11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í D-deild Alþingistíðinda. (2874)

25. mál, akvegasamband um Suðurland til Austfjarða

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Mig langar aðeins til að rifja upp í örstuttu máli nokkur atriði í forsögu þessa máls, þó að það væri að vísu gert að nokkru af báðum þeim hv. ræðumönnum, sem hér hafa talað á undan. En ég vil minna á það, að á Alþingi 1961 fluttum við allir þm. Austurlands till. til þál., sem samþykkt var hér á hv. Alþingi, um rannsókn á skilyrðum til samgöngubóta á eyðisöndum Skaftafellssýslu. Þar var m.a. fyrsti liður hennar um rannsókn á brúarstæði á Jökulsá á Breiðamerkursandi. En það mál er nú komið svo áleiðis, að telja má, að það komist í höfn. Í öðru lagi um að athuga nýjar tegundir samgöngutækja, sem kynnu að geta hentað á Skeiðarársandi. Og í þriðja lagi, ef um einhverjar tæknilegar nýjungar væri að ræða til brúargerða á jökulvötn Skeiðarársands. Næst er það, að við afgreiðslu fjárl. fyrir jólin 1962 flutti ég ásamt tveim öðrum þm., Sigurði Ó. Ólafssyni og Eggert G. Þorsteinssyni, heimildartill. um að kaupa vatnadreka, sem þá stóð til boða að fá frá Ameríku. Og eins og hv. alþm. er kunnugt og fram kom einnig í ræðu frummælanda hér, var þessi dreki keyptur og reyndur lítillega þá næsta sumar. Á síðasta Alþingi fluttum við einnig nokkrir þm., — það var ég, Ragnar Jónsson, Páll Þorsteinsson og Sverrir Júlíusson, — till. um það að skora á ríkisstj. eða beina því til samgmrh. að láta reyna betur þennan vatnadreka, sérstaklega með það fyrir augum, hvort það væri hagfræðilegur grundvöllur að nota hann. Mátti telja, að það væri reynt, að tæknilega væri það mögulegt. Þeirri till. var vísað til ríkisstj. á síðasta Alþingi. Á síðasta sumri var svo gerð nokkur tilraun með þennan dreka, að vísu ekki jafn víðtæk, ef svo mætti segja og við hefðum kosið og okkar till. fór fram á, en hins vegar tilraun, sem var nokkurs virði og m.a. vegna þess, að í henni tóku þátt verkfræðingar frá vegagerðinni, sem notuðu þá jafnframt tækifærið einmitt til þess að athuga aðstæður til brúargerða þarna á söndunum yfir þessi vötn, sem hingað til hafa verið talin mundu vera mjög erfið viðureignar til brúargerða. En þetta þykir mér rétt að láta koma hér fram.

Ég skal aðeins drepa á það, að eftir því sem ég veit bezt um álit verkfræðinganna við þessa fyrstu rannsókn, þá mun þeim ekki hafa vaxið svo mjög í augum með brúargerðir á vestari vötnin á Skeiðarársandi, en hafa hins vegar ekki viljað tjá sig neitt enn um sjálfa Skeiðará. En eitt hafa þeir þó látið í ljós og það er, að það sé nauðsynlegt að rannsaka gaumgæfilega, þegar hlaup kemur þarna á sandana, en það er talið, bæði af kunnugum mönnum, sem þarna eru í nágrenninu og enn fremur mun það vera álit jarðfræðinga, að hlaups sé að vænta nú í vetur, vor eða á næsta sumri í síðasta lagi. Og bæði hlaupið sjálft og þær afleiðingar, sem það hefur, telja þeir, svo sem raunar mjög skiljanlegt er, æskilegt og mikilvægt að geta rannsakað.

En ég hef viljað árétta þetta og láta þetta koma fram hér og benda enn fremur á það, að enda þótt það kunni að fara svo, að þessi vatnadreki, sem aflað var samkv. heimild í fjárl. frá 1963, komi ekki að þeim notum, sem kannske vonir stóðu til og máttu standa til, þá er það ómótmælanlegt, að einmitt sú útvegun og sú reynsla, litla reynsla, sem gerð hefur verið með hann síðan, á áreiðanlega mestan þáttinn í því að skapa þann áhuga, sem nú er vakinn svo að segja um allt land fyrir því að fara að sigra þessi vötn og opna samgönguleiðina að sunnan og mynda þannig hringleið um landið. Þessi áhugi og þessar vonir hafa að vísu alltaf verið til í næsta nágrenni Skeiðarársands, en hins vegar vitum við það, að þeir, sem fjær hafa verið, hafa litið á þetta — a.m.k. í næstu framtíð — sem óyfirstíganlegan þröskuld. Það er of snemmt að vísu að fella dóm um það, hvernig gengur að sigra hann. Mér finnst þó allt benda til þess, að það sé nær en við kannske margir ætlum og ég er sannfærður um það, að þegar ekki verður eftir nema Skeiðará, þá verður hún einnig sigruð á einhvern hátt. Ég vil þess vegna undirstrika það, sem komið hefur fram hjá báðum þeim hv. ræðumönnum, sem hér hafa talað á undan, að hér er um mjög mikilvægt mál að ræða, sem snertir ekki einasta byggðirnar, sem næstar eru, heldur landsmenn alla.