undirbúningsathugunum á málinu. Og það er einmitt það, sem er verið að fara fram á með þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir, að n. verði skipuð af hálfu Alþingis, sem fái að kynna sér öll þau gögn, sem fram hafa komið, nú eftir þriggja ára undirbúningsvinnu í málinu og að innan slíkrar nefndar gætu farið fram eðlilegar viðræður um sjónarmið í þessum stórmálum og í gegnum n. gæfist öllum þingflokkunum kostur á því að láta sín sjónarmið koma fram, áður en hin raunverulega afstaða hefur verið tekin til málsins í ríkisstj. Ég vil nú fyrir mitt leyti skora á hæstv. ríkisstj. enn einu sinni, að hún endurskoði sína afstöðu í þessum málum með tilliti til þessarar sérstöku beiðni, að það verði skipuð slík nefnd sem þessi og þingflokkunum öllum verði gefinn kostur á því að fylgjast með undirbúningi málsins. Ríkisstj. hefur að sjálfsögðu alla möguleika til þess að láta fara fram þá sérstöku athugun, sem hún óskar eftir, eftir sem áður. Spurningin er aðeins um það: Á að leyfa Alþingi sem heild, flokkunum öllum að fylgjast með undirbúningi málsins, eða á að halda næstum að segja helmingi alþm. fyrir utan og meira og minna óvitandi um það, hvað fer fram um undirbúning þessara mála?

Ég held, að hæstv. ríkisstj. geti ekki verið þekkt fyrir það að halda öllu lengur á þessu máli á þann hátt, sem hún hefur gert. Það hefur komið hér fram frá hæstv. ríkisstj., að henni er vel kunnugt um það, að skoðanir eru skiptar meðal landsmanna og meðal alþm. um það, hversu réttmætt er að ráðast í þá stóriðju, sem hér hefur aðallega verið rætt um og hversu réttmætt það sé eða nauðsynlegt fyrir okkur að leyfa erlendu fjármagni að komast inn í íslenzkt atvinnulíf. Um þetta eru skiptar skoðanir. Og einmitt vegna þess, að þessar skiptu skoðanir liggja fyrir, er ekki óeðlilegt, að öllum aðilum, sem hér eiga hlut að máli, verði gefinn kostur á því að koma sínum sjónarmiðum fram einmitt á undirbúningsskeiði málsins.

Mig langar til þess að fara hér örfáum orðum um stóriðjumálin sem slík. ég held, að það gæti ekki leikið nokkur vafi á því, hver er ástæðan til þess, að um það hefur verið rætt nú síðustu árin að efna til stóriðju á Íslandi. — stóriðju eins og t.d. byggingu alúminíumverksmiðju, því að vitanlega hljóta að vera einhverjar ástæður fyrir því, að menn hafa tekið það upp að berjast fyrir því, að í þessar stóru framkvæmdir yrði ráðizt. Ástæðurnar hafa komið mjög skýrt fram hjá þeim aðilum, sem mest hafa opinberlega um þetta ritað, en það eru einmitt efnahagsmálasérgræðingar ríkisstj. Þeir hafa sagt með alveg skýrum orðum, að ástæðurnar séu þær, að svo sé komið með okkar íslenzku atvinnuvegi, þ.e.a.s. sjávarútveg, landbúnað og þann iðnað, sem hér hefur mest borið á, að þessir atvinnuvegir muni ekki duga okkur á næstu árum. Það er ekki hægt að halda uppi hliðstæðri hagþróun á Íalandi eins og allar líkur benda til að muni verða hér í löndunum í kringum okkur, ef við höldum áfram að byggja á þessum atvinnuvegum sem undirstöðu. Um þetta hafa þeir báðir, bæði Jónas Haralz og Jóhannes Nordal, skrifað mjög greinilegt mál, þetta væri grundvallarástæðan fyrir því, að menn nú töluðu um, að það þyrfti að koma upp stóriðju á Íslandi, það yrði að leita nýrra úrræða, til þess að við gætum aukið okkar þjóðartekjur til jafns við aðrar þjóðir. Ég skal ekki í þessum umr. fara út í það, hvaða útreikninga þeir lögðu til grundvallar um vaxtarmöguleika bæði sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, en um það hafa þeir birt allgreinilegar skýrslur og tölur, hvaða áætlanir þeir þar gerðu um vaxtar möguleika þessara atvinnuvega á komandi árum. En niðurstaða þeirra var sem sagt sú, að vaxtarmöguleikarnir í þessum atvinnugreinum væru svo litlir, að við hlytum að dragast aftur úr í efnahagsþróuninni borið saman t.d. við nágrannalönd. Og þá þurfti að reyna að finna eitthvert nýtt úrræði, reyna að koma upp einhverri nýrri framleiðslu hér á Íslandi, sem leyst gæti vandann.

Nú hefur auðvitað þróunin sýnt það, að þessir útreikningar þessara ágætu manna hafa reynzt alrangir. Vaxtarmöguleikinn t.d. í sjávarútveginum hefur reynzt miklum mun meiri, en þeir reiknuðu með, og vöxtur þjóðarteknanna hefur að sama skapi vaxið langt umfram það, sem þeir reiknuðu með.

En ég kem þá að hinu: Hvaða möguleikar eru þá tengdir við það að ráðast t.d. í byggingu alúminíumverksmiðju af þeirri stærð sem hér hefur verið rætt um, fyrir okkar þjóðarframleiðslu, hvaða vinningur mundi fást við það að ráðast í slíka framleiðslu og hverju þarf til að kosta? Nýlega var frá því skýrt af einum nm., sem starfað hefur í stóriðjunefndinni, í sérstökum útvarpsþætti, að hann reiknaði með, að alúminíumverksmiðjan og hið mikla raforkuver, sem henni verður að fylgja, mundi færa Íslendingum í kringum 120 millj. kr. á ári í auknar gjaldeyristekjur. Auðvitað sjá allir, að þetta út af fyrir sig, þó að rétt væri, sem ég vil nú gera sérstaka aths. við á eftir, það getur ekki ráðið neinum úrslitum, bygging þessarar verkamiðju, út af fyrir sig, getur ekki ráðið neinum úrslitum um hagvöxt á Íslandi á næstu árum eða um okkar heildarþjóðartekjur, því að hér er um svo tiltölulega litla framleiðslu að ræða borið saman við okkar heildarframleiðslu, að þetta dregur sáralítið. Það er því rétt að gera sér strax í upphafi grein fyrir því, að auðvitað dettur þeim ekki í hug, sem tala um nauðsyn þess að koma upp stóriðju á Íslandi og hafa eitthvað grundað sínar skoðanir í þeim efnum, að það sé þessi eina alúminíumverksmiðja, sem um er að ræða. Í þeirra hugum er þessi alúminíumverksmiðja aðeins fyrsta skrefið í sambandi við stóriðju, sem útlendingar þurfa að koma hér upp og verða að reka. Það er því vitanlega ekki hægt að líta á þetta mál þannig. Hvorki út frá efnahagslegu sjónarmiði séð né í sambandi við þær hættur, sem menn sjá af því, að erlent fjármagn fari að hreiðra um sig í íslenzku atvinnulífi, þá er vitanlega ekki hægt að líta á þetta mál, sem hér er um að ræða, aðeins út frá því, hvort eigi að byggja eina alúminíumverksmiðju af þessari stærð eða ekki.

Þessi framleiðsla upp á 120 millj. kr. í auknum gjaldeyristekjum á ári er sem sagt sáralítil, þegar sjávarútvegur okkar á hverju ári framleiðir nú gjaldeyrisverðmæti fyrir yfir 4.000 millj. kr.

En er það nú víst, að málin séu svona, eins og þessi stóriðjunefndarmaður sagði í útvarpsþættinum, að við eigum von á því, að þessi alúminíumverksmiðja muni veita okkur auknar gjaldeyristekjur á hverju ári, sem nemi 120 millj. kr. og hér sé um raunverulegan, hreinan vinning að ræða í okkar tekjuöflun? Nei, því fer alls fjarri. Sannleikurinn er sá, að þeir hafa báðir, þeir mætu menn, sem ég minntist hér á fyrr í minni ræðu, Jóhannes Nordal. bankastjóri Seðlabankans, og Jónas Haralz, þeir hafa gert þessu allt önnur skil, þar sem þeir hafa rætt um þetta. Jóhannes Nordal hélt um þessi mál mjög ýtarlega ræðu á þingi íslenzkra verkfræðinga fyrir rúmum 2 árum og birti þar sína útreikninga. Þessir útreikningar sýndu, að hið mikla raforkuver, sem mundi kosta okkur 1.100–1.300 millj. kr. að koma upp og að hálfu leyti yrði byggt fyrir alúminíumverksmiðjuna og alúminíumverksmiðjan, sem kostar álíka upphæð, mundu þýða fyrir okkur Íslendinga það, að a.m.k. á fyrstu 10 árunum, eftir að raforkuverinu mikla væri komið upp og alúminíumverksmiðjunni væri komið upp, yrði um bein gjaldeyrisútgjöld hjá okkur Íslendingum að ræða, við þyrftum að borga meira úr landi en við fengjum inn í gjaldeyri samkv. útreikningum þessara ágætu manna. Þær afborganir, sem við yrðum að standa undir af hinu mikla raforkuveri og þær vaxtagreiðslur, sem við yrðum að standa undir, næmu á fyrstu árunum hærri fjárhæðum, en við fengjum inn fyrir selda raforku. Þar yrði því um beinan halla að ræða. Þetta er auðvitað ekkert nýtt. Þetta er það, sem við eigum að venjast í sambandi við það að koma upp miklum raforkuverum. Þar verður alla jafna um nokkurn hallarekstur að ræða fyrstu árin, en svo, þegar fer að líða á starfstímann, þá verða þetta mjög hagstæð fyrirtæki og geta skilað nokkrum ágóða. En hitt er hins vegar alveg rétt, sem sjálfsagt er að komi skýrt fram, að sá hagnaður, sem Íslendingar gera sér vonir um í sambandi við þessar miklu framkvæmdir, liggur í tvennu aðallega. Í fyrsta lagi liggur hann í því, að með því að virkja hina stóru virkjun, sem ekki verður aðeins fyrir þörf Íslendinga, heldur einnig fyrir þörf alúminíumverksmiðjunnar, er hægt að koma upp raforkuveri fyrir Íslendinga, sem kostar nokkru minni fjárhæð, miðað við stærð, heldur en þær virkjanir mundu kosta, sem væru ætlaðar Íslendingum einum. Það yrðu möguleikar á því að framleiða rafmagn í hinu nýja orkuveri, sem væri nokkru ódýrara, en það rafmagn yrði, sem framleitt yrði í minna orkuveri. Hér er þó ekki um ýkjaháar upphæðir að ræða, en það vitanlega dregur sig saman í mikilli orkuframleiðslu og það á mörgum árum. Þetta er annað vinningsatriðið, en hitt liggur í því, að þegar þetta mikla raforkuver, sem Íslendingar væru að ráðast í á þennan hátt, hefði starfað t.d. í 25 ár, væri það að mestu leyti búið að borga sig niður og það væri komið a.m.k. niður í mjög lágt stofnverð. En þá er hins vegar talið, að þetta orkuver geti orðið okkur að miklu gagni áfram í næstu 25 ár. Við mundum sem sagt á næstu 25 árunum að langmestu leyti eignast þetta orkuver og á síðari 25 árunum vitanlega, mundi það vera okkur mjög hagstætt fyrirtæki og við mundum græða á því. Þetta er hið sama og gerist með og hefur verið að gerast með öll okkar raforkuver.

Þetta eru þau tvö meginatriði, sem efnahagalega séð eru jákvæð fyrir okkur Íslendinga. En hitt er rangt, að halda því fram, að þó að við réðumst í byggingu þessa mikla orkuvers og heimilaður útlendingum að byggja hér í sambandi við það umrædda alúminíumverksmiðju, að það yrði til þess að bjarga okkar gjaldeyrismálum eða fjárhagsmálum almennt á næstu árum. Það yrði þvert á móti til þess að íþyngja hjá okkur. Og það er eins og ég sagði áðan, að jafnvel þó að maður tæki þá upphæð, sem hér var nefnd af einum stóriðjunefndarmanni, að hér gæti verið um að ræða 120 millj. kr. gjaldeyrishagnað, þá vitanlega skiptir það tiltölulega litlu í sambandi við afkomu okkar í heild. Ég býst við því, að þessi tala sé þannig til komin, að raunverulega er verið að breyta því vinnuafli, sem ætlazt er til að við leggjum fram í sambandi við alúminíumvinnsluna, það er verið að breyta því vinnuafli í gjaldeyri og segja, að það sé hagnaður okkur til handa. En það væri aðeins hagnaður okkur til handa, ef um það væri að ræða, að þetta vinnuafl yrði að liggja ónotað ella. En við höfum nóg að gera fyrir þetta vinnuafl og í ýmsum öðrum greinum, þar sem það mundi skila miklu meiri gjaldeyrisframleiðslu, en ef við ráðstöfuðum því á þennan hátt og það er mergurinn málsins.

Nei, það, sem skiptir því höfuðmáli í þessum efnum, er að gera sér grein fyrir því, að þetta stóra mál, sem hér er um rætt, getur aldrei snúizt út af fyrir sig um þessa alúminíumverksmiðju eina, sem hér er aðallega rætt um að koma upp. Hún getur engin úrslitaáhrif haft í þessum efnum. En með því að leggja inn á þessa braut er verið að taka „prinsip“-afstöðu í veigamiklu máli, því að það er alveg gefið mál, að á eftir mundu þeir menn koma fram sem segðu: Hvers vegna ekki að heimila þeim að stækka verksmiðjuna, t.d. að þrefalda afköstin? Hvers vegna ekki að heimila þeim aðrar framkvæmdir, eins og að byggja olíuhreinsunarstöð? Og þeir eru þegar byrjaðir á að nefna hana. Og hvers vegna ekki að heimila þeim ýmsan annan rekstur í landinu? Er alúminíumframleiðsla eða olíuhreinsun svo sérstaks eðlis, að það eigi að taka slíka framleiðslu alveg út úr og heimila erlendum aðilum að stunda slíkan atvinnurekstur á Íslandi, en neita þeim um að taka þátt í ýmissa konar annarri framleiðslu? Nei, auðvitað eru engar sérstakar ástæður til þess, nema þá þær einar, að menn segðu: Við viljum ekki heimila erlendu fjármagni að ráða yfir íslenzku atvinnulífi að meiri hluta en sem nemur einni lítilli alúminíumverksmiðju.

En það er einmitt þetta, sem ræður úrslitum um það að mínum dómi, að hér er um stórkostlega varhugavert mál að ræða, að ætla að ganga inn á þá braut að heimila erlendu auðmagni að komast inn í íslenzkt atvinnulíf. Eins og hér hefur verið bent á af ýmsum, eru auðvitað til mörg dæmi um það úr öðrum löndum, hvaða vandkvæði slíku geta fylgt. Ég ætla aðeins að benda á eitt atriði, af því að ég las um það fyrir ekki löngu í sambandi við stjórnmálaumr., sem þá fóru fram í því tiltölulega auðuga og mikla landi, Kanada, en þá kom í ljós í stjórnmálaumr. þar, að þar töldu forustumenn, að eitt af mestu vandamálum ríkisstj. þar í landi væri bundið við það, að svo væri komið, að stjórnarvöld í Kanada réðu ekki yfir þýðingarmestu þáttum síns atvinnulífs, þeir væru í höndum erlendra aðila og þar með höfðu stjórnarvöldin þar í landi ekki nema mjög takmarkaða getu til að hafa áhrif á útþenslu og uppbyggingu atvinnuveganna í landinu. Í Kanada eiga menn við að stríða mikið atvinnuleysi og það er því afgerandi mál þar hjá ríkisstj. landsins að finna leiðir til þess, hvernig á að komast fram hjá þessu mikla atvinnuleysi, hvaða nýjar atvinnugreinar eiga að taka við því fólki, sem bætist við á vinnumarkaðinn hverju sinni. En ef erlendir aðilar, sem stjórnarvöldin þar í landi ráða ekki, nema lítið yfir, eru einráðir um það að ráðstafa afrakstri atvinnuveganna, þá vitanlega sjá allir, að stjórnarvöldin hafa takmarkað vald til þess að ráða við slíkt vandamál eins og t.d. mikið atvinnuleysi er, því að það er eðli málanna, að það er atvinnulífið sjálft, sem að meira eða minna leyti leggur fram það stofnfé, sem þarf til áframhaldandi uppbyggingar og útþenslu. Vitanlega mundum við hér geta staðið frammi fyrir sams konar vandamálum, ef svo væri komið, að verulegur hluti af íslenzku atvinnulífi væri upp byggður með þeim hætti, að erlendir aðilar ættu atvinnufyrirtækin og ættu einir ráðstöfunarrétt á þeim hagnaði, sem þar félli til, því að það væri þeirra mál að ákveða það, hvort þeir vildu setja þennan hagnað í nýja uppbyggingu, stækkun eða aukna framleiðslu. Þetta mál snýst því um hvorki meira né minna en efnahagslegt sjálfstæði.

Sumir þeir aðilar, sem vilja halda á lofti, að það sé mikil þörf fyrir okkur Íslendinga að ráðast í svonefnda stóriðju, gera mjög mikið úr þeim auðlindum, sem við Íslendingar eigum í okkar fallvötnum og það sé alveg nauðsynlegt, fyrst við ekki getum sjálfir virkjað þessar auðlindir okkur til hagsbóta, að gefa erlendum aðilum kost á því að notfæra sér þessar auðlindir. En sannleikurinn er nú sá, að þessar auðlindir okkar, sem vissulega eru dýrmætar, eru þó ekki óþrjótandi, því fer alls fjarri. Og ég vil biðja menn um að athuga það, að þeir okkar vísindamenn, sem bezt vita um þessi mál, hafa bent á, að virkjanlegt vatnsafl á Íslandi með hagstæðu móti er ekki talið meira en svo, að það eigi að endast okkur Íslendingum aðeins í 50 ár, ef vöxturinn hér á landi verður með svipuðum hætti varðandi raforkunotkun og hann hefur verið í háþróuðum iðnaðarlöndum hér í kringum okkur. M.ö.a.: þessi orkulind, sem við eigum að vísu þarna og eigum vitanlega að notfæra okkur, er þó ekki meiri en þetta. Það sýnist ekki vera nein brýn nauðsyn á því að reyna að selja þessar orkulindir úr landi, ekki sízt ef sá böggull skyldi fylgja, sem ég hef hér minnzt á um áhrif erlendra aðila í íslenzku atvinnulífi.

Nei, hitt er mönnum nú að verða miklu ljósara en áður, að það er margt annað en t.d. undirstöðuraforka, sem hefur afgerandi áhrif á þróun efnahagmálanna í hverju landi. Þetta atriði kom mjög skýrt fram á landsráðstefnu verkfræðinga, sem haldin var hér fyrir rúmum 2 árum, en þá bentu m.a. okkar færustu menn í þessum efnum einmitt á þessa staðreynd, að það hefði sýnt sig, að það hefði alls ekki skipt neinu meginmáli varðandi hin iðnþróuðu lönd, hvort þau áttu við að búa sérstaklega hagstæðar orkulindir frá náttúrunnar hendi eða ekki. Þeir drógu fram staðreyndir eins og þær, að það hefði síður en svo skipt höfuðmáli um iðnþróun í Noregi annars vegar og Hollandi eða Danmörku hins vegar, að Noregur hafði miklu meiri og ódýrari undirstöðuorku, en hinar tvær þjóðirnar. Við einstaka framleiðslu hefur þessi undirstöðuorka afgerandi þýðingu, en í miklu fleiri greinum er það annað, sem ræður þarna úrslitum.

Ég held, að bæði þessi atriði, sem ég hef minnzt hér , og þau, sem aðrir ræðumenn hafa minnzt á í þessum umr. varðandi stóriðjumálin sýni, að það er full ástæða til þess, að þessi mál fáist rædd á þann hátt, að ríkisstj. liggi ekki á neinum upplýsingum varðandi þessi mál og að hin ýmsu sjónarmið fái að koma fram um það, hvaða leiðir er réttast að velja í þessum efnum, en það sé ekki unnið að málunum með því pukri, sem verið hefur gagnvart Alþingi og á þann hátt, sem verið hefur gagnvart almenningi í landinu, þar sem hann hefur alls ekki fengið réttar upplýsingar um það, hvað er í raun og veru verið að tefla í sambandi við spurninguna um stóriðju. Það er enginn vafi á því, að margir þeir aðilar, sem hafa hallazt að því að heimila erlendu fjármagni að taka þátt í atvinnulífi hér á landi og hafa hallazt að því, að efnt yrði til stóriðju, þeir hafa gert sér allt aðrar hugmyndir um það, hvað á bak við þetta í raun og veru er, heldur en rétt er.

Það er nú komið allmikið fram yfir venjulegan fundartíma og ég skal því láta máli mínu lokið að þessu sinni, en ég vildi að lokum aðeins endurtaka áskorun mína til hæstv. ríkisstj. um það, að hún fallist á, að slík nefnd verði kosin af Alþingi, sem gert er ráð fyrir á þessari till. eða þá að ríkisstj. efni til þess með öðrum hætti, að þingflokkarnir allir fái aðstöðu til þess að fylgjast með öllum undirbúningi þessa mikla máls og að almennar umr. geti farið fram hér á Alþingi um málið, meðan það er á undirbúningsstigi, en að Alþingi verði ekki í raun og veru stillt þarna frammi fyrir gerðum hlut.