03.03.1965
Sameinað þing: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í D-deild Alþingistíðinda. (3258)
128. mál, skólamál
Fyrirspyrjandi (Magnús Jónason):
Herra forseti. Við hv. 2. þm. Norðurl. e. höfum leyft okkur að flytja til menntmrh. tvær fsp. varðandi skólamál. Þegar rætt hefur verið um ráðstafanir til þess að tryggja hið svokallaða jafnvægi í byggð landsins, hafa þær umr. fyrst og fremst snúizt um efnahags- og atvinnumál. Það er hins vegar ljóst, að það eru ekki síður félagsleg vandamál og þá ekki sízt skólamálin, sem skipta höfuðmáli í þessu sambandi og eigi minna máli heldur en, atvinnuleg og efnahagsleg afkoma fólksins. Það verður æ ljósara, eftir því sem árin líða, hversu rík áherzla er á það lögð, að aðstaða hljóti að geta verið sem jöfnust fyrir unglinga til náms, hvar sem er á landinu, og við þekkjum vafalaust öll mörg dæmi þess, að fólk hefur talið sig knúið til vegna aðstöðu unglinga til náms að flytja brott frá þeim stöðum, þar sem það hefur búið og til þéttbýlisins, þar sem aðstaða til náms hefur verið betri. Þetta veldur því, að vaxandi áhugi er á því að reyna að tryggja sem bezt skilyrði unglinga, hvar sem er á landinu, til þess að njóta eðlilegs undirbúningsnáms fyrir framhaldsnám og það hlýtur að verða að leggja á það höfuðáherzlu í náinni framtíð, að unnt sé að ná þessu marki.
Fsp. sú, sem hér liggur fyrir, er í tveimur liðum: annars vegar um það, hvað ríkisstj. hafi gert til að tryggja það, að börn geti lokið skyldunámi samkv. fræðslulögum í sínu heimahéraði og í öðru lagi, hvaða ráðstafanir séu í undirbúningi til þess að tryggja það sama varðandi skyldunám?
Eins og öllum hv. þm. er kunnugt, má segja, að hið almenna nám skiptist í tvennt: Fyrst og fremst barnaskólanámið, skyldunámið, sem nær til 14–15 ára aldurs eftir atvikum. Síðan er undirbúningur undir framhaldsnám, hið svokallaða miðskólastig. Hvor tveggja þessi námsstig eru þess eðlis, að það ber hina brýnustu nauðsyn til að tryggja það, að í hverju héraði geti unglingar notið nægilegrar aðstöðu í þessu sambandi.
Á seinni árum hafa komið fram vaxandi kröfur um það að fjölga héraðsskólum og á þann hátt bæta aðstöðu unglinga í strjálbýlinu. Nú ber þess að gæta, að svokallaðir héraðsskólar eru í rauninni ekki frábrugðnir öðrum miðskólum nema að nafni til, því að þeir veita miðskólaundirbúning, þannig að það skiptir ekki öllu máli, hvort skólarnir eru nefndir héraðsskólar, miðskólar eða héraðsgagnfræðaskólar. Það, sem meginmáli skiptir, er, að skólarnir veiti þá aðstöðu, að nemendurnir geti í viðkomandi héruðum lokið sínu námi. Fyrir nokkrum árum var gerð breyting á héraðsskólalöggjöfinni, þannig að nokkrir skólar voru að fullu yfirfærðir á ríkið og ríkið skyldi greiða kostnað við þá. Þetta hefur af eðlilegum ástæðum, þó að ég skuli ekki mæla gegn þeirri fyrirgreiðslu, sem þar er veitt, að sjálfsögðu haft þau áhrif, að vaxandi kröfur hafa komið úr öðrum áttum, öðrum héruðum, að sams konar fyrirgreiðsla eða svipuð yrði veitt. Allt þetta mál og þær fjölþættu umr., sem um það hafa farið fram, gera það bráðnauðsynlegt, að mörkuð verði ákveðin stefna í þeim og okkur fyrirspyrjendum hefur þótt þess vegna eðlilegt að fara þess á leit við hæstv. menntmrh., að hann gefi hér á hinu háa Alþingi grg. um það, hver sé stefna og markmið ríkisstj, í þessum efnum og hvað sé í undirbúningi eða hafi verið gert til þess að greiða fyrir, að því nauðsynlega takmarki verði sem skjótast náð, að allir unglingar geti notið nauðsynlegs náms varðandi þetta grundvallar-undirbúningsnám, fyrst og fremst barnaskólastigið og í öðru lagi miðskólastigið.
Um hin æðri stig eða sérnámsstig er ekki fjallað í þessum fsp. Það er nokkuð annars eðlis. Þó að með því sé ekki átt við, að það sé neitt minna verk, en þessi tvö stig, er þetta þó það, sem er brennipunkturinn og áhuginn fyrst og fremst beinist að því að fá fullnægjandi lausn á. Vil ég leyfa mér að vænta, að hæstv. menntmrh. sjái sér fært að skýra frá viðhorfi ríkisstj. í þessum efnum.