31.03.1965
Sameinað þing: 36. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í D-deild Alþingistíðinda. (3296)

135. mál, sölunefnd varnarliðseigna

Fyrirspyrjandi (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. í allmörgum liðum á þskj. 285 um verzlunarstarfsemi sölunefndar setuliðseigna. Fsp. er beint til ríkisstj. sökum þess, að mér var ekki kunnugt um, undir hvaða ráðuneyti sölustarfsemi þessi kynni að heyra. Margar eru fsp. hins vegar sökum þess, hve nauðalítið almennt er vitað um sölunefnd setuliðseigna og um hið stórbrotna verzlunarfyrirtæki, sem hún rekur. Allt hennar starf hefur farið mjög leynt, hefur nánast verið óttalegur leyndardómur fyrir þjóðinni. Alls konar sögusagnir og fullyrðingar hafa verið á sveimi um þessa nefnd. M.a. var því margoft haldið fram í mín eyru, að allir stjórnmálaflokkar ættu menn í þessari n., og þó vissi ég það fyrir víst, að þetta var a.m.k. rangt að því er Alþb. snerti. Það hefur aldrei átt neinn mann í þessari n. og eftir að umr. hófust um þetta mál, lýsti Sósfl. einnig yfir því, að hann ætti ekki mann í þessari n. og hefði ekki átt það s.l. 15 ár. Þegar þetta er vitað, lítur fyllilega út fyrir, að lýðræðisflokkarnir einir sitji að sæmdinni óskiptri.

Síðan erlent setulið hreiðraði um sig hér á landi í síðara sinnið, mun nefnd manna hafa stjórnað sölu á hvers konar vörum og varningi, sem setuliðið hefur ekki hirt að flytja úr landi aftur. Sumt af þessu er vafalaust verðmætur varningur, svo sem bifreiðar, sjónvarpstæki, nýir varahlutir í hvers konar vélar, bifreiðar og flugvélar og ýmislegt fleira, en mikið mun þarna líka vera um sölu á úrgangsvarningi, rusli og skrani, hliðstæðu því dóti, sem ýmsir menn höfðu hér áður fyrr að atvinnu að hirða á öskuhaugunum í Reykjavík. Engin lög, held ég, að séu til um þessa starfsemi. Ekki er mér kunnugt um, með hvaða hætti menn eru valdir í n. þessa, sem nefnd hefur verið Sölunefnd setuliðseigna. Ekki er mér kunnugt um, hve umfangsmikil starfsemi eða fjölþætt þetta er, sem hér er um að ræða. Ekki er kunnugt um, hve miklar tekjur hafa fengizt af starfsemi n. eða hve dropsöm mjólkurkýr n. hefur reynzt sjálfum ríkissjóði. Ekki vita menn gjörla um, hvort nm. teljast launaðir embættismenn eða þeir inna störf sín af hendi sem fórnfúst þegnskyldustarf fyrir fósturjörðina, en annað hvort er auðvitað tilfellið. Þá er mér enn fremur ókunnugt um, hversu fjölmennt starfslið starfar á vegum þessarar n. við alla þætti skransölunnar, sem hún hefur með höndum. Enn minna veit ég um, hvernig verðlagningu og bókhaldi þessarar verzlunarstarfsemi er háttað né hvar starfsemin er rekin, þ.e.a.s. hvar n. hefur aðalbækistöðvar sínar. Ætla má, að bókhald vegna þessara viðskipta heyri undir ríkisendurskoðunina, en þó er fullyrt, að stundum, þ.e.a.s. á vissum tímum, hafi svo ekki verið, heldur hafi endurskoðunin farið fram einhvers staðar úti í bæ á annarra vegum, en ríkisendurskoðunarinnar. Ekki veit ég með vissu, hvort n. hefur staðið fyrir byggingarstarfsemi, en nú er mér þó tjáð, að hún sé að byggja eitt mesta stórhýsi á landinu. Hins vegar er mér ekki kunnugt um fjárlagaheimildir til slíkrar starfsemi og mundi þó engin ríkisstofnun, sem mér er kunnugt um, fá að byggja stórhýsi án sérstakrar, ákveðinnar fjárlagaheimildar til þess. En að þessu leyti er starfsramminn eitthvað rýmri að því er snertir þessa nefnd.

Ég skal nú ekki telja fleira, sem mér er ókunnugt um, um þessa n. Það hefur sem sé hvílt hula og leynd nokkur um þessa starfsemi, sem ýmsir telja þó, að sé ein umfangsmesta verzlunarstarfsemi, sem rekin sé hér á landi og muni velta tugum, ef ekki hundruðum millj. Eins og alltaf, þegar leynd og pukur er á ferðinni, hafa risið fjallháar furðusögur um þessa sölustarfsemi. og teldi ég því nauðsynlegt, að réttar upplýsingar yrðu kallaðar fram, úr því að þær hafa ekki fengizt með öðrum hætti.

Að lokum skal ég taka það fram, að mér finnst allsendis óviðurkvæmilegt, að ríkissjóður Íslands hafi tekjur af skransölu eins og þessari. Einnig tel ég óviðurkvæmilegt með öllu, að sumir af æðstu mönnum þjóðarinnar séu settir til slíkrar starfsemi, til að selja úrgangsvarning erlends setuliðs. Ég trúi því naumast, að virðingarverðar þjóðir, eins og t.d. Danir eða Þjóðverjar, settu fyrrv. forsrh. eða menntmrh. sína til slíkra starfa.

Ég hef ekki rakið spurningarnar, sem ég ber fram á þskj. 285, orðréttar, en vænti skýrra svara við spurningunum, því að nákvæma vitneskju um þjónustustarfsemi þessa, einkum viðskipta- og fjárhagshlið hennar, tel ég nauðsynlegt að fá og hefði það verið tímabært, jafnvel þótt fyrr hefði verið.