21.12.1964
Sameinað þing: 21. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
1. mál, fjárlög 1965
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það er fyrst út af brtt. fjvn. um að ábyrgjast allt að 90 millj. til að koma upp síldarverksmiðjum og fleiri framkvæmdum í sambandi við síldarvinnsluna. Ég vil taka það fram fyrir hönd okkar Austfjarðaþm., sem flytjum hér brtt., og raunar allra um það atriði, að við erum að vinna að því að reyna að fá ríkisábyrgðir fyrir verksmiðjubyggingar á Djúpavogi, Stöðvarfirði og Eskifirði. Á Djúpavogi og Stöðvarfirði er engin síldarvinnsla, en mikil söltun, sem væntanlega hlýtur að falla niður, ef ekki tekst að vinna þar síld, og því verður að koma upp verksmiðjum, jafnvel þótt litlar séu. Á Eskifirði eru síldarverksmiðjuafköst ekki meiri en svo, að þau duga ekki einu sinni til að greiða fyrir þeirri miklu söltun, sem nú er orðin þar á staðnum. Hér er því á öllum þessum stöðum um mjög miklar nauðsynjaframkvæmdir að ræða. En við flytjum ekki brtt. hér um að ætla sérstakar heimildir, ábyrgðarheimildir, vegna þessara verksmiðja, vegna þess að við vitum, að það fæst ekki fram að binda ábyrgðarheimildirnar við ákveðna staði. Við viljum því mega treysta því, að þessar verksmiðjur verði fyrir valinu, þegar hæstv. ríkisstj. ákveður, hvernig hún notar þá heimild, sem felst í þessum 90 millj. kr., viljum fastlega vænta þess. En jafnframt vil ég lýsa því yfir fyrir okkar hönd allra, að komi það í ljós, að ríkisstj. þyrfti á hærri ábyrgðarheimild að halda til þess að geta orðið við óskum okkar um þessar þrjár verksmiðjur, munum við allir beita okkur fyrir því með hæstv. ríkisstj., að ábyrgðarheimildin verði aukin, þegar þar að kæmi. Má byggja á þessari yfirlýsingu við athugun á þessum málum, ef fjárhæðin skyldi reynast of lág, þegar hæstv. ríkisstj. fer að taka endanlegar ákvarðanir um þessi mál.
Enn fremur vil ég lýsa því yfir, að við fylgjum brtt., sem er á öðru þskj., frá Birni Jónssyni og Ragnari Arnalds, um að samþykkja sérstaka ábyrgðarheimild til skipakaupa vegna nauðsynlegra flutninga norður í land, og mundi þetta gera rýmra um að veita úrlausnir vegna verksmiðjubygginga.
Þá vil ég láta í ljós ánægju mína yfir þeirri yfirlýsingu, sem hér kom fram hjá hæstv. landbrh. eða samgmrh. um, að ríkisstj. mundi beita sér fyrir því að fá heimildir til að taka lán til vegagerða. Ég skildi þá yfirlýsingu þannig, að þar mundu Austfirðir og Vestfirðir áreiðanlega koma með, en þetta yrði ekki gert í sambandi við fjárl., eins og við höfðum stungið upp á, heldur yrðu þá væntanlega sett um lántökuna sérstök lög, um leið og vegáætlunin yrði samþykkt. Ég læt í ljós ánægju mína yfir þessari yfirlýsingu, og í því trausti, að Austurland komi með í vetur, þegar gengið verður frá vegamálunum, og samþykkt verði rífleg lánsheimild vegna vegagerða á Austurlandi, lýsi ég yfir fyrir hönd okkar, sem að þessari till. stöndum, að hún er tekin til baka, en brtt. er um að heimila allt að 20 millj. kr. lántöku vegna vegagerðar á Austurlandi.
Loks er ég hér með skriflega brtt., sem ég mun afhenda hæstv. forseta. Hún er frá okkur 4 þm. að austan, mér og Halldóri Ásgrímssyni, Páli Þorsteinssyni og Lúðvík Jósefssyni, og fjallar um að hækka fjárveitingar til þriggja fyrirhleðslna í ám, sem hv. fjvn. hefur gert till. um. En þannig er ástatt í því efni, fyrst í Norðurdalsá í Breiðdal, að fyrirhleðslan, sem þarf að gera þar, kostar 1/2 millj., en vegamálastjóri leggur til, að veitt verði í fyrsta áfanga 150 þús., og er það till. okkar, að svo verði gert. Brtt. fjallar um það. En hv. fjvn. leggur til, að í þetta verði veittar 50 þús. kr., og er þetta mjög illa farið og horfir mjög illa um framkvæmd málsins, ef ekki verður veitt meira. Í Hofsá í Álftafirði þarf að vinna fyrir 150 þús. kr. í einum áfanga, en hv. fjvn. veitir aðeins 40 þús. kr., þannig að það yrði á fjórða ár verið að safna í þennan eina áfanga, og er ég hræddur um, að illa yrði komið á þessum slóðum, ef ætti að bíða þann tíma eftir framkvæmdum. Því leggjum við til, að í þessa fyrirhleðslu verði veittar 150 þús. kr., eins og vegamálastjóri stingur upp á. Og loks leggjum við til, að til fyrirhleðslu við Norðfjarðará verði veittar 50 þús. kr. í stað 35, sem hv. fjvn. leggur til. Þetta er brtt. við brtt. fjvn. á þskj. 201, svo sem nánar er tilgreint í till., sem ég leyfi mér hér með að afhenda hæstv. forseta.