10.03.1965
Sameinað þing: 31. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í D-deild Alþingistíðinda. (2965)

85. mál, markaðsrannsóknir í þágu atvinnuveganna

Flm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Á þskj. 116 höfum við 6 þm. Framsfl. flutt svofellda till. til þál., með leyfi hæstv. forseta.:

„Alþingi ályktar að kjósa 5 manna mþn. til að athuga í samráði við fulltrúa atvinnuveganna, á hvern hátt megi efla, markaðsrannsóknir og sölustarfsemi í þágu útflutningsatvinnuvega þjóðarinnar svo og bæta gæðaeftirlit, þannig að sem beztum árangri verði náð með minnstum tilkostnaði og leggja niðurstöður fyrir næsta reglulegt Alþ.“

Tilgangurinn með tillöguflutningi þessum er að freista þess að fá mótaða stefnu í markaðsmálum og sölustarfsemi, sem byggist á nánu samstarfi fulltrúa útflutningsatvinnuveganna annars vegar og fulltrúa ríkisvaldsins hins vegar, en slíkt samstarf er nauðsynlegt til þess að kraftarnir nýtist sem bezt og til þess að tryggja samræmdar aðgerðir allra þeirra, sem að málum þessum vinna.

Utanríkisverzlun Íslendinga vex nú ár frá ári að verðmæti. Fjölbreytni útflutningsins eykst einnig nokkuð. Lífskjör þjóðarinnar ákvarðast ekki hvað sízt af því, hversu til tekst um sölu afurðanna á erlendum mörkuðum. Það er því áríðandi, að sölustarfsemi og markaðsmálefni landsmanna séu í góðu lagi og keppt sé að því að endurbæta hana og auka til jafns við það, sem bezt gerist annars staðar, eftir því sem geta þjóðarinnar leyfir.

Á því er ekki minnsti vafi, að margt má lagfæra í þessum málum frá því, sem nú er. Eitt af því allra nauðsynlegasta er þó að byrja á því að marka ákveðna stefnu um vinnubrögð, er laði hið opinbera og samtök atvinnuveganna auk annarra, sem með þessi mál hafa sérstaklega að gera, til samstarfs og samvinnu um þau: Ekki sízt á sviði hvers kyns markaðsupplýsinga er mikið og stórt verkefni óunnið, enda er góð markaðsupplýsingaþjónusta ein meginforsenda þess, að aukin fjárfesting í eldri og nýjum atvinnugreinum skili þeim arði, sem nauðsynlegur er, til þess að búið verði menningarlífi í landinu. Það er þannig áberandi, að Íslendingar hafa ekki enn þá komið á þeirri skipulagsbreytingu á starfsháttum utanríkisþjónustunnar, sem geri henni mögulegt að annast upplýsingasöfnun og auglýsingastarfsemi í þágu atvinnuveganna, eins og algengast er nú orðið meðal flestra þjóða. T. d. vantar algerlega sérmenntað fólk í utanríkisþjónustuna til að sinna þessu verkefni.

Ég er þess ekki umkominn á þessum stað og þessari stundu að segja til um, hvernig málum þessum verði bezt fyrir komið í öllum smáatriðum, enda gengur till. sú, sem ég er nú að mæla fyrir, út á það, að kosin verði 5 manna mþn. sérfróðra manna um markaðsmálefni, sem í samráði við fulltrúa atvinnuveganna marki stefnuna í þessum málum. Ég endurtek, eins og ég sagði í upphafi að aðalatriðið er að marka stefnu í markaðsmálefnum, sem laði til samstarfs og samræmdra aðgerða í þessum mikilvægu málum og í þeim tilgangi er þessi till. flutt.

Ég legg svo til, herra forseti, að máli þessu verði vísað til síðari umr. og hv. allshn.