19.12.1964
Neðri deild: 33. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (288)

106. mál, söluskattur

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir því, eins og það er núna, að bæta hátt á 3. hundrað millj. við úlögur til ríkisins, en áður á þessu hausti hefur hæstv. ríkisstj. gert ráðstafanir til þess að draga inn í ríkissjóð nálega 100 millj. kr., sem , áður runnu til sjávarútvegsins og lagðar voru á í upphafi ársins, í janúarmánuði, með því fororði, að þær ættu að ganga til þess að greiða uppbætur á fiskverð og til fiskiðnaðarins til að stuðla að aukinni framleiðni í fiskiðnaði. En þessar tæpar 100 millj. hefur ríkisstj. nú dregið inn í ríkissjóð og vill svo til viðbótar bæta við með þessu frv. nálega 300 millj. í nýjum álögum og þá fyrst og fremst með því að hækka söluskattinn gífurlega.

Hæstv. fjmrh. segir, að allt þetta fé, allar þessar 400 millj. nálega af nýju fé, þurfi nú enn í ríkissjóðinn til að standa undir ríkisútgjöldunum og þá sérstaklega niðurgreiðslum, sem auknar hafa verið mjög á þessu ári. En það liggur siður en svo nokkuð fyrir um það, að þessar nýju álögur þurfi að samþykkja til að halda áfram niðurgreiðslunum eða upp í ríkisútgjöldin. En á hinn bóginn er það margyfirlýst af hendi hæstv. ríkisstj. og þ. á m. hæstv. fjmrh., að einn meginkjarninn í þeirri efnahagsmálastefnu, sem þeir hafa verið að reyna að fylgja og þeir kalla viðreisn, sé sá að hafa verulegan greiðsluafgang til þess að draga þannig fé úr umferð inn í peningakerfið og halda þannig því, sem þeir kalla jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þetta er þýðingarmikill þáttur í stefnu þeirra, og m.a. liggur fyrir yfirlýsing frá hæstv. fjmrh., sem tekur af allan vafa í þessu efni og sýnir, að það er ekki neitt áróðursbragð af stjórnarandstæðingum að draga athyglina að þessum þætti í stjórnarstefnunni í sambandi við nýjar álögur. Haustið 1963, þegar rætt var um fjárl., þ.e. í sjálfri fjárlagaræðunni, lýsti hæstv. fjmrh. þessu yfir enn einu sinni og sagði orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Greiðsluafgangur hefur orðið á hverju ári hjá ríkissjóði, sem var eitt af grundvallaratriðum þess, að viðreisnin tækist.“

Því er sem sagt margyfirlýst af hendi hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj., að það sé einn meginkjarninn í stjórnarstefnunni að hafa álögurnar meiri en ríkisútgjöldin til þess að draga þannig úr kaupgetunni og ná fjármagninu inn í bankakerfið, nota síðan ekki þennan greiðsluafgang, heldur leggja hann inn í bankakerfið til jafnvægis á móti því, sem þeir kalla ofþenslu. Enda er þetta fjármálastefna, sem víða annars staðar er fylgt, og m.a. er sterklega mælt með þessari fjármálastefnu og henni mjög haldið að öllum þeim ríkisstj., sem eiga þátt í efnahagssamvinnu Evrópu. Í ársskýrslu frá þeirri stofnun, sem samin er í samráði við starfsmenn hæstv. ríkisstj. hér á landi, er kafli, sem fjallar um Ísland og efnahagsmál á Íslandi, og þar er það látið í ljós sem, að því er manni virðist, sameiginleg skoðun stofnunarinnar og stjórnar Íslands eða a.m.k. skoðun stofnunarinnar, að minni greiðsluafgangur en sem svarar 1 1/2% af þjóðartekjunum eigi ekki að koma til mála, miðað við efnahagsaðstæður á Íslandi, eða m.ö.o., að minni greiðsluafgangur en 200—250 millj. kr. eigi ekki að geta komið til greina. Það verði sem sé, til þess að nokkur von sé á jafnvægi eftir þeirri leið í efnahagsmálum, sem þrædd er, að hafa álögurnar 200—250 millj. meiri en útgjöldin.

Vegna þess, hve dýrtíðin hefur vaxið stórkostlega og hvernig ástatt er, virðist hæstv. ríkisstj. feimin við að gefa hreinar stefnuyfirlýsingar í þessu efni og láta koma hreinlega fram, hvað hún er að fara. En það, sem ég hef nú sagt og reynsla undanfarinna ára, þar sem stefnt hefur verið að stórfelldum greiðsluafgöngum með því að hafa álögurnar hærri en útgjöldin, talar sínu máli glögglega.

En það hefur aldrei verið hafður greiðsluafgangur á fjárl. Hins vegar hefur verið hafður sá háttur á að hafa álögurnar meiri, en áætla þær viljandi lægri en gera má ráð fyrir að þær yrðu í framkvæmdinni, og þannig hefur komið þessi greiðsluafgangur, sem hefur átt að hjálpa til að framkvæma stjórnarstefnuna.

Þetta er einn liður í þeirra höftum í ríkisbúskapnum, sem sé sá að takmarka peningamagnið í umferð með hærri álögum en ríkisútgjöldunum nemur. Jafnhliða hefur svo verið tekin upp, eins og kunnugt er, ný lánapólitík og ný vaxtapólitík, sem er angi af sama meiði og hefur miðað að því að gera lánsféð dýrt, til að reyna að draga þannig úr framkvæmdum og minnka lánsfé í umferð frá því, sem það ella væri.

Með þessum ráðstöfunum hefur verið hugsunin að ná jafnvægi í þjóðarbúskapnum. En það hefur vitanlega alls ekki tekizt, því að með þessum aðförum öllum saman hefur verðlagið farið síhækkandi og ríkisstj. misst öll málin gersamlega úr böndunum. En það er önnur saga. Það, sem hér skiptir máli, er þetta, að ríkisstj. virðist enn ekki af baki dottin með að reyna þessar sömu aðferðir, og efnir hún því til nýrra álaga í þessu skyni enn á ný og reisir þar með nýja dýrtíðaröldu í landinu.

Ef ríkisstj. hefði viljað breyta um stefnu og komast inn á farsælli leiðir, átti hún að forðast nú eins og heitan eld nýjar álögur og þá alveg sérstaklega þær, sem gátu orðið til þess að hækka verðlagið. En vegna þess að meginstefna ríkisstj. er fólgin í því að reyna sífellt að hækka verðlagið meira en kaup og aðrar tekjur með það fyrir augum að hafa þannig hemil á efnahagsmálunum, — vegna þess að þetta er meginstefna hennar, sem hún heldur sér enn við, þá sjáum við enn þá fjarstæðu, að ríkisstj. ætlar að lækna meinið með því að efna nú enn til nýrrar verðhækkunaröldu í landinu með nýjum álögum, sem ganga beint inn í verðlagið því til hækkunar.

Þetta er beinlínis hagstjórnaraðferð og líður í þeirri stefnu, sem byggð er upp á þann hátt, sem hæstv. ríkisstj. hefur verið að leitast við að koma í framkvæmd nú síðustu 5 árin. En með þessum aðförum læknar ríkisstj. vitaskuld aldrei verðbólguna og kemst aldrei út úr þessum vítahring, því að einkafjármagnið í landinu leikur gersamlega lausum hala og verður svo umbrotamikið þrátt fyrir þessar hömlur ríkissjóðs á almenningi og þeim, sem þurfa að taka lán, — verður svo umbrotamikið, að það ræðst ekki við neitt. Þetta stafar einnig af því, að menn hafa reynslu fyrir því, að þessar hagstjórnaraðferðir skapa ekki jafnvægi. Verðbólguhjólið heldur áfram að snúast, dýrtíðin heldur áfram að aukast, og þannig gengur þetta koll af kolli, því að dýrtíðarvöxturinn ýtir aftur undir verðbólguframkvæmdir þeirra, sem peningana hafa, og ríkisstj. ræður ekki við neitt.

Ef hér hefði átt að gera alvarlega tilraun í framhaldi af samningunum, sem náðust s.l. vor, og hefði þurft að gera, hefði átt að breyta um stefnu í lánamálunum, í vandamálunum og umfram allt forðast að leggja á nokkrar nýjar álögur, sem gátu orðið dýrtíðaraukandi.

Með þessu frv. segir ríkisstj. launastéttum landsins og nálega öllum almenningi í landinu á ný stríð á hendur eftir það vopnahlé, sem þó varð upp úr samningunum á s.l. vori. En þá varð vopnahlé eftir 5 ára látlaust stríð. En heildarniðurstaðan af þeirri styrjöld varð sú, að enda þótt þjóðartekjurnar hefðu vaxið stórkostlega ár frá ári, hafði kaupgjaldið í landinu hækkað, þ.e.a.s. það raunverulega kaupgjald, það, sem menn gátu keypt fyrir endurgjald fyrir venjulegan vinnudag. Mun slíkt einsdæmi meðal Evrópuþjóða, að þannig hafi til tekizt á síðustu árum, og sýnir, að ríkisstj. hafði frá sínu sjónarmiði í raun og veru sigrað í þeim átökum, sem hún hafði átt við almenning í landinu að þessu leyti, því að almennt kaupgjald hafði á þessu góðæristímabili lækkað. En að sama skapi hafði náttúrlega fjármagn safnazt á hendur einstakra aðila í landinu, sem fésterkastir voru fyrir, því að þessi pólitík ríkisstj. kom verst við almenning. Það var þar, hjá almenningi, sem átti að draga inn, og hjá þeim, sem þurftu að nota mikið lánsfé. En hinir, sem áttu meira eigið fé, hafa grætt á þessari stefnu og þessari pólitík í sívaxandi mæli, og síðan hefur verðbólgugróðinn bætzt við, eftir að hún fór að vaxa enn hraðari skrefum, vegna hernaðarástandsins, sem af þessu leiddi. Því hefur tekjuskiptingin farið þannig, að tekjumismunur hefur farið vaxandi. Almenningur og þeir, sem eru að fást við framleiðslu og önnur störf og nota mikið lánsfé, búa við erfiðari hag, en hagur þeirra fésterku hefur að sama skapi batnað.

Enda þótt svona sé ástatt í landinu, heldur ríkisstj. því fram, og því er enn lýst yfir með þessu frv., sem hér liggur fyrir, að kaupgjaldið sé of hátt og að vandkvæðin stafi af því, að kaupið hafi verið spennt of hátt samanborið við þjóðartekjurnar.

Það er furðulegt, að þessu skuli vera haldið fram, þegar það liggur skjallega fyrir sem staðreynd, að kaupgjaldið fyrir venjulegan vinnudag hefur raunverulega farið lækkandi þrátt fyrir stórhækkandi þjóðartekjur. Á hinn bóginn hefur verið þannig farið að, að ýmsar framleiðslugreinar, sérstaklega þær, sem þurfa mikið á dýru lánsfé að halda, eru sjálfsagt ekki mjög aflögufærar til að borga hærra kaupgjald. Fjármunirnir hafa runnið annað í þessum sviptingum, eins og ég var að enda við að lýsa.

Á þessa lund eru málin komin í slíka sjálfheldu, að á s.l. vori varð ríkisstj. að játa, að ómögulegt væri að koma saman nokkrum kjarasamningum í landinu, nema ríkisvaldið yrði þar dregið inn í málin og tæki þátt í samningunum. Það lá sem sé fyrir, að það varð að breyta stjórnarstefnunni í einhverjum atriðum, ef hugsanlegt átti að vera að ná nokkrum samningum. Þessir samningar fóru fram og þar voru knúnar fram vissar breytingar á stjórnarstefnunni, t.d. sú, að framvegis yrði kaup hækkað í samræmi við hækkun dýrtíðarvísitölu, og enn fremur voru þvingaðar fram ráðstafanir til að lækka vexti á íbúðarlánum, eftir að það hafði árum saman verið sýnt fram á það hér á Alþingi, að þau mál stefndu beint í vegg. Það var óhugsandi, að það kaupgjald gæti staðizt, sem var í landinu, miðað við húsnæðiskostnað og þau lánskjör, sem menn áttu við að búa. Þessi mál voru tekin inn í samningana í vor og knúnar fram stefnubreytingar í þeim, og varð það til þess, að þetta vopnahlé náðist, sem ég minntist á áðan. En nú er ætlunin að raska algerlega því, sem þar varð að niðurstöðu, og byrja sama leikinn á ný.

Því miður verður einnig að segja það eins og er, að sá friður, sem þá náðist, stóð ekki lengi, því að í sumar urðu þau tíðindi, að skattar á öllum almenningi höfðu verið hækkaðir gífurlega frá því, sem áður var, og gerðir nær óbærilegir. Kom þá í ljós, að segja mátti, að hæstv. ríkisstj. hafði að því leyti hnífinn í erminni, þegar samningarnir voru gerðir við alþýðusamtökin s.l. vor, þar sem skattarnir voru í rauninni óviðráðanlegir. Voru þá samtök um að reyna að fá sköttunum breytt og reiknaða að nýju með það fyrir augum, að þeir gætu orðið viðráðanlegri, en þótt um það hafi staðið umleitanir og barátta mánuðum saman, hefur ekkert áunnizt í því efni. Ríkisstj. hefur haldið áfram að innheimta skattana með fullum krafti og ekki viljað ljá máls á neinni tilslökun. En í stað þess að ljá máls á því að slaka til á beinu sköttunum, eins og menn höfðu þó vonazt eftir, þá er þetta frv. nú lagt fram, sem gerir ráð fyrir nálega 300 millj. nýjum álögum í ríkissjóð.

Það er skemmst frá því að segja, að þetta kemur mönnum mjög á óvart, því að menn höfðu haldið, að nú væri ætlunin að nema nokkuð staðar á þeirri braut, sem farin hefði verið. Stjórnir launþegasamtakanna hafa látið í ljós álít sitt á þessu máli, og segir miðstjórn Alþýðusambandsins m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Miðstjórnin telur, að með slíkum aðgerðum til stórfelldra nýrra verðhækkana sé rift þeim grundvelli, sem lagður var með samkomulagi ríkisstj., verkalýðssamtaka og atvinnurekenda hinn 5. júní s.l.“

Og miðstjórn Alþýðusambandsins segir, að þessu frv. megi líkja við „eitur í ógróin sér.“ Og þar er vafalaust sumpart átt við það, að þetta kemur nú ofan á skattaálagningarnar s.l. sumar.

Það er auðséð, að sumum í stjórnarherbúðunum er nú nóg boðið, og kemur það m.a. fram í Alþýðublaðinu, því að þar kemur fram eftirfarandi, þegar búið er að ræða nokkuð um þennan nýja skatt, orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Verður óhjákvæmilegt fyrir ríkisstj. að taka fljótlega upp víðtækar viðræður við launþegasamtökin og leita að nýju samkomulagi, sem forðaði þjóðinni frá nýrri verðbólguöldu. Benti Alþfl, í samþykktum flokksþingsins í nóv. á, að leita yrði víðtæks samkomulags við verkalýðssamtökin til þess að leysa þessi mál.“

Þetta segja þeir, að flokksþing Alþfl. hafi bent á í nóv. En flokksþingmenn Alþfl. eru ekki nema rétt aðeins komnir heim, þegar þessum nýju álögum er dembt yfir, án þess að nokkuð sé rætt um það við launþegasamtökin í landinu. M.ö.o.: það er starfað í beinu ósamræmi við samþykktir Alþýðuflokksþingsins. Þær eru hafðar að engu. Enn fremur segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Efnahagsmál þjóðarinnar hafa verið yfirspennt síðustu tvö ár. Tókst að spyrna nokkuð við fæti s.l. vor, en þó varð að grípa til aukinna niðurgreiðslna með haustinu. Nú eru komin reikningsskil, og hefur ekki verið bent á neina raunhæfa leið til að komast hjá þeirri söluskattshækkun, sem gripið hefur verið til. Það mun þurfa traust tök á stjórnpalli þjóðarinnar á næstunni, og aðeins víðtækt samkomulag getur á komandi vori forðað þjóðinni frá nýrri verðbólguöldu.“

Það er ómögulegt að komast hjá því að hugsa, þegar maður les þessi ummæli, að viturlegra hefði verið og drengilegra fyrir hæstv. ríkisstj. að taka upp samræður við launþegasamtökin nú í haust um þessi vandamál, áður en þetta högg var látið ríða, og reyna í alvöru að finna úrlausnir og komast hjá því að demba nýju verðbólgu- og dýrtíðarflóði yfir þjóðina. En þessar aðfarir, sem nú eru viðhafðar, eru nánast þannig, að fyrst er friðmælzt með nokkrum hætti í vor, síðan er réttur vænn kinnhestur með þessu frv., sem hér er lagt fram, og síðan á að friðmælast á ný. Þá er álitið, að búið sé að skapa góðan og heppilegan jarðveg fyrir viðtæku samkomulagi við almannasamtökin í landinu, eins og Alþýðublaðið ræðir um í sinni forustugrein

Auðvitað var ekkert annað sæmandi í framhaldi af því, sem fram fór á s.l. vori og átti að vera fyrsta stig, en taka upp viðræður nú á ný við þau samtök, sem þá var samið við, varðandi þær ráðstafanir, sem þyrfti að gera, og varðandi ástandið nú í haust, fyrst stjórninni sýndist nauðsynlegt að gera eitthvað sérstakt. Auðvitað var þetta skylt í framhaldi af því, sem gert var í vor. Þessi efni snerta beint kjaramálin, sem vitaskuld verður að ræða um í vor og ríkisstj. getur ekki komizt hjá að ræða um í vor, þó að hún vilji ganga fram hjá samtökunum núna. Það er þess vegna ástæða til að gagnrýna mjög sterklega meðferðina á þessu máli.

Að mínu viti hefur ekkert verið ofsagt í gagnrýni Alþýðusambandsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á málsmeðferðinni á því, sem hér er á ferðinni. Um efni frv. sjálfs í einstökum atriðum er það að segja, að þar er gert ráð fyrir að hækka söluskattinn um 36% frá því, sem hann er nú, en upphaflega var ætlunin að hækka hann um 45%. En það sýnir svo hér um bil nákvæmnina í öllu þessu máli og öllum þessum reikningum, að hæstv. stjórn gat slegið af 60—70 millj. kr. á nokkrum mínútum, þegar hún fór að óttast þær afleiðingar, sem af þessu mundu verða. En augljóst var, að frv. braut að nokkru leyti beinlínis í bága við það samkomulag, sem gert var s.l. vor, eins og upplýst hefur verið.

En nú er sem sagt gert ráð fyrir 36% hækkun á söluskattinum, og verði þetta samþykkt, sem allar horfur eru á, hefur söluskatturinn verið hækkaður um 150% á einu ári, og er hann þá kominn upp í nálega 1 milljarð kr. En þar að auki hafa verið, eins og ég sagði í upphafi míns máls, dregnar 90—100 millj. inn í ríkissjóð af því, sem áður rann til sjávarútvegsins, og það er fróðlegt að geta þess í leiðinni, að sú fúlga, sem dregin hefur verið inn til ríkisins af því, sem áður rann til sjávarútvegsins, mundi geta staðið undir sem allra næst 20% kauphækkun í fiskiðnaðinum öllum. En þessa fúlgu hefur ríkisstj. rétt í leiðinni dregið frá sjávarútveginum og inn í ríkissjóð. Þannig býr ríkisstj. sjávarútveginn undir þá samninga, sem fram undan eru varðandi kaupgjaldsmálin, sumpart, að því er manni skilst, nú innan stundar, en þó aðallega á næsta vori. Hér eru því ekki neinir smámunir á ferðinni, eins og sýnt hefur verið fram á í þessum umr. Láta mun nærri, að allar álögur til ríkissjóðs komist upp í 3 milljarða og 800—900 millj. á næsta ári, þegar það fé er meðtalið, sem gengur til vegalagningar samkv. vegáætluninni, eða m.ö.o.: ríkisútgjöldin munu nálgast 4 milljarða, ríkisálögurnar munu nálgast 4 milljarða á næsta ári, ef þetta frv. verður samþykkt til viðbótar við þær álögur, sem fyrir eru.

Á öllu þessu fé segist ríkisstj. þurfa að halda til að halda fjársukki sínu gangandi. En ekkert liggur fyrir um, að sú fullyrðing ríkisstj. hafi við rök að styðjast, en þvert á móti, eins og ég sagði áðan, stefnuyfirlýsing um, að greiðsluafgangur þurfi að vera verulegur. Í þessu sambandi leyfi ég mér einnig að benda á, að 1962 reyndust ríkistekjurnar 302 millj. kr. hærri en þær voru áætlaðar, og var því þó haldið fram þá, í desembermánuði 1962, að sízt mundi veita af öllum þeim tekjum til að standa undir öllum ríkisútgjöldunum. Og 1963 fóru ríkistekjurnar 322 millj. umfram áætlun, og var því þá einnig haldið fram í desembermánuði 1963, að sízt mundi af þeim öllum veita til þess að standa undir ríkisútgjöldunum. Hreinn greiðsluafgangur, eftir að búið var að greiða afborganir af skuldum og allar framkvæmdir ríkissjóðs fyrir utan rekstrarútgjöldin, varð á 4, hundrað millj. á þessum

2 árum, og var það í beinu samræmi við stjórnarstefnuna og einn hornstein hennar, eins og hæstv. fjmrh. lýsti yfir, m.a. í fjárlagaræðunni haustið 1963, svo sem ég vitnaði til áðan og las úr, með leyfi hæstv. forseta.

Við höfum því enga ástæðu til þess að taka hátíðlega, þótt hæstv. fjmrh. haldi því nú fram, að tekjuáætlun sé einmitt núna þannig úr garði gerð, að í henni sé engin sveigja og þess vegna þurfi að leggja á stórfelldar nýjar álögur til þess að standa undir ríkisútgjöldunum og niðurgreiðslunum.

Við þetta bætist svo, að söluskatturinn er óvenjulega ranglátur skattur og sá, sem sízt ætti að grípa til að hækka svo mjög sem hæstv. ráðh, og ríkisstj. gerir ráð fyrir, því að hann kemur jafnt á allar nauðsynjar og því þyngst á þá, sem mest þurfa að kaupa af nauðsynjavörum. Meira að segja hefur verið gengið svo langt í álagningu söluskattsins, að hann nær til innlendra matvæla, sem aldrei hafa áður verið skattlögð í sögu landsins, t.d. fisksoðningar og kjöts, svo að dæmi séu nefnd. Svo rækilega er að því gengið með þessum söluskatti að leggja á lífsnauðsynjar manna, og er það gert af ráðnum hug. Það er gert til þess, að það skuli ekki geta mistekizt að draga inn þá peninga, sem inn í peningakerfið eiga að koma með álagningu söluskattsins, að láta hann koma þannig á allt, sem menn þurfa að kaupa.

Hér við bætist svo, að innheimta söluskattsins er sérstaklega miklum örðugleikum bundin og meiri hætta á, að þar eigi sér stað mistök, en við nokkurn annan skatt, sem álagður er, og er þetta viðurkennt af öllum, sem komið hafa nærri þessum málum, og m.a. af þessum ástæðum var fyrir nokkrum árum afnuminn söluskattur í smásölu og sá háttur tekinn upp í staðinn að leggja söluskattinn á í heildsölunni og hjá iðnaðar- og þjónustufyrirtækjunum af því, sem framleitt var innanlands. Var þetta beinlínis gert vegna þess, hve miklir örðugleikar sýndu sig í framkvæmdinni á því að láta allan söluskattinn koma til skila, jafnvel þótt almenningur yrði að greiða hann í vöruverðinu.

Mér er sagt, að framkvæmdastjóri Efnahagsstofnunarinnar hafi upplýst í fjvn. nú í gær eða í fyrradag, að söluskatturinn hafi skilað sér verr í ríkissjóð nú á s.l. ári og þessu ári eftir þá miklu hækkun, sem á honum varð í ársbyrjun, en hefði vitanlega átt að koma mun betur út, vegna þess að öll vöruumsetning hefur farið í krónutali stórlega vaxandi og einnig þjónusta, og getur þetta ekki stafað af öðru en því, að eftir því sem skatturinn er meira hækkaður, eftir því verður erfiðara að sjá um, að hann komi til skila, ekki sízt þegar eftirlitið er í molum, eins og viðurkennt er og vitað, að hér hefur verið og er. Þetta bendir eindregið til verri skila en áður með hækkandi skatti.

Freistingin til þess að skjóta sér undan því að skila skattinum vex stórkostlega, eftir því sem hann verður hærri, og er orðin alveg óskapleg, þegar skattgjaldið er komið upp í 8% af umsetningunni. Hugsið ykkur, hvílík freisting þá er orðin til þess að viðhafa undanbrögð, þegar um er að ræða tekjuskattinn annars vegar, sem kemur á hreinu tekjurnar og æðihár á tekjutoppinn, og síðan söluskattinn á umsetninguna, 3%. Það er því sérstaklega illa til fallið að hækka þennan skatt, og hefði í stað þess að hækka skattinn átt að leggja stóraukna áherzlu á að innheimta þann söluskatt rækilega, sem fyrir er, og ég er alveg sannfærður um, að væri það gert rækilega, mundu hækka verulega þær tekjur, sem ríkissjóður hefur af söluskattinum.

Það var talað um það, þegar söluskatturinn var lögleiddur á nýjan leik 1960, að það ætti að setja öflugt innheimtukerfi, það ætti að ætla fyrirtækjunum viðskiptanúmer og síðan ætti að rekja viðskiptin fram og aftur milli fyrirtækjanna og gera dreifikannanir á einstöku fyrirtækjum, sem veittu stórkostlegt aðhald í því, að skilað væri söluskattinum til ríkissjóðs. En ég hygg, að þetta eftirlit hafi aldrei komizt í framkvæmd, og er það mikið tjón, og hefði átt, í staðinn fyrir að hækka söluskattinn, að brjótast í því, þótt það kosti verulegan mannafla, að koma á þessu kerfi og öflugum dreifikönnunum. Framsóknarmenn lögðu til í hv. Ed., að slíkri dreifikönnun yrði komið á með útdrætti fyrirtækja, til þess að styðja innheimtuna og til að koma þessu þannig fyrir, að enginn væri óhultur, allir gætu búizt við því að verða fyrir öflugri könnun í þessu sambandi, og mundi það hafa stórkostleg áhrif í þá átt að bæta skilin. En þessi till. var felld af stjórnarflokkunum. En það hefði þó verið skynsamlegt að samþykkja slíkar ráðstafanir, en hætta við að hækka söluskattinn.

Ég vil svo að lokum minnast á, að stjórnin gengur fast fram í því að innheimta beinu skattana af almenningi og hún hleður á nýjum álögum og nýjum söluskatti, en hún gengur ekki jafnvel fram í allri skattheimtu, því að upplýst hefur verið hér á hv. Alþingi, að stjórnin hefur nálega ekkert innheimt af stóreignaskattinum, sem lagður var á milljónamæringa landsins fyrir nokkrum árum og henni var trúað fyrir innheimtu á. Á sama tíma sem menn eru eltir með lögtökum og hvers konar ráðstöfunum og meginhluti kaupgjaldsins hjá mörgum er tekinn upp í skatta, þá er stóreignamönnunum, sem eiga að greiða stóreignaskattinn, hlíft. Þetta misrétti er ekki hægt að þola og verður ekki þolað til lengdar. Það er alveg vist, og það er full ástæða til að benda einmitt á þetta atriði í sambandi við þessar nýju álögur, sem nú á að samþykkja.

Ég vil svo að lokum segja þetta: Við framsóknarmenn erum algerlega á móti þessu frv., eins og fram hefur komið hjá talsmönnum okkar í hv. Ed. Við teljum, að með þessu frv. sé tekið til að kynda dýrtíðareldana á ný með auknu kappi og af því geti ekkert gott leitt. Það hefði átt að leggja megináherzluna á að gera nú engar ráðstafanir, sem gátu orðið til þess að auka dýrtíðina á ný. Við álítum, að þetta frv. og aðrar ráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. er nú að gera, sýni það enn á ný, að hún er algerlega búin að missa tökin á efnahagsmálunum, og hún notar því miður aðferðir, sem grafa undan sjálfu efnahagskerfinu, en styrkja það ekki. Þegar menn hittast nú um þessar mundir, berast þessi mál nálega ævinlega í tal, og venjulega viðkvæðið er þetta hjá mönnum: Hvar endar þetta? Mönnum er það ljóst, að stjórnin hefur misst tökin á málunum. En sannleikurinn er sá, að þessi óheillaþróun endar aldrei, nema skipt verði algerlega um meginstefnu í efnahagsmálunum. Þessi óheillaþróun stöðvast aldrei, meðan sú ríkisstj. situr, sem lætur verðbólgu- og fésýsluöflin í landinu leika lausum hala, en reynir að leysa vandann með því að skerða lífskjör almennings sífellt með nýjum álögum. Meðan þannig er haldið á þessum málum, verður áfram sama óheillaþróunin og við höfum átt við að búa síðustu 5 árin.