21.12.1964
Neðri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (308)
106. mál, söluskattur
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Verðbólga hefur tröllriðið íslenzku efnahagslífi síðustu áratugina tvo og raunar lengur þó. Allar ríkisstj. á þessu tímabili hafa komizt í kast við þessa óvætti og lengst af beðið ósigur í þeirri viðureign, sumar meiri, en aðrar minni. Verðlag og kaupgjald hefur hækkað á víxl. Sá ávinningur, sem almenningur hefði átt að hafa af aukinni framleiðslu þjóðarinnar, hefur horfið í verðbólguhítina. Sparifé landsmanna hefur verið stórlega skert. Gengi krónunnar hefur verið fellt æ ofan í æ og vantrú manna á sparifjáreign stundum aukizt stórkostlega, en sparifjársöfnun er þó, eins og kunnugt er, undirstaða heilbrigðs efnahagslífs. Allt þetta er gömul saga, sem flestir þekkja. Það var því mikill viðburður, þegar stærstu launþegasamtök landsins, Alþýðusamband Íslands, gáfu kost á því s.l. vor að ganga til samstarfs við ríkisstj. í baráttunni við þetta fyrirbrigði. Ríkisstj. tók þessu boði fegins hendi, og samkomulag var gert og undirritað 5. júní s.l. um þetta. Að þessu samkomulagi stóðu 3 aðilar: Alþýðusambandið, vinnuveitendasamtökin og ríkisstj. Voru því allar líkur til, þar sem þrír svo sterkir aðilar stóðu að þessu, að árangur mundi nást. En nú er ríkisstj. borið á brýn, að hún hafi rofið þetta samkomulag með þeirri hækkun á söluskatti, sem farið er fram á í því frv., sem nú er verið að afgreiða. Þetta eru þungar ásakanir, ef réttar væru, og því sjálfsagt að athuga þær nokkuð.
Vísitala framfærslukostnaðar var, þegar samkomulagið var gert, 163 stig. Hún var enn í októbermánuði s.l. 163 stig eða óbreytt frá því að samkomulagið var gert, en þá var því lofað af hálfu ríkisstj. að halda verðlagi óbreyttu með niðurgreiðslum, ef þörf krefði, þangað til Alþingi kæmi saman, enda tæki það þá málið í sinar hendur til ákvörðunar. Við þetta loforð hefur því verið fyllilega staðið. En hvernig var hægt að gera þetta? Öllum var ljóst, að búvöruverð hækkaði mjög mikið á s.l. hausti, eða um 11.7%, samkv. þeim lögum, sem um það gilda, en þau kveða á um sjálfvirka hækkun þessara vara, þannig að kaup bóndans hækki til jafns við kaup verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna. Þessa hækkun varð því að greiða niður. Er talið, að þessi niðurgreiðsla til áramóta eða kannske réttara auknar niðurgreiðslur ríkissjóðs þetta tímabil hafi kostað um 68 millj. kr. Á ársgrundvelli er talið, að þær mundu nema um 228 millj. kr.
Er nú komið til kasta Alþingis, hvað gera skuli. Á að hætta þessum niðurgreiðslum og láta hækkunina á landbúnaðarvörunum fara út í verðlagið? Það mundi hækka framfærsluvísitöluna um 7.40 stig eða um 4 1/2—5%. Eða á að halda niðurgreiðslunum áfram, og á hvern hátt á að afla ríkissjóði tekna til þess að mæta þessum gjöldum? Ég held, að það samrýmist hagsmunum allra bezt að halda niðurgreiðslunum áfram. Þó að tekna verði aflað í þessu skyni, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., þá hækkar vísitalan og framfærslukostnaðurinn miklu minna en ef niðurgreiðslunum verður hætt, og hin rétta hækkun á búvörunum fer út í verðlagið. Launþegar fá hækkunina uppborna í kauphækkun í báðum tilfellum í samræmi við hækkun framfærsluvísitölunnar, en kauphækkunin verður minni, ef niðurgreiðslunum verður haldið áfram, vegna þess að verðlagið hækkar minna. Kauphækkanir, sem atvinnuvegirnir verða að greiða, verða því minni og möguleikarnir til þess að komast af meiri. Með því að halda verðinu á búvörunum niðri aukast líka möguleikarnir á sölu þeirra innanlands og útflutningsbætur ríkissjóðs þeirra vegna verða eitthvað minni.
Að mínu viti ber því allt að sama brunni. Niðurgreiðslunum ber að halda áfram. Spurningin er í mínum huga aðeins sú, hvernig ríkissjóður eigi að afla tekna á móti. Það, sem fyrst kemur til álita, er, hvort tekjuáætlun fjárlaganna sé of lág, eins og stjórnarandstaðan hefur haldið fram, þannig að ef hún væri rétt áætluð, þyrfti engar nýjar tekjur á móti. Þetta er fráleitt, eins og hæstv. fjmrh, hefur gert hér grein fyrir fyrir stundu. Þó að tekjuafgangur hafi orðið nokkur árin 1962 og 1963, þá er allt útlit fyrir, að jafnvel halli muni verða á árinu 1964, og tekjuáætlunin, eins og hún nú er í fjárlagafrv. fyrir árið 1965, er svo þanin, að ég er mjög hræddur um, að hún muni ekki standast, hvað þá, ef hún væri hækkuð, svo að nokkru nemi, svo að maður nefni ekki ósköpin að bæta við hana yfir 200 milljónum króna.
Þá hefur verið minnzt á að nota tekjuafganginn frá 1962 og 1963, eins og hér hefur komið fram í umr., sem lagður hefur verið í jöfnunarsjóð og geymdur er. Það er einnig fráleitt að mínu viti. Fjárlög á ekki að semja með vísvitandi greiðsluhalla og alveg sérstaklega ekki á góðæristímubilum eins og þeim, sem við höfum átt við að búa upp á síðkastið. Til jöfnunarsjóðsins á fyrst að grípa, þegar hallar undan fæti eða þegar ófyrirsjáanleg óhöpp steðja að. Til þess að standast fyrirsjáanleg útgjöld ríkisins verður að afla tekna á móti. Alltaf getur eitthvað það komið fyrir, sem gerir það að verkum, að grípa þurfi til varasjóðsins, og þá er ekki gott, að búið sé að éta hann upp. Ég tel því þessa leið ekki heldur færa.
Þá hefur verið spurt: Er ekki hægt að draga úr útgjöldum ríkisins, spara, svo að á þann hátt megi fá peninga til þess að standa undir hinum nýju niðurgreiðslum? Þetta er hægt, a.m.k. fræðilega séð. En því miður er þetta aðeins fræðilegur möguleiki. Útgjöld ríkisins til heilbrigðismála, menntamála, almannatrygginga og félagsmála nema litlu minna en helmingi af öllum útgjöldum ríkisins. Þessi útgjöld þyrfti miklu fremur að auka en minnka. Í beinum rekstrarútgjöldum ríkisins og ríkisstofnana eru sjálfsagt líðir, sem orka tvímælis. En þeir nema ekki nema svo litlu broti úr heildarútgjöldunum, að þeir hafa mjög takmarkaða þýðingu í þessu sambandi. Þá er vart annað eftir en opinberu framkvæmdirnar, en framlög til þeirra munu í heild nema um 500 millj. kr. úr þeim mætti að sjáifsögðu draga og kannske sérstaklega þegar eftirspurnin eftir vinnuafli er jafnmikil og nú. En þörfin fyrir þessar framkvæmdir er brýn, og því fer víðs fjarri, að hægt sé með þessari upphæð að verða við nema broti af þeim óskum, sem fram hafa komið í þessu efni. Enda er það svo, að þeir, sem hafa þetta sparnaðartal mest uppi nú, þ.e.a.s. Framsfl., þeir báru fram á einu þskj. nú við 2. umr. fjárl. till. um hækkun um rúmar 200 millj. kr. án þess að gera ráð fyrir nokkrum tekjum á móti. Þetta voru auðvitað óábyrgar yfirboðstill., sem engum af tillögumönnunum hefði dottið í hug að flytja, ef þeir hefðu verið í stjórnaraðstöðu og þurft að bera ábyrgð gerða sinna. En nákvæmlega sömu afstöðu taka þeir nú í þessu máli, sem halda því fram, að hægt sé í einu vetfangi að hækka niðurgreiðslur úr ríkissjóði um rúmar 200 millj. kr., án þess að nokkurra tekna sé aflað á móti.
Sá tekjuauki, sem fæst af hækkun söluskattsins um 2% samkv. því frv., sem fyrir liggur, er næstum því alveg sama upphæðin og hækkun niðurgreiðslnanna nemur, fyrst og fremst vegna verðhækkana landbúnaðarins s.l. haust. Þegar því er slegið föstu, að þessar niðurgreiðslur séu nauðsynlegar, er nauðsynlegt að afla tekna á móti, og söluskatturinn er að mínu viti ódýrasta og að mörgu leyti hagkvæmasta leiðin.
Hv. þm., sem síðast talaði hér, Hannibal Valdimarsson, las nokkur ummæli, sem Alþýðuflokksmenn hefðu áður haft um söluskattinn, og það má vel vera, að það sé rétt með farið. En ég vil í þessu sambandi vekja athygli á, að það, sem er rétt í einn tíma, þarf ekki alltaf að vera það, og ég vil líka benda á, að Alþfl. bæði hér og annars staðar hefur í seinni tíð hallazt meira að því að afnema beinu skattana og færa þá yfir á hina óbeinu skatta. Þetta er ekki einasta skoðun okkar hér í þessu landi, þar sem bæði ég hef borið fram þáltill. um, að þetta mál verði rækilega athugað, en þetta er skoðun Alþfl.-manna í öllum nágrannalöndum okkar. Ég veit ekki betur en að á Norðurlöndunum öllum sé tekinn hár söluskattur, og eins og hér kom fram áður í umr., hækkaði Alþfl.-stjórnin í Noregi sinn söluskatt nú í þessum mánuði úr 10% og upp í 12% og taldi rétt, og svo að ég fari nú enn lengra og nær hv. þm. sjálfum, vil ég geta þess, að söluskatturinn í Sovétríkjunum er enn miklu hærri, og stendur kannske það stjórnarfar og efnahagskerfi þó nær honum en mér a.m.k.
Þessi leið, söluskattsleiðin, hækkar framfærslukostnaðinn minnst og gefur atvinnuvegunum minnsta útgjaldahækkun, eða um 2%, en launþegar fá framfærslukostnaðaraukninguna uppborna. Þegar ég nefni 2%, þá er það hækkun, sem verður vegna söluskattsins. Þegar talað er um 3%, eins og heildarhækkunin verður, koma þar líka aðrar hækkanir til greina.
Að hér sé um nokkra brigð á júnísamkomulaginu að ræða, er fjarri sanni að mínu viti og öll brigzl í því sambandi úr lausu lofti gripin. Niðurgreiðslurnar voru í fjárlagafrv. áætlaðar 336 millj. kr. Nú bætast við 207 millj., og verður þá niðurgreiðsluupphæðin 543 millj., þar af til annarra vörutegunda en landbúnaðar 57 millj. Til niðurgreiðslu á landbúnaðarvörum fara því 486 millj. kr. Þar við bætast svo útflutningsbæturnar á útfluttar landbúnaðarafurðir, sem í fjárlagafrv. eru áætlaðar 188 millj. kr. og hafa hækkað gífurlega síðan í fyrra. Verður þetta samtals, niðurgreiðslur og útflutningsbætur, 731 millj. kr. á móti 336 millj. í ár eða hækkun um 400 millj. Þetta eru athyglisverðar tölur. Því er að vísu haldið fram, að niðurgreiðslurnar séu gerðar vegna neytendanna, og er að vissu leyti rétt. En neytendurnir verða samt sem áður að borga fyrir þessar neyzluvörur sínar miklu hærra verð en sams konar vörur eru seldar fyrir í nágrannalöndunum, þrátt fyrir þessar gífurlegu niðurgreiðslur. Við skulum t.d. taka smjörið. Mér er tjáð, að verðið til framleiðandans hér sé 157 kr. fyrir kg. Verð til neytenda innanlands mun vera 90 kr. Verðið, sem fæst fyrir útflutt smjör, mun vera 34 kr. fyrir kg. Ríkissjóður verður því að borga 67 kr. með hverju kg, sem selt er innanlands, en samt er það 56 kr. dýrara en fæst fyrir það erlendis. Með því, sem út er flutt, verður ríkissjóður að borga 123 kr. með hverju kg, og söluverðið til útlanda er aðeins 21% af kostnaðarverðinu. Svipað mun vera um aðrar mjólkurafurðir. Og út á þetta er svo verið að byggja hvert mjólkurbúið eftir annað um allt land. Sauðfjárafurðirnar munu ekki vera jafnþungar á fóðrum hjá ríkissjóði, en allþungar þá, og skal það ekki frekar rakið hér nú.
Það er ekki óeðlilegt, að ýmsir séu áhyggjufullir yfir þessari þróun mála, þegar heildarútgjöld ríkisins vegna niðurgreiðslna og útflutningsbóta landbúnaðarins eru orðin 674 millj. kr. á ári, eða meira en 100 þús. kr. á hvert einasta býli í landinu að meðaltali, og vörurnar þó seldar neytendum hér fyrir miklu hærra verð en þær eru seldar í nágrannalöndunum. Ég er ekki með þessu að halda því fram, að bændur séu ofhaldnir af því verði, sem þeir fá fyrir afurðir sínar. En spurningin er aðeins sú, hvort þjóðarbúskapur Íslendinga þoli þessar miklu niðurgreiðslur og útflutningsbætur úr ríkissjóði og tilsvarandi skattheimtu af landsfólkinu án þess að ríða slig á aðra atvinnuvegi, eins og t.d. sjávarútveginn. Það er allt of auðvelt svar að stimpla þá, sem áhyggjur hafa út af þessu, sem óvini landbúnaðarins og að allt sé í lagi, ef þeir bara þegi. En það eru miklu fleiri menn í landinu heldur en bændur. Það þarf líka að hugsa um afkomu neytendanna og um afkomu annarra atvinnuvega, sem líða undir þessu kerfi landbúnaðarins, og mér finnst sannast sagna furða, hversu lengi þeir hafa þagað möglunarlaust. Og þó þykir mér skörin færast upp í bekkinn og raunar vera kaldhæðni örlaganna, þegar sá flokkur, sem hér á Alþingi telur sig mestan forsvarsmann bænda og landbúnaðar yfirleitt, telur sig þess umkominn að berjast hatrammlega á móti því, að þjóðin leggi á sig nokkra skatta, til þess að ríkissjóður geti með einhverjum hætti staðið undir þessum hundruðum millj. til niðurgreiðslna og útflutningsbóta landbúnaðarins, því að það er óumdeilanleg staðreynd, að sú hækkun, sem hér er verið að gera á söluskattinum nú, á rót sína að rekja og er bein afleiðing af hækkun landbúnaðarvöruverðsins s.l. haust og af þeim hækkuðu niðurgreiðslum, sem ríkissjóður tók á sig í því sambandi. Sú upphæð, sem söluskattshækkunin gefur, er nálega alveg sú sama og landbúnaðarvörurnar hækkuðu um s.l. haust og ríkissjóðurinn greiddi niðar. Ef þess vegna hefði ekki komið til þessarar hækkunar á búvörunum s.l. haust, hefðum við ekki heldur þurft að leggja á neinn nýjan skatt nú.
Þessi landbúnaðarpólitík, sem nú er rekin, og það kerfi, sem við hana er bundið, stenzt ekki miklu lengur. Hvað á að koma í staðinn, get ég ekki sagt, en hvort sem núverandi stjórn situr lengur eða skemur eða önnur tekur við, hlýtur það að verða verkefni íslenzkrar ríkisstj. í mjög náinni framtíð að finna einhverja raunhæfa lausn á þessum málum, lausn, sem gerir hvort tveggja í senn, tryggir bændum sæmilega afkomu og fellur að öðrum þáttum þjóðarbúskaparins, án þess að ríða á þá slig.
Það hefur oft komið fram í umr. um þetta mál og nú síðast hjá Hannibal Valdimarssyni, hv. 5. þm. Vestf., sem siðast talaði, að hlutur sjávarútvegsins væri smár hjá þessari ríkisstj. Og satt er það, að þegar niðurgreiðslur og útflutningsbætur landbúnaðarins eru bornar saman við framlög til sjávarútvegsins úr ríkissjóði, er þar allmikill munur á. En á það vil ég benda í því sambandi, að ríkissjóðsframlög til atvinnuveganna eru ekki réttur mælikvarði á afkomuna. Sá atvinnuvegur, sem kemst sæmilega af, þarf ekki á ríkisframlagi að halda. Og hvar er íslenzka þjóðin stödd, ef allir atvinnuvegir eru orðnir háðir framlögum úr ríkissjóði, og hver á þá að greiða ríkissjóði þær tekjur, sem afla þarf á móti? Auðvitað á það að vera markmiðið, að búið sé þannig að höfuðatvinnuvegunum, að þeir geti staðið undir sér og þurfi ekki á framlögum úr ríkissjóði að halda.
Á þessu yfirstandandi ári, sem nú er bráðum á enda, voru þrenns konar framlög veitt sjávarútveginum: í fyrsta lagi frystihúsunum, í öðru lagi sjómönnum og í þriðja lagi togurunum. Allir þessir styrkir voru um 40—50 millj. kr. hver um sig, eða samtals í kringum 140 millj. eða tæplega það. Frystihúsunum var veittur þessi styrkur vegna þess, að vinnulaun höfðu hækkað á árinu 1963 um ekki 3%, eins og nú er gert ráð fyrir, heldur 30%, sem skapaði þeim mikla örðugleika. Styrkurinn var þó ekki veittur sem rekstrarstyrkur, heldur til útvegunar á vélum og tækjum, til vinnuhagræðingar, þannig að kostnaðurinn við vinnsluna gæti lækkað. Hann var ekki hugsaður sem varanlegur styrkur, heldur í þetta skipti og í þessu ákveðna augnamiði. Annar liðurinn var ákveðinn til sjómannanna vegna þess, að talið var nauðsynlegt að bæta fiskverðið, og var það hækkað með þessu um 6% fyrri hluta ársins og 4% síðari hlutann. Ekkert er enn vitað um, hvert fiskverðið verður næsta ár, og því útilokað á þessu stigi að fara að gera ráð fyrir að bæta það, sem maður veit ekkert, hvað er eða verður. Þriðja liðnum, styrknum til togaranna, er haldið svipuðum og áður, þar sem því miður er vitað um hina lélegu afkomu togaranna nú eins og fyrr. Sú upphæð er tekin á fjárlögum. Það er raunar furðulegt, að þeir menn, sem stóðu að því í fyrra að hækka kaupið hjá frystihúsunum um 30%, skuli nú hafa svo þungar áhyggjur af kauphækkun vegna söluskattsins o. fl. um rúm 2%. Það sýnir alvöruna, sem í þessum bægslagangi felst.
Það er alveg sama, hvernig þessu máli er velt og snúið. Eftir þá hækkun, sem varð á landbúnaðarvöruverðinu s.l. haust, var ekki unnt að komast hjá því að afla ríkissjóði tekna til að greiða þessa verðhækkun niður. Hefði henni verið sleppt út í verðlagið og ekkert gert, hefði vísitalan hækkað um 7.40 stig. Niðurgreiðslurnar koma ekki af sjálfu sér, og söluskattshækkunin um 2% veldur þó ekki meiri hækkun en sem svarar 3% af kaupi með annarri hækkun, sem ekki hefur verið hægt að komast hjá. Andmæli stjórnarandstöðunnar gegn þessari leið eru að mínu viti óraunhæf og ekkert tillit takandi til þeirra. Þau eru aðeins óraunhæfur áróður og verða að skoðast samkv. því. — Ég óska svo öllum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs.