03.02.1965
Sameinað þing: 24. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í D-deild Alþingistíðinda. (3238)
93. mál, Tunnuverksmiðjur ríkisins
Jónas G. Rafnar:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Við þessar umr. hafa komið fram ýmsar merkar upplýsingar varðandi tunnusmíði hér á landi. Og ég er alveg sammála hæstv. ráðh um, að það má að sjálfsögðu nokkuð deila um það, hversu langt eigi að ganga í því að smíða okkar tunnur innanlands. Hins vegar held ég, að allavega sé það nauðsynlegt, að hér sé allveruleg tunnusmíði, vegna þess að með því móti höfum við þó alla jafna kost á að halda niðri verði á hinum erlendu tunnum. En þetta er sem sé álitamál og þarna kunna að rekast á hagsmunir þeirra, sem bera tunnusmíðina fyrir brjósti, og svo aftur síldarsaltendanna.
En um það er ekkert áhorfsmál, að það hefur verið algert glapræði hjá hv. síldarútvegsnefnd að hafa ekki fyrir löngu verið búin að koma upp tunnugeymslu á Akureyri. Ég held, að síldarútvegsnefnd hafi ekki komið til hugar, að tunnuverksmiðjan á Akureyri yrði lögð niður. Og það lá ljóst fyrir, að tunnusmíði á Akureyri var ekki hægt að halda uppi með hagstæðu móti, án þess að þar væri fyrir hendi geymsluaðstaða. Og við skulum líta á það, að nú, þegar verið er að endurbyggja tunnuverksmiðjuna á Siglufirði, er jafnframt unnið að því að koma þar upp tunnugeymslu.
Það er alveg rétt hjá hv. fyrirspyrjanda, að tunnugeymsla á Akureyri, þótt hún væri ekki fyrir meira en 30–40 þús. tunnur, ef þær upplýsingar eru réttar, sem ég efast ekkert um, hjá hæstv. ráðh., að slík tunnugeymsla mundi kosta um 2½–3 millj., það fé væri fyrir löngu komið aftur til baka. Tunnur hafa verið geymdar hingað og þangað og þetta haft að sjálfsögðu í för með sér mjög mikinn kostnað.
Ég vil því eindregið vona, að hv. síldarútvegsnefnd sjái nú að sér og hefjist handa með stuðningi ráðuneytisins um það, að sem allra fyrst verði ráðizt í það að koma upp geymslu fyrir tunnur á Akureyri.