11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í D-deild Alþingistíðinda. (3163)

212. mál, sjálfvirkur sími

Landbrh. (Ingólfur Jónsson) :

Herra forseti. 1960 var samin áætlun um að koma upp sjálfvirkum síma í kaupstöðum, kauptúnum og hinum þéttbýlli sveitum. Þessi áætlun náði yfir 6–7 ár. Eftir þessari áætlun hefur verið unnið, en nokkrar tafir hafa stundum komið, vegna þess að afgreiðsla á efni hefur ekki ávallt staðizt áætlun. Hefur það stundum verið 6–10 mánuðum seinna, en áætlað var, sem efni hefur komið til landsins. Það má eigi að síður gera ráð fyrir því, að árið 1968 verði allir kaupstaðir, flest kauptún og hinar þéttbýlli sveitir búnar að fá sjálfvirkan síma. Skapar það mikil aukin þægindi og hagkvæmari rekstur.

Það, sem spurt er að í þessu sambandi er, hvað hefur tafið, að sjálfvirkur sími hefur ekki komið í Hafnir, þar sem 3 ár eru liðin, síðan sjálfvirka símakerfið kom á Suðurnes. Því er til að svara, að búnaður til þess að koma upp sjálfvirkum síma í Höfnum var pantaður árið 1961 og efni kom til landssímans í marz 1963, en hafði bilað í flutningi og varð að panta nýtt í staðinn. Í ágúst yfirstandandi árs var allt komið til uppsetningar búnaðarins, en sérfróðir menn til hennar hafa síðan verið bundnir á öðrum stöðvum, en gert er ráð fyrir, að uppsetning í Höfnum geti hafizt í þessum mánuði. Það hefur ekki verið ásetningur að setja Hafnabúa útundan, og það þarf ekki að vera óeðlilegt, þótt þeir hafi ekki fengið sjálfvirkan síma á sama tíma og t.d. Keflavík. Það er þó nokkur vegalengd til Hafna og það er með þetta eins og annað, að það verður ekki allt framkvæmt á einu ári. En ég hygg, að hv. fyrirspyrjandi láti sér nú nægja þetta svar, að í næsta mánuði verður byrjað á uppsetningu, og það mun ekki taka langan tíma að ljúka verkinu.