21.12.1964
Sameinað þing: 21. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

1. mál, fjárlög 1965

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil fyrst lýsa því yfir í sambandi við yfirlýsingu hæstv. menntmrh., sem hann flutti varðandi brtt. fjvn. um aðstoð við amtsbókasafnið á Akureyri vegna eftirlátins bókasafns Davíðs Stefánssonar, að ég tel þá yfirlýsingu alveg fullnægjandi frá sjónarmiði Akureyringa, og ég tel þess vegna þá till.; sem hv. 5. þm. Norðurl. e. og fleiri flytja á þskj. 208, óþarfa, eftir að þessi yfirlýsing hefur verið gefin.

Annars var það till. mín og hv. 5. landsk. þm., sem ég vildi hér ræða um nokkrum orðum. Till. er á þskj. 208, er 12. till. á því þskj. En í 50. brtt. hv. fjvn. á þskj. 201, sem varðar heimildagr. fjárl., er í d-lið till. ákveðið að heimila ríkisstj. að ábyrgjast lán til Síldarog fiskimjölsverksmiðjunnar h/f hér í Reykjavík óákveðna upphæð, allt að 80% af kostnaðarverði, vegna kaupa og breytinga á síldarflutningaskipi, sem umrætt fyrirtæki ætlar sér að kaupa. Ég vil sízt hafa á móti þessari till., þó að í hlut eigi mjög auðugt fyrirtæki hér í Reykjavík og þó að ég telji, að margt hefði mælt með því, að í slíkar framkvæmdir hefði verið ráðizt af fleiri eða helzt mörgum aðilum í ýmsum landshlutum og þannig hefði fengizt meiri árangur, sérstaklega að því leyti, að nýting síldarflutningaskipa og tækja í sambandi við þau hefði orðið betri, ef þannig hefði verið staðið að máli, en ég tel ekki ástæðu til þess nú að deila um það. Málið er þarft og vafalaust rétt stefnt með því, að keypt sé stórt tankskip, eins og þetta fyrirtæki ætlar sér að gera. Aðalþáttur þessa máls, þ.e.a.s. síldarflutninga, snýr að því að tryggja nýtingu þeirrar miklu fjárfestingar, sem við höfum sett í síldarverksmiðjur og nú er orðin það mikil, að miðað við veiðimagn á undanförnum árum gætu verksmiðjurnar, ef heildaraflamagninu væri jafnað niður á þær, afkastað því öllu á um það bil einum mánuði. Annar þáttur þessa máls snýr svo að veiðimöguleikum síldveiðiflotans, afkastagetu hans og einnig rekstrarmöguleikum miðlungsstórra og minni skipa. Þriðji og ekki veigaminnsti þáttur málsins snýr svo að atvinnuöryggi verkafólks í síldarbæjunum, sem er mjög mikið komið undir því, að síldariðnaðurinn geti verið árviss atvinnugrein, og eins og ég sagði áðan, snýr einnig einn þátturinn að því, að unnt sé að spara að einhverju leyti í frambúðarfjárfestingu í síldariðnaðinum með betri nýtingu þeirrar, sem þegar er fyrir hendi, og halda þannig uppi hærra hráefnisverði fyrir útveginn og fyrir síldveiðisjómenn. Ég held, að þeir séu nú að verða fleiri og fleiri, sem telja, að unnt sé að nálgast öll þessi mikilvægu markmið með nýrri tækni og hagkvæmum skipakosti til flutninga, á síld af miðunum eða frá sérstökum umhleðslustöðvum og til fjarlægra verksmiðja, þegar svo ber undir.

Með brtt. fjvn., sem ég minntist á, er opnaður möguleiki til mikillar aðstoðar við eitt fyrirtæki hér í Reykjavík til þess að tryggja rekstur þess, á meðan síldveiði er von einhvers staðar í kringum strendur landsins. Og með e-lið sömu brtt. er einnig gert ráð fyrir ábyrgðarheimild fyrir framkvæmdum við síldarverksmiðjur og framkvæmdum í sambandi við síldarflutninga. En sú heimild er þó ekki rýmri en svo, að miðað við þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru í byggingu nýrra síldarverksmiðja, stækkana og endurbóta á þeim, sem fyrir eru, er allsendis óvíst, að nokkuð verði afgangs til hjálpar síldarverksmiðjunum á Norðurlandi í sambandi við síldarflutninga. En það er einmitt á Norðurlandi, sem skórinn kreppir harðast að í þessum efnum. Mér virðist og okkur flm. þessarar till. báðum, að ríkar ástæður séu til þess, að einmitt þar sé sérstaklega hlaupið undir bagga með ábyrgðarheimild á þann hátt, sem við leggjum til.

Um þýðingu síldarflutninga almennt hef ég og hv. 5. landsk. þm. flutt sérstaka þáltill., og ég hafði vonað, að unnt yrði að ræóa og afgreiða þá till. fyrir það þinghlé hv. Alþingis, sem nú er að hefjast. Það hefur hins vegar ekki getað orðið og aðstaða er því ekki nú til þess að ræða þetta stórmál svo rækilega sem ástæða hefði verið til, enda mun ég geyma það til síns tíma, en læt mér nægja nú að minna aðeins á þær mikilvægu ástæður, sem liggja til þess, að Norðlendingar hljóta sérstaklega að leggja áherzlu á þetta mál. Við munum það sjálfsagt allir jafnvel, hvernig ástatt var s.l. sumar, þegar miklu meira magn barst til Austfjarðahafna en nokkrir möguleikar voru til að vinna þar af síld, bæði vegna afkastatakmarka verksmiðjanna og einnig skorts á mannafla, en á sama tíma stóðu flestar verksmiðjur á Norðurlandi með tiltölulega lítil verkefni, miðað við afkastagetu sína, og nægan mannafla, verksmiðjukost, sem er nú orðinn það mikill, að hann getur unníð milli 50 og 60 þús. mál á sólarhring, en sumarverksmiðjurnar fengu enga eða því nær enga síld. Og auk þess eru á þessu svæði 40 söltunarstöðvar, sem voru svo að segja verkefnalausar á þessari miklu síldarvertíð síðustu og voru flestar reknar með geigvænlegu tapi. Afleiðingarnar af þessu hafa svo orðið atvinnuskortur og fjárhagslegir erfiðleikar fyrir síldariðnaðinn í Norðurlandi yfirleitt. Það eina, sem hefði getað bjargað rekstri síldarvinnslunnar, ég vil segja bæði verksmiðjanna og síldarsöltunarstöðvanna á s.l. sumri og þá um leið atvinnulífinu í síldarbæjunum án stórfelldrar nýrrar fjárfestingar í nýjum framkvæmdum, voru miklir síldarflutningar, en þeir hefðu um leið stórkostlega aukið heildarafla síldveiðiflotans, sem ýmist var í beztu aflahrotunum stöðvaður langtímum saman eða hann varð að eyða dýrmætum tíma frá veiðum í flutninga á eigin afla, sem oft getur tekið, miðað við veiðisvæði s.l. sumar, 2—3 sólarhringa fyrir hvern farm. Þeir flutningar, sem annars fóru fram á s.l. sumri, björguðu að vísu nokkru, en þeir voru allt of litlir og gerðir af vanefnum hvað skipakostinn snerti og útbúnað einnig.

Nú um nokkurra ára skeið hefur verið starfandi ofurlítill vísir að samstarfi einkaverksmiðja á Norðurlandi, sem hafa tekið erlend flutningaskip, að vísu óhentug, á leigu. En þessi skip hafa verið of lítil og flutningageta þeirra of lítil, til þess að flutningarnir hafi reynzt verulega hagstæðir. Ég hygg, að nú sé hafinn nokkur undirbúningur að því að efla þessa starfsemi og jafnvei að leita um hana viðtækara samstarfs en áður hefur verið, þó að enn þá sé ekki komið neitt fast form á ólíkan félagsskap. En ég tel þó vafalaust, að það geti orðið úr framkvæmdum. En á hitt er að lita, að eftir langvarandi erfiðleikatímabil þessarar atvinnugreinar á Norðurlandi verður ekki komizt hjá verulegri aðstoð frá hinu opinbera með einhverjum hætti, og ábyrgð ríkisins er í þeim efnum óefað sú lausnin, sem er a.m.k. ríkissjóði léttbærust, ætti að vera áhættulaus með öllu, en gæti orðið sú driffjöður, sem bæði örvaði og tryggði nauðsynlegar framkvæmdir. Ég tel vafamál, að hið opinbera geti án beinna fjárútláta orðið Norðlendingum á annan hátt að betra liði í atvinnuerfiðleikum þeirra, og mjög víða gæti slík aðstoð, sem ekki þyrfti að veita með beinum fjárframlögum, verið mjög mikilvæg og jafnvel fullnægt þeirri atvinnuþörf, sem fyrir hendi er.

Ég stytti nú mál mitt og vísa um frekari rökstuðning til grg., sem fylgir þeirri þáltill., sem við flm. þessarar till. höfum flutt fyrr á þinginu. Ég ítreka þó og bendi á það aftur, að samþykkt þessarar till. varðar ekki niðurstöðu fjárl. og hefur ekki útgjöld í för með sér, en er samt mikilvæg, bæði frá þjóðfélagslegu sjónarmiði og fyrir hagsmuni okkar Norðlendinga. Ég vil þess vegna vona og því fremur sem málið er allt eftir sem áður á valdi hæstv. ríkisstj., að hæstv. ríkisstj. og hennar stuðningsflokkar styðji þessa till. og tryggi henni samþykki.