17.03.1965
Sameinað þing: 32. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í D-deild Alþingistíðinda. (3016)

124. mál, tækniaðstoð við nýjungar í vinnslu og veiði sjávarafla

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Þáltill. sú. sem hér er til umr., snertir að mínu viti afar stórt og mikilvægt mál, sem ástæða er til að gefa hinn fyllsta gaum. Ég hygg, að enn sem komið er hafi menn ekki almennt gert sér ljóst, hvað hér er um að ræða stórvægilegt mál, þegar um það er að tefla að koma upp einhverri þeirri stofnun, sem hefði með að gera rannsóknir í sambandi við veiðiskip, veiðitækni og veiðimál okkar almennt. Að sjálfsögðu hafa útgerðarmenn og sjómenn lengi fundið til þess, hversu mikill bagi er að því, að hér skuli hafa ríkt meira og minna handahóf í þessum efnum allt fram á þennan dag, að því er alla tækniaðstoð varðar og er svo í rauninni enn. Það má ekki dragast lengur hjá þjóð, sem byggir jafnmikið á sjávarútvegi og við Íslendingar, að hafizt verði handa um að byggja á skipulegan hátt upp stofnun, sem hefði með höndum þessi verkefni, sem snerta tækni í sjávarútvegi sérstaklega.

Við Íslendingar höfum á umliðnum tímum komið okkur upp tveimur mikilvægum stofnunum, sem hafa unnið mikið og gott starf í þágu sjávarútvegsins. Það er í fyrsta lagi fiskideild atvinnudeildar háskólans, sem fæst, eins og kunnugt er, við rannsóknir, almennar fiskirannsóknir, þ.e.a.s. hafrannsóknir og rannsóknir á göngum og stofnsveiflum þeirra nytjafiska, sem hér eru veiddir. Og í öðru lagi höfum við komið okkur upp rannsóknarstofu Fiskifélags Íslands, sem hefur það sérstaka verkefni að rannsaka sjálfa framleiðslu sjávarafurðanna. Þessar stofnanir báðar hafa, eins og alkunnugt er, verið til mikilla og ómetanlegra nytja fyrir fiskiðnaðinn. En hér hefur að mínu viti skort mjög þriðju stofnunina, sem hefði sitt afmarkaða verkefni, sem er engu þýðingarminna en þau tvö, sem ég hef nú nefnt. Það er stofnun, sem hefði það hlutverk að rannsaka allt, sem snertir tækni fiskveiðanna. Og þá á ég við skipin sjálf, gerð þeirra, veiðarfæri, veiðitæki og annað, sem að þessu lýtur.

Í sambandi við þá till., sem hér er til umr., vil ég leggja áherzlu á, að verkefnið, sem hún bendir á, er afar þýðingarmikið. Jafnframt vil ég vekja athygli á því, að fyrr í vetur, snemma á þessu þingi, flutti ég till. til þál., sem fjallar einmitt um þetta mál og er þó að mínu viti víðtækari en sú till., sem hér liggur fyrir. Þá till. flutti ég raunar á síðasta þingi einnig, en hún náði þá ekki fram að ganga. Sú till., sem ég vil hér vekja athygli á, er á þskj. 20, till. til þál. um Tækni stofnun sjávarútvegsins. Þar er lagt til að ríkisstj. sé falið að undirbúa löggjöf um sérstaka tæknistofnun í þágu sjávarútvegsins og séu verkefni hennar þau að hafa með höndum rannsóknir á hagkvæmustu gerðum fiskiskipa, rannsóknir veiðitækja og veiðarfæra, svo og að hafa með höndum víðtæka upplýsingastarfsemi um slík efni. Ég er þeirrar skoðunar, að með því einu móti að setja á fót fasta stofnun með hæfilega miklu menntuðu starfsliði sé hægt að sinna þessum verkefnum á þann hátt, sem æskilegur og verðugur er. Ég er ekki í neinum efa um það, að hér getur verið um svo mikla fjármuni að ræða, sem slík stofnun mundi beinlínis flytja í þjóðarbúið, að það á ekki að spara allt of mikið til slíkrar stofnunar eða slíkrar starfsemi sem hér er um að ræða.

Ég vil aðeins benda á, að nú á dögum þykir það algerlega sjálfsagt, að sá bóndi, sem vill hagnýta nútímatækni í búskap, geti leitað til ráðunauta um hvers konar efni í sambandi við búrekstur og að haldið sé uppi af opinberri hálfu mjög viðtækri upplýsingastarfsemi bóndanum til handa. Þetta á við um hinar ýmsu greinar búskapar, svo sem búfénaðinn, um ræktunina, um vélakaup og vélanotkun í sambandi við búskapinn. En svo er allt annað upp á teningnum, þegar til sjávarútvegsins kemur og má furðulegt heita hjá slíkri fiskveiðiþjóð sem við erum. Útgerðarmaður, sem kaupir nýtt fiskiskip, segjum fyrir 15 millj, kr.,og síðan tilheyrandi veiðarfæri, á þess ekki kost í dag að leita til neinnar hliðstæðrar stofnunar eins og bóndinn til þess að fá úr því skorið, hvað hentugast hafi reynzt eða fá gerðar tilraunir með það, sem honum lízt sérstaklega vel á í sambandi við sína útgerð. Það er ekki til nein föst stofnun, sem sinnir þessum verkefnum og skipstjóri, sem á að taka við þessu skipi, sem kostar á annan tug millj., hefur ekki heldur til neinnar ákveðinnar opinberrar stofnunar að leita um þau atriði, sem hann teldi æskilegt og jafnvel nauðsynlegt að fá upplýsingar um, svo sem hver er hin almenna reynsla af þeirri tækni og þeim tækjum, sem þegar hafa verið reynd, ekki aðeins hér á landi, heldur einnig erlendis og gæti honum að gagni komið. Það sjá allir, að hér er mjög óeðlilegt ósamræmi á milli. Hér þarf vissulega að gera á bragarbót og ég er ekki í neinum efa um það, að þó að nokkrum milljónum, jafnvel tugum millj. kr. væri varið til þess að koma á fót og reka slíka tæknistofnun fyrir sjávarútveginn, mundi hún að öllu eðlilegu skila þjóðarbúinu þeim fjármunum margföldum aftur og það á skömmum tíma.

Ég vil sem sagt eindregið mælast til þess, að hv. Alþ. taki þessum till. báðum, bæði þeirri, sem hér er nú á dagskrá og þeirri sem ég áður nefndi og ég hef flutt nú tvö þing í röð, með fullum skilningi og athugi þær og þá vil ég sérstaklega vænta þess, að hv. allshn., sem hefur haft mína till. til meðferðar frá því, að mig minnir, snemma í nóvembermánuði í vetur og fær nú væntanlega till. á þskj. 250 til meðferðar einnig, hún athugi þessi mál mjög gaumgæfilega og skili áliti sem allra fyrst.