21.10.1964
Sameinað þing: 4. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í D-deild Alþingistíðinda. (3128)
15. mál, iðnrekstur í kauptúnum og kaupstöðum
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins fáeinar setningar. — Það er mjög hagfellt að stækka síldarverksmiðju ríkisins á Raufarhöfn og hægt að fá þar aukin afköst mjög ódýr með því að bæta við það, sem fyrir er og það sama er engu síður hægt að segja um Seyðisfjarðarverksmiðjuna. Þess vegna hygg ég, að það sé mjög skynsamlegt, eins og ég sagði áðan, að auka verksmiðjur ríkisins á þessum stöðum. Það mundi líka hækka hráefnisverðið fyrir fiskiskipaflotann, því að þarna mundi vera hagfelldari rekstur eftir en áður. Ég vil svo segja um síldarflutningana, að ekki vil ég vera meinsmaður þess, að síld sé flutt á milli og hagfelldar aðferðir notaðar til þess. En menn mega ekki vera svo blindir að halda, að það kosti ekki neitt að flytja síldina langa vegu. Það kostar mikið og verður að bera saman við önnur úrræði, sem til greina koma, sem sé þau, að bæta afköstum og hráefnisgeymslum við, þar sem vel liggur við síldarmiðunum.
Ég er alveg sannfærður um, að þessir viðaukar við síldarverksmiðjurnar á Raufarhöfn og Seyðisfirði eru mjög hagfelldir þjóðhagslega séð og fyrir síldveiðiflotann og alla þá, sem hlut eiga að máli.
Ég hef mælt með því aðspurður, að hlutafélagi verði veitt ríkisábyrgð til þess að byggja síldarverksmiðju á Raufarhöfn og lét það fororð fylgja, að ég vildi, að það yrði gert, ef það kæmi ekki í veg fyrir þær framkvæmdir í þeim málum, sem ég hef hér verið að lýsa.
Ég tel, að síldarverksmiðjukosturinn í heild sé allt of lítill miðað við fiskiskipaflotann, eins og hann er nú orðinn, gæti komið fram með tölur því til rökstuðnings, ef ég hefði þær hér við höndina núna. Ég mundi ekki vilja eiga þátt í því, að einkaaðilum, sem vildu leggja fé sitt í að koma upp síldarverksmiðju, yrði neitað um fyrirgreiðslu eins og ríkisábyrgð, sem í þessu falli mætti telja með öllu áhættulausa. Ég geri ráð fyrir því, að það sé aðilanna eigið fé, sem þeir leggja í þetta, og lán, sem þeir útvegi sér sjálfir. En á hinn bóginn vil ég ekki, að slík ábyrgð verði veitt, ef það verður til þess að koma í veg fyrir aðrar framkvæmdir í þessum málum, sem ég álít að eigi að sitja fyrir, en það er bygging þessara smærri verksmiðja, þar sem engar eru fyrir og viðauki við síldarverksmiðjurnar á Raufarhöfn og Seyðisfirði.
Ekki dettur mér í hug, að eymdin sé orðin svo mikil að þótt lagt verði í þessar framkvæmdir til þess að greiða fyrir móttöku síldarinnar og vinnslu hennar, þá sé með því verið að útiloka að komast yfir eitthvað af skipum til að flytja síldina á milli, að því leyti sem það telst hagfellt. Mér dettur ekki í hug, að eymdin sé slík, að ekki sé hægt að gera hvort tveggja eftir skynsamlegri áætlun.