09.12.1964
Sameinað þing: 17. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í D-deild Alþingistíðinda. (3219)

81. mál, innheimta á stóreignaskatti

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það vill stundum verða svo og sannast hér enn, að þeir, sem sekastir eru, kasta fyrsta steininum og deila á aðra, þó að þeir eigi fyrst og fremst sök á stórum afglöpum. Að líkja þessum stóreignaskatti og innheimtu hans saman við almenna skattheimtu er auðvitað fjarstæða ein ber. Vitanlega gengur öll skattheimta sinn eðlilega gang, þótt einn og einn maður kæri sitt útsvar eða tekjuskatt, ýmist fyrir skattanefndum eða gangi með það til dómstóla. Það, sem þar er um að ræða, er yfirleitt aldrei nema örlítið brot af skattheimtunni. Hér er um það að ræða, að vefengdur hefur verið sjálfur grundvöllur þessara laga og ekki aðeins, að hann hafi verið vefengdur, heldur er staðfest með hverjum hæstaréttardómnum eftir annan, að þessi lög fengju ekki staðizt að verulegu leyti, heldur væru stjórnarskrárbrot.

Eins og ég gat um, var skatturinn upphaflega 137 millj. tæpar, en í dag eru aðeins eftir af honum 65.8 millj. kr. Krafan um það, að skatturinn hefði verið allur innheimtur, eða gerðar slíkar ráðstafanir, eins og hann var lagður á í upphafi, hefði þýtt það, að það hefði þurft að endurgreiða yfir 70 millj. kr. Ég veit ekki, hvort slíkt hefði verið ríkissjóði í hag. Ég veit ekki heldur, hvort það væri húsnæðismálastjórn eða veðdeild Búnaðarbankans í hag, sem á verulegan hluta af þessum skatti, að hafa fengið þetta fé, lánað það út og þurft svo að endurgreiða milljónir eða milljónatugi. Hverjum var þetta í hag? spyr ég.

Ástæðan til þess, að ekki hefur verið innheimt frekar en orðið er, er eingöngu þessi, að málaferlum er ekki lokið. Hins vegar hafa að sjálfsögðu verið gerðar allar ráðstafanir til að tryggja greiðslu þessa skatts til ríkissjóðs, þegar þar að kemur. Þannig hafa verið gerð lögtök og settar þær tryggingar, sem nauðsynlegar eru, til þess að allt það fé greiðist inn, sem að lokum á að greiðast eftir dómum og úrskurðum. Þessi ádeila hv. 1. þm. Austf. er því gersamlega út í hött og ástæðulaus og fremur ætti hann að standa hér upp og biðjast afsökunar á því að hafa verið aðalfrumkvöðull og aðalhöfundur þessara laga, sem eru einsdæmi í íslenzkri stjórnmálasögu og hafa verið ómerkt þannig með hverjum hæstaréttardómnum eftir annan.