09.12.1964
Sameinað þing: 17. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í D-deild Alþingistíðinda. (3216)
81. mál, innheimta á stóreignaskatti
Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. þau svör, sem hann gaf hér við fsp., en verð að láta í ljós þá skoðun, að mér sýnist, að mildari innheimtuaðferð hafi verið notuð við þennan skatt en innheimtu og skattálagningu í landinu yfirleitt og tel, að ef svo hefði verið farið með þá skatta, sem á voru lagðir á þessu ári, mundi megnið af þeim vera óinnheimt nú og fólk ekki stynja eins undan byrðinni og það hefur orðið að gera á þessu ári. Þetta vil ég að komi fram og tel, að þær upplýsingar, sem hæstv. ráðh. gaf hér, staðfesti þessa skoðun mína.