07.04.1965
Sameinað þing: 40. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í D-deild Alþingistíðinda. (2989)
99. mál, lánveitingar til íbúðarbygginga
Flm. (Einar Ágústsson) :
Herra forseti. Þessi þáltill. kemur nokkuð seint til umr. hér á hv. Alþ., enda hefur jafnan verið þröngt á dagskrá Sþ. og er auðvitað ekkert við því að segja, en till., sem er á þskj. 145, var borin fram á öndverðu þessu þingi og er núna fyrst að koma til fyrri umr., þegar aðeins eru nokkrar vikur til þingloka. Ég segi þetta ekki í aðfinnsluskyni, heldur aðeins til þess að benda á, að svona meðferð mála er nokkuð seinvirk og nauðsyn að mínum dómi á því að reyna að hraða störfum eftir föngum.
Ég mun í örstuttu máli leyfa mér að gera grein fyrir efni þessarar till. og fara um hana nokkrum orðum.
Till. er um það, að Alþ. kjósi 7 manna nefnd til þess að endurskoða öll gildandi lög um lánveitingar til íbúðabygginga í landinu, og n. er ætlað að gera till. að nýrri löggjöf í þessu efni, sem hafi þessi markmið, eins og hér er talið að auka lánveitingar til bygginga nýrra íbúða, svo að unnt verði að lána til hverrar íbúðar af hóflegri stærð, hvar sem er á landinu, 2/3 hluta af byggingarkostnaði, að jafna aðstöðu manna til lánsfjár þannig, að heildarlán geti orðið svipuð til hvers manns miðað við sömu stærð íbúðar, hver sem hann er og hvar sem hann býr. Að greiða fyrir mönnum með lánveitingum til að endurbæta íbúðir, svo og kaupa íbúðir til eigin nota, að lækka byggingarkostnaðinn í landinu og að bæjar- og sveitarfélög byggi íbúðir til að leigja húsnæðislausu fólki.
Hér virðist vera um nokkuð sjálfsagða hluti að ræða. Þó hefur sams konar till. verið flutt æði oft hér, án þess að finna náð fyrir augum hv. alþm. Það mun þó ekki vera vegna þess, að nokkur dragi í efa mikilvægi þess að koma húsnæðismálunum í viðunandi horf, því að þýðing þeirra fyrir efnahagslífið er hverjum manni ljós.
Allir þurfa á húsnæði að halda, alveg eins og fæði og klæðum og það er skylda ríkisvaldsins — og enda viðurkennt — að auðvelda mönnum að eignast þak yfir höfuðið og að sú skylda sé engu minni en hin, að halda uppi nægilegri atvinnu og viðunandi lífskjörum að öðru leyti. Lágmarkslaunin hljóta alltaf að miðast við þessar frumþarfir, og þess vegna verða þau að standa undir húsnæðiskostnaðinum eins og öðrum kostnaði við það að vera til, og þannig vefst hinn hái húsnæðiskostnaður inn í allt efnahagslífið og er ein aðal undirrót þess, hversu kaupgjaldið þarf að vera hátt og hversu vandasamt það er að halda sæmilegum vinnufriði í landinu. Þess vegna ætti ekki að þurfa um það að fjölyrða, hver nauðsyn er á lagfæringum á húsnæðismálunum, enda er það, eins og ég áðan sagði, út af fyrir sig ekki dregið í efa.
Síðan þessi till. var borin fram hér í byrjun þings, hafa úrræði hæstv. ríkisstj. í þessum þýðingarmiklu málum verið lögð fram á Alþ. í samræmi við og til uppfyllingar á loforðum, sem gefin voru í sambandi við hið svonefnda júnísamkomulag, sem gert var í júní í fyrra milli verkalýðsfélaganna, atvinnurekendanna og ríkisstj. Ég tel því, að það sé eðlilegt að skoða till. með hliðsjón af því, sem síðan hefur verið undirbúið og lagt fram í frv. formi og þess vegna mun ég leyfa mér að víkja að frv. um húsnæðismálastofnun ríkisins með örfáum orðum, enda þótt það sem slíkt sé ekki hér til umr. nema að því leyti, eins og ég áðan sagði, hvað það snertir þetta mál.
Mér sýnist við þann yfirlestur, sem ég hef haft tækifæri til þess að gera á frv., að það sé að meginuppbyggingu til eins og lög um sama efni frá 27. maí 1957, en að sjálfsögðu hefur frv. að geyma hækkun á öllum fjárupphæðum, sem þar eru nefndar, enda hefur dýrtíðin aukizt svo hér á undanförnum árum, að byggingarkostnaðurinn hefur því sem næst tvöfaldazt frá því í okt. 1958 og alveg tvöfaldazt frá því í febr. það ár.
Sú upphæð, sem gert er ráð fyrir að lánin geti numið, er nú 280 þús., en í gildandi l. er upphæðin 150 þús. Þegar athugað er, hversu lánin hrökkva langt, verður auðvitað að gera sér grein fyrir því, hvað það kostar að byggja meðalíbúð. Efnahagsstofnunin reiknar með 375 teningsmetra íbúð sem meðalíbúð, segir, að það sé meðaltal íbúða, sem byggt hefur verið hér síðast liðin ár og samkv. byggingarkostnaðinum, sem hagstofan reiknar út, kostar slík íbúð nú 827 þús. kr. Jafnstór íbúð kostaði, miðað við sama mælikvarða, í júní 1958 430 þús. kr. Hækkanirnar hafa orðið á tímabilinu nærri tvöföldun, eins og ég áðan sagði og þær hafa gerzt á þann hátt, sem hér segir, að frá júní 1958 til júní 1959 var hækkunin 29.700 kr., frá 1959–60 57.700 kr., frá 1960–61 14.700 kr., frá 1961–62 79.800 kr., frá 1962–63 25.900 kr., frá 1963–64 122.200 kr. og frá því í júní 1964 og þar til í febr. 1965, en lengra ná upplýsingar ekki, er hækkunin 85 þús. kr., þannig að samanlögð hækkun á öllu tímabilinu er þá 397 þús. kr. Þannig er sýnilegt, að þó að lánin hækki nú um 130 þús. kr., dugir það ekki nema fyrir þeirri hækkun, sem orðið hefur á byggingarkostnaðinum á meðalíbúð síðan í okt. 1963, eða fyrir réttu 1½ ári. Sá, sem byrjar í dag á byggingu meðalíbúðar, 375 teningsmetra íbúðar og þó að hann mætti eiga það víst, að hann kláraði hana fyrir það verð, sem nú kostar að byggja teningsmetrann, þ.e.a.s. þó að engin hækkun komi til og þó að reiknað sé með nýju lánsfjárhæðinni, 280 þús. kr., þarf hann samt að leggja fram úr eigin vasa 547 þús. kr. og þá getur hver og einn gert sér það í hugarlund, hversu auðvelt það muni vera í mörgum tilfellum og sýnilega útilokað fyrir ungt fólk, sem er að byrja búskap, að ráðast í slíkar stórframkvæmdir. Ég held því, að þrátt fyrir þá lagfæringu, — og ég vil undirstrika það, að vissulega er hér um lagfæringu að ræða, en þrátt fyrir hana vantar þó verulega á, að við séum búnir að koma húsnæðismálunum í viðunandi horf, þó að frv. um húsnæðismálastofnunina, sem hér liggur til umr. fyrir hv. Alþ., verði samþykkt.
En fleira kemur hér til athugunar. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert og sjálfsagt, að ríkisvaldið sjái um það, að hæfilegt lánsfjármagn sé jafnan fyrir hendi í þessu skyni. Þó er það kannske ekki, þegar allt kemur til alls, aðalatriði málsins, heldur hitt, að unnið sé þannig að málum, að þjóðfélagið fái sem allra mest út úr því vissulega verulega fjármagni, sem ár hvert er, þrátt fyrir allt, varið til íbúðabygginga. Þess vegna tel ég, að það þurfi að leggja höfuðáherzlu á það að lækka byggingarkostnaðinn og einn hluti af þeirri þáltill., sem hér er til umr., fjallar einmitt um það.
Í 3. gr. frv. til l. um húsnæðismálastofnun ríkisins eru margvíslegar ábendingar um það, hvað húsnæðismálastjórn skuli gera í því skyni ,að lækka byggingarkostnaðinn. Við lauslegan samanburð sýnist mér, að þessi gr. sé orði til orðs samhljóða 2. gr. l. um húsnæðismálastofnunina, sem verið hafa í gildi allt frá árinu 1957 og ég sé ekki, að í frv. hæstv. ríkisstj. séu nein ákvæði, sem tryggi það, að betur verði á haldið framkvæmd þessara mála hér eftir en hingað til. Ef þau finnast í frv., hef ég ekki komið auga á þau.
Það má kannske segja, að það sé ekki aðalatriðið að hafa skýr lagaákvæði um þetta efni eða að þau skorti nú. Hitt er aðalatriðið, að það hefur ekki tekizt að framkvæma þau fyrirmæli sem hér er um að ræða. Ég geri ráð fyrir því, að það sé í og með og kannske fyrst og fremst vegna skorts á fjármagni, að þeim, sem stjórna húsnæðismálunum hér, hafi þótt biðlistinn svo langur og erfiðleikar fólksins svo miklir, að þeir hafi ekki tímt að sjá af því fjármagni, sem stofnunin hafði til umráða, til þess að framkvæma 2. gr. l., sem nú verður 3. gr., eins og vert væri eða verja til þess fjármagni og þessa afstöðu get ég út af fyrir sig afskaplega vel skilið og dettur ekki í hug að gagnrýna. En ég hefði talið, að í lögin þyrfti að taka upp beina fjárveitingu í þessu skyni. Það hefur sýnt sig, að ákvæðin, sem búin eru að vera í lögum í 8 ár, hafa ekki náð tilætluðum árangri og ég ímynda mér og þykist raunar vita, að það sé fjármagnsskorturinn, sem því veldur, því að ekki dettur mér í hug að ætla, að hv. meðlimir húsnæðismálastjórnar hafi ekki fullan hug á því að vinna að þessu máli eins og þeirra geta frekast leyfir.
Í 3. gr. er talað um ýmsar umbætur á byggingarmálunum og bent á úrræði. Því miður finnst mér um sum þeirra a.m.k. gilda það sama og um byggingarkostnaðinn, að árangurinn af því erfiði hafi oft orðið býsna lítill. T. d. er talað um það í 10. tl., að húsnæðismálastjórn eigi að beita sér fyrir því, að úthlutun lóða tefji ekki, að byggingar geti hafizt. Ég verð nú að viðurkenna það, að mér er ekki kunnugt um afskipti húsnæðismálastjórnarinnar af lóðaúthlutun t.d. hér í Reykjavík, en ég vil fullyrða það, að þau hafa þá ekki borið ríkulegan ávöxt, vegna þess að lóðaúthlutun í Reykjavík hefur óumdeilanlega tafið byggingarframkvæmdir í stórum stíl og ég vil mjög eindregið mælast til þess, að hv. húsnæðismálastjórn beiti áhrifum sínum til þess. að þeirri málsmeðferð, sem þar hefur verið höfð á lóðaúthlutun; verði breytt, til þess að koma í veg fyrir það, að fólk geti ekki byrjað byggingu íbúða hér í höfuðstaðnum vegna þess, að það fær ekki lóðir og að byggingarnar eru í mörgum tilfellum gerðar dýrari en þarf, vegna þess að lóðunum er ekki úthlutað á heppilegum árstíma.
9. liður þessara ábendinga talar um það, að húsnæðismálastjórn skuli beita sér fyrir lækkun á verði byggingarefnis, með því m.a. að stuðla að hagkvæmum innkaupum. Ég held, að hér sé um mjög þarfa ábendingu að ræða og ég held, að það muni vera hægt að ná mjög verulegum árangri í baráttunni við byggingarkostnaðinn, ef þessi ábending væri tekin til greina. En mér er ekki kunnugt um, að svo hafi verið gert,og er raunar ekki hægt að gera, svo að nokkurt vit sé í, nema fullkomin áætlun sé gerð um byggingarþörfina og byggingarmöguleikana.
Ég sé ekki, að hið nýja frv. tryggi það, að betur verði staðið að þessum atriðum, sem ég hef nú í örstuttu máli gert að umtalsefni, heldur en gert hefur verið undir þeim l., sem við höfum búið við í 8 ár, og ég tel, að því þurfi að breyta.
Í framhaldi af þessu vil ég láta það í ljós, að mér sýnist, að síðasta mgr. 2. gr. l. frá 1967 hafi verið felld niður. En hún er svona:
„Húsnæðismálastofnun ríkisins skal ár hvert gefa út opinbera skýrslu um íbúðabyggingar í landinu, er m.a. sýni, hver árangur hafi náðst með ráðstöfunum hennar, til að lækka byggingarkostnað og að greiða fyrir byggingu hagkvæmra íbúða.“
Ég held, að þessi mgr. hefði vel mátt vera og að hún væri ekki bara bókstafurinn einn, heldur að okkur öllum hefði gefizt kostur á því að sjá þessa skýrslu og fylgjast með því, hver árangur húsnæðismálastjórnar hafi verið af því að lækka byggingarkostnað og greiða fyrir byggingu hagkvæmra íbúða, því að eflaust er hann töluverður. A.m.k. hefur húsnæðismálastofnunin gefið mönnum kost á því að kaupa ódýrar og hagkvæmar teikningar og það er vissulega eitt spor í þessa átt, svo að mér finnst, að þessi mgr. ætti ekki að falla niður. Má vera, að hún sé í frv., en ég hef þá ekki séð hana, a.m.k. ekki á þeim stað, sem hún var í lögunum. Þetta er náttúrlega ekki stórt atriði og skiptir sjálfsagt ekki miklu máli í þessu sambandi, en af því að ég tók eftir þessu, gerði ég það að umtalsefni með örfáum orðum.
Í 7. gr. frv. er greint frá því, til hvaða bygginga húsnæðismálastjórn megi lána. Þar segir, að lánin veitist aðeins til byggingar nýrra íbúða, meiri háttar viðbygginga eða til kaupa á nýjum íbúðum, en lán skal þó því aðeins veita, að loforð um lánveitingu hafi verið gefið, áður en hlutaðeigandi byggingarframkvæmd hófst eða kaup á nýjum íbúðum eru gerð.
Hér hefur ekki verið tekin upp sú ábending, sem verið hefur í þáltill. okkar framsóknarmanna að undanförnu, að húsnæðismálastjórn yrði heimilað að lána til endurbyggingar eða endurbóta á íbúðum og ekki heldur til þess að kaupa íbúðir til eigin nota, þ.e.a.s. kaupa tilbúnar eða eldri íbúðir. Ég held þó, að það mundi geta verið þjóðhagslega hagkvæmt að veita mönnum nokkurt lánsfé til endurbóta á gömlum húsum eða til að kaupa slík hús til eigin notkunar. Með því má óumdeilanlega hagnýta betur það húsnæði, sem fyrir er og spara lánsfé, sem annars þyrfti í nýjar íbúðir, og síðast, en ekki sízt koma í veg fyrir það, að menn búi í óviðunandi íbúðum, vegna þess að margur maðurinn er þannig settur, að hann getur með aðstoð endurbætt sitt gamla húsnæði, þó að hann hafi engin ráð til þess að fara í byggingu nýs húsnæðis. Það má vel vera, að húsnæðismálastjórn hafi við athugun séð á þessu einhverja framkvæmdagalla, sem ekki hafi verið hægt að yfirstíga, en bágt á ég þó með að trúa því, að ekki væri hægt að koma reglunum þannig fyrir, að slíkt húsnæði og slík lán gætu fallið undir verksvið húsnæðismálastjórnar. Og þetta er eitt atriði, sem þáltill., sem ég er hér að mæla fyrir, talar um. Hins vegar sé ég það mér til mikillar ánægju, að inn í lagafrv. hefur nú í fyrsta sinn verið tekið ákvæði í 7. gr. um heimild til að veita sveitarfélögum lán til byggingar leiguhúsnæðis og ég vil mjög fagna því, að það hefur verið gert, því að enda þótt það sé stefna mín a.m.k. og minna samherja, að sem allra flestir geti átt sitt húsnæði sjálfir, er það samt staðreynd, að mjög fer fjarri því, að allir geti það og svo hlýtur raunar jafnan að vera og nú með stórhækkandi byggingarkostnaði hefur þeim fjölskyldum fjölgað mjög, sem þurfa að koma sér upp þaki yfir höfuðið, en geta það ekki vegna hækkunarinnar. Af því leiðir það m.a. að leiguíbúðir eru orðnar lítt eða ekki fáanlegar og ef þær fást, þá er leigan svo há, að heita má óviðráðanlegt fyrir allan almenning að taka slíkt húsnæði á leigu. Þess vegna tel ég, að ekki verði hjá því komizt, að hið opinbera veiti bæjar- og sveitarfélögum aðstoð til að byggja íbúðir og til að leigja þær íbúðir húsnæðislausu fólki. Þetta er eitt atriði af okkar þáltill., sem ég sé nú, að tekið hefur verið upp og ég fagna því.
Um lánskjörin ætla ég ekki að segja mikið á þessu stigi. Ég vil þó aðeins nefna þau með örfáum orðum. Aðalbreytingin frá því, sem veri hefur er tvenns konar, í fyrsta lagi sú, að í vor sem leið, voru vextir stórlækkaðir eða ofan í 4% og er það auðvitað mikilsverður áfangi í þessari hörðu baráttu við háan byggingarkostnað og húsnæðisleysi. Síðari breytingin er svo aftur hin, að vísitölubinding eða viðmiðun er tekin upp á allt lánið nú í fyrsta sinn. Eins og kunnugt er, hefur hluti lánsins verið vísitölubundinn fram að þessu, en nú er það allt lánið, sem er vísitölubundið. Ég tel, að það sé hæpið að taka þennan eina flokk út úr og vísitölubinda hann, meðan skuldir almennt eru látnar afskiptalausar í þessu efni. Að vísu er náttúrlega óhjákvæmilegt að vísitölubinda þann hluta fjármagnsins, sem fenginn er með slíkum kjörum, því að engin stofnun er til, sem getur tekið að sér að borga þann mismun, sem þar yrði. En ég held, að það sé hæpið að taka eins og ég sagði, þennan eina flokk út úr; þennan þýðingarmikla málaflokk út úr og vísitölubinda þau lán öll, meðan þó er ekki nema hluti fjármagnsins fenginn með þeim kjörum. Það er margt fleira byggt en íbúðir. Það er byggt mikið af verzlunar-, skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði og slíku, sjálfsagt allt saman, þarft flest af því a.m.k., en það er nokkuð óeðlilegt, finnst mér, að þessar allra nauðsynlegustu byggingar, þessar lífsnauðsynjar, sem íbúðarhúsnæðið er, skuli vera settar í sérflokk að þessu leyti og vísitölubundið, meðan lán til annars konar bygginga eru það ekki.
Áður en ég skilst við þetta, vil ég náttúrlega taka það fram, að ég er þeirrar skoðunar, að það beri að vísitölutryggja sparifé og útlán, en að það þurfi að vera samræmdar heildaraðgerðir, sem þar koma til, en ekki að tíndir séu út úr einstakir málaflokkar og þeir vísitölubundnir meðan aðrir eru látnir afskiptalausir. Þetta leiðir náttúrlega hugann að því, að dýrtíðarráðstafanirnar þurfa að verða öflugri, en raun hefur verið á til þessa, þegar lagt er út á þá braut að taka húsnæðislánin ein, þennan mikilvæga og viðkvæma þátt, út úr og því miður er, eins og nú horfir, einmitt mikil hætta á því, að sú réttmæta vaxtalækkun, sem fékkst í júnísamkomulaginu í fyrra, verði að litlu gerð eða engu með þessu fyrirkomulagi, ef ekki tekst til muna betur baráttan við verðbólguna, heldur en hún hefur gert til þessa.
Þá er það lánstíminn. Ég sé, að hann er ætlaður 25 ár og það er stuttur tími, þegar um húsnæðismálalán er að ræða. Það væri strax mikill ávinningur að því, ef till. minni hl. hv. heilbr.- og félmn. Ed. verða samþykktar og lánatíminn verður lengdur upp í 36 ár.
Það mundi muna húsbyggjendurna eða húseigendurna verulegu að þurfa ekki að borga þetta nema á 35 árum. Sérstaklega er það nauðsynlegt, þegar haft er í huga, hversu mikið fjármagn vantar til þess að byggja íbúð, þó að lánið fáist að full, og að það lánsfé, sem fæst fram hjá húsnæðismálalánunum, er yfirleitt til mjög skamms tíma og hvílir mjög þungt á mönnum.
Ég skal ekki fjölyrða meira um þessi lánskjör að svo stöddu og ekki heldur um þá þáltill., sem hér er til umr. Ég vil að endingu draga saman í örfá orð það, sem ég hef verið að segja, sem eins konar niðurstöðu og hún er sú, að ég tel, að till. á þskj. 145 eigi enn þá fullan rétt á sér þrátt fyrir þær breytingar, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fram á þessum málum og það sé þarft verk og nauðsynlegt að endurskoða öll gildandi lög um lánveitingar til íbúðabygginga í landinu. Og ég nefni þar til aðeins tvö atriði, þótt fleiri komi til, sem ég tel gera þetta knýjandi nauðsyn. Í fyrsta lagi, það er ekki nóg að lána 280 þús. kr. út á íbúð, sem það kostar 827 þús. kr. að byggja. Aðrar þjóðir eru komnar miklu lengra í þessum efnum. Þar nema lánin allt að 90%, en hér nema þau þrátt fyrir þessa hækkun tæpum 34%. Ég veit, að hér er um erfitt mál að ræða og það er ekki létt verk að tryggja það fjármagn, sem þarf til þess að koma íbúðalánunum upp í það, sem ég tel viðunandi horf, eða 2/3 hluta af kostnaðarverði. En ég held, að það þurfi að gera það, það sé óhjákvæmilegt og þess vegna finnst mér sjálfsagt, að gert sé eins og till. fer fram á, að allir leggist á eitt um það að finna hagkvæmustu lausnina á þessu máli, en það er einmitt það sem þáltill. gerir ráð fyrir, að allir flokkar taki höndum saman, ef svo mætti segja, til þess að finna viðunandi lausn á þessu vandamáli. Og hitt, sem ég geri að aðalatriði jafnframt þessu eða til viðbótar þessu, er það, að það er knýjandi nauðsyn, að lækka byggingarkostnaðinn í landinu, til þess að við getum fengið meira húsnæði fyrir allt það mikla fjármagn, sem í því skyni er varið. Ákvæði frv. hafa verið í l. í 8 ár, eins orðuð og þau eru nú, án þess að þau hafi megnað að áorka nokkru umtalsverðu í þessu sambandi. Og í frv. tel ég, að engin trygging sé fyrir því, að betur takist hér eftir, en hingað til í þessari baráttu og þess vegna tel ég, að þetta mál þurfi að athugast miklu betur og einnig það rökstyðji þá till., sem ég er hér að tala um. Önnur atriði till. eru þýðingarminni, en þó að mínum dómi fullrar athugunar verð. Þess vegna tel ég með hliðsjón af því, sem ég hef nú sagt, að Alþ. gerði rétt í því að samþykkja till. og freista þess á þann hátt að fá samstöðu allra flokka og allra þm. um sameiginlegt átak í þessu mikla nauðsynjamáli.
Ég legg svo til, herra forseti að, að lokinni fyrri umr. verði till. vísað til síðari umr. og hv. allshn.