03.02.1965
Sameinað þing: 24. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í D-deild Alþingistíðinda. (3236)
93. mál, Tunnuverksmiðjur ríkisins
Fyrirspyrjandi (Björn Jónsson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. sjútvmrh. fyrir þá greinargóðu skýrslu, sem hann hefur aflað sér og flutt hér varðandi þetta mál, þó að ég hins vegar hljóti að benda á það strax, að í raun og veru er ekki fullsvarað nema a-liðnum í fyrri fsp., þ.e.a.s. um það, hve mikið sé fyrirhugað að smíða nú í vetur í tunnuverksmiðjunni á Akureyri. Það eru 20 þús. tunnur eða sem næst 40 daga vinnsla eftir venjulegum afköstum og verð ég að segja, að minna gat það tæplega verið. Hins vegar hefur því ekki verið svarað, hve mikið sé fyrirhugað að framleiða í Siglufjarðar verksmiðjunni og engin svör eru gefin um það, hvort fyrirhugað sé að byggja tunnugeymslu við Akureyrarverksmiðjuna.
Ég held, að það hafi verið 1957, sem lög um tunnuverksmiðjur ríkisins voru endurskoðuð og samþykkt hér á hv. Alþingi í þeirri mynd, sem þau nú eru og það var í lögum ákveðin heimild fyrir stjórn tunnuverksmiðjanna til að taka lán til endurbóta á Akureyrarverksmiðjunni og til byggingar tunnugeymslu. Og það hefur sem sagt staðið í forráðamönnum þessa fyrirtækis í síldarútvegsnefnd allt frá 1957, eða í 6–7 ár, að athuga, á hvern hátt þetta væri hægt að framkvæma og er þó ekki um stærri framkvæmd að ræða, en það, samkv. því sem kom fram hjá hæstv. ráðh., að hún kostar 2½–3 millj. kr. Ég held, að það væri vissulega athugunarefni, hve mörgum sinnum væri búið að eyða þessari upphæð í sambandi við það óhagræði, sem er að því að hafa enga tunnugeymslu við Akureyrarverksmiðjuna, bæði með flutningum, ég vil segja hlægilegum flutningum á efnisbirgðum, fyrst frá skipshlið á Akureyri til Dagverðareyrar eða jafnvel enn lengra í burtu úr bænum, síðan daglegum flutningi á efninu til verksmiðjunnar og loks flutningi á tunnunum á hverjum degi úr bænum, út á Dagverðareyri og jafnvel út í nærliggjandi sveitir, þar sem tunnunum hefur verið komið fyrir í tæmdum hlöðum að vetrinum til og hent svo út á tún að sumrinu. Ég er sannfærður um það, vegna þessa beina tjóns, auk þess tjóns, sem verður af því, að tunnurnar eyðileggjast í þúsundatali yfir sumartímann, þegar þær eru geymdar úti í hitum, þannig að stafir eru stöðugt að brotna og kostar óhemjuvinnu á síldarplönum að gera við tunnurnar, áður en í þær verður nokkur vara látin, — ég er sem sagt sannfærður um það, að ef tunnugeymsla hefði verið byggð á Akureyri fyrir t.d. 6–7 árum, væri hún búin að borga sig mörgum sinnum.
Það kom fram í skýrslu hæstv. ráðh., að tunnur á Akureyri hefðu alltaf verið ofur lítið dýrari, en á Siglufirði, undanfarin ár og jafnvel ríkisendurskoðendur hefðu af þeim ástæðum lagt til, að tunnuverksmiðjan á Akureyri yrði lögð niður. Ég verð að segja, að af mörgum skringilegum aths., sem ríkisendurskoðendur hafa látið frá sér fara, hefur mér þótt þessi einna spaugilegust, þar sem tvær verksmiðjur eru til í landinu, verðinu er jafnað og það hlýtur náttúrlega alltaf að fara svo, að á öðrum hvorum staðnum verður framleiðslan eitthvað dýrari og það verður þá kannske til skiptis hægt að nota þessa röksemd, þangað til engin viðmiðun væri lengur til. En aftur á móti, er það mjög skiljanlegt og skýranlegt, að framleiðslan á Akureyri hafi verið dýrari, en á Siglufirði og dýrari, en innfluttar tunnur, vegna þess að engin mynd hefur verið á rekstri þessa fyrirtækis, aldrei, eins og ég hef drepið hérna á. Og ég held, að það væri þess vegna skynsamlegra að leita orsakanna fyrir þessum verðmismun, heldur en nota hann sem röksemd fyrir því, að fyrirtækið eigi ekki rétt á sér.
Ég verð að segja það, að mér þykir trúlegt, að einhvers staðar séu maðkar í mysunni, ef það er ekki mögulegt fyrir okkur að framleiða tunnur á samkeppnisfæru verði við það, sem gerist hér á Norðurlöndum. Við höfum þjálfað fólk í þessu, a.m.k. á Siglufirði og á Akureyri. Við ættum að geta haft verksmiðjukost, sem alveg samsvaraði verksmiðjukosti annars ataðar. Flutningur á tunnunum, umbúðunum, til landsins ætti að kosta minna, ef efnið er flutt, heldur, en ef tunnurnar eru fluttar fullgerðar, svo að miklu munar og ekki er kaupgjaldið hærra hér. Ég held að þarna geti ekki verið um það að ræða, að ástæðan sé önnur en sú, að þessi fyrirtæki okkar eru illa rekin á einhvern hátt og kannske á fleiri en einn veg.
Það kom fram hjá hæstv. ráðh., að framleiðsla á síldartunnum hefur verið á ári frá 100–140 þús. tunnur. Og þegar við aðgætum það, að okkar möguleikar til framleiðslu á saltsíld eru a.m.k. 400–500 þús. tunnur á ári, verð ég að segja það, að þetta er óeðlilega lítil framleiðsla og þyrfti að stórauka hana, bæði með tryggari rekstri á þessum verksmiðjum, sem til eru í landinu og með því að stofasetja nýjar verksmiðjur á heppilegum stöðum. Það er nægilegt verkefni þarna fyrir hendi. Og ég vil minna á það í því sambandi, að það hefur komið fyrir í góðum aflaárum, að við höfum orðið að stöðva síldarsöltun, vegna þess að tunnur hafa ekki verið fyrir hendi. Og ég held, að það hljóti að vera ákaflega óheppilegt fyrir okkur að vera svo til að öllu leyti eða miklu leyti upp á aðrar þjóðir komnir um umbúðir fyrir þessa þýðingarmiklu framleiðslu okkar. Við eigum að mjög verulegu leyti a.m.k. og helzt að mestu leyti að framleiða sjálfir og það eigum við að geta með sæmilega hagkvæmum hætti, ef rétt er staðið að málum.