14.12.1964
Sameinað þing: 19. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

1. mál, fjárlög 1965

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Við þessa 2. umr. fjárl. hef ég leyft mér á þskj. 163 að leggja fram nokkrar brtt. við fram komnar till. fjvn. Þessar till. minar snerta allar hafnarframkvæmdir og lendingarbætur, og þeir 4 staðir, sem ég legg til að fái nokkuð hækkaða fjárveitingu til hafnarframkvæmda, eru allir í Norðurlandskjördæmi vestra. Norðurl.v. er sá landshluti, sem að allra dómi býr við lakast atvinnuástand hér á landi, eins og glöggt kom fram í bráðabirgðaálíti atvinnumálanefndar, sem kjörin var á síðasta þingi til að fjalla um þau mál. Ég sé ekki ástæðu til þess að hefja umr. um atvinnuástandið í þessu kjördæmi. Það er margrætt mál af minni hálfu hér á Alþingi. En ég kemst hins vegar ekki hjá því að benda á, að einmitt þessi landshluti, sem nú á í slíkum erfiðleikum, fær það nú í ofanálag, að fjárveitingar til hafnarframkvæmda eru skornar stórkostlega niður. Í fyrra voru fjárveitingar til hafnarmannvirkja og lendingarbóta samtals um 17 1/2 millj., og þar af runnu í þetta kjördæmi um 1400 þús. kr. Nú hafa fjárveitingarnar í heild verið hækkaðar um 2 millj., en á sama tíma skreppur framlagið í þennan landshluta niður í 1 millj. Það er að sjálfsögðu erfitt að gera samanburð á kjördæmum í þessum efnum. Það eru mismunandi margar hafnir í kjördæmunum og mismunandi stórar. Þörfin er misjafnlega mikil o.s.frv. Það er vissulega ástæðulaust af einstökum þm. kjördæmanna að fara að bítast um þessa 10 millj. kr. fjárveitingu. En hitt er þó staðreynd, sem við hljótum að horfast í augu við, að fjárveitingar til hafnarframkvæmda í þetta kjördæmi eru alveg sérstaklega smávaxnar, ef miðað er við önnur kjördæmi. Það væri mjög freistandi að bera þennan landshluta saman við aðra og sjá, hve munurinn er gífurlegur, en ég ætla nú ekki að gera það, því að eins og ég sagði, tölurnar eru villandi og samanburðurinn ekki að öllu leyti sanngjarn. En hitt er þó ekki óeðlilegt að mínu áliti, að reynt sé að bera saman framlögin seinasta ár við það, sem nú á að verða, og þá kemur strax í ljós, að það er alveg furðulegur niðurskurður á fjárveitingum einmitt í þennan landshluta, þar sem atvinnuástandið nú er svo bágborið, á sama tíma og heildarupphæðin vex töluvert.

Ég vil þá nefna þessa fjóra staði, sem ég hef gert till. um.

Fyrst er þá að nefna stærsta staðinn, þ.e.a.s. Siglufjörð. Hann fékk á seinustu fjárl. 600 þús. kr. Nú á að skera Siglufjarðarbæ niður um 200 þús., þ.e.a.s. niður í 400. Ég hef aðeins flutt till. um það, að Siglufjörður haldi því, sem hann hafði á seinasta ári, og fái 600 þús. kr. í þetta sinn einnig. Bærinn hefur vissulega mikla þörf fyrir það að fá þetta fé, sérstaklega varðandi uppbyggingu svonefndrar Innrihafnar, og þó að 600 þús. kr. væru að sjálfsögðu allt of lítil fjárupphæð, þá væri það allmiklu skárra en láta skera hana niður í 400. Ég endurtek sem sagt, að ég legg aðeins til, að Siglufjörður fái það sama og hann fékk í fyrra, en verði ekki skorinn niður um um það bil 1/3. Og ég tel, að þetta hljóti að kallast heldur hógvær till. og ekki farið fram á mikið.

Þá er að nefna Sauðárkrók. Hann fékk seinast 450 þús. kr. Nú á hann að fá 100 þús., skorið niður um 350 þús. Ég hef einungis flutt till. um það, enda þótt þörfin sé mikil á þessum stað, að hann haldi því sama og hann fékk í fyrra og verði ekki skorinn niður um þessi 350 þús., enda getur enginn neitað því, að þetta er allverulegur niðurskurður. Á Sauðárkróki eru ýmis bráðnauðsynleg verkefni að vinna að, sem ég hirði ekki að rekja hér, og bærinn hefur vissulega þörf fyrir að fá þetta, þótt það verði ekki nema 450 þús.

Þá er að nefna Skagaströnd, þriðja staðinn. Hann fékk í fyrra 250 þús. kr. á fjárl., en í þetta sinn á Skagaströnd ekki að fá grænan eyri, og þetta er einn af örfáum stöðum á öllu landinu, sem ekki fær eina einustu krónu til hafnarframkvæmda, er gersamlega skorinn niður í ekki neitt. Ég held, að það sé alls ekki til of mikils mælzt, að Skagaströnd fái það sama og í fyrra, og þó að ég viti, að 250 þús. kr. dugi að vísu ekki mikið, þá held ég, að ég geti fullyrt í samræmi við upplýsingar, sem ég hef fengið frá Skagaströnd, að þar eru fjöldamörg smærri verkefni að vinna að og mikil þörf fyrir fjárveitingu. Það bætist ofan á með Skagaströnd, eins og reyndar hina staðina, sem ég hef nefnt, að þeir eiga allir inni verulegar fjárhæðir hjá ríkinu fyrir verk, sem þegar hafa verið unnin, og ríkið skuldar þessum stöðum. Það er vissulega ástæðulaust að láta mannvirki þau, sem hafa verið byggð á Skagaströnd, grotna niður. Þar að auki held ég, að vinna við hafnarmannvirki þar væri tiltölulega skynsamleg og hagsýn atvinnubótavinna, en þar ríkir nú hið mesta neyðarástand í atvinnubótamálum, eins og alþjóð mun kunnugt.

Ég hef nefnt hérna þrjá staði, sem samtals fengu í fyrra 1350 þús., en fjvn. gerir nú ráð fyrir, að þessir staðir verði skornir niður um talsvert meira en helming, þ.e.a.s. alveg niður í 500 þús., — ég endurtek: úr 1350 þús. og niður í 500 þús. Ég legg sem sagt til, að þessir staðir fái það sama og þeir fengu í fyrra. Ég verð að segja, að það eru heldur kaldar kveðjur frá Alþingi, ef þeir staðir, sem eiga núna í tímabundnum erfiðleikum í atvinnumálum, og það meira að segja næstum einu staðirnir á landinu, þar sem menn ganga atvinnulausir, — ef einmitt þessir staðir eru skornir svo miskunnarlaust niður, á meðan heildarfjárveitingin er hækkuð. Ég hef oft heyrt talað um það af hálfu ríkisstj., að stjórnarandstöðuþm. séu að flytja till., sem séu ekki annað en gaspur og yfirboð, en ég held, að ég geti leyft mér að segja, að þessi till. mín og krafa sé hvorki yfirboð né óraunhæf óskhyggja, heldur fyrst og fremst sanngjörn og sjálfsögð krafa, að þessir staðir fái það sama og þeir fengu í fyrra. Og ég trúi ekki öðru en hv. alþm. styðji þessa till.

Fjórði staðurinn er svo aftur á móti Hofsós. Ég get leyft mér að fullyrða, að óvíða á landinu er annað eins ástand í hafnarmálum og á Hofsósi. Höfnin þar hefur verið algerlega vanrækt, og Hofsós hefur ekki fengið neina peninga í höfnina þar um árabil. Höfnin er full af leir og óhreinindum og mjög erfitt að athafna sig þar með stærri báta. Það kemur glöggt fram í álíti n. þeirrar, sem ég gat um áðan og skipuð var til að fjalla um atvinnuástand víða um landið, að meginástæðan til þess, hvernig komið er fyrir Hofsósi, er einmitt sú, hve aðstæður við höfnina eru slæmar. Þar er mjög erfitt að gera út stærri báta, og ein aðaltill. hjá þessari ágætu n. er einmitt sú, að litið verði á hafnarmál Hofsósbúa af einhverjum skilningi.

Í fyrra, eins og reyndar mörg önnur undanfarin ár, fékk Hofsós ekki eina einustu krónu, og þá flutti ég till. um 400 þús. kr. fjárveitinga. Ég rökstuddi hana í talsverðu máli, man ég var, og las þá m.a. upp bréf frá oddvita staðarins, þar sem hann lýsir þessu hörmungarástandi. Ég sé því ekki ástæðu til að fara um þetta mál fleiri orðum. (Forseti: Mætti ég biðja hv. ræðumann að gera aðeins hlé á ræðu sinni, meðan leitað er afbrigða fyrir brtt.? ) Það er sjálfsagt. — [Frh.]