17.03.1965
Sameinað þing: 32. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í D-deild Alþingistíðinda. (3019)
124. mál, tækniaðstoð við nýjungar í vinnslu og veiði sjávarafla
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er rétt út af þeim umræðum, sem hér hafa orðið, að ég skýri frá því, að í menntmn. Nd., þar sem frv. til l. um rannsóknir í þágu atvinnuveganna er til athugunar og hefur lengi verið, þar liggur nú fyrir til athugunar tillaga frá mér, sem við erum að athuga í þessum efnum og hljóðar svo, með leyfi forseta, — það er við þann kafla frv., sem fjallar um hafrannsóknastofnunina:
„Á árinu 1966 skal setja upp sérstaka deild innan hafrannsóknastofnunarinnar, er hafi með höndum tilraunir með ný veiðarfæri og veiðiaðferðir og rannsóknir þar að lútandi, svo og rannsóknir á hagkvæmustu gerðum fiskiskipa, miðað við íslenzkar aðstæður og enn fremur upplýsingastarfsemi um þessi efni. Ráðherra skipar deildarforstjóra.
Á árinu 1967 er ráðherra heimilt að gera þessa deild að sérstakri, sjálfstæðri stofnun: Tæknistofnun sjávarútvegsins, er hafi fyrrgreint verkefni og falli þá liðirnir 5 í 17. gr. og 4 í 18. gr. undan verkefnum hafrannsóknastofnunarinnar. Ráðherra skipar þá tæknistofnuninni forstjóra og sérfræðinga, þ.e. forstjóra með sama valdi og aðrir forstjórar slíkra stofnana hafa skv. lögum þessum. Ráðherra ákveður með reglugerð um ráðgjafarnefnd tæknistofnunarinnar.“
Ég vildi kynna hv. þm. þetta út af því, að þegar nú þessi till., sem hér liggur fyrir, fer til allshn., þá væri mjög æskilegt, að það væri haft nokkurt samráð þarna á milli. Þessi till. mundi ná yfir ekki aðeins það svið, sem hv. 5. þm. Reykn. hefur flutt í sinni till., sem þetta er að allmiklu leyti byggt á, heldur líka helminginn af því sviði, sem hv. 12. þm. Reykv. er með í sinni till. En ef það ætti að ná yfir það allt, mundi þurfa að bæta þarna inn í líka rannsókn og tilraunum viðvíkjandi vinnslu fiskafurða.
Viðvíkjandi því spursmáli, hvort réttara sé að hafa þetta í höndum þeirrar gömlu fiskimálanefndar, stjórnar fiskimálasjóðs eða í nýrri vísindastofnun atvinnuveganna, þá held ég, að það væri miklu öruggara, að við reyndum að sameina í þessari nýju vísindastofnun allt slíkt: rannsóknir, tilraunir, líka sambandið við þá íslenzku hugvitsmenn, sem þarna eru að vinna og annað slíkt. Ég held það væri skynsamlegra af okkur, en reyna að fara að breyta eiginlega þeim praksis, sem hefur verið um fiskimálasjóð. Við vitum, að það, sem verið er að reyna að vinna með frv. um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, er að færa raunverulega saman í eitt, eina stóra stofnun í allmörgum deildum, það sem áður hefur verið í allmörgum stofnunum í þjóðfélaginu, þannig að það væri meira í samræmi við þá stefnu, sem þarna er tekin, ef þetta væri sameinað þar.
Ég vildi benda á þetta til þess, ef það gæti orðið samkomulag um það við hv. flm., hv. 12. þm. Reykv. og aðra, sem áhuga hafa í þessum efnum, að við létum úr því verða á þessu þingi að leiða þessi mál þannig til lykta, að það væri öruggt að, að þeim verði unnið. Það er það sameiginlega áhugamál, sem allir þeir hafa, sem flutt hafa till., sem eitthvað eru í þessa áttina, mismunandi víðtækar.