10.02.1965
Sameinað þing: 26. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í D-deild Alþingistíðinda. (3243)
114. mál, hlustunarskilyrði útvarps á Norður- og Austurlandi
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Síðan árið 1950 hefur á vetrarkvöldum gætt truflana frá erlendum útvarpsstöðvum, sem nota sömu tíðni og íslenzku stöðvarnar nota og hafa þessar truflanir farið vaxandi síðari árin. Á núverandi miðbylgjutíðnum endurvarpsstöðvanna á Eiðum og í Skjaldarvík hefur orka truflananna fimmtugfaldazt og sextánhundruðfaldazt á tíðni stöðvarinnar á Höfn í Hornafirði. Stafar þetta sumpart af því, að sendiafl erlendra stöðva hefur verið stóraukið og margar nýjar, aflmiklar stöðvar verið teknar í notkun, t.d. í Austur-Þýzkalandi, en sumpart af því, að útvarpsstöðin hér hefur á langbylgjum undanfarna mánuði aðeins útvarpað með 15 kw. afli, á meðan verið hefur verið að setja hér upp hinn nýja 100 kw. sendi. Loks má geta þess, að skilyrðin í háloftunum eru nú sérstaklega óhagstæð varðandi truflanir, vegna þess að sólblettir, sem breytast á 11 ára fresti, eru nú í lágmarki og truflanir berast þá með allt að fjórfaldri orku miðað við hámarksár sólbletta. Af þessum sökum hefur langdrægni íslenzku stöðvanna stórminnkað undanfarna vetrarmánuði og hefur því ekki verið hægt að gera ráð fyrir truflunarlausu langdrægi á 5 kw. miðbylgjustöð, eins og er á Eiðum, nema innan 20–25 km fjarlægðar frá stöðinni. En jafnvel þótt stöðin á Eiðum hefði verið aukin upp í 100 kw., hefði truflanalaust langdrægi líklega ekki orðið nema 40–50 km. Endurvarpsstöðvarnar hafa því átt í miklum örðugleikum með að taka á móti beinni útsendingu frá Reykjavíkurstöðinni til endurvarps vegna truflana.
Þetta eru meginástæður þess, að miklar kvartanir hafa borizt undanfarið yfir hlustunarskilyrðum, aðallega á Austfjörðum og Norðausturlandi. Þótt truflanir frá erlendum stöðvum séu einnig miklar á langbylgjum, er langdrægi langbylgjustöðva miklu meira en þeirra, sem nota miðbylgju. Er nú svo komið, að nærri ómögulegt er að nota hér miðbylgjur nema fyrir mjög takmarkað svæði, svo sem einstaka kaupstaði og nágrenni þeirra. Langbylgjur eru hentugri vegna mun meira langdrægis, en einasta nothæfa leiðin til þess að fá viðtökuna alveg ótruflaða af erlendum stöðvum er að nota svo nefndar últrastuttbylgjur. Á því eru þó miklir annmarkar til skjótrar úrlausnar. Langbylgjur eru mjög fáar og af þeim hefur Íslandi verið ætluð aðeins ein, ásamt öðrum stöðvum og hinum hefur verið úthlutað til annarra ríkja. Til þess að Ísland geti notað fleiri langbylgjur, þyrfti samþykki hlutaðeigandi ríkja. Þeir annmarkar eru hins vegar á því að nota últrastuttbylgjur eða svo kallaðar FM-bylgjur, að sennilega hefur varla þriðjungur hlustenda viðtæki, sem geta tekið við sendingum á FM-bylgjum.
Að undanförnu hefur verið reynt að bæta hlustunarskilyrðin í fjarlægum landshlutum í bili, sumpart með því að setja upp 15 litlar endurvarpsstöðvar á miðbylgjum og sumpart með því að leiða dagskrárefnið frá Reykjavíkurstöðinni um fjölsímakerfi landsins. Þessar litlu endurvarpsstöðvar eru að Brekku í Lóni, Starmýri í Álftafirði, Djúpavogi, Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði, Neskaupstað, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Skúlagarði í Kelduhverfi, Húsavík og Siglufirði. Þessar litlu endurvarpsstöðvar hafa bætt hlustunarskilyrðin mjög mikið á mörgum stöðum, en langdrægi þeirra er því miður mjög takmarkað, aðeins fáir km.
Eins og kunnugt er, hefur undanfarið verið unnið að gagngerðri breytingu og endurbót á útvarpsstöðinni á Vatnsendahæð. Meðan á þessari vinnu hefur staðið, hefur ekki verið unnt að útvarpa nema á miklu minni orku en áður var og gætir þessa auðvitað hjá hlustendum. En nú einmitt næstu daga mun nýi sendirinn á Vatnsendahæð verða tekinn í notkun. Mun orka útvarpsstöðvarinnar aukast við það úr 15 kw. í 100 kw. og mun það hafa mikla breytingu í för með sér, miðað við það, sem verið hefur undanfarið, á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi, en verulegar bætur af þessum sökum verða því miður ekki á Norður- og Austurlandi nema á daginn. Verður því að halda áfram að leita viðbótarráða til þess að bæta hlustunarskilyrðin enn á Norður- og Austurlandi. Hefur það mál verið til vandlegrar athugunar hjá ríkisútvarpinu og landssímanum, sem samkv. samningum hefur tekið að sér rekstur endurvarpsstöðvanna og annast alla tæknilega hlið þeirra mála.
Það, sem er sérstaklega til athugunar hjá landssímanum í þessu sambandi, er eftirfarandi:
Í fyrsta lagi að 20 kw. langbylgjustöð verði reist á Eiðum á sömu bylgju og Reykjavíkurstöðin starfar á og dagskráin leidd þangað norður um radíófjölsímann. Með því móti ætti að fást góð viðtaka á svæðinu frá Langanesi að Djúpavogi og þolanleg talavert lengra. Við þá breytingu má t.d. gera ráð fyrir, að viðtakan batnaði samsvarandi því, ef afl Eiðastöðvarinnar á miðbylgju yrði hundraðfaldað eða aukið úr 5 kw. í 500 kw. Í þessu sambandi má benda á, að um leið fengist veruleg endurbót fyrir fiskiflotann út af Austfjörðum.
Í öðru lagi að fá samþykkt til þess að nota aðra langbylgju fyrir 5 kw. stöðvar, aðra í grennd við Húsavík, en hina við Kirkjubæjarklaustur og setja þær upp, til þess að ná til millibilsins, sem verður að vera milli tveggja langbylgjustöðva, Eiða og Reykjavíkur, sem nota sameiginlega bylgju. Annars yrði að nota margar mun skammdrægari stöðvar á miðbylgjum í staðinn.
Í þriðja lagi að halda endurvarpsstöðvunum í Skjaldarvík og í Hornafirði á miðbylgjum og auka afl hinnar síðarnefndu úr 1 kw. í 5 kw. með því að flytja núverandi Eiðasendi þangað, ásamt tíðni hans.
Í fjórða lagi má reisa í Skagafirði 5 kw. endurvarpsstöð til þess að bæta hlustunarskilyrði þar.
Og í fimmta og síðasta lagi að koma smám saman upp FM últrastuttbylgjustöðvakerfi um allt landið. Víðast hvar yrði hagkvæmast að staðsetja FM-stöðvarnar á sömu stöðum og fyrirhugaðar sjónvarpsstöðvar og láta þær í mörgum tilfellum fylgjast að og spara með því mikið fé. Með því móti mætti ekki aðeins losna alveg við truflanir frá erlendum stöðvum, heldur fá einnig möguleika á tvöfaldri útvarpsdagskrá um land allt.
Þetta eru þau atriði, sem eru til sérstakrar athugunar hjá landssímanum til þess að endurbæta hlustunarskilyrði á Norður- og Austurlandi.
Á þessu ári, árinu 1965, mun verða efnt til ýmissa framkvæmda á þeim sviðum, sem ég var að nefna, þar eð ljóst er, að brýna nauðsyn ber til þess að ráða bót á hlustunarskilyrðunum á Norður- og Austurlandi. En hér er um mikið vandamál að ræða, eins og ég vona að ljóst hafi orðið af því, sem ég hef um málið sagt. Þess vegna treysti ég mér ekki til þess að segja til um það á þessari stundu, hverjar þessar ráðstafanir verði í einstökum atriðum, enda um mjög flókið tæknilegt viðfangsefni að ræða, að velja og hafna einstökum leiðum eða úrræðum. En málið hefur verið, — það endurtek ég — og er til rækilegrar athugunar hjá ríkisútvarpi og landssíma og verður það gert í málinu, sem skynsamlegast þykir.
Varðandi síðari fsp., um það, hvort ekki væri tryggt, að allir hlustendur hafi full not af útvarpinu, áður en framkvæmdir hefjast við að koma upp sjónvarpi, er það að segja, að ríkisútvarpið og landssíminn munu að sjálfsögðu leggja sérstaka áherzlu á að ráða bót á hlustunarerfiðleikum alls staðar, þar sem þeirra gætir og vænta þess, að í þann mund, sem sjónvarpið tekur til starfa, þ.e.a.s. á árinu 1966, verði að fullu búið að ráða bót á hlustunarerfiðleikunum.