18.11.1964
Sameinað þing: 12. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (3182)

214. mál, héraðslæknar

Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. heilbrmrh., hvaða ráðstafanir ríkisstj. hyggist gera, til þess að öll lögákveðin læknishéruð landsins verði skipuð héraðslæknum. Hér þarf ekki að ræða um nauðsyn þess, að landsmenn allir eigi þess kost að ná til læknis, þegar þörf er á, um það erum við að sjálfsögðu allir sammála, enda er læknisþjónustan talin vera á meðal frumstæðustu lífsþæginda fólksins. Yfir sumarmánuðina, þegar fjallvegir allir eru færir, er oftast hægt að komast hjá vandræðum í þessum efnum, þótt eitt eða annað læknishérað sé ekki setið í bili. En allt öðru máli gegnir um vetrarmánuðina, þegar erfitt er að komast yfir vegna ófærðar, og þannig mun það vera um þessar mundir í nokkrum þeim læknishéruðum, sem læknislaus eru: fjallvegir tepptir og útilokað að ná til læknis á skömmum tíma, ef slys eða bráðan sjúkdóm ber að garði. Mér er tjáð, að læknislaus séu eftirtalin læknishéruð: Búðardalshérað, Flateyjarhérað, Suðureyrarhérað, Djúpavíkurhérað, Raufarhafnarhérað, Bakkagerðishérað, Nes í Norðfirði, en við það ber að athuga, að þar eru tveir læknar á staðnum, er starfa við sjúkrahús, sem þar er og Kirkjubæjarhérað. Ólafsfjarðarhérað er læknislaust nú, sakir þess að héraðslæknirinn liggur veikur á sjúkrahúsi og auglýst læknishéruð, sem hafa lækna ennþá, eru: Súðavíkurhérað og Kleppjárnsreykjahérað í Borgarfirði. Í 5 héruðum eru auk þessa settir læknar, en ekki skipaðir.

Þeir héraðslæknar, er taka að sér þjónustu í öðru héraði ásamt sínu eigin, eiga oft í miklum erfiðleikum, ekki einungis á ferðalögum, heldur og líka vegna þess, að þeir verða að flytja með sér nauðsynleg lækningatæki og meðul. Þau eru ekki mörg læknishéruðin úti á landi, sem eiga sjálf brýnustu lækningatæki eða hafa apótek. Venjulega hafa héraðslæknarnir þetta sjálfir og flytja þau með sér, er þeir fara til nýrra starfa annars staðar á landinu. Ofan á öryggisleysi þess fólks, sem þarf að búa við þessar aðstæður, að hafa ekki lækni í námunda við sig, bætist svo það að verða að kaupa alla læknisþjónustu á margföldu verði miðað við það, sem annars væri, því að vegalengdir til læknis margfaldast og sömuleiðis aðstaða til að ná í meðul, þegar þess þarf með.

Hér er um mikið vandamál að ræða og fer vaxandi ár frá ári. Læknislausum héruðum fjölgar og mun fjölga, ef ekki tekst að leysa þennan vanda í framtíðinni.

Ég tel mig hafa gert grein fyrir þeim ástæðum, sem liggja að baki þessari fyrirspurn, og ég vænti, að hæstv, ráðh. geti gefið ýtarleg svör við því, hvað ríkisstj. hyggist gera til þess, að öll lögákveðin læknishéruð verði skipuð héraðslæknum.