18.12.1964
Efri deild: 34. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (284)
106. mál, söluskattur
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég átti fyrir örfáum vikum ýtarlegt viðtal við hinn nýskipaða forstöðumann rannsóknardeildarinnar hjá ríkisskattstjóraembættinu einmitt um þetta atriði, hvort það væri skynsamlegt að setja þessa reglu, sem hér er verið að leggja til, og kom reyndar fram á þingi í fyrra svipuð regla og þessi í sambandi við tekjuskattinn. Hann tjáði mér þá, að hann væri mjög andvígur slíkri reglu, og hann sagði, að ástæðan væri sú, að með þessum útdrætti mundu alltaf koma upp nöfn ýmissa aðila, einstaklinga og fyrirtækja, þar sem skattyfirvöldin vissu fyrir fram, að ekkert væri við að athuga, en þau væru samt sem áður skyldug til þess að láta þar fara fram ýtarlega rannsókn á bókhaldi og öllum gögnum, sem væri auðvitað tímafrekt, þó að þau reyndar vissu það fyrir fram, að þar mundi allt vera í lagi. Þess vegna teldi hann réttara að beina kröftunum að öðrum aðilum og vera ekki bundinn við þennan útdrátt. Hins vegar tók hann fram, að siðar meir, eftir nokkur ár, þegar skattaeftirlitið væri komið í betra horf en það er í dag, væri full ástæða til að setja svona reglu. Og á grundvelli þess, sem ég hef hér vitnað til um samtal við forstöðumann rannsóknardeildarinnar hjá ríkisskattstjóra, þá segi ég nei.