21.04.1965
Sameinað þing: 42. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í D-deild Alþingistíðinda. (3302)
170. mál, starfsfræðsla
Fyrirspyrjandi (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Við þrír þm., sem höfum leyft okkur að leggja fram á þskj. 384 fsp. til hæstv. ríkisstj. viðkomandi fyrirætlunum hins opinbera til tryggingar starfsfræðslu í landinu, spyrjum af því, að við teljum starfsfræðslu nauðsynlega og því nauðsynlegri sem fjölbreyttara verður atvinnulífið og meiri verkaskipting. Með þeirri þróun vex alltaf þörfin til þess, að ungmennum sé hjálpað í tæka tíð með upplýsingastarfsemi og áhugavakningu til að velja sér störf við hæfi, finna köllun sína, komast á rétta hillu, eins og kallað er. Jafnframt er þá þjóðfélaginu hjálpað um leið til að fá rétta menn til þeirra verka, er það þarf að láta vinna. Góður starfsfræðsluleiðtogi hefur þetta hvort tveggja í huga: starfsvalið vegna einstaklingsins og starfsvalið vegna þarfa þjóðarinnar.
Það segir sig sjálft, að rétt starfsval er þýðingarmikið í hamingjuleit einstaklinga og þjóða. Starfsfræðslan hefur líka um alllangt skeið að undanförnu verið þáttur í fræðslukerfi ýmissa menningarþjóða. Hér á landi, hefur starfsfræðslunni, enn sem komið er ekki verið ætlað það rúm sem, skyldi í skólum landsins og á því þarf að ráða bót. Hins vegar hefur þó talsvert miðað í rétta átt að undanförnu. Höfuðborgin hefur í þessum efnum verið í fararbroddi, eins og henni líka ber að vera í þeim efnum, sem margmennið veitir aðatöðu til. Hún hélt í vetur hinn 10. almenna starfsfræðsludag sinn með hátíðlegri setningu, þar sem forseti Íslands flutti ávarp, en starfsfræðsludagar eru námskeið í starfsfræðslu.
Það var mikil aðsókn ungmenna að þessum starfsfræðsludegi og geysileg sjálfboðavinna lögð fram af forstöðuliði atvinnuvega og stofnana til þess að leiðbeina og fræða. Þetta minnti mig að ýmsu leyti á hugsjónastarf ungmennafélaganna í æsku minni. Þarna var að verki driffjöður áhuga og sóknarvilja hjá margmenni. Hver hafði þrýst á fjöðrina og vakið viljann? Mér skildist ótvírætt, að það væri Ólafur Gunnarsson sálfræðingur, starfsmaður Reykjavíkurborgar.
Úti um land hafa á síðustu árum verið haldnir starfsfræðsludagar á allmörgum stöðum og verið vinsælir. Þeir voru t.d. 7 á s.l. ári á ýmsum stöðum. Núv. hæstv. landbrh. hefur sýnt málinu velvilja og fyrirgreiðsluhug. Alþ. hefur á fjárl. veitt ofur litlar fjárhæðir til starfsfræðslu, utan Reykjavíkur einkum. Þær hafa farið aðeins hækkandi, en of lítið hækkandi þó. Ólafur Gunnarsson hefur einnig stjórnað starfsfræðslunni sama sem á öllum starfsfræðsludögum utan Reykjavíkur. Þeir hefðu varla komizt á, þessir starfsfræðsludagar utan Reykjavíkur, án hans tilverknaðar. Til þess að hann gerði það, þurfti að fá leyfi borgarstjórans í Reykjavík, því að hann hefur verið starfsmaður Reykjavíkurborgar. Eitt sinn, þegar ég var að útvega slíkt leyfi hjá borgarstjóranum vegna starfsfræðsludags á Akureyri, sagði borgarstjórinn mér, að til stæði, að þessi borgarstarfsmaður yrði með samningi milli ríkisins og borgarinnar starfsmaður að 2/5 hjá ríkinu vegna starfsþjónustuforstöðunnar utan Reykjavíkur. Það þótti mér vel ráðið. Þess vegna er fram borin fyrri fsp. á þskj. 384, en hún er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Hafa ekki tekizt samningar, sem fyrirhugaðir voru milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um samvinnu við starfsfræðslu og þá hvers vegna?"
Þessir samningar virtust horfa beint við eftir þróun málanna og af því að um þann mann var að ræða, sem hafði verið aflvaki starfsfræðslustarfseminnar í landinu öllu. Nú sé ég í Morgunblaðinu í dag frétt um, að Ólafur Gunnarsson sé í þann veginn að ráða sig til starfa erlendis og flytjast af landi brott. Þykir mér þá allmjög óvænkast miðað við starfsemina að undanförnu.
Í öðru lagi og beinu framhaldi af fyrri fsp. er svo spurt:
„Hvað hefur atvmrn. gert til þess að tryggja nauðsynlegt framhald og aukningu starfsfræðslu utan Reykjavíkur?“
Í þessum efnum má alls ekki reka á reiðanum og fara sem verkast vill. Til þess að minna á það eru spurningarnar fram bornar, auk þess sem upplýsingar um þessi efni eru almennt mikilsverðar. Ég leyfi mér fyrir hönd okkar fyrirspyrjenda að vænta greiðra og góðra svara frá hæstv. ríkisstjórn.