24.02.1965
Sameinað þing: 27. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í D-deild Alþingistíðinda. (2929)
54. mál, fiskiðjuver við Rifshöfn
Flm. (Benedikt Gröndal) :
Herra forseti. Í þeim umr., sem fram hafa farið um jafnvægi í byggð landsins, hefur oft verið á þá hugmynd minnzt, að gera þyrfti skipulegar áætlanir um uppbyggingu einstakra héraða til þess að styrkja þau og bæta lífsbaráttu fólksins þar og tryggja, að byggð haldist þar og aukist.
Ef lítið er á norðanvert Snæfellsnes, kemur fljótlega í ljós, að á undanförnum árum, í tíð núv. ríkisstj., hafa á því svæði verið gerðar stórkostlegar framkvæmdir og má segja, að þar hafi í raun og veru verið tekið fyrir heilt byggðarlag og undirstaða lífsbaráttu fólksins þar styrkzt á stóráberandi hátt, þótt ekki hafi verið gerð formleg og föst áætlun um það. Framkvæmdir hafa verið gerðar á þessu svæði fyrir tugi millj., fyrst og fremst í vegamálum og hafnarmálum. Ruddir hafa verið vegir fyrir fjöll og firði, jafnvel firðir brúaðir og nýjar hafnir verið gerðar, en þær eldri stórbættar. Má fullyrða, að þessar framkvæmdir hafi í heild orðið til þess að stórbæta lífsafkomu fólksins á þessu svæði og auka líkur fyrir því, að þarna muni ekki aðeins haldast byggð, heldur geta stóraukizt á komandi árum. Þarna er sannkallað uppbyggingarsvæði, sem getur nú litið til baka til stórfelldra framkvæmda á fáum árum, enda þótt þar séu enn framundan mikil verkefni, eins og vænta má. Þessar framkvæmdir hafa leitt til þess, að byggðirnar á norðanverðu Snæfellsnesi hafa tengzt nýjum böndum. Nú er aðeins stuttur akstur á milli þeirra og bílakostur mikill, eins og annars staðar á landinu og má þegar sjá mikil merki þess, að samstarf fer vaxandi á milli kauptúnanna í félagslífi og skemmtanalífi og í sjálfu atvinnulífinu. Það er farið að sameina kaupfélögin og samstarf verkalýðsfélaganna fer vaxandi og fleira mætti benda á, sem horfir í þá átt, að þarna er að myndast ný heild, sem getur í næstu framtíð haft mikinn efnahagslegan styrk og dregið til sín íbúa. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á höfnum í öllum byggðunum á norðanverðu Snæfellsnesi, frá Stykkishólmi og út að Rifi. Slipp er verið að koma upp í Stykkishólmi og þar verður sjálfsagt viðgerðar- og þjónustumiðstöð fyrir allt svæðið. Síðan hafa hafnirnar í Grafarnesi og Ólafsvík verið stórbættar, ekki sízt í Ólafsvík, þar sem mikið atvinnulíf og mikill bátafloti var þegar fyrir og þurfti á stórbættri höfn að halda. Loks kemur þarna til skjalanna landshöfnin í Rifi, sem nú er á góðri framkvæmdaleið eftir alllanga bið. Hugmyndin með landshöfnunum var sú að skapa eitthvað nýtt í útgerðarmálum okkar, nýja aðstöðu, þar sem aðstaða var ekki til áður. Þess vegna hlýtur Ólafsvík t.d. og Grundarfjörður að fá lausn sinna hafnarmála og eru að fá það, eins og aðrar byggðir, en í kringum landshöfnina á Rifi er sjálfsagt að reyna að skapa nýja útgerð og nýjan fiskiðnað, sem á að draga til sín fólk og þarna hlýtur í framtíðinni að myndast nýtt kauptún eða nýr kaupstaður.
Um leið og hafnarmannvirkin hafa orðið að veruleika í Rifi, vaknar sú spurning, hverjir verði til þess að reisa fiskiðnað við þessa nýju og stóru höfn. Fyrst í stað mun að sjálfsögðu verða bjargazt við það, sem fyrir er, frystihúsið á Hellissandi lítið fiskiðjuver, sem er við Rif og öflugan fiskiðnað í Ólafsvík, sem þó mun hafa ærin verkefni að vinna við þann afla, sem floti Ólafsvíkings sjálfra ber að landi. Till. sú, sem ég hef flutt, er þess efnis, að ríkisstj. verði falið að hafa forgöngu um það, að stofnað verði til stóriðju í fiskiðnaði á skipulegan hátt við þessa nýju landshöfn, sem þarna er að verða til. Það er augljóst mál. að mörg af fiskiðjuverum okkar eru allt of lítil til að standast nútímakröfur og allt of dreifð og ég er þeirrar skoðunar, að það væri mun farsælla, ef þarna væri sameinað átak til að koma upp einu fiskiðjuveri, sem fullnægði ýtrustu kröfum nútímans um tækni og um þá stærð, að rekstur þess gæti orðið sem hagkvæmastur. Ef þetta verður ekki gert, má búast við, að einstaklingar og félög og jafnvel sveitarfélög eigi aðild að mörgum þeim smáu fyrirtækjum og þá yrði haldið áfram á þeirri braut, sem hér hefur víða verið farin og ekki er hagkvæmt að hafa mörg fiskiðjufyrirtæki við tiltölulega litlar hafnir. Ég hef hugsað mér, að þarna yrðu sameinaðir allir kraftar, sem hægt er að ná til: Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Samband ísl. samvinnufélaga, sjómenn. útgerðarmenn, aðrir einstaklingar og hlutafélög. Þetta má gjarnan mín vegna vera almenningshlutafélag, ef menn telja það líklegt, þar sem svona margir og ólíkir aðilar sameina krafta sína. En aðalatriðið er það, að þeir, sem sérkunnáttu hafa og reynslu í rekstri slíkra fyrirtækja, verði þarna aðilar og segi fyrir um það, hvernig þessi stóriðja í fiskiðnaði getur hagkvæmust og bezt orðið. Ég vænti þess að sjálfsögðu, að stuðningur og fyrirgreiðsla ríkisvaldsins komi þarna einnig til skjalanna.
Þessari hugmynd er varpað hér fram skömmu áður, en tímabært er að reisa fyrstu fiskiðjuverin við Rifshöfn og ég vil vænta þess, að menn íhugi þetta mál og styðji þá hugmynd, að þarna verði á einhvern hátt gert sameiginlegt, nýtt átak, en þessi mál ekki látin fljóta áfram skipulagslaust, eins og ella kynni að verða.
Herra forseti. Ég legg til, að þessari umr. verði frestað og till. vísað til allshn.