10.02.1965
Sameinað þing: 26. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í D-deild Alþingistíðinda. (3253)

114. mál, hlustunarskilyrði útvarps á Norður- og Austurlandi

Fyrirspyrjandi (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Það er aðeins örstutt aths. við ræðu hv. 3. þm. Norðurl. e. Hann hélt því fram, að á fjárl. væri ekki heimild til þess að verja meira en rúmri 1 millj. til útvarpsstöðva. Því miður hef ég fjárl. ekki við höndina, en í fjárlagafrv. 1964 er einn liður til útvarpsstöðva, 8 millj. Ég sé það einnig á ríkisreikningi fyrir 1963, að þar eru áætlaðar til útvarpsstöðva rúmar 4 millj. kr., voru að vísu ekki notaðar í það sinnið nema rúmar 3 millj., en af þessu er ljóst, að ríkisútvarpið hefur til umráða í því skyni að koma upp útvarps- og endurvarpsstöðvum og bæta hlustunarskilyrði hærri upphæð en getið var hér um áðan.