10.03.1965
Sameinað þing: 31. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í D-deild Alþingistíðinda. (3028)
126. mál, endurskoðun skólalöggjafarinnar
Flm. (Páll Þorsteinsson) :
Herra forseti. Sjö þm. Framsfl. bera fram till. þessa til þál. um endurskoðun skólalöggjafarinnar. Ég mun gera nokkra grein fyrir till. af hálfu flm.
Tillgr. er svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að kjósa hlutfallskosningu 7 manna nefnd til þess að annast í samráði við hlutaðeigandi stjórnarvöld og kennarasamtökin endurskoðun á allri skólalöggjöf landsins, nema löggjöf um Háskóla Íslands. Endurskoðunin miðist fyrst og fremst við, að samhæft verði hið opinbera fræðslustarf í almennum skólum og sérskólum aðkallandi þörfum þjóðlífsins á hverjum tíma og allir fái sem jafnasta aðstöðu til náms, hvar sem þeir búa á landinu. Leita skal nefndin aðstoðar sérfræðinga eftir þörfum við endurskoðunina. Nefndin kýs sér sjálf formann. Áliti og tillögum skili nefndin til Alþingis, svo fljótt sem hún fær því við komið. Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“
Hinn dýrmætasti auður í þjóðfélaginu er lífskraftur sjálfrar þjóðarinnar, andlegur, líkamlegur og siðferðilegur. En til þess að hann njóti sín og verði þjóðlífi til eflingar og farsældar, þarf að efla starfshæfni og siðgæði hvers einstaklings og búa honum sem bezt skilyrði til vaxtar og þroska. Þetta er undirstaða þess, að þjóðinni vegni vel í landi sínu og standist samkeppni við aðra um öflun verðmætanna úr fiskimiðunum, frjómoldinni eða með afli fossanna. Þessa undirstöðu á skólakerfið að styrkja.
Sjálft skólastarfið er tvinnað tveim þáttum, sem báðir eru mikilvægir, en þeir eru uppeldi og fræðsla. Á fyrstu stigum skólakerfisins er uppeldisþátturinn gildari, en á síðari stigum þess situr í fyrirrúmi fræðsla og öflun þekkingar með eigin vinnu nemenda. Í skólakerfinu og með starfsháttum skólanna ber að dómi flm. að leggja áherzlu á að ná þessum markmiðum: Að gáfur allra njóti sín sem bezt. Með því verður í senn tryggð farsæld einstaklingsins og efling þjóðlífsins. Þá skiptir miklu, að jafnframt hinni almennu menntun sé hvors tveggja gætt, að þeir er hafa frábæra hæfileika, fái að njóta þeirra í námi og starfi og að þeir, er afbrigðilegir eru, njóti nauðsynlegrar aðhlynningar. Með menntuninni ber að styrkja siðgæði þeirra, er hennar njóta. Við eigum að kosta kapps um að varðveita þjóðernið og efla þjóðlega menningu. Með skólastarfinu ber að leggja ríka áherzlu á þær greinar, sem eru séreign þjóðarinnar og sérkenna menningu hennar, en það eru fyrst og fremst tungan, bókmenntirnar og sagan. En í skólakerfinu verður að taka tillit til þess og í vaxandi mæli, að við lifum í samfélagi þjóða og verðum að standa á svipuðu stigi og þær þjóðir, sem okkur standa næst, bæði efnahagslega og menningarlega, til að dragast ekki aftur úr öðrum og halda hlut okkar í þjóðasamfélaginu, eftir því sem aðstaða okkar leyfir. Þá verður að auka kennslu í mörgum greinum, sem í eðli sínu eru alþjóðlegar, svo sem verkfræði og tækni margs konar. Við þurfum að búa margt æskufólk undir það að tileinka sér og hagnýta nýja og aukna tæknikunnáttu. Skylt er að dómi okkar flm. að veita öllum sem jafnasta aðstöðu til náms, hvar sem þeir búa á landinu, þannig að ungmennum hvarvetna á landinu sé búin jöfn og sem bezt aðstaða til menntunar, svo að allir, er þess óska, fái notið hennar, hver við sitt hæfi. Og það er ekki nóg, að þetta sé viðurkennt í löggjöfinni, heldur verður að tryggja það í framkvæmd.
Jafnframt því, að skólakerfið er gert sveigjanlegt og víðtækt, þannig að það veiti aðstöðu til æ fjölþættara náms, þarf að samhæfa skólastarfið, svo að nám í einum skóla stytti nám í öðrum, eftir því sem kostur er, svo að námsbrautin geti orðið sem greiðfærust.
Skólarnir eiga með starfi sínu að kosta kapps um að efla persónulegan þroska nemenda og hlutverk þeirra á þessu sviði verður æ stærra með breyttum þjóðfélagsháttum. Íslenzk menning er að uppruna bændamenning og hefur þróazt þannig öldum saman. Hún hefur þau einkenni að koma öllum til nokkurs þroska og brýna framtak, svo að nærri ótrúlega margir láta ekki baslið smækka sig. Háþróuðum iðnaðarþjóðfélögum fylgir víða menningarleg lágstétt, sem sumar þjóðir ráða lítt við að lyfta upp eða losna við. Í þjóðfélagi okkar er stefnt að stórauknum iðnaði og verksmiðjuvinnu. Jafnframt því reynir meira á skólana, en fyrr að ná þeim áhrifum, neyta þeirra áhrifa og haga svo störfum, að í hinu íslenzka þjóðfélagi verði ekki til menningarleg lágstétt.
Að sjálfsögðu hefur margt af þessu verið haft í huga við setningu eldri skólalöggjafar og þeirrar, er nú gildir. En þjóðlífshættir breytast ört og vissir þættir skólalöggjafarinnar eru orðnir gamlir. T.d. eru lög um fræðslumálastjórn 35 ára gömul. Fyrir 10 árum var með lögum verkefni fræðslumálastjóra skipt og komið á fót stofnun fjármálaeftirlits skóla. Nú er stjórn fræðslumála og undirbúningur fjárveitinga til skólaframkvæmda hjá menntmrn., fræðslumálaskrifstofu og fjármálaeftirliti skóla, en ekki samræmi í löggjöfinni um þennan þátt mála. Hin almenna skólalöggjöf, þ.e. um skólakerfi og fræðsluskyldu, barnafræðslu, gagnfræðanám og menntaskóla, er senn tvítug.
Á s.l. 20 árum hafa orðið örari breytingar á þjóðlífinu, en nokkru sinni fyrr. Þéttbýli hefur stóraukizt og bæir stækkað og þar sezt að öll fólksfjölgunin, en strjálbýlið heldur varla sínum fólksfjölda og alls ekki í réttu hlutfalli við íbúafjölda landsins. Heimili í þéttbýlinu hafa ekki skilyrði til að veita jafnsterk uppeldisáhrif og sveitaheimilin gerðu. Og heimavistarskólarnir í sveitum taka til sín börn og ungmenni af sveitaheimilunum, meðan námstíminn varir og taka þar með í sínar hendur að miklu leyti það uppeldisstarf, sem sveitaheimilin önnuðust fyrrum. Þetta er að ýmsu leyti hagkvæmt og óhjákvæmilegt, enda er mikið leitað eftir fjárframlögum til að reisa heimavistarskóla. En þetta fyrirkomulag leggur skólunum ríkar skyldur á herðar, og ríkisvaldið verður að búa þeim góð skilyrði til að rækja þær skyldur.
Síðan hin almenna skólalöggjöf var sett, hefur orðið gerbreyting á atvinnuháttum þjóðarinnar. Vélvæðing ryður sér til rúma í nær öllum atvinnugreinum. Þetta gildir ekki einungis gagnvart aðalatvinnuvegum þjóðarinnar og við stórar framkvæmdir. Breytingin nær einnig til margs konar iðnaðar og inn að skrifstofustólnum, þar sem vélvæðing við skrifstofustörf og hvers konar skýrslugerð ryður sér ört til rúms. Þessi öra breyting á atvinnuháttum og vinnubrögðum knýr á um endurskoðun skólalöggjafarinnar, ef þess er nægilega gætt, að fræðslukerfi landsins á hverjum tíma sé sem bezt samhæft þeim kröfum, sem gera verður með tilliti til breyttra þjóðfélagshátta og nýrrar þekkingar á sviði uppeldisog fræðslumála. Endurskoðunin á ekki samkv. till. að vera einungis miðuð við barnafræðslustigið. Hún þarf að grípa inn á svið allrar framhaldsmenntunar, bæði gagnfræðaskóla, menntaskóla og margra sérfræðiskóla, þar sem ekki sé einvörðungu fjallað um fjölda skólanna og stærð, heldur og um námsefni og kennsluhætti. Menntaskólum þarf að fjölga. Fyrir þessu þingi liggja nú þegar þrjú frv. um það efni. Það er ekki ætlun flm. þessarar till. að tefja fyrir framgangi þeirra frv., svo augljós nauðsynja- og réttlætismál sem þar eru á ferð. En námsefni og starfshætti menntaskólanna þarf að endurskoða, m.a. með tilliti til fjölbreyttari skiptingar í deildir. Iðnfræðslunni þarf að gefa gaum með tilliti til aukinnar fjölbreytni og ört vaxandi tækni. Þá telja flm. ekki sízt nauðsynlegt að kanna rækilega þörf þjóðfélagsins fyrir sérfræðiskóla í ýmsum greinum, svo sem í tækni, iðnfræðum og öðrum hagnýtum greinum, sem snerta atvinnuvegi landsins og gera till. um skipan þeirra og stöðu innan fræðslukerfisins. Á Norðurlöndum hafa lýðháskólarnir lengi starfað og þróazt samhliða samfelldu skólakerfi. Hér þarf í löggjöfinni að hafa rúm fyrir æskulýðsskóla, er geti starfað á svipuðum grundvelli og lýðháskólar í nágrannalöndunum.
Þegar gildandi skólalöggjöf var sett, var að ýmsu leyti lagt út á nýjar brautir í skólastarfi hér á landi. Það verður ekki rakið í sambandi við þessa till. í einstökum atriðum, en hér skulu aðeins valin tvö atriði sem dæmi. Þá var sú breyting gerð frá eldri skipan, að barnaskólanámi skyldi ljúka við 13 ára aldur í stað 14 ára aldurs, eins og áður tíðkaðist, en nám í gagnfræðaskóla lengt um eitt ár. Síðan þessi breyting var gerð, er fermingarbarnið orðið nemandi í gagnfræðaskóla. Um þetta eru skiptar skoðanir meðal skólafróðra manna og þykir orka mjög tvímælis, hvort sú breyting, sem á sínum tíma var gerð í þessu efni, er til bóta. Í l. um gagnfræðanám segir berum orðum: „Skólar gagnfræðastigsins skulu vera sérstakir skólar og starfa í eigin húsnæði, þar sem því verður við komið. Í skólahverfum í sveitum skal þó að jafnaði starfa unglingaskóli í sambandi við barnaskólana.“ Meginreglan er samkv. orðalagi og anda gildandi laga, að nám gagnfræðastigsins, er nær til ungmenna á aldrinum 14–17 ára, fari fram í sérstökum skólum. Hitt er aðeins undantekning vegna sveitanna. En nú er svo komið í framkvæmd, að þeir, sem hafa á hendi stjórn skólamála, halda því fram sem rökum fyrir því, að ekki þurfi að reisa marga nýja héraðsskóla fyrst um sinn, að heppilegra sé og jafnvel farsælla, að allt skyldunámið, þ.e. fyrri hluti náms á gagnfræðastiginu, fari fram í sambandi við barnaskólana, ekki aðeins í sveitum, heldur í allfjölmennum og ört vaxandi kauptúnum. Eðlisfar og líkamsþroski unglinga er svipaður, hvort sem þeir alast upp í mesta þéttbýli landsins eða þar sem fámennast er. Og ef það er hollast frá uppeldisfræðilegu sjónarmiði, börnum í höfuðborginni að ganga úr barnaskóla og upp í gagnfræðaskóla við 13 ára aldur, hlýtur það líka að vera hollt börnum annars staðar á landinu. Hér á ekki að leggja til grundvallar fyrst og fremst, hvort komast megi hjá einhverjum útgjöldum, a.m.k. í bili, heldur hitt, hvað verður talið að fenginni reynslu þroskavænlegast andlega og siðferðilega hinum ungu, sem eiga að erfa landið. Og þá er full ástæða til, að hið sama sé látið gilda í löggjöf og framkvæmd í kaupstöðum og kauptúnum, svo sem Ísafirði annars vegar og Stykkishólmi hins vegar eða Neskaupstað annars vegar og Höfn í Hornafirði hins vegar, meira að segja að hið sama sé látið gilda í sjálfri höfuðborginni og annars staðar á landinu. Þetta veigamikla atriði þarf að endurskoða gaumgæfilega með tilliti til fenginnar reynslu.
Með gildandi skólalöggjöf var fyrst tekið upp hið svonefnda landspróf. Það miðar að því að gera mörgum ungmennum námsbrautina greiðfærari en ella mundi. Á hinn bóginn hefur framkvæmd þessa prófs sætt allmikilli gagnrýni, einkum með tilliti til þess, að kennslustarf og nám sé um of miðað við prófkröfurnar. Nú er fengin svo löng reynsla af framkvæmd gildandi skólalöggjafar, að af henni má margt læra, m.a. í þessu efni. Við endurskoðun löggjafarinnar ber að draga rökréttar ályktanir af fenginni reynslu af landsprófinu.
Gildandi lög um fræðslukerfi og skólaskyldu kveða að vísu á um skólaskyldu allra barna á aldrinum 7–15 ára. Frá því eru þó gerðar vissar undantekningar, en undanþáguákvæði l. um framkvæmd skólaskyldu ber að líta á sem bráðabirgðaákvæði, sem nauðsynleg voru á sínum tíma og réttmætt að framkvæma um sinn. En nú eru fræðslukröfur vaxandi, en skilyrði til viðunandi heimakennslu mjög erfið. Hins vegar er nú orðinn mikill aðstöðumunur til skólagöngu eftir því, hvort í hlut eiga dreifbýli eða kaupstaðir, þannig að stórlega hallar á dreifbýlið, þ.e.a.s. sveitir og hinar smærri byggðir við sjávarsíðuna. Hafa flm. ekki sízt í huga þá staðreynd, að skólaskylda barna og unglinga í sveitum er enn í framkvæmd verulegum mun skemmri og námsgreinar þar oft fábreyttari, en í kaupstöðum og hinum stærri kauptúnum. Vilja flm. benda á, að jöfnun þessa aðstöðumunar sækist allt of seint.
Þá vilja flm. sérstaklega benda á vaxandi erfiðleika unglinga í sveitum og þorpum til gagnfræðanáms og nauðsyn þess flestu öðru fremur að gera mjög verulegt átak í því skyni að ryðja þeim erfiðleikum úr vegi, einkum með því að fjölga héraðsskólum í landinu. Hver sýsla er að jafnaði sérstakt fræðsluhérað. Með gildandi l. um gagnfræðanám var stefnt að því, að einn gagnfræðaskóli hið minnsta skyldi starfa í hverju fræðsluhéraði. Þrátt fyrir þetta hefur enginn nýr héraðsskóli verið reistur á landinu s.l. 15 ár. Aðsókn að þeim héraðsskólum, sem starfandi eru, hefur hin síðari ár verið svo mikil, að árlega hefur orðið að vísa fjölmörgum umsækjendum frá skólavist. Og í sumum héruðum verða vandamenn unglinga að hafa mörg útispjót til að fá skólavist þeim til handa, eftir að skyldunámi lýkur. Í l. um gagnfræðanám segir svo: „Heimilisfaðir unglings, sem skylt er að stunda gagnfræðanám, ber ábyrgð á, að hann hljóti lögboðna fræðslu og sæki lögboðin próf.“ Því sama ríkisvaldi, sem leggur heimilisföður þessa skyldu á herðar, ber ótvírætt að sjá um, að ungmenni, hvar sem þau eru á landinu, geti átt kost á aðgengilegri skólavist í gagnfræðaskóla.
Samkv. gildandi lögum eiga skólar gagnfræðastigsins að greinast í tvær hliðstæðar deildir, verknámsdeild og bóknámsdeild. Barnapróf veitir rétt til inngöngu í hvora þessara deilda um sig. Enn vantar mikið á, að þetta sé þannig í framkvæmd, að barn, sem lýkur prófi, geti gengið til náms í verknámsdeild gagnfræðastigsins hvar sem er á landinu. Þetta þarf að endurskoða og endurmeta með tilliti til þess, að samræmi sé í löggjöf og framkvæmd.
Af því, sem ég hef nú sagt, teljum við flm. þessarar till., að tímabært sé að efna til heildarendurskoðunar á skólakerfinu og álit margra félagasamtaka, sem gert hafa ályktanir um þessi mál, benda eindregið til þess, að margir fleiri í þjóðfélaginu hafi sömu skoðun á þessu máli og við flm.
Ég legg svo til, að eftir að þessari umr. lýkur, verði till. vísað til síðari umr. og hv. fjvn.