11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í D-deild Alþingistíðinda. (3152)
211. mál, umferðarkennsla
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Sívaxandi umferð hefur valdið stórauknum vandamálum á síðari árum, vandamálum, sem eiga eflaust enn eftir að vaxa með vaxandi umferð og aukinni bifreiðaeign hér á landi. Umferðarslysum hefur því miður einnig farið fjölgandi hin síðari ár og er þar skemmst að minnast alvarlegra slysa nú fyrir skömmu. Með hliðsjón af þessu vil ég taka fram, að ég tel hér vera um mikið og alvarlegt vandamál að ræða, sem ég tel skólana eiga að eiga eins mikinn þátt í að vinna gegn og unnt er. Þess vegna tel ég í alla staði eðlilegt, að þessi fsp. sé komin fram og skal leitast við að svara henni sem ýtarlegast.
Umferðarl. eru frá 2. maí 1958. Í 83. gr. l. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Kennsla í umferðarreglum skal fara fram í barna- og unglingaskólum. Menntmrh. setur reglugerð um tilhögun kennslunnar og prófkröfur.“
Með bréfi menntmrn. 13. júní 1958 var þess óskað, að umferðarlaganefnd semdi drög að reglugerð um þessa kennslu. N. tók þetta verkefni að sér og skilaði frv. að reglugerð 13. nóv. 1959. Með bréfi menntmrn. 4. des. 1959 var reglugerðin send fræðslumálastjóra til umsagnar, og felst álit hans í bréfi, dags. 28. febr. 1960. Að fenginni umsögn frá fræðslumálastjóra gerði menntmrn. smávægilegar breytingar á reglugerðinni og sendi hana síðan dómsmrn. til umsagnar. Svar þess barst 31. marz og var reglugerðin síðan gefin út 8. apríl 1980. Í reglugerðinni er tekið fram, að tilgangur umferðarfræðslu í skólum sé: 1) Að gera nemendum ljósa þá hættu, sem af umferð stafar. 2) Að kenna umferðarreglur þær, sem gilda á hverjum tíma og skuli fræðslunni hagað í samræmi við þroska hinna ýmsu aldursflokka nemenda. 3) Að kenna nemendum að fara eftir settum reglum og notfæra sér fræðslu um þessi efni, þannig að þeir valdi ekki sér eða öðrum óþarfa hættu. Einnig er tekið fram, að á barnaheimilum, í leikskólum og smábarnaskólum skuli börnum leiðbeint um einföldustu reglur, sem fótgangandi fólki ber að fylgja. Á fræðslan einkum að beinast að því, að börnin fái hugmynd um þá varúð, sem þeim ber að sýna, þegar þau eru á ferð eða að leik á almannafæri. Er ákveðið, að forráðamönnum stofnana þeirra, sem að framan eru nefndar, beri að sjá þeim fyrir nauðsynlegum gögnum til kennslunnar.
Í barna- og unglingaskólum skal umferðarfræðslan fara fram sem einn þáttur skyldunámsins. Fræðslu þessa fyrir börn á aldrinum 7–9 ára annast bekkjarkennari þeirra, eða sá kennari, sem skólastjóri kveður til þess. Á fræðslan að fara fram bæði innanhúss og utan. Innanhúss umferðarfræðslan á að vera samtvinnuð öðrum námsgreinum, eftir því sem við verður komið. Ber sérstaklega að brýna fyrir börnum hættu, sem stafar af umferð, bæði almennt og sérstakar hættur í því byggðarlagi, sem um er að ræða. Skal börnunum gerð grein fyrir þeirri skyldu að sýna varúð og taka tillit til annarra, læra að þekkja helztu umferðarmerki og helztu reglur um umferð fótgangandi manna. Utan húss skal fræðslan einkum beinast að því að kynna börnum umferðarreglur, bæði á afmörkuðum svæðum og alfaravegum. Skal það gert bæði með æfingum og munnlega. Verja skal nokkrum kennslustundum árlega til umferðarfræðslu utanhúsa. Þær kennslustundir skulu eigi vera færri en 6 fyrir börn á aldrinum 8–9 ára. Börn 10–12 ára skulu aftur á móti njóta kennslu í umferðarreglum og umferðarmenningu 2 kennslustundir á mánuði til jafnaðar, meðan skóli starfar. Í kaupstöðum og annars staðar, þar sem löggæzlumanna er kostur, skal sérþjálfaður lögreglumaður eða bifreiðaeftirlitsmaður annast æfingakennsluna utanhúss. Í gagnfræðastigsskólum skal umferðarkennsla fara fram í 1. og 2. bekk. Við brottfararpróf úr barnaskólum í kaupstöðum og annars staðar, þar sem því verður við komið, skulu nemendur ganga undir umferðarpróf. Einnig skulu nemendur í 2. bekk gagnfræðaskóla ganga undir slíkt próf.
Í Kennaraskóla Íslands og Íþróttakennaraskóla Íslands skal umferðarfræðsla vera skyldunámsgrein. Á að halda námskeið fyrir þá kennara, sem réttindi vilja öðlast til þess að kenna börnum og unglingum umferðarmál. Þeir, sem sótt hafa slík námskeið og sýnt, að þeir séu hæfir til kennslu, skulu öðrum fremur hafa hana á hendi. Skulu námskeið þessi haldin, þegar þurfa þykir og vera undir yfirumsjón fræðslumálastjóra. Þá er Ríkisútgáfu námsbóka ætlað að gefa út námsbækur í umferðarmálum. Loks er heimilað í reglugerðinni, að menntmrh. ráði sérfróðan mann um stundarsakir til að hafa yfirumsjón með umferðarfræðslu í skólum landsins í samráði við fræðslumálastjóra og til þess að stjórna námskeiðum þeim, sem áður voru nefnd.
Menntmrn. fór þess á leit 12. maí 1960 við n. þá, sem starfar samkv. l. nr. 48 1958, þ.e. nefnd þá, sem skylt er að bera undir ráðningu nýrra opinberra starfsmanna, að hún féllist á, að ráðuneytið réði sérfróðan mann til þess að hafa umsjón með umferðarfræðslu í skólum. Nefndin sá ekki ástæðu til að mæla með ráðningunni, en kvaðst fús til að taka málið upp að nýju, áður en skólar hæfust haustið 1960. Fékkst svo samþykki n. 15. sept. 1960 til að lausráða mann fyrst um sinn til reynslu til þessara starfa. Hinn 20. okt. 1960 var Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi síðan ráðinn til þess að hafa umsjón með umferðarfræðslu í skólum í samráði við fræðslumálastjóra og til að stjórna námskeiðum í umferðarfræðslu í Kennaraskóla Íslands og Íþróttakennaraskóla Íslands. Gilti ráðningin frá ársbyrjun 1961 til 3 ára og var miðað við, að þetta væri hálft star, og launað samkv. því. Voru launin fyrst ákveðin samkv. 7. flokki launalaga 1955, meðan þau giltu, en síðar samkv. 17. launaflokki kjaradóms frá 3. júlí 1963. Frá ársbyrjun til vors 1961 vann Jón Oddgeir Jónsson að því að semja og búa undir prentun kennslubók í umferðarmálum, þar sem slík bók var nauðsynlegur liður í því, að mögulegt væri að hefja kennslu í umferðarmálum í barna- og unglingaskólum landsins. En einnig lét hann gera filmræmur og kvikmyndir til notkunar við kennsluna. Haustið 1961 kom svo umferðarbókin út á vegum Ríkisútgáfu námsbóka og er hún seld á 25 kr. til nemenda. Alls mun hafa verið dreift um 8.000 eintökum af bók þessari í barna- og unglingaskóla, einkum þó til barnaskóla. Annað upplag bókarinnar kom út á s.l. ári í stóru upplagi. Vetrarmánuðunum 1962–63 var varið til þess að halda námskeið með starfandi kennurum í öllum barnaskólum og nokkrum unglingaskólum í mesta þéttbýli landsins, þar sem þörfin er mest, þ.e. í Reykjavík, Kópavogi og nágrenni. Vorið 1964 var haldið próf í umferðarreglum í þessum skólum samkv. því, sem ætlazt var til í reglugerðinni. Á þessu ári hafa verið haldin námskeið með kennurum í mörgum kaupstöðum landsins og mun því verða haldið áfram, þannig að unnt verði að láta próf í umferðarreglum fara fram a.m.k. í 12 ára bekkjum barnaskóla í öllum kaupstöðum landsins vorið 1965, þ.e. næsta vor.
Eins og áður var sagt, hefur höfuðáherzla verið lögð á að halda námskeið með starfandi kennurum. En auk þess var námskeið haldið í Kennaraskóla Íslands og eru nú að hefjast þar námskeið, sem ráðgert er að halda á hverjum vetri í 4. bekk og stúdentadeild. Í Íþróttakennaraskóla Íslands hafa verið haldin námskeið í umferðarfræðslu fyrir kennaraefni. Þá hefur Jón Oddgeir Jónsson haldið erindi um þessi efni á tveim skólastjóraþingum og útvegað sænskar og enskar umferðarkvikmyndir til kennslu. Í lok þessa árs mun koma út handbók í umferðarkennslu fyrir smábarnakennara og fóstrur og hefur Jón Oddgeir Jónsson einnig tekið þá bók saman og búið undir prentun. Þess má geta, að vorið 1962 var tilbúið handrit að annarri kennslubók, sem einkum var ætluð til náms í unglingaskólum, svo og leiðarvísir fyrir almenning í umferðarmálum. Var þá ákveðið að bíða um tíma með prentun bókarinnar, þar til reglugerðir, sem kváðu á um nánari atriði í þessum málum, kæmu út og unnt yrði að fella þau ákvæði inn í efni bókarinnar. Þær reglugerðir, sem beðið var eftir, birtust á s.l. sumri, og er nú hafinn undirbúningur að prentun bókarinnar.
Með þessu yfirliti vænti ég, að ég hafi veitt fullnægjandi svar við fyrri lið till., þ.e. hvernig framkvæmd hafi verið ákvæði 83. gr. umferðarlaga frá 1958 um kennslu í umferðarmálum í barna- og unglingaskólum landsins.
Að því er snertir síðari lið fyrirspurnarinnar, hversu miklu fé hafi verið varið úr ríkissjóði til þessarar fræðslu, frá því að lögin tóku gildi, er því til að svara, að beinn kostnaður við umferðarfræðsluna hefur ekki verið annar, en hálf laun Jóns Oddgeirs Jónssonar fullrúa, og hafa þau numið sem hér segir: 1961 39.352 kr., 1962 44.648 kr., 1963 46.820 kr. og 1964 um það bil 60.000 kr. Auk þess er svo vitanlega í hinum almenna skólakostnaði allur sá kostnaður, sem af því leiðir, að umferðarkennsla fer fram innan hins almenna skólakerfis, þó að þar sé eigi unnt að tilgreina ákveðna tölu.
Að lokum skal ég láta þess getið, að ég tel æskilegt að auka umferðarfræðsluna frá því, sem verið hefur og mun verða unnið að því, að Jón Oddgeir Jónsson, sem gegnt hefur þessu starfi með prýði um hríð, fái aðstöðu til að gegna því sem fullu starfi.