02.12.1964
Sameinað þing: 16. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í D-deild Alþingistíðinda. (3199)
215. mál, Aflatryggingasjóður
Sjútvmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Í fyrsta lagi er spurt: „Hve mikið fé hefur verið greitt úr aflatryggingasjóði á undanförnum 4 árum: a) í heild, b) úr hverri einstakri deild sjóðsins?“
Um þetta hef ég fengið upplýsingar frá sjóðnum, sem eru á þessa leið:
Árið 1961 voru greiðslurnar þannig: Úr almennu bátadeildinni 10.2 millj., ég les aðeins heil hundruð þús., ef það er lesið nákvæmlega, þá eru það 10.248.038 kr., og togaradeildin með 32.684.987 kr. eða greiðslur samtals 42.933.025 kr. Árið 1962 urðu greiðslurnar þannig: Almenna deildin 8.518.275 kr., síldveiðideildin 89.830 kr. og togaradeildin 19.639.187 kr. Árið 1963 urðu greiðslurnar þannig, að úr almennu deildinni voru greiddar 9.508.551 kr., úr síldveiðideildinni 28.637.058 kr. og úr togaradeildinni 20.947.084 kr., eða samtals 59.087.693 kr. Og árið 1964 hefur þegar verið greitt úr almennu deildinni 4.069.819 kr. Samtals gerir þetta fyrir öll árin í heild: Úr almennu deildinni 32.339.483 kr., úr síldveiðideildinni 28.726.888 kr. og úr togaradeildinni 73.271.238 kr., eða samtals úr öllum deildum í þessi 4 ár 134.337.609 kr.
Þá er spurt: „Hver er eign aflatryggingasjóðs nú og hverrar einstakrar deildar hennar?“ Þær eru taldar svo, að almenna deildin eigi 42.777.941.03 kr. Skuldir hennar eru engar. Síldveiðideildin er talin eiga 9.457.489.90 kr., en skuldir hennar eru aftur á móti 19.791.888.49 kr. Togaradeildin er talin eiga 488.215.71 kr., en skuldir hennar eru taldar 75.340.858.84 kr. Og jöfnunardeild er talin eiga 54.449.082.50 kr. Skuldir hennar eru engar. Þannig eru eignir deildanna samanlagt taldar vera 107.172.729.14 kr., en skuldir samtals 95.132.727.43 kr.
Þá er spurt: „Hverjar eru áætlaðar árstekjur hverrar deildar um sig?“ Árstekjurnar fyrir árið 1963 voru áætlaðar alls um 66.7 millj. og árstekjur árið 1964 voru áætlaðar 70 millj., en munu reynast vera í kringum 5 millj. hærri eða um 75 millj. kr.
Þessari skýrslu aflatryggingasjóðs fylgir svo hljóðandi greinargerð frá sjóðnum: „Greiðslum er enn ekki að fullu lokið fyrir árið 1963. Mun samt einungis vera um smærri upphæðir að ræða, einkum vegna sumar- og haustvertíðar þorskveiða. Frá allmörgum útvegsmönnum berast skýrslur seint og illa. Reikningar áranna 1961 og 1962 eru tilbúnir og verða birtir innan skamms. Oftast er dregið að loka reikningum til þess að gefa öllum rétthöfum bóta tækifæri til að senda skýrslu. Greiðslur úr síldveiðideild fyrir árið 1963 runnu til minni flokka báta vegna sumarsíldveiðanna, en að mestu var um greiðslu bóta að ræða vegna alvarlegs aflabrests á haustsíldveiðunum 1963. Þess ber og að geta, að auk skulda þeirra, sem taldar eru togaradeild, alls að upphæð 75.3 millj. kr., voru á árinu 1960 gefin út skuldabréf til 6 ára að upphæð 30 millj. kr., sem skuldunautar,“ — mun eiga að vera skuldheimtumenn, — „togaranna samþykktu að taka sem greiðslu upp í skuldir togaraútgerðarinnar. Á móti kemur svo stofnframlag ríkissjóðs til togaradeildar sjóðsins, að upphæð 37.5 millj., sem greiðist á 15 árum. Ekki er að fullu lokið uppgjöri ríkissjóðs við aflatryggingasjóð fyrir árið 1963. Tekjur það ár námu 66.7 millj. kr., þar af framlag ríkissjóðs rúmlega 22 millj., en skipting tekna milli deilda er að sjálfsögðu ekki lokið, en er áætluð sem hér segir: að jöfnunardeild fái 33.4 millj. kr., síldveiðideild 11.8 millj. kr., almenna bátadeildin 17.8 og togara deild 3.9, eða samtals 66.7 millj. kr. Tekjur ársins 1964 voru upphaflega áætlaðar 70 millj. kr., en verða, ef að líkum lætur, nær 75 millj., þar af 25 millj. úr ríkissjóði. Áætluð skipting þeirrar upphæðar á deildir er þessi: Jöfnunardeild 37.5, síldveiðideild 15.5, almenna bátadeildin 19 og togaradeild 3, eða samtals 75 millj. kr.“
Ætla ég þá, að svarað sé fsp. hv. þm.