11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í D-deild Alþingistíðinda. (3162)

212. mál, sjálfvirkur sími

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason) :

Herra forseti. Fsp. á þskj. 47 hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Hvenær verður innansveitarsíminn í Hafnahreppi tengdur sjálfvirka símakerfinu á Suðurnesjum?“

Nú munu liðin um 3 ár, síðan sjálfvirka símakerfið var lagt um Suðurnes, rétt við hreppamörk Hafnahrepps í Gullbringusýslu. Í 3 ár hafa hreppsbúar í Hafnahreppi beðið eftir því, að sími þeirra yrði tengdur sjálfvirka kerfinu við Suðurnesin, en af því hefur ekki orðið til þessa dags. Hreppsbúum leikur því nokkur forvitni á að vita, hvenær af þessari framkvæmd verður. Því er þessi fsp. borin fram.