13.11.1964
Efri deild: 15. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

58. mál, innlent lán

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég vil þakka meiri hl. fjhn., sem er skipaður 6 nm. af 7, fyrir góða afgreiðslu á þessu frv. Ég vil að mestu vísa til þess, sem hv. frsm. meiri hl. sagði í sinni ýtarlegu ræðu, og til þess, sem ég sagði um málið við 1. umr. En ástæðan til þess, að ég stend upp, að öðru leyti en því að þakka meiri hl. n., er, að tvö eða þrjú atriði tel ég þurfa að ræða, sem fram komu í ræðu hv. frsm. minni hl.

Hann komst svo að orði, að þessu fé ætti að verulegu leyti að verja til framkvæmdaáætlunarinnar, en ríkisstj. héldi framkvæmdaáætluninni leyndri fyrir Alþingi. Þetta er ekki rétt. Ég vil í fyrsta lagi minna á það, að í aprílmánuði 1963 lagði ríkisstj. fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun fyrir árin 1963—1966. Hæstv. þáv. forsrh. fylgdi framkvæmdaáætluninni úr hlaði með ýtarlegri ræðu, og þessari grg., sem var prentuð, var útbýtt meðal þm. Um leið var einnig gerð grein sérstaklega fyrir áætlun um árið 1963, nokkru meira sundurliðað en hin árin. En sem sagt, framkvæmdaáætlunin fyrir þessi 4 ár hefur legið fyrir Alþingi, og er engu leyndu haldið. Ef hv. þm. á við það, að því sé haldið leyndu, til hvaða framkvæmda eigi að verja þessu fé, sem ætlað er að afla með lánsútboðinu, þá er það ekki heldur rétt, því að bæði við 1. umr. málsins og á fundi fjhn., þar sem hv. þm. á sæti og var viðstaddur, skýrði ég það ýtarlega, til hvaða framkvæmda þetta fé ætti að ganga.

Hv. þm. komst svo að orði, að hér hlyti að vera um hreint hallærisástand að ræða hjá ríkisstj., fyrst þyrfti að fara á fjörurnar um heimild til slíks lánsútboðs. Þetta hljómar nokkuð undarlega í sölum Alþingis, að heyra einn alþm. kalla það hallærisástand, þótt framkvæmdir hins opinbera séu að einhverju leyti unnar fyrir lánsfé. Þetta væntanlega lán á m.a. að ganga til raforkuframkvæmda, til hafnarframkvæmda, og ég held, að um langan aldur, vafalaust áratugi eða kannske alla stund, hafi t.d. þessar framkvæmdir verið unnar sumpart fyrir framlög af opinberri hálfu og sumpart fyrir lánsfé, svo að það er einhver undarlegur misskilningur að tala um hallærisástand, ef nú þurfi eitthvert lánsfé til slíkra framkvæmda, þar sem það hefur alltaf tíðkazt. Í framkvæmdaáætluninni fyrir þessi 4 ár var að sjálfsögðu gert ráð fyrir því, og það hlýtur hv. þm. að hafa verið ljóst, að þær framkvæmdir, sem þar var um að ræða, áttu ekki allar að vinnast fyrir bein framlög úr ríkissjóði eða opinberum sjóðum eða með skattaálögum, heldur að töluvert miklu leyti fyrir lánsfé.

Annað atriði var það í ræðu hv. þm., sem byggt er á mjög miklum misskilningi líka. Hann segir í nál. á þskj. 84: „Engu að síður verður að telja harla óviðfelldið og óeðlilegt, að Alþingi afsali sér ákvörðunarrétti um lánskjör.“ Og í ræðu sinni komst hann svo að orði, að það væri óþingræðislegt, að lánskjör væru ekki ákveðin af Alþingi sjálfu. Ég vil upplýsa ekki aðeins hv. þm. um það, heldur hv. þdm., að þessi háttur hefur alls ekki verið á hafður. Ég hef athugað lög, sem Alþingi hefur samþykkt um heimildir til ríkisstj. til að taka lán núna síðustu þrjá áratugi, og ég hef hvergi orðið þess var, að lánskjör, þ.e.a.s. lánstími og vextir, væru ákveðin í lögunum. Ég held, að hér sé því um ákaflega mikinn misskilning að ræða hjá hv. þm. og harla hæpinn grundvöllur að kalla það óþingræðislegt, að þetta frv. er að þessu leyti alveg eins og er föst venja hjá Alþingi.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að gera þetta mál frekar að umræðuefni.