21.12.1964
Neðri deild: 34. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í B-deild Alþingistíðinda. (301)
106. mál, söluskattur
Frsm. 2. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Um þetta mál hafa þegar orðið allmiklar umr. hér á Alþingi. Afstaða manna og flokka hefur því komið mjög skýrt fram til málsins. Ég sé því ekki ástæðu til þess að lengja umr. um málið mikið nú við þessa umr., enda er þannig ástatt, eins og hv. þm. vita, að komið er að síðustu starfsstundum þingsins. 3. umr. fjárl. er þó eftir og útvarpsumr. í kvöld um þetta mál. Afstaða okkar Alþb.manna er skýr til þessa máls. Við erum á móti frv. og leggjum til, að það verði fellt.