06.11.1964
Sameinað þing: 9. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (2837)
13. mál, stóriðjumál
Flm. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Það eru nokkur orð út af ræðu hv. 3. þm. Reykv. (EOl) og hæstv. ráðh.
Hv. 3. þm. Reykv. blandaði inn í þetta óskyldum efnum og kastaði nokkrum hnútum að Framsfl., sem ég mun láta liggja á millj. mála að svo stöddu. Það er ekki ástæða til að blanda neinu öðru inn í þetta mál. En eitt atriði minntist hann á, sem ég þarf að skýra. Hann sagði, að honum fyndist nær, að framsóknarmenn létu vinna af sinni hendi í atvinnumálanefnd ríkisins, en að leggja til, að settar væru á fót nýjar nefndir af því tagi, sem hér er gerð uppástunga um. Hann sagði, að formaður þessarar n., atvinnumálanefndar ríkisins, sem væri Vilhjálmur Þór, hefði lagt til, að n. yrði lögð niður. Fyrst vil ég segja, að Vilhjálmur Þór hefur ekkert samráð haft, hvorki við mig né Framsfl. um það, hvað hann hefur lagt til á þessari atvinnumálanefnd ríkisins varðandi störf hennar eða fyrirkomulag á störfum hennar, svo að það er hans mál þar af leiðandi, en ekki flokksins upp á hverju hann hefur stungið. En ég forvitnaðist um, hvað þarna hefur gerzt, út af því, sem hv. þm. sagði, þar sem hann tók það fram, að Vilhjálmur Þór hefði lagt það til, að n. yrði lögð niður. (EOl: Ég sagði aldrei: lögð niður.) Ég bið hv. þm. afsökunar, ef ég hef misskilið, en ég skildi það svo, að hann hefði lagt til, að nefndin yrði lögð niður. En þá hef ég misskilið og þá upplýsist það rétta, því að ég hef kynnt mér, hvað það var, sem Vilhjálmur Þór lagði til, en það var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Atvinnumálanefnd taldi þegar í upphafi eitt meginverkefni sitt að undirbúa löggjöf um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Því verki lauk hún á árinu 1962. Síðan hefur nefndin ekki fengið verkefni til meðferðar, núv. ríkisstj. hefur beint þeim annað. N. telur því ekki ástæðu til þess að starfa, eins og nú standa sakir.“
Þetta er mér sagt, að það hafi verið, sem þarna kom fram. En ég skildi hv. þm. þannig, og þannig held ég að aðrir hafi skilið hann líka, að það hafi verið gerð till. um að leggja n. niður.
Hér er það rétta upplýst í þessu. En þessa till. hefur Vilhjálmur Þór ekki flutt að neinu leyti í samráði við Framsfl. eða mig, svo að það er úr lausu lofti gripið, sem hv. þm. vildi víst láta koma fram, að Framsfl. hafi setið af sér eitthvert tækifæri til þess að hafa áhrif á meðferð þessara stórvirkjunar- og stóriðjumála með því að eiga hlut að þessari afstöðu, sem þarna kemur fram.
Þá er rétt, að það komi fram, að eins og hv. þm. veit, er þetta nálega óviðkomandi þessu máli, sem hér er verið að tala um, vegna þess að þessi nefnd hefur ekki fengið neinar af þeim upplýsingum varðandi stórvirkjanir og stóriðjumálin, sem við viljum að komi fram, sem leggjum til, að þessi mþn. verði kosin. Það getur því ekki verið ætlun þessa hv. þm., að þessi þáltill. sé óþörf. Hann er þá, ekki einlægur í málinu, ef hann hefur verið að segja þetta til að gefa í skyn, að þessi þáltill. væri óþörf, því að þessi atvinnumálanefnd hefur engum tökum náð á þessum stórvirkjunar eða stóriðjumálum, og eftir því sem ég bezt veit, hefur hún ekki átt aðgang að þeim upplýsingum, sem við viljum fá fram í nýju mþn. Það gefur einnig auga leið, að þessi hv. þm., sem eftir því sem ég bezt veit á sæti í atvinnumálanefndinni, — er það ekki rétt? (EOl: Jú.) veit það, sem máli skiptir í þessu sambandi, að atvinnumálanefndin hefur ekki náð tilgangi sínum í þessum stóru málum. Það hefur hún áreiðanlega ekki gert og þess vegna var náttúrlega út í hött hjá hv. þm. að vera að blanda þessu hér inni í. Reynslan yrði líka sú, að jafnvel þó að hægt yrði nú að láta atvinnumálanefndina halda áfram að starfa, sem ég mundi fyrir mitt leyti telja eðlilegt, þá mundi ekki vera hægt að ná inn í þá n. þeim upplýsingum, sem víð gerum ráð fyrir að fá inn í mþn. um stórvirkjunar- og stóriðjumálin. Reynslan er einnig ólygnust í þessu. Stjórnin yrði þá að gerbreyta um allan aðbúnað að atvinnumálanefndinni og það vottar ekki fyrir neinu slíku. Stjórnin hefur meira að segja, til þess að geta gengið fram hjá atvinnumálanefndinni, sett á sínum vegum nýja stóriðjunefnd, þar sem enginn fulltrúi er frá stjörnuandstæðingum. Ríkisstj. hefur því miður ekki viljað hafa neina samvinnu við stjórnarandstæðinga við undirbúning stórvirkjunar- og stóriðjumálanna. Þess vegna hefur verið gengið fram hjá atvinnumálanefndinni í því sambandi og þess vegna hefur verið skipuð ný stóriðjunefnd á vegum stjórnarinnar. Þetta teljum við, sem flytjum þessa þáltill., alveg ranga stefnu og teljum, að í staðinn fyrir þessi vinnubrögð þurfi að koma önnur alveg ný, sem séu fólgin í því að setja upp sérstaka mþn. Og ef hv. þm. er einlæglega með því, að slíkur háttur verði á hafður, þá finnst mér, að þessi útúrdúr hans um atvinnumálanefndina hafi ekki átt neitt erindi inn í þetta mál.
Ég kem þá aðeins örfáum orðum að því, sem hæstv. ráðh. sagði, en hann sagði orðrétt m.a.:
„Varðandi almennt virkjunarmálin og stóriðjuna í því sambandi er ég alveg sammála hv. 1. þm. Austf., þegar hann sagði, að hann teldi það óeðlilegt að ákveða stórvirkjun eða stefna til stóriðju, án þess að Alþingi sé haft með í ráðum og einnig það, sem hann sagði, að það væri óeðlilegt, að rætt væri til nokkurra úrslita við erlenda aðila í þessu sambandi, án þess einnig að Alþingi sé með í ráðum.“
Þetta sagði hæstv. ráðh. orðrétt. Í annan stað sagði hæstv. ráðh.:
„Ég teldi mjög mikilsvert í sambandi við ráðagerðir í þessum stórmálum, að hægt væri að koma á sem víðtækustu samstarfi og þá átti ég auðvitað við einingu um þessi mál, þegar eða ef til ætti að taka.“
Þegar ég hafði nú heyrt hæstv. ráðh. segja þetta, sem ég nú er að lesa og annað í sama anda, þá datt mér ekki í hug annað, en niðurlag ræðu hans hlyti að verða með því móti að leggja til, að þessi þáltill. yrði samþ., því að hér er svo eindregið látið í ljós, að hann sé sammála því, að það verði að efna til samstarfs um athugun á þessum málum, því að það getur ekki verið meining hæstv. ráðh., að það sé um nokkurt samstarf að ræða, ef þá fyrst er um málin rætt við stjórnarandstöðuna t.d., þegar ákvarðanir hafa raunverulega verið teknar og öllum undirbúningsathugunum er lokið. Slíkt væri ekki neitt samstarf. En því miður sagði hæstv. ráðh. eftir að hafa lýst þannig skoðun sinni, að honum fyndist engin ástæða til þess, að Alþingi nú marki afstöðu sína til þess að kjósa nefnd í þessu máli.
Ég vil, þangað til annað kemur í ljós, líta svo á, að þetta sé ekki endanlega synjun þess að samþykkja þessa till., þó að hæstv. ráðh. finnist ekki ástæða til þess að samþykkja hana nú þessa dagana og ræð ég það af því, sem hann hefur áður sagt um þessi efni og enn fremur vil ég mega líta svo á, að þessi ummæli þýði það, að þessi mál séu ekki neitt farin að nálgast úrslitastig, því að það væri náttúrlega algert ósamræmi í því, ef þau væru farin að nálgast úrslita- eða örlagastig og ráðh. vildi samt ekki fallast á að samþykkja þessa till., einmitt núna.
Ég vil leggja áherzlu á það, að með þessari þáltill. erum við að bjóða fram samstarf um athugun og undirbúning þessara mála. Ef því samstarfi verður nú hafnað, eins og gert hefur verið áður, t.d. í fyrravetur, þá er það því miður í beinu framhaldi af þeirri framkvæmd varðandi stórvirkjunar- og stóriðjumálin, sem hefur verið höfð fram að þessu, sem sé að útiloka stjórnarandstöðuna algerlega frá því að fylgjast með og eiga þátt í undirbúningi þessara mála, sem eru þó meðal hinna þýðingarmestu. En þetta er ekki hyggilegt og ég vil enn einu sinni leggja áherzlu á það við hæstv. ríkisstj., að þetta er ekki hyggilegt. Ég vil benda hæstv. ríkisstj. á, að hún hefur mjög nauman meiri hl. og nær helmingur þjóðarinnar hefur hér á hv. Alþingi aðra umboðsmenn en ríkisstj. og þm. stjórnarflokkanna. Þessa umboðsmenn nálega helmings þjóðarinnar er ekki viturlegt að útiloka frá því að hafa bein áhrif á þessi mál með því að ætla þeim að standa, þegar þar að kemur, frammi fyrir gerðum ákvörðunum af naumum meiri hl. að lokum og segja við þá, að þeir geti sagt já eða nei. Þetta eru ekki heppileg vinnubrögð, ekki einu sinni fyrir hæstv. ríkisstj., hvað þá heldur fyrir þjóðina, að svona sé unnið, að naumur meiri hl. á Alþingi ákveði raunverulega bak við tjöldin um hin allra örlagaríkustu mál, sem lengi hafa komið til greina og komi síðan, þegar ákvarðanir hafa raunverulega verið teknar og leggi ákvarðanir fyrir og segi við hina: Þið getið sagt já eða nei, en hér verður engum stafkrók breytt.
Þetta er ekki samstarf og þetta eru ekki vinnubrögð, sem þjóðin vill láta viðhafa, ég fullyrði það og það nær ekki aðeins til þeirra, sem kjósa stjórnarandstæðinga á þing, heldur einnig fjöldans af hinum, sem kjósa stjórnarflokkana. Svona vilja menn ekki láta vinna að málum eins og þessum. Ég vona, að það beri ekki að skilja ráðh. svo, að það sé hans skilningur á samstarfi, að þannig eigi að fara með málin, þótt að vísu e.t.v. mætti líta svo á, að bólaði á þessari skoðun, þar sem hæstv. ráðh. talaði um víðtækt samstarf og þá væri auðvitað átt við einingu um þessi mál, þegar eða ef til ætti að taka. En samstarf um undirbúning er auðvitað ekki það, að allir segi já og amen að lokum við því, sem gert hefur verið á bak við þá og þeir hafa ekki neitt verið með í ráðum um.
Það verður að hafa samráð um undirbúninginn. Það verður að hafa raunverulega samráð um málin: Ég tel, að það sé þegar orðið mjög ámælisvert, að ekki hefur verið efnt til þessa samstarfs. En það er kannske hægt að bæta mikið úr því með því að efna til þess nú í vetur, jafnvel þó að menn séu ekki reiðubúnir til þess að samþykkja það alveg þessa dagana.
Ef ekkert samstarf verður raunverulega haft um þessi efni, er það líkast því, sem verið sé að gera leik að því að skapa tortryggni um þessi stóru og vandasömu og viðkvæmu mál og það gerir engum gott. Og ef þannig verður haldið á þessum málum, þá er verið að þjóna einhverju öðru, en hagsmunum almennings, því að óhugsandi er, að svona mál, alger nýmæli, geti beðið tjón við það, að öll sjónarmið komi fram við undirbúning þeirra á fyrri stigum eða áður, en ákvarðanirnar eru teknar.
Þess ber hér að gæta, að allir þeir, sem kunnugir eru því, hvernig unnið er að vandasömustu stórmálum, vita það, að afstaðan í málum eins og þessum skapast smátt og smátt, eftir því sem rannsóknum miðar áfram og samtöl um málin eiga sér stað milli þeirra, sem að þeim starfa. Og við vitum það, sem höfum fengizt við þess háttar, að þeir einir hafa þar raunverulega áhrif, full áhrif a.m.k., sem taka þátt í þessu langa og flókna undirbúningsverki. Það getur því orðið býsna örlagaríkt, hvernig að þessu er staðið.
Hæstv. ráðh. hefur sagt, að nú á þessari stundu teldi hann ekki ástæðu til að kjósa mþn. Um það er ég honum algerlega ósammála, eins og komið hefur fram í því, sem ég hef sagt. En þetta mál fer nú til n. og fær sína athugun, sem tekur einhvern tíma, og vildi ég mega vænta þess, að svo geti farið, að ekki yrði langt að bíða eftir því, að tímabært þætti að efna til samvinnu um athugun á þessum málum í þeim anda, sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir.
Ég vil svo að lokum aðeins taka undir það, sem hv. 3. þm. Norðurl. e. sagði hér áðan, að ef ætlunin er að halda stjórnarandstæðingum algerlega utan við þessi efni, sem ég vona nú að ekki verði, þeirri stefnu verði ekki haldið til þrautar, þá verðum við að reyna að finna einhverjar leiðir til þess að fá að vita, sumt af því, sem vitanlega hlýtur að liggja nú þegar fyrir.
Ég spyr t.d. í því sambandi: Er meiningin að halda skýrslunni um olíuhreinsunarstöðvarmálið leyndri fyrir alþm., sem greiddar hafa verið, eins og annar hv. þm. upplýsti, 291 þús. kr. úr ríkissjóði til þess að semja? Þessi skýrsla hlýtur að koma fram. Og ýmis fleiri atriði hljóta að koma fram, ef farið verður að spyrja hæstv. ríkisstj. út úr í þessum málum. Eru það heppilegri vinnubrögð fyrir hæstv. ríkisstj. og fyrir þjóðina og fyrir okkur alla, að það verði farið að pína fram upplýsingar um einstök atriði þessara mála, sem við getum gert og munum gera á hv. Alþingi, en kannske þá um einstök atriði málanna, en ekki þannig, að það fáist heildarmynd? Verða það heppilegri vinnubrögð, en taka bara hreinskilnislega á þessu og efna til þess, að menn skoði þetta sameiginlega? Eins og tekið var fram hér af einum hv. þm., 5. þm. Austf., hafa verið borgaðir milljónatugir fyrir undirbúningsrannsóknir í raforkumálum, en ekki verið gefnar hér neinar skýrslur, sem því nafni er hægt að nefna, um þau efni, og um þetta hlýtur líka að vera spurt og margt fleira í sambandi við þetta. En við sjáum í hendi, að það er miklu hagfelldara og eðlilegra fyrir alla að hafa hina leiðina, eitthvað svipaða því, sem lagt er til í þessari þáltill. og ég vil þess vegna vonast eftir því, að þetta verði athugað öfgalaust í þeirri n., sem fær það til meðferðar og samtölum við hæstv. ríkisstj.