14.12.1964
Sameinað þing: 19. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
1. mál, fjárlög 1965
Frsm. 1. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Mér er ljúft að byrja mál mitt með því að þakka hv. formanni fjvn. og öðrum, sem í n. hafa starfað, fyrir samstarfið. Undan þeirra störfum í n. höfum við ekkert að kvarta, og hefur starfið gengið þar vel eftir atvikum. Hins vegar get ég ekki lýst yfir sömu ánægju í sambandi við afgreiðslu fjárl., þar sem nú er kominn 14. des. og gert er ráð fyrir að afgreiða fjárlög, áður en þinghlé verður gert fyrir jól. Og nú, þegar frv. fer til 2. umr., eru þó veigamiklir útgjaldaliðir ótaldir þar og ekki enn séð fyrir endann á heildarútgjöldunum eða hvernig þeim verður mætt.
Hér er ógert, eins og fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl., út um það, hvernig farið verður með niðurgreiðslur, en eins og fram kom í aths. fyrir fjárlagafrv. og framsöguræðu hæstv. fjmrh. í haust, vantar þar nokkra fjárhæð til þess að mæta þeim niðurgreiðslum, sem nú eru upp teknar. Enn fremur er eftir að ákveða og fjalla um þær nýju skólabyggingar, sem hefjast eiga á næsta ári, og fleiri stórútgjaldaliðir eru eftir. Það ætti öllum að vera ljóst, að fjárlagaafgreiðsla, sem þannig er seint á ferðinni og jafnmargt ógert og hér er, er mjög hæpin, og það getur ekki endurtekið sig þing eftir þing, eins og gerzt hefur nú síðustu þing og þó fyrst og fremst núna, að þm. hafi í raun og veru engan tíma til þess að átta sig á fjárlagaafgreiðslunni og um stórmál eins og niðurgreiðslur, skólabyggingar og aðra slíka málaflokka sé fjallað á síðustu dögum þingsins fyrir jól og raunverulega enginn tími til þess að fjalla um þau. Hér verður að verða á breyting.
Fjvn. hefur, eins og fram kom í ræðu hv. formanns, starfað flesta daga síðan þingið kom saman, en hins vegar hefur henni ekki borizt það frá ríkisstj., sem nauðsyn bar til, til þess að hægt hefði verið að hraða afgreiðslunni. Og nú, þegar farið er út í 2. umr. fjárlagaafgreiðslunnar, er svo, að við a.m.k. í stjórnarandstöðunni höfum ekki séð neitt yfirlit yfir tekjur og gjöld yfirstandandi árs eða hvernig það hefur staðið til loka októbermánaðar t.d. eða annars tíma. Það er ástæða til að vekja athygli á þessu, og það er í raun og veru ekki hægt að fara út í umr. um afgreiðslu fjárlaga án þess að hafa séð það til loka októbermánaðar, hvernig tekjur og gjöld yfirstandandi árs hafa staðizt. Enda þótt svo kunni að fara nú, að fjárlög verði afgreidd fyrir jól, sem þó er ekki fullvitað, þar sem óljóst er, hvað eftir á að koma, þá verður hæstv. ríkisstj. að gera sér grein fyrir því, að það er ekki hægt ár eftir ár að ætla hv. þm. að vinna svo veigamikið verk sem fjárlagaafgreiðsluna á jafnskömmum tíma og hér er gert. Með þessu móti er í raun og veru verið að draga þingræðið í landinu niður og afnema ríkisstj. og embættismönnum það vald, sem Alþingi á að hafa í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna. Ég vil mjög minna hæstv. ríkisstj. á að láta slíkt ekki endurtaka sig í æ ríkari mæli og enn þá verr ár eftir ár, eins og nú hefur gerzt. Hér er um svo veigamikið atriði að ræða í störfum Alþingis, að hv. þm. geta ekki látið svo stórt mál liða hjá, eins og þeir taki ekki eftir því. Hér verður að verða bót á og það veruleg, ef ekki á að lenda í algeru strandi.
Um þetta ætla ég svo ekki að segja fleira að sinni, vegna þess m.a. , að við vitum ekki enn þá, hvað bíður í raun og veru 3. umr. og hversu fer um lokaafgreiðslu fjárlagafrv.
Út af sameiginlegum till. n., sem fluttar eru á sérstöku þskj. og hv. frsm. meiri hl. hefur gert grein fyrir, vil ég endurtaka það, sem hann sagði, að við fulltrúar Framsfl. í n. höfum, óbundnar hendur um fylgi við þær og einnig rétt til þess að bera fram brtt. bæði við þær og fjárlagafrv. eða fylgja þeim, sem fram kunna að koma. Meginið af þessum till., sem formaður gerði hér grein fyrir, eru fyrst og fremst leiðréttingar á áætlunum fjárlagafrv., sem ekki var hægt að komast hjá, enn fremur aðsend erindi, sem n. tók til greina. Stærstu leiðréttingarnar á þessu fjárlagafrv., eins og það er nú, eru skólamálin, en eins og fyrr hefur orðið að gera þar stórfelldar leiðréttingar á eldri áætlunum.
Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði kostnað við skólabyggingu á 5 árum og þá miðað við þá áætlun, sem upphaflega er gerð, þegar byggingin er samþ. inn á fjárl. Það hefur hins vegar komið í Ijós og í æ ríkari mæli, að þessi ákvæði hafa reynzt í raun og veru haldlítil, vegna þess að áætlanir, sem á var byggt, hafa verið fjarri lagi. Hér kemur margt til og m.a. verðhækkanirnar, en einnig það, að þær áætlanir, sem upphaflega eru teknar og samþykktar, eru allt aðrar áætlanir heldur en sýnt er, þegar byggingin er hafin. Ég veit til þess nokkur dæmi, að þannig hefur verið að þessum málum staðið og jafnvel hefur það verið svo, að þó að um endurskoðaða áætlun hafi verið að ræða, hafa verið eftir nokkra mánuði, frá því að hún var gerð, samþykkt af forráðamönnum húsameistaraskrifstofunnar tilboð, sem hafa verið mun hærri en gert er ráð fyrir í áætluninni. Það er hins vegar ljóst, að það, hve áætlanirnar standa illu, kemur ekki fram fyrr en nokkuð fer að líða á bygginguna og það fer að sýna sig, að hér er um allt aðrar tölur að ræða en í upphafi var gert ráð fyrir. Þess vegna endurtekur þetta sig ár frá ári, og um stórfelldar tölur er að ræða, eins og nú á þessu fjárlagafrv. Hér þarf að ráða bót á. Það þarf að leggja meiri vinnu í áætlanirnar, og t.d. er ekki hægt að gera áætlun um skólabyggingu þannig, að ekki sé tillit tekið til þess, að skóli getur ekki starfað nema hafa húsbúnað, og eins þarf að laga lóðir og annað í kringum slíkar stofnanir, en oft og tíðum vantar þetta algerlega í áætlun um skólabygginguna. Herða þarf eftirlitið með þessum framkvæmdum og reyna að vinna að því, að slíkar áætlanir séu betur gerðar og haldmeiri en verið hefur.
En eins og áður hefur verið lýst í sambandi við fjárlagaafgreiðslu, er ástæðan til þess, að leiðir skiljast hjá fjvn.-mönnum, þegar til afgreiðslu kemur, þó að samstarfið hafi verið eðlilega gott, sú, að annars vegar er þar ríkjandi stjórnarstefna, sem ræður fjárlagaafgreiðslunni, og svo hins vegar stefna þeirra, sem eru ekki fylgismenn stjórnarstefnunnar. Þetta fjárlagafrv. hefur sömu einkenni og fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. á undanförnum árum. Það er verðbólgan, það er eyðslan, og það er skattheimtan, sem einkenna fjárlagafrv. Öll fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. hafa verið með þessum einkennum, þó mismunandi mikið. Þessa gætir í fyrstu lítils, en hefur farið hraðvaxandi, svo að segja má með réttu, að af stað hafi verið farið með því að ganga brautina, síðan var farið að hlaupa við fót og svo hlaupa hratt og nú er farið að stökkva.
Nú ætla ég að breyta út af venju í sambandi við samanburð á fyrri árum og því fjárlagafrv., sem nú er hér á ferðinni, og ætla ekki að gera samanburð á því og niðurstöðu fjárlaga 1958. Mér hefur fundizt hæstv. fjmrh. ekki una því vel. Ég hef að sjálfsögðu enga löngun til þess að fara að gera honum að óþörfu gramt í geði. Þess vegna hef ég hugsað mér að þessu sinni að gera nú samanburð á hans eigin fjárlögum, þeim fyrstu og þeim, sem nú á að fara að afgreiða.
Fjárlagafrv. fyrir 1960 var að fjárhæð 1501 millj. kr. Fjárlagafrv., sem við erum að fjalla um í dag, er við 2. umr. 3 milljarðar 270 millj. kr. eða hefur hækkað á þessu 5 ára tímabili um 117%. En hér er því við að bæta, að ekki eru öll kurl komin til grafar, því að inn á þetta fjárlagafrv. vantar m.a. fjárveitingu til vegagerðar í landinu, sem nemur 47 millj. kr., en það var þó að öllu leyti í fjárlagafrv. 1960. Ef við bætum þeirri tölu við, er fjárlagafrv. orðið 3500 millj. kr. eða hefur hækkað um 134%. Og ef við gerum ráð fyrir, að inn á fjárlagafrv. verði tekið við lokaafgreiðslu þess það, sem vantar í niðurgreiðslur og önnur þau útgjöld, sem virðast eiga eftir að koma inn á fjárlagafrv., mun það vera orðið sennilega um 3800 millj. kr. eða hefur hækkað um 150%. Og ef við svo berum þetta fjárlagafrv. saman við fjárlagafrv., sem við vorum að fjalla um í des. s.l., við 2. umr. þá, hefur það hækkað með vegamálunum um 620 millj. kr. eða um 25%. Og hér þýðir ekki að vera að deila við dómarann, því að hér er samanburður á fjárlagafrv. núna og fjárlögum hæstv. núv. ríkisstj., þeim fyrstu, sem hér voru afgreidd. Hér þýðir ekki að tala um, að þetta eða hitt hafi vantað inn á fjárl. 1960, eins og hæstv. fjmrh. hefur notað í fyrri umr.
Hver er þá ástæðan fyrir þessum gífurlegu hækkunum? Ástæðan er ekki sú, að það hafi verið teknir stórfelldir nýir útgjaldaliðir inn á fjárlagafrv., nema sem afleiðing af stjórnarstefnunni, verðbólgunni. Ástæðan er ekkert annað en sú stjórnarstefna, sem hér var upp tekin 1960, og árangurinn speglar sig í fjárlagafrv. ár eftir ár og því betur sem lengra líður. Það er dýrtíðin og aftur dýrtíðin, eyðslan og aftur eyðslan, skattheimtan og aftur skattheimtan, sem er einkennið á þessari stjórnarstefnu og kemur fram í vaxandi mæli með hverjum nýjum fjárl.
Í framhaldi af þessu er ástæða til að fara að spyrja um árangurinn af þeirri bættu stefnu við fjárlagaafgreiðslu, sem boðuð var hér í fyrstu ræðu hæstv. fjmrh.
Eitt af því, sem þá átti að gera og ekki var hægt að koma í verk nema með nokkrum undirbúningi, var hagsýslan. Þegar hagsýslan væri búin að vinna hér sín verk, eins og hæstv. ráðh. stefndi að, og tími hefði unnizt til þess að koma því í framkvæmd, þá átti árangurinn að vera geysilegur. Til hagsýslunnar er búið að verja í árslok 1963 2.7 millj. kr., og nú skulum við heyra, hvað þeir menn, sem þar um fjalla, segja sjálfir um árangurinn af störfunum. Á bls. 280 í ríkisreikningi segir svo í svörum hagsýslunnar í sambandi við aths. ríkisendurskoðunarinnar, með leyfi hæstv. forseta, ætla ég að lesa hluta af svörunum, þegar hún gerir grein fyrir því, að af hagræðingarstörfum, sem þegar hafi borið árangur til sparnaðar, skuli nefna þetta:
„a. Sameining Áfengisverzlunar ríkisins og Tóbakseinkasölu ríkisins. Kostnaðurinn við hina sameinuðu stofnun er án efa lægri en áætla mætti að hann hefði verið nú að óbreyttu fyrirkomulagi.
b. Stofnun Gjaldheimtu Reykjavíkur. Kostnaður ríkisins af þeirri stofnun er mun minni en áætla mætti, að hann hefði verið nú af innheimtu þeirra gjalda, sem hún annast, að óbreyttu fyrirkomulagi.
c. Hagsýsla ríkisins hefur beitt sér fyrir athugun á bifreiða- og vinnuvélakosti ríkisstofnana og skynsamlegri endurnýjun hans og nýtingu.“
Þetta er nú það, sem hagsýslan segir um árangur af störfum sínum, og nú skulum við athuga þetta nokkru nánar.
Í fyrsta lagi var það sameining Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins, sem sýndi árangurinn af hagsýslugerðinni. Það er ekki í fyrsta skipti, sem þessar stofnanir hafa verið nefndar, þegar hæstv. ríkisstj. hefur verið að verja gerðir sínar í sparnaðarátt. Árið 1958 var rekstrarkostnaður þessarar stofnunar sameiginlega 10.7 millj. kr. Eru þá ekki tekin með útsvör eða framlag til gæzluvistarsjóðs, heldur beinn rekstrarkostnaður. 1960 er hann 14.2 millj., en 1965 er hann áætlaður 27.9 millj. kr. Hann hefur því hækkað um 160% frá því 1958, og hann hefur hækkað um 96% frá því 1960, sem mun vera síðasta árið, áður en sameiningin átti sér stað. Þarna er nú glansnúmerið af hagsýslugerðinni og sparnaðinum í ríkisrekstrinum, eitt af þrennu, sem hagsýslustofnunin taldi sér til ágætis. Árangurinn er samt ekki meiri en þetta, að síðan 1960 hefur rekstrarkostnaðurinn nærri tvöfaldazt.
Tollstjóraembættið kostaði 6.9 millj. 1958, en tollstjóraembættið og innheimtustofnunin er áætlað að kosti 13 millj. 1965 eða hefur hækkað um 90%. Þetta er hitt atriðið um árangurinn af hagsýslugerðinni.
Þriðja atriðið var svo það að benda forstjórum ríkisstofnana á það, að hyggilegt væri að kaupa nýja bíla, þegar bifreiðar þeirra væru orðnar gamlar og nýjar vinnuvélar væri betra að nota en gamlar. Öll þau ár, sem ég hef setið hér á hv. Alþingi, hafa forstjórar ríkisstofnana sótt fast á það að fá að endurnýja bifreiðar sínar og vinnuvélar. Það hefur oftast nær staðið á hv. Alþingi að leyfa þetta, en ekki af því, að forstjórarnir hafi ekki áttað sig á því, að betra var að nota nýtt en gamalt.
Þetta var nú árangurinn af þessum 2.7 millj. kr., sem búið var í árslok 1963 að verja til hagsýslugerðarinnar.
Ef við höldum svo áfram og kynnum okkur sparnað hæstv. ríkisstj. og þau atriði, sem hagsýslugerðin hefði átt að taka til, hef ég dregið saman úr ríkisreikningum 1958 annars vegar og 1963 hins vegar nokkra liði, sem sýna, í hverja átt stefnir og hver hagsýslan þar hefur reynzt vera. Þessir liðir, sem ég hef tekið hér saman, eru annar kostnaður ráðuneytanna, kostnaður við alþjóðaráðstefnur á vegum annarra ráðuneyta en utanrrn., ýmislegur kostnaður, ferðakostnaður, samningar, þátttaka í ráðstefnum og gestir ríkisstjórnarinnar. 1958 voru þessir liðir samtals 3.8 millj. kr., en 1963 18.1 millj. kr. Það er árangurinn af hagsýslugerðinni og sparnaðinum í ríkisrekstrinum, sem þarna kemur fram. Hækkunin er tæp 500%. Hefði nú ekki verið verkefni fyrir hagsýslugerðina að skoða þessa liði? Það hefði kannske mátt koma við einhverjum sparnaði í sambandi við þá. Hagsýslugerðin hefur samt ekki talið ástæðu til að beina verkefnum sínum þangað, og væri ástæða til, að hún gerði það hér eftir.
Nú vil ég benda á það, að þessar tölur, sem ég er hér með, eru frá árinu 1963. Hvað ætli þessar tölur séu orðnar á árinu 1964 eða verða árið 1965?
Ég vil líka minna á það, að á árinu 1958 var varið 300 þús. kr. vegna lagafrv., en á árinu 1963 1.7 millj. kr. eða 460—470% hækkun. Hagsýslugerðin hefði e.t.v. getað bent hæstv. ríkisstj. á það, að þarna mætti koma sparnaði við eða a.m.k. reyna að koma því við, að útgjaldaaukningin yrði ekki svo stórstíg sem þarna hefur reynzt.
Eitt af sparnaðarfyrirheitum hæstv. ríkisstj. var í sambandi við álagningu skatta. Þar átti að koma við miklum sparnaði með því að leggja niður nefndir, sem skiptu hundruðum. Árið 1958 var þessi kostnaður 7.4 millj., en 1963 er hann kominn upp í 18.6 kr. Hvað haldið þið, að hann sé orðinn 1964 eða verði 1965? Og hver er svo árangurinn af breytingunni, sem gerð var á skattamálunum 1960? Hafa skattar verið lækkaðir vegna framkvæmdarinnar? Síður en svo. Hafa skattamálin verið fyrr á ferðinni og þar af leiðandi betur af hendi leyst? Það var svo á yfirstandandi ári og mun vera svo, að það eru ekki allir sýslumenn landsins búnir að þinga, vegna þess að skattstofurnar skiluðu svo seint frá sér skattskránum, að óframkvæmanlegt var að þinga fyrr en eftir veturnætur. Og þeir sýslumenn, sem hafa komið því við að halda manntalsþing, munu flestir hafa farið út með skattheimtuna, áður en kærur voru úrskurðaðar. A.m.k. þar sem ég þekki bezt til, var það svo, að sveitarstjórnir gátu ekki lagt á fjallskil á eðlilegum tíma, vegna þess að skattskrárnar og skattframtölin voru ekki komin aftur frá skattstjóranum. Þannig hefur þetta farið allt á eina lund. Framkvæmdin hefur reynzt seinvirkari en nokkru sinni fyrr, skattaeftirlitið minna en áður og kostnaðurinn margfalt meiri. Þannig hafa reynzt í framkvæmd stóru fyrirheitin um sparnað og hagsýslugerðina. Okkur vantar allan árangurinn, en við sitjum eftir með margfaldan kostnað.
Ýmis ný embætti og nýjar stofnanir hafa orðið til í tíð hæstv. núv. ríkisstj. og mun ég ekki fara að telja það allt upp. En ég vil þó minna á, að embætti eins og saksóknaraembættið, Efnahagsstofnunin og Almannavarnir munu kosta a.m.k. 6 millj. kr. á næsta ári. Og í þessu fjárlagafrv., sem hér er á ferðinni, er nýtt embætti, sem kom, að ég held, flestum á óvart. Það er búið að stofna prestsembætti í Kaupmannahöfn. Ég vil ekki draga úr því, að það sé reynt að sjá fyrir andlegri velferð manna, en hér held ég að sé um algera ofrausn að ræða, auk þess sem mig brestur kunnugleika og skilning til að átta mig á því, að fyrst þjóðkirkjan er farin að stofna nýtt prestsembætti, skuli það gert með þessum hætti. Hér erum við að breyta lögum til að stofna ný prestsembætti, og við erum að leyfa söfnuðunum að velja sér prestana sjálfir. En söfnuðurinn þarna úti í Kaupmannahöfn fær ekki slíkt, heldur er honum sendur prestur af náð hæstv. ríkisstj. Og það getur ekki farið hjá því, að þegar svona einstakur atburður gerist, læðist inn hjá manni sú skoðun, að það séu annarleg sjónarmið, sem ráði framkvæmdinni, en ekki nauðsyn kristinnar kirkju. Hér er vitanlega um algert hneyksli að ræða, að fara að stofna prestsembætti úti í Kaupmannahöfn, og þangað flytjum við nú 1/2 millj. kr. Mér þykir gaman að reyna á það, þegar við komum hér í till. okkar með 1/2 millj. kr. til nauðsynjamála eins og rannsókna í þágu atvinnuveganna og slíks til að reyna þá á fylgi hv. þm., þó að menn hiki ekki við að láta þetta gott heita. Hæstv. ríkisstj. virðist mér vera að verða nokkuð örlát á ýmsa þá liði, sem a.m.k. voru ekki áður taldir til sparnaðar.
Þá er það með skattana. Þar hafa ýmsir hlutir gerzt á hinum síðari árum, og ég minnist þess, að þegar hæstv. fjmrh. flutti sína fyrstu fjárlagaræðu, komst hann svo að orði í lok ræðunnar, með leyfi hæstv. forseta:
„Frv. um efnahagsvandamál og frv. til fjárl. eru tvær greinar á sama stofni. Fleiri greinar munu vaxa á þeim meiði á næstu vikum: frv. til breytinga á almannatryggingalögum, frv. um afnám tekjuskatts af almennum launatekjum og frv. um lagfæringu útsvars og fjöldamargt fleira.“
Mundu nú skattborgarar í landinu vera sammála hæstv. ráðh. um, að það sé búið að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum? Ég held, að umr., sem urðu um skattamálin á s.l. sumri, muni ekki staðfesta þá skoðun. Og ég held, að það muni vera skoðun þess fólks, sem fer með launaumslög sín heim, þar sem kvittanir eru aðaluppistaðan, það telji ekki, að lagfæring á tekjuskatts- og útsvarslögum hafi verið því hagkvæm. Hæstv. ríkisstjórn hefur verið allstórstig í sambandi við skattamálin, og kemur þár til greina fleira en fram kemur í fjárlagafrv. En eins og bent er á í nál. okkar, hafa skattar og tollar hækkað um yfir 300% frá 1958. Ég er ekki viss um, að ég hafi tölu á öllum þeim sköttum, sem hæstv. ríkisstj. hefur komið á framfæri hin síðári ár. En ég hef verið að gera mér nokkra grein fyrir því, hvaða skattar það eru, sem hún hefur verulega hækkað, og hvaða skattar það eru, sem hún hefur nýjum komið á. Í því sambandi langar mig að minna á nokkur atriði, til þess að það falli ekki algerlega í gleymsku og dá, hvað hæstv. ríkisstj. hefur verið fundvís á það að koma með nýja skatta og hækka þá, sem fyrir voru. Stórstígust er hún í sambandi við söluskatt á vörum og þjónustu, en þar tók hún upp nýjan skatt, sem gefur nú hundruð millj. kr. Innflutningsgjaldið, sem áður féll í útflutningssjóð, heimti hún til sín. Benzínskatturinn hefur verið margfaldaður á tímabili núv. ríkisstj., þungaskattur á bifreiðum stórhækkaður og gúmmígjaldið, ríkisábyrgðasjóðsgjald á lagt, útflutningsgjald af sjávarafurðum stórhækkað, bændaskattur á lagður, launaskattur á lagður, skemmtanaskattur stórhækkaður, iðnlánasjóðsgjald lagt á, og stefnt er nú að því að leggja skatt á sement, timbur og steypustyrktarjárn. Og svo er hæstv. ríkisstj. búin að vera stórstíg í skattaálagningu, að hæstv. fjmrh., sem á margan hátt er hugkvæmur og snjall maður, fór til Norðurlanda nú fyrir stuttu til að leita uppi nafn á nýjum skatti og sagði frá því í blöðunum, þegar heim kom, að þeir þar ættu nafn á nýjum skatti, sem sennilega væri nothæft. Og í staðinn fyrir að afnema tekjuskatt af launatekjum ætlar hæstv. ríkisstj. sér að fá 325 millj. kr. af tekjuskatti og eignarskatti á næsta ári og segir frá því, að hún gæti fengið 500 millj., ef hún héldi við það, sem hún hefur haft áður. En þrátt fyrir þessa skattheimtu alla er það svo, að ef á að framkvæma eitthvað, sem heitir veruleg framkvæmd á vegum ríkissjóðs, þá er tekið lán, lán á lán ofan, ýmist erlend framkvæmdalán eða innlend lán, og öll eru þessi lán að sjálfsögðu til mikilla bóta fyrir fólkið í landinu og tekin vegna þess og fyrir það, þó að áður fyrr væru það ekki taldir stórir hlutir, þó að framkvæmdir væru gerðar fyrir ríkisfé, með þeim sköttum og tollum, sem þá voru af fólkinu teknir, og ekki verið að býsnast yfir því, hve mikið væri að gert í þá átt. Utan við fjárl. og allt það hafa svo ríkisstofnanirnar ýmsar stórhækkað svo tekjur sinar, að þær eru farnar að hafa tekjuáætlanir eins og ríkisfjárlögin voru fyrir 10—15 árum. T.d. er áætlun Pósts og síma nú 345 millj. kr. Það er eins og fjárl. voru á árunum eftir 1950. Þetta hefur tekizt með því að hækka þessa þjónustu svo gífurlega, að það er búið að margfalda tekjustofninn á nokkurra ára tímabili. Og í ræðu hv. formanns fjvn. var frá því sagt, að sjúkrahúsin mundu hækka daggjöld sin nú úr 300 í 400 kr. á dag, en áður er búið að hækka þessi daggjöld verulega í tíð hæstv. ríkisstj. Allir vita, að ríkisrafveiturnar eru búnar að marghækka sína taxta, og sömuleiðis er sömu sögu að segja um Skipaútgerð ríkisins og önnur þjónustufyrirtæki á vegum ríkissjóðs. Allt er þetta á eina bókina lært, og allt styður það þá gífurlegu verðbólgu, sem hér hefur að nokkru verið lýst og lýsir sér í öllu fjárlagafrv. Stefna hæstv. ríkisstj., verðbólgustefnan, hefur því borið verulegan árangur.
Þessar almennu hugleiðingar mun ég að mestu láta nægja í sambandi við þetta fjárlagafrv., vil þó geta þess, að við höfum ekki nú frekar en á síðasta þingi gert tilraun til þess að flytja hér till. til þess að lækka útgjöldin. Við reyndum það nokkuð á fyrstu árum hæstv. ríkisstj. og rökstuddum þær till. og meira að segja tókum upp till., sem stjórnarflokkarnir höfðu lýst sig fylgjandi, eins og sameining sendiráðanna á Norðurlöndum. Ég vitna þar til ummæla hæstv. núv. utanrrh., þegar hann fór með fjármálin 1959. Allar slíkar tillögur hafa verið strádrepnar af stjórnarliðinu, og þess vegna gerum við ekki tilraun í þessa átt nú, enda er nú svo komið, að nú þyrfti að gera veigamiklar breytingar á sjálfu fjárlagafrv., ef ætti að nást þar nokkur árangur. Við höfum líka látið ýmsa málaflokka eftir liggja, þó að okkur sé ljóst, að það þurfi að hækka fjárveitingu til þeirra, ef það á að vera nokkuð sönn mynd af fjárþörfinni. Í því sambandi vil ég nefna Skipaútgerð ríkisins, og þarf ekki að víkja mikið að því, þar sem hæstv. formaður fjvn. gerði grein fyrir því máli. En við viljum, fulltrúar Framsfl., eins og við gerum í nál. okkar, undirstrika það, að hjá því verður ekki komizt að taka rekstur þess fyrirtækis til athugunar, þar sem skipastóllinn er orðinn mjög gamall og úreltur og þess vegna ekki að kröfum tímans. Hér þarf að fara að vinna að því og það skjótlega að taka ákveðna stefnu og leysa það mál, ef ekki á illa að fara. Með því að láta það eiga sig, eins og nú er gert, og eyða milljónum og aftur milljónum í dýrar flokkunaraðgerðir á gömlum skipum, þá verður stórkostleg eyðsla, sem hægt væri að komast hjá, ef sú nauðsynlega breyting væri gerð að endurnýja flotann og selja gömlu skipin. Við höfum ekki heldur gert till. um að hækka framlagið til aflatryggingasjóðs, þó að fiskimálastjóri hafi gert grein fyrir því í fjvn., að hjá því yrði ekki komizt. Treystum við þar á, að hæstv. ríkisstj. muni gera breytingu í svo augljósu máli fyrir 3. umr.
Ég mun nú þessu næst snúa mér að þeim brtt., sem við flytjum á sérstöku þskj. Mér er það fullkomlega ljóst, að það svar, sem við fáum við flutningi þeirra till., mun verða þetta vanalega: Ykkur finnst fjárl. ekki nógu há. — Því er til að svara, að fjárlög undanfarin ár hafa alltaf skilað ríkissjóði 300—400 millj. kr. hærri tekjum en gert hefur verið ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Og við höfum engan áhuga á því að láta hæstv. ríkisstj. fá svo stórar fjárhæðir til þess að ráðstafa. Við vitum að vísu ekki, hvernig útkoman kann að verða á yfirstandandi ári, þar sem við höfum engin gögn fengið í hendur þar að lútandi. En gera má ráð fyrir, að í slíku góðæri sem þessu verði niðurstaðan á sama veg. Þess vegna endurtökum við það, að við kærum okkur ekki um það, að hæstv. ríkisstj. fái ein að ráða um svo stórar fjárhæðir. Þess vegna bendum við á málaflokka, sem nauðsyn ber til að sinna og láta hafa af þeirri fjárhæð, sem er umfram þær tekjur, sem ríkið gerir ráð fyrir að það fái. Við viljum líka að fenginni reynslu benda á í þessum till. okkar, hvaða málaflokkar það eru, sem við teljum mesta og brýnasta nauðsyn bera til að styðja að. Við fjárlagaafgreiðslu á s.l. ári gerðum við till. um það, að af greiðsluafgangi ríkissjóðs yrði lagt til hafna og sjúkrahúsa til þess að greiða áfallnar skuldir ríkissjóðs við þessar stofnanir. Að sjálfsögðu var það fellt hér á hv. Alþingi af meiri hl. En það, sem gerðist, var, að það var greitt á árinu. Sjúkrahúsin og hafnirnar fengu fjárhæðina, og það skipti aðalmáli. Í þessu fjárlagafrv. biður hæstv. ríkisstj. Alþingi að gefa sér heimild til þess að framkvæma það, sem hún felldi í fyrra, af því að það kom frá Framsfl. Og við vonumst til, að eitthvað af þeim till., sem við berum fram núna, fái þó slíka afgreiðslu, og þá er málunum að nokkru borgið. Hitt vil ég svo segja, að ef þær till., sem við berum hér fram, þurfa allar að liggja úti, þá er fullkomin þörf á því að taka til gagngerðrar endurskoðunar fjárlög ríkisins, því að þar er greiðsla til margra málefnaflokka og það stórar greiðslur, sem síður skyldi heldur en þeirra, sem við berum hér fram. Vitna ég til þess, sem ég sagði hér áðan, og fleira mætti þar tína til.
Ein af þeim till., sem við berum fram hér á sérstöku þskj., er, að til vegamála verði fjárveiting upp á 107 millj. kr. í staðinn fyrir 47. Skal ég nú gera nokkra grein fyrir þessu.
Þegar við framsóknarmenn fluttum frv, til l. um breyt. á l. um vega- og brúarsjóð fyrir nokkrum árum, gerðum við þá ráð fyrir því í því frv., að vegagerðin fengi tekjur af benzínskatti og þungaskatti af bifreiðum til nýbyggingar þjóðvega eingöngu. Með þeirri stefnu, sem tekin var við afgreiðslu á vegamálum á s.l. ári, var þannig að staðið, að vegasjóðurinn á að standa undir öllum framkvæmdum í vegagerð. Ef þannig verður á haldið, að vegagerðin fær ekki nema þær 47 millj. kr., sem hún fékk í fyrra til sinna framkvæmda, lendir í sjálfheldu með þessi mál fyrr en varir. Vegaviðhaldið hlýtur að taka til sín stóraukna fjárhæð frá ári til árs, og ég er sannfærður um, að þar muni engar 5 millj. nægja á milli ára. Aukningin á umferðinni í landinu er það mikil, og bílarnir verða æ þyngri og því viðhald veganna meira, og það nægja engar 5 millj. til þess að koma viðhaldinu í eðlilegt horf. Ég vil líka benda á það, að ef við ætlum að gera eitthvert stórátak um varanlega vegi, þýða þar engin vettlingatök. Máli mínu til sönnunar vil ég svo bæta því við, að það er engin ástæða til að vera hér með nein vettlingatök. Tekjur ríkíssjóðs af umferðinni eru ekki orðið neinn smápeningur. Ég hef um það skýrslu, hverjar tekjur ríkissjóðs af umferðinni urðu árið 1963. Það voru 557.2 millj. kr. Það hafa innan við 200 millj. farið í vegagerðina. Á s.l. ári bættum við með nýjum sköttum um 100 millj. kr. Það þýðir, að á árinu 1965 verður þetta 700750 millj. kr. Er ástæða til, að vegagerðin sætti sig svo við 260 millj. kr.? Ég vil minna hv. þm. á það, að allt fram til ársins 1958 hafði ríkissjóður ekki tekjur af umferðinni í landinu og fram til 1953 eða 1954 var alltaf meiri fjárhæð varið til vegamála heldur en ríkissjóður hafði í tekjur af umferðinni aftur, þ.e. sérskatta og tolltekjur. Það, sem hér er á ferðinni, er ekki annað en það, að við gerum till. um, að vegagerðin haldi leyfisgjaldinu af bifreiðum og bifhjólum til vegamála, en ríkissjóður hafi þó eftir allar tolltekjur af bifreiðum og varahlutum til þeirra. Það er ekki hægt í landi, þar sem er jafnóvegað og jafnmikil þörf á góðum samgöngum eins og okkar, að ætlast til þess, að neinn annar aðili en vegagerðin sjálf hafi sérskattana af bifreiðunum. Þetta er sú skýlausa krafa, sem við verðum að vinna að, og á því verður ekkert hik, fyrr en við höfum náð henni. Það mun ekki breyta neinu um það, þótt hv. Alþingi beri ekki gæfu til að samþykkja till. okkar nú. Hér er mál, sem verður leyst fyrr eða seinna, enda er hér um algera lágmarkskröfu að ræða í sambandi við þessi mál.
Í sambandi við till. okkar um hafnarmálin vil ég fara nokkrum orðum.
Eins og fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl., vannst nokkuð á s.l. ári um hluta ríkisins gagnvart höfnunum í landinu. Samkv. því yfirliti, sem vitamálastjóri gaf okkur í fjvn. um framkvæmdir í hafnarmálum, voru þær á yfirstandandi ári, þegar landshafnirnar eru teknar með, um 134 millj. kr., en um tæpar 100 millj. kr., þegar landshöfnunum er sleppt. Ríkissjóðshluti í þessum framkvæmdum, þ.e. fyrir utan landshafnirnar, var 39 millj. kr., og vangreidd fyrri framlög ríkisins voru 39 millj. tæpar. Ríkið greiddi hins vegar á því ári það mikið vegna 20 millj. af greiðsluafganginum, að þessi fjárhæð er nú komin niður í 22.6 millj. kr. Hitt er augljóst, að verði ekki meiri fjárveiting til hafnarmálanna á næsta ári en gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. nú, mun sækja aftur í sama horfið um það, að ríkissjóður eykur skuldir sínar við hafnargerðirnar. Með þeirri 10 millj. kr. viðbótartill., sem við gerum á sérstökum þskj., væri hægt að gera ráð fyrir, að nokkuð yrði haldið í horfinu, en þó tæplega það, en ekkert þá greitt niður af eldri skuldum raunverulega.
Við höfum einnig í till. okkar gert nokkra breytingu til hækkunar á 14. gr. fjárlagafrv. Það var sótt um það að fá 2 1/2 millj. kr. til viðhalds á stúdentagörðunum, og leidd voru rök að því, að nauðsyn bæri til að koma þessu í framkvæmd á næsta ári. Undir þetta var ekki tekið í fjvn., en við gerum till, um að taka þessa fjárhæð að mestu leyti. Vitað er, að að því er stefnt að hefja nýja framkvæmd í málum stúdentagarðanna, sem er að koma upp görðum með smáíbúðum, svo að hjón gætu búið þar. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að nú á síðari árum giftist fólk yngra en áður var, og það þýðir, að margir námsmenn eru í háskólanámi, sem giftir eru. Fyrir þá væri ómetanlegt, ef af þessari framkvæmd yrði. Þess vegna ber brýna nauðsyn til, að við nú drögum ekki viðhald á þeim eignum, sem eru í þessu, áður en hafinn er nýr áfangi, sem verður að gera fljótlega. Einnig höfum við tekið undir fjárveitingu vegna félagsheimilis stúdenta, en til þeirrar framkvæmdar var veitt á s.l. ári, og er þörf á að auka fjárveitinguna frá því, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. Þeir aðilar, sem eru í stjórn þessara mála, hafa gert rökstuddar till. um fjárveitingu til þessara verka, og við höfum tekið undir þær.
Þá höfum við lagt til, að nokkuð verði bætt úr fjárþörf íþróttasjóðs. Þetta mál kemur ekki hér inn á hv. Alþingi í fyrsta skipti. Það er vitað, að um langt árabil hefur íþróttasjóður verið fjárvana, og það er svo komið, að í raun og veru er íþróttasjóður ekki orðinn fær um að sinna því hlutverki, sem honum er ætlað. Gleggst dæmi um það, að svo er, er það, að ætíð er sótt á það meira og meira frá ári til árs að fá ýmis íþróttamannvirki, eins og sundlaugar, tekin inn sem skólaframkvæmdir. Þetta er af þeirri einföldu ástæðu, að þeim, sem fyrir þessum framkvæmdum standa, er orðið ljóst, að þeir geta ekki reiknað með fjárframlagi íþróttasjóðs, heldur verði þeir að reyna að ná sér í fjármuni annars staðar frá, og hafa þá gert það gegnum skólamálin. Farið var fram á 10 millj. kr. fjárveitingu til íþróttasjóðs að þessu sinni og þá miðað við að greiða niður eldri skuldir á næstu 5 árum. Við gerum till. um það, að fjárveitingin verði 8 millj. og til vara 6 millj. Okkur er ljóst, að till. stjórnar íþróttasjóðs var eðlileg og raunverulega sjálfsögð, en ef það mætti verða til samkomulags, er ekki gengið lengra í þessa átt en gert er í till. okkar.
Við 16. gr. fjárlagafrv. flytjum við nokkrar brtt., lítils háttar brtt. vegna rekstrar Búnaðarfélags Íslands, en hinar stærri eru aftur, að við höfum enn á ný leitað eftir vilja þingsins fyrir því að framkvæma lög um ræktunarsambönd og styrkja kaup ræktunarsambanda á stórvirkum jarðræktarvélum. Till. okkar er aðeins miðuð við að greiða það, sem nú er á fallið, svo að styrkurinn yrði árið eftir, ef hún næði fram að ganga. Við höfum ekki gengið lengra, þótt eftir því væri leitað, líka í von um, að hægt væri að ná samkomulagi um að koma þessari litlu fjárhæð í höfn.
Á s.l. sumri var um það samið í sambandi við afgreiðslu á verðlagsmálum landbúnaðarins, að 5 millj. kr. fjárveiting yrði til aðstoðar við þá bændur, sem verst eru settir fjárhagslega og mikið átak þurfa að gera til þess að koma búskap sínum inn á tæknisvið. Við athugun á því máli hefur komið í ljós, að lítt framkvæmanlegt er að skipta svo lítilli fjárhæð, hér er um það stórt verkefni að ræða. Meira fjármagn þarf til, ef raunverulega á að koma að notum. Þess vegna gerum við till. um að hækka þessa fjárveitingu nokkuð verulega, til þess að hún nái þeim tilgangi, sem að var stefnt. Ekki teljum við, að það eigi neitt að spilla því samkomulagi, sem gert var, þó að Alþingi styðji það með meiri fjárhæð.
Þá höfum við tekið upp þá till., sem þeir, sem standa fyrir fiskileit, síldarflutningum og umskipunum, fóru fram á að yrði flutt í sambandi við þessi mál. Við höfum því gert till. um að hækka þennan lið um 4 millj. kr. Við teljum, að það hafi sannazt, að aðstoð við þessa starfsemi á fullkomlega rétt á sér. Við höfum á undanförnum þingum flutt till. til þess að reyna að fá þennan lið hækkaðan, en það hefur hins vegar ekki náð fram að ganga, en hefur þó borið þann árangur, að fjárveiting hefur hækkað ár frá ári, meðfram fyrir áhrif af flutningi þessara till.
Í till. okkar í sambandi við 16. gr. höfum við tekið upp þá fjárveitingu, sem raforkumálastjóri fór fram á í sambandi við jarðhitasjóð. Eitt af þeim verðmætum, sem fólgin eru í náttúru okkar lands, er jarðhitinn. Mikill og vaxandi áhugi er fyrir notkun hans og mikill áhugi fyrir að leita eftir jarðhita, láta rannsaka, hvar hann muni vera, og annað, er máli skiptir í sambandi við jarðhitann. Raforkumálastjórnin fór fram á það að fá fjárveitingu sjóðsins hækkaða nokkuð verulega, og höfum við tekið hana upp, að hún fari upp í 10 millj. kr. á ári.
Þá gerum við till. um, að aukið verði fé raforkusjóðs. Fjárveiting til raforkusjóðs hefur staðið í stað síðan 1959, en þá var hún lækkuð í sparnaðarskyni um 750 þús. kr., og hefur hæstv. ríkisstj. haldið þeirri sparnaðarráðstöfun. Við höfum hér á hv. Alþingi flutt till, til þál. um að hraða framkvæmd áætlunarinnar og dreifingu rafmagnsins. Því er borið við, að erfitt sé að koma því í verk núna vegna þess, að fé vanti til þess, og till, okkar er fram borin til þess að styðja að því með fjárveitingu, að framkvæmdum verði hraðað. Það er Ijóst, að hér er það mál, sem fólkið þráir einna mest, enda ber nauðsyn til þess, og það er svo með ýmsar stofnanir, sem er nú verið að setja á fót, eins og skóla, að það er lítt framkvæmanlegt að taka slíkar stofnanir í notkun, nema þær fái rafmagn. Og það að geta flýtt raforku til þeirra um 1—2 ár getur kostað þessar stofnanir stórar fjárhæðir og sparað ríkinu verulega. Við gerum einnig till. um að hækka nokkra liði til atvinnudeildar háskólans, og förum við þar eftir till., sem koma frá deildarstjórum og framkvæmdastjóra rannsóknaráðsins. Eins og venjulega gerði þessi stofnun vel grein fyrir fjárþörf sinni, bæði því, sem hún óskaði sér, og því, sem hún taldi sig nauðsynlega þurfa til þess að halda eðlilegri starfsemi. Og þessar till. okkar eru miðaðar við það, sem talið var að brýna nauðsyn bæri til.
Við förum hér fram á að hækka framlag til iðnaðardeildarinnar vegna hagnýtrar jarðfræði um 400 þús. kr. Hér er um smáupphæð að ræða, en hins vegar telja forsvarsmenn þessarar stofnunar, að það geti skipt þá miklu máli, hvort þessi litla upphæð verður veitt eða ekki. Ungur maður vinnur nú að þessu verki, sem talinn er efnilegur til þeirra starfa og sækir mjög fast á að fá þessa fjárveitingu, svo að hann geti komið nokkuð áleiðis þeim hugðarefnum, sem hann stefnir að því að leysa í þessari fræðigrein.
Þá er nú verið að stofna sérstaka byggingadeild, og mun verða að taka við störfum þar sem deildarstjóri maður, sem áður starfaði hjá iðnaðardeildinni að byggingarefnarannsóknum. Eins og kunnugt er, erum við mjög skammt á veg komnir með byggingarefnarannsóknir. Hins vegar byggjum við mikið og byggjum dýrt og höfum af því mikinn kostnað. Ekki skal ég spá í eyðurnar um það, hverju slík starfsemi gæti skilað okkur aftur í sparnaði í sambandi við byggingarframkvæmdir, en því verður ekki heldur svarað, nema við leggjum fram fjármuni, til þess að hægt sé að hefja byggingarannsóknir. Og tillaga okkar er um 200 þús. krónur til sjálfstæðra byggingarannsókna. Hér er hálfur kostnaður eða ekki það á við prestinn úti í Kaupmannahöfn, og ég hygg, að fénu muni betur varið þarna.
Ég treysti því fastlega, að hv. meiri hl. sjái sér nú fært að samþykkja þessar litlu fjárhæðir, þó að það væri ekki tekið upp í fjvn. En hér er stórmál á ferðinni, sem við megum ekki sýna sinnuleysi.
Búnaðardeildin hefur mjög sótt á að fá að ráða til sín starfsmenn í ákveðin verk og gert grein fyrir þeim málum og rökstutt þau mjög vel. Hins vegar töldum við það ekki okkar að ákveða um fjölgun starfsmanna, en gerum hins vegar till. um að auka fjárveitingu í annan kostnað, þannig að deildinni væri þá kleift að ráða til sín lausráðna menn og hefði fjárveitingu, þegar hún fengi samþykkt að fjölga starfsmönnum, eins og brýna nauðsyn ber til.
Við höfum og sem síðustu till. í sambandi við atvinnudeildina lagt til að greiða 500 þús. í sameiginlegan kostnað, og það er vegna viðgerðar á húsi deildarinnar hér við Hringbraut. Á s.l. ári var þessi viðgerð hafin og veitt í það ein millj. kr., en nú liggur fyrir kostnaður við þessa viðgerð, sem mun reynast 1 1/2 millj. kr. Ekki hefur deildin möguleika til þess að taka af rekstrarfé sínu til þess að greiða þessi 500 þús., og engin leið er önnur fær eða sæmileg en að veita þessi 500 þús. eins og þessa einu millj. kr., sem veitt var í fyrra, sem gerð var, þegar í raun og veru var komið að því að loka deildinni vegna húsakynnanna.
Og að síðustu leggjum við til, að tekin verði upp 500 þús. kr. fjárveiting til rannsóknaráðs ríkisins til þess að koma við tæknilegri upplýsingaþjónustu. Hér er nýtt mál á ferðinni, sem á eftir að ná fram að ganga, því fyrr því betra, og við treystum því, að það verði á þessu þingi, sem jákvæð afgreiðsla fæst á þessari litlu fjárveitingu.
Í sambandi við 17. gr. fjárlagafrv. gerum við ráð fyrir því að hækka fjárveitingu til atvinnubótasjóðs úr 10 millj. í 25 millj. kr. Ekki þarf að tala um það langt mál, hve fjárþörf sjóðsins er mikil, því að á hverju ári hefur það verið svo, að sjóðsstjórnin hefur fengið heimild hæstv. ríkisstj. til þess að mega ráðstafa meira fé en sjóðurinn hefur haft yfir að ráða, og nú á yfirstandandi hausti hefur hæstv. ríkisstj. veitt til sjóðsins nokkrar fjárhæðir vegna brýnna verkefna, sem ekki var hægt að komast hjá að leysa. Við teljum eðlilegra, að fjárveiting sé við það miðuð, að sjóðurinn geti leyst sæmilega af hendi þau verkefni, sem honum eru ætluð, og það sé í alla staði betra en fá til þess fyrirheit ríkisstj. hverju sinni eða fá sérstaka fjárveitingu úr hendi hæstv. ríkisstj. í hvert skipti, sem eitthvað það kemur til, sem talið er nauðsynlegt að sjóðurinn verði að sinna. Eins og fjárveitingin er nú, er sjóðurinn í raun og veru ekki starfhæfur, og hér er ekki um annað að ræða en gera till. um að gera hann það.
Við 20. gr. fjárlagafrv. gerum við nokkrar brtt., og er það fyrst, að við leggjum til að hækka fjárveitingu til jarðeignadeildar ríkisins í 1 millj kr. Er þá fjárveitingin í samræmi við þá till., sem deildarstjóri jarðeignadeildarinnar gerði um fjárveitingu. Virðist henni svo í hóf stillt, að ekki sé hægt fram hjá henni að ganga, því að vitað er, að sjóðurinn hefur ekki getað sinnt þeim verkefnum, sem hann átti að sinna, nema að mjög takmörkuðu leyti. Ég hygg, þó að þessi fjárveiting verði veitt, þá verði tæplega hægt að sinna verkefnum sjóðsins og deildarinnar, svo að sæmilegt sé.
Þá höfum við lagt til, að fjárveiting til nýrra flugvalla verði hækkuð um 10 millj. kr. og einnig verði hækkað til sjúkraflugvallanna um 500 þús. Á síðari árum hefur flugið verið meira og meira tekið í okkar þjónustu, og krefst það að sjálfsögðu góðra flugvalla, og mikil verkefni bíða þar og hefur aldrei verið hægt að sinna þeim sem skyldi og verður ekki í þetta sinn, þó að þessi fjárveiting verði veitt.
Á undanförnum þingum höfum við flutt till. um fjárveitingu til fiskirannsóknaskips, og það er nú ljóst orðið, að allir eru búnir að átta sig á nauðsyn þeirrar framkvæmdar. Hins vegar skortir fjármagn til þess að hrinda verkinu svo fram sem þörf er á, og leggjum við til, að það verði aukið, með till. okkar á 20. gr.
Íþróttakennaraskóli hefur starfað á Laugarvatni um langt árabil. Þessi skóli hefur leyst mikil verkefni af höndum, og honum er það að þakka, að við höfum getað haldið uppi eðlilegri og nauðsynlegri íþróttakennslu í landinu. Ekki sízt hefur okkur verið það mikil nauðsyn, þegar svona mikil breyting hefur orðið á búsetu manna frá dreifbýli til þéttbýlis sem raun ber vitni um. Ég held, að það sé allra manna mál, að þessi stofnun hafi starfað vel, en við slæm skilyrði. Húsakynni skólans eru í raun og veru ein íbúð handa skólastjóra og svo skúr, sem byggður var yfir verkamenn, meðan verið var að byggja það hús. Upp var tekin fjárveiting til þessa skóla og honum leyft að hefja byggingu á yfirstandandi ári. Nú er aðeins gert ráð fyrir því í fjárlagafrv. að veita 700 þús. kr. til þessarar framkvæmdar. Það liggur fyrir í gögnum fjvn., að það er með öllu óhugsandi, að framkvæmdin geti á nokkurn hátt haldið áfram með svo litla fjárhæð. Formaður skólanefndar gerði grein fyrir því, og skólastjóri hefur einnig gert það, að til þess að hægt verði að gera þann áfanga, sem nú er stefnt að því að byggja, fokheldan á næsta ári, þarf 3 millj. kr. fjárveitingu. Till. okkar er miðuð við það, að hægt sé að koma þessari framkvæmd áleiðis. Hér er um mikið og gott verkefni að ræða, sem við getum ekki látið líða hjá lengur að leysa.
Hér uppi á Keldnaholti hefur atvinnudeild háskólans eða sá hluti hennar, sem tilheyrir landbúnaði, hafið framkvæmd á byggingu fyrir starfsemi sína. Þessi framkvæmd var hafin með þeim hætti, að samkv. heimild í fjárl. frá 1963 og ákvörðun hæstv. landbrh. og atvinnudeildar háskólans voru fjármunir þeir, sem Áburðareinkasalan átti, þegar hún var tengd áburðarverksmiðjunni, þeir voru notaðir til þess að hefja þessa byggingu, en það voru eitthvað yfir 6 millj. kr. Átvinnuleysistryggingasjóður lánaði einnig í þessa framkvæmd, og einhverjir sjóðir munu hafa komið til, til þess að styðja að henni. En þetta samanlagt mun ekki hafa v erið nema í kringum 10 millj. kr., en framkvæmdin er hins vegar nú komin upp á einar 13 millj. Sótt hefur verið á það af forsvarsmönnum byggingarinnar, að . ríkisstj. legði þessum málum lið, og gert hefur verið ráð fyrir því samkv. þeim samtökum, að það yrði gert. Hins vegar hefur ekkert komið fram enn þá úr hendi hæstv, ríkisstj., sem bendir til þess, að hæstv. ríkisstj. ætli að vinna að málinu áfram, þó að það sé með öllu óhugsandi, þar sem búið er að verja 13 millj. kr. í þessa byggingu. Hér skiptír það ekki máli, þó að skiptar skoðanir hafi verið um það, hvort byggja ætti yfir þessa stofnun þarna eða einhvers staðar annars staðar. Ákvörðun um það var tekin, þegar byggingin var hafin og fjármunum varið til verksins. auk þess sem landbúnaðardeildin hefur ásamt atvinnudeild háskólans starfað hér í tengslum að nokkru við háskólann, eins og lög þau, sem um þetta mæla, gerðu ráð fyrir. Það, sem till. okkar er miðuð við, er fyrst og fremst að greiða það, sem áfallið er, og hægt verði að halda áfram við bygginguna með nokkrum hraða á næsta ári. Það er í alla staði óforsvaranlegt að láta bygginguna, sem kostar 12—13 millj. kr., standa óhreyfða. Við höfum ekki efni á því að fara þannig með fjármuni, auk þess sem vitað er, að þörf deildarinnar fyrir húsnæði er mikil.
Um ekkert er nú meira rætt manna á meðal og í blöðum almennt heldur en auka þurfi menntunina, tæknina og vísindin í þágu atvinnuveganna. Við flytjum við þessa umr. nokkrar till. og þ. á m. þessa, sem stefna í þessa átt. Okkur er það ljóst, að slíkum hlutum eins og þessum, að taka vísindin og þekkinguna í þágu atvinnuveganna, verður ekki komið í framkvæmd nema að því verði unnið. Það er ekki nóg að tala um þetta eða skrifa. Það verður að gera þær nauðsynlegu ráðstafanir, til þess að hægt sé að hagnýta sér og vinna að því, að svo verði gert. Þess vegna höfum við flutt þessa till. og aðrar þær till. í sambandi við Háskóla Íslands og atvinnudeild háskólans.
Eins og ég gat um fyrr í ræðu minni, hafa tekjur ríkissjóðs undanfarin ár farið stórkostlega fram úr áætlun. Samkv. upplýsingum hæstv. fjmrh. og samkv. ríkisreikningnum fóru þær 325 millj. kr. fram úr áætlun ársins 1963. Af þessu fór 121 millj. kr. í gjöld, sem fóru fram úr áætlun, en nokkuð er þó eftir enn þá óráðstafað. Munu það vera um 84 millj. kr., sem er óráðstafeð af greiðsluafgangi ársins 1963, og svo er nokkuð af greiðsluafgangi ársins 1962.
Við leggjum nú til, að af greiðsluafgangi fyrri ára verði ríkisstj. heimilt að greiða til félagsheimilasjóðs 20 millj. kr. Félagsheimilasjóður hefur sömu sögu að segja og íþróttasjóðurinn, að það eru lög, sem mæla fyrir um, hvað þessi sjóður skuli styrkja félagsheimilin mikið. En framkvæmdin hefur orðið sú, að stuðningurinn hefur sama og enginn orðið. Þetta hefur sífellt verið að versna, og þeir, sem fóru út í að byggja félagsheimilin í þeirri góðu trú, að þeir gætu ráðið við sitt verkefni, ef þeir sæju fyrir fjármunum umfram það, sem ríkissjóður ætti að leggja til, standa nú uppi í vandræðum, kannske fyrst og fremst vegna þess, að framlagið frá félagsheimilasjóði skortir. Þess vegna höfum við lagt til, að úr þessu yrði bætt með því að heimila hæstv. ríkisstj. að verja 20 millj. kr. af greiðsluafganginum til þess að greiða félagsheimilasjóði.
Þá leggjum við einnig til, að inn á heimildagreinina verði teknar 100 millj. kr. til ábyrgðar fyrir síldarverksmiðjur og í sambandi við síldarflutninga og umskipun.
Enn fremur tökum við hér upp nýjan lið, sem er kaup eða smiði á tveimur síldarleitarskipum. Við leggjum hér til, að hæstv. ríkisstj. sé heimilt að taka lán þar að lútandi allt að 30 millj. kr. til þess að láta smíða eða kaupa þessi skip. Mjög er það augljóst öllum, sem fylgzt hafa með síldveiðum hin síðari ár, hve síldarleitin á mikinn þátt í þeim góða afla, sem verið hefur á síldarvertíðunum. Við höfum líka verið svo lánsamir, að við eigum þar hinum færustu mönnum á að skipa, og það á að vera okkar metnaður og við eigum að leggja á það kapp, að að þeim og þessari starfsemi sé þannig búið með skipakost, að fullur árangur náist.
Þá leggjum við einnig til, að tekið verði hér upp nýtt mál, sem er að verja allt að 20 millj. kr. af greiðsluafgangi undanfarinna ára til þess að styrkja nýjan síldariðnað og til markaðsleitar. Umr. um slík mál hafa oft farið hér fram á hv. Alþingi, og þá hefur það komið fram, að hvort tveggja þyrfti til, fjármagn til þess að koma á stofn auknum síldariðnaði og svo einnig, að óhugsandi væri að koma slíkri vöru inn á markaðinn nema verja nokkrum fjármunum til þess að kynna vöruna og leita eftir mörkuðum. Þessi till. er því flutt til þess að koma þessu nauðsynjamáli í framkvæmd.
Herra forseti. Ég mun nú fara að stytta mál mitt, enda hef ég í ræðu minni hér að framan gert grein fyrir í fyrsta lagi vinnubrögðum í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna og aðstöðu til þess að leysa fjárlagaafgreiðsluna sæmilega af hendi, bent á þær veilur, sem sífellt fara vaxandi, í þá átt, að þingið tekur sér ekki eðlilegan vinnutíma eða skapar sér ekki eðlileg vinnuskilyrði til þess að leysa þetta mál sómasamlega af hendi, sem því ber þó brýn nauðsyn til. Í öðru lagi hef ég gert grein fyrir afstöðu okkar til till. n. í heild. Og í þriðja lagi hef ég lýst stefnu hæstv. ríkisstj. og áhrifum hennar á fjármál þjóðarinnar og fjárlagafrv. því, sem hér er til meðferðar, og sýnt fram á það, að verðbólga, eyðsla og óhóflegar skattaálögur eru árangurinn af stefnu hæstv. ríkisstj., og það speglar sig greinilega í þessu fjárlagafrv. Ég hef í fjórða lagi gert grein fyrir till. þeim, sem við flytjum á sérstöku þskj.
Að lokum vil ég svo segja það, að eins og nú er í pottinn búið, er í raun og veru erfitt að standa að fjárlagaafgreiðslu, þar sem meginið af tekjumöguleikunum liggur í raun og veru ekki fyrir nema að takmörkuðu leyti, þar sem fjvn, hefur ekki haft aðgang að yfirliti um tekjur og gjöld ríkissjóðs, eins og þau voru orðin, þegar síðasta mánaðaruppgjör fór fram. Þetta gerir það að verkum, að í raun og veru er ekki hægt til fullnustu að átta sig á stöðu fjármálanna við fjárlagaafgreiðsluna. Hitt má á benda, að ekki verður hægt með rökum að segja, að það sé reisn yfir fjárlagaafgreiðslunni nú við 2. umr. Fjárlagafrv. er með greiðsluhalla, eins og fram hefur verið tekið, og í raun og veru ekki sýnt fram á, hvernig á að brúa það bil, sem vantar, til þess að þeir útgjaldaliðir séu taldir með, sem þar vantar, og mæta því, sem búið er að samþykkja. Hins vegar er okkur ljóst, að í slíku góðæri eins og nú með þeirri álögustefnu, sem hæstv. ríkisstj. fylgir, muni henni takast að brúa þetta bil. En okkur er einnig ljóst, að hún stefnir að því að reyna sem fyrr að hafa fjárlagaafgreiðsluna þannig, að hún hafi verulega fjármuni til þess að ráðskast með utan við ákvörðun Alþingis. Þess vegna mun hún nú á síðustu stundu koma með þá tekjuáætlun, sem hún reiknar með að gefi í greiðsluafgang nokkur hundruð millj. kr., eins og verið hefur. Og meðan góðærið er slíkt sem nú er, má gera ráð fyrir, að hæstv. ríkisstj. takist þetta, þó að hins vegar verði ekki sagt, að henni takist það af því, að forsjálni sé fyrir að fara í störfum hennar í sambandi við ríkisreksturinn.