21.04.1965
Sameinað þing: 42. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í D-deild Alþingistíðinda. (3080)
149. mál, dráttarbraut á Siglufirði
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að mæla með samþykkt þessarar þáltill., sem hér liggur fyrr og ég get tekið undir þau rök, sem hv. 1. flm. þessarar till. bar hér fram áðan fyrir nauðsyn þess mannvirkis, sem þarna er um að tefla, — nauðsyn þess vegna atvinnuástands á Siglufirði og af öðrum ástæðum. Ég skal ekki fara mörgum orðum um þetta mál, en vildi aðeins láta þetta koma fram, að ég vil styðja þetta mál heils hugar og undirstrika, að þarna, er um mjög mikið nauðsynjamál að ræða.
Það hafa nú um skeið verið uppi ákveðnar óskir á Siglufirði um þetta mannvirki. Og það var í síðasta mánuði, eða 2. marz s.l., sem samþ. var þar á bæjarstjórnarfundi till. frá hafnarnefnd, þar sem samþ. var að byrja á þessu ári á byggingu dráttarbrautar, sem hafi möguleika á því að taka upp 400 smálesta skip og strax skyldi leitað eftir samþykki vitamálastjóra fyrir þessu mannvirki, en bæjarstjóra ásamt öðrum eða einum manni kosnum af bæjarstjórn falið að vinna að málinu að öðru leyti. Mér er kunnugt um það, að þegar um mál þetta var fjallað í bæjarstjórn Siglufjarðar á sínum tíma, lögðu fulltrúar Framsfl. og Alþb. í bæjarstjórninni fram till. um það, að tekin yrði inn á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs framlag að upphæð 2 millj. kr. til byggingar dráttarbrautar. Þetta var, því miður, fellt af meiri hl., því að ég lít svo á, að með samþykkt svona ákvæðis hefði verið undirstrikaður enn betur, en ella, ákveðinn vilji Siglfirðinga í þessu efni. En það er auðvitað, að þetta mannvirki verður þar ekki byggt, nema til komi ýmiss konar fyrirgreiðsla af ríkisvaldsins hálfu, m.a. með útvegun lána og annað því um líkt og þess vegna er þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, eðlileg að mínum dómi og ég vænti þess, að þó að skammt sé nú e.t.v. eftir þings, takist nú að fá þessa þáltill. afgreidda. Ég vænti þess, að sú n., sem fær málið til meðferðar, taki það til skjótrar og góðrar afgreiðslu.
Þetta viðhorf mitt til málsins vildi ég láta sérstaklega koma fram, af því að til þess er raunar ástæða, af því að þessi þáltill. er flutt af tveimur hv. þm. Norðurl. v. og fljótt á litið mætti kannske álykta sem svo, að hinir, sem ekki eru á því blaði, væru tómlátir um þetta málefni. En ég vil að gefnu tilefni lýsa því yfir, að til mín var alls ekki leitað með þessa till. og alls ekki óskað eftir því af hv. flm. hennar, að ég gerðist meðflm. að henni. Ég býst við því, að því sé svo háttað einnig um þá aðra hv. þm. þess kjördæmis, sem ekki eru á blaðinu. Þeir tveir hv. flm., sem hafa flutt till., hafa af einhverjum ástæðum talið það réttara að hafa þennan háttinn á, að flytja hana tveir, án þess að gefa öðrum þm. kjördæmisins kost á því að vera meðflm. Ég hefði nú talið það almennt séð a.m.k. heppilegra að afla flm. frá öllum flokkum, þegar um slíkt mál sem þetta er að ræða. Ég er viss um, að það hefði ekki verið fyrirstaða á því, ef sú leið hefði verið farin. Og þó að þessir tveir hv. flm, séu tilheyrandi stjórnarflokkunum og þeir kannske hugsi sem svo, að stjóraarandstaðan hafi lítið í þessu máli að segja, held ég, að það séu almennt séð ekki heppileg vinnubrögð. En þó að ég telji þetta hjá þessum hv. flm. ekki sem heppilegust vinnubrögð, hefur það vitaskuld ekki nein áhrif á afstöðu mína til málsins og ég er málinu alveg jafnfylgjandi og meðmæltur fyrir það, þó að mér hafi ekki verið gefinn kostur á því að vera meðflm. að þessari þáltill.