11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (2873)

25. mál, akvegasamband um Suðurland til Austfjarða

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég hef flutt till. hér á tveimur þingum áður um sama mál og þessi þáltill. fjallar um, sem hér liggur nú fyrir til umr. Í fyrra skiptið flutti ég þáltill. um þetta mál ásamt með Karli Guðjónssyni, sem þá átti hér sæti á Alþingi, en aftur flutti ég þessa till. á síðasta þingi og ég hef nú leyft mér að endurflytja þessa till. í þriðja skipti. Ég fagna því út af fyrir sig, að það skuli nú vera fleiri að bætast hér í hópinn, sem virðast hafa mikinn áhuga á þessu máli. All myndarlegur hópur framsóknarmanna hefur nú tekið sig saman um að leggja hér fram till. um þetta mál, sem þeir virðast ekki hafa haft mikinn áhuga fyrir, fram til þessa, a.m.k. hafa þeir ekki tekið undir þá till., sem ég hef flutt um málið og við, en nú var það gert á mjög myndarlegan hátt af frsm. málsins. Ég hef þrátt fyrir það, þó að hér sé tekið undir meginmál það, sem við höfum hér flutt áður, afráðið að flytja mína fyrri tili. aftur, vegna þess að ég tel, að orðalag þeirrar till., sem við höfum hér flutt áður um málið, sé betra og eðlilegra. En þó vil ég ekki gera úr því meginatriði og mundi glaður samþykkja þá till., sem þeir framsóknarmenn hafa hér flutt, ef á því stæði að ná samkomulagi um afgreiðslu málsins. En í þeirri till., sem ég hafði staðið að því að flytja áður um þetta mál, var lögð megináherzla á, að þannig yrði staðið að framkvæmdum í þessu máli, að við það yrði miðað að opna þessa leið á næstu 2 árum. Mér þykir miklu miður að tala um það í áskorun til ríkisstj., að hún láti fara fram athugun á máli eins og þessu svo fljótt sem auðið er, því að það hefur alla jafna þótt býsna langur tími, þegar um stórmál er að ræða.

Því verður ekki neitað, að hér er um stórmál að ræða. Það er skoðun mín, að það eigi ekki að leika neinn vafi á því, að það er hægt að gera veg þá leið, sem hér er rætt um. Vegagerðin yfir sandana er tiltölulega auðveld og við höfum þegar fengið fulla reynslu í vegagerð á hliðstæðum svæðum. Og þó að þar þurfi að fara yfir allmargar vatnakvíslar, þá er það síður en svo meira en það, sem við höfum áður gert á öðrum hliðstæðum stöðum. En það er hins vegar rétt, að þegar kemur til brúargerðar á þeim stöðum á leiðinni þar sem hin miklu jökulhlaup hafa ruðzt fram á undanförnum árum, þá eru mjög miklar líkur til þess, að ekki þyki ráðlegt, a.m.k. fyrst í stað, að gera þar brýr með sama hætti og almennt hefur verið gert, úr varanlegu efni og því er það, sem við í okkar till. bendum beinlínis á það, að á slíkum stöðum verði gerðar brýr aðallega úr timbri og hreinlega reiknað með því, að þær geti farið, þegar mestu hlaupin eiga sér stað. Hins vegar er það dómur kunnugra manna, að þessi jökulhlaup hafi breytzt svo mjög hin síðari ár, að það séu miklu meiri vonir til þess, að sæmilega gerðar brýr geti staðið í flestöllum tilfellum, heldur en áður var haldið um þessa leið. Ég álít því, að það eigi að gera ráð fyrir því í þeirri athugun á þessu máli, sem beinlínis er tekið fram í till. minni, að það sé í fyrsta lagi rannsakað, hvað kosta mundi að gera brýr á þessari leið á þann hátt, sem mætti telja varanlegar brýr og fullkomnar brýr, en einnig eftir hinni leiðinni, þar sem um er að ræða ófullkomnari gerð af brúm og hreinlega reiknað með því, að það gæti orðið um endurbyggingu á þeim að ræða.

Ég skal svo ekki að þessu sinni fara mörgum orðum um þetta mál að öðru leyti. Ég tek undir það, sem frsm. málsins hefur sagt. Hér er um stórmál að ræða, ekki aðeins fyrir þær sveitir, sem kæmust beint í akvegasamband hér, en eru einangraðar nú, heldur er hér um stórmál að ræða fyrir allan Austfirðingafjórðung og í rauninni fyrir landið allt, því að hringvegur um landið mundi vissulega verða mikið notaður. Rök fyrir því að ráðast í þessa framkvæmd eru mörg og ég mun víkja nánar að því, sem ég vil einkum leggja áherzlu á í þeim efnum, þegar sú till. kemur hér til umr., sem ég stend að flutningi á um þetta sama mál. Ég sem sagt lýsi fylgi mínu við þessa till. út af fyrir sig, þótt mér hefði fundizt eðlilegra, að flm. hennar hefðu haft samráð við þá, sem eru nú búnir að flytja þetta mál tvívegis áður, meðan þeir mundu ekki eftir málinu.