03.03.1965
Sameinað þing: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í D-deild Alþingistíðinda. (2974)

87. mál, hækkun íbúðarhúsalána hjá stofnlánadeild landbúnaðarins

Flm. (Ásgeir Bjarnason) :

Herra forseti. Það er alllangt síðan þessi till. var lögð fram hér á hv. Alþ. Meginefni till. er að fara fram á það í fyrsta lagi, að þau lán, sem stofnlánadeild landbúnaðarins veitir til íbúðarhúsabygginga í sveitum, verði hækkuð úr 150 þús. kr. upp í a.m.k. 280 þús. kr. og að þessi hækkun verði látin ná til þeirra íbúðarhúsa, sem voru fullgerð á árinu 1964. Og enn fremur felur þessi till. í sér, að vextir verði lækkaðir úr 6%, sem þeir nú eru, í 3½%, eins og þeir voru fyrir 1960, er hin almenna vaxtahækkun varð í landinu, bæði á stofnlánum og yfirleitt öllum lánum.

Það þarf ekki að fjölyrða mikið um ástæðuna fyrir því, að þessi till. er flutt. Ég hygg, að hún muni vera hv. þm. fyllilega ljós. Árið 1958 er byggingarvísitalan 134, en í okt. s.l. var hún 220, þannig að rúmmetrinn í húsi kostaði 1958 1.249 kr. og þar af leiðandi kostaði hús, sem var 350 m3, eins og íbúðarhús almennt munu vera til sveita, um 437 þús. kr., en sams konar hús nú, miðað við byggingarvísitölu í okt., kostar 71.5400 kr., eða 278.250 kr. meira en sams konar hús kostaði 1958. Lánið út á þetta hús nú, sem kostar 715 þús. kr., er 150 þús., og því vantar 565 þús. kr. til þess að klára þann hlutann, sem fram yfir er. Nú er það svo, að það mun í flestum eða öllum tilfellum veitt ríkisframlag, 60 þús., til þessara íbúðarhúsabygginga, þannig að það er rúmlega ½ millj, kr., sem þá stendur eftir. Það gefur auga leið, að með svo dýrum búrekstri sem almennt er nú til sveita, hlýtur það að valda verulegri, lausaskuldasöfnun hjá þeim bændum, sem standa í þessum framkvæmdum og fá ekki meira en 150 þús. kr. lán. Og við höfum nokkra reynslu fyrir því, á meðan dýrtíðin var minni í landinu, að þá söfnuðust lausaskuldir og ég hygg, að hjá þeim, sem hafa staðið í framkvæmdum hin síðari ár, hafi orðið verulega mikil lausaskuldasöfnun, enda þótt lán hafi nokkuð hækkað miðað við það, sem áður var, en þó engan veginn, að það hafi vegið upp á móti dýrtíðarhækkuninni. Íbúðarhúsalánin þurfa því að hækka verulega frá því, sem verið hefur og það er algert lágmark, að þau verði 280 þús. kr. og bezt, ef þau gætu orðið nokkru hærri, því að þá mundu þau nema sem næst helmingi af byggingarkostnaði með ríkisframlaginu, sem nú er veitt. Ég vona, að hv. þm. hafi það góðan skilning á þessum málum, að þeir samþykki þá till., sem hér liggur fyrir og reyni á þann hátt að veita þá nauðsynlegu úrlausn, sem þörf er á vegna þeirra, sem þurfa að byggja í sveitum.

Ég ætla svo ekki að svo stöddu að fjölyrða meira um þetta mál, en legg til, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.