02.02.1965
Neðri deild: 36. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í B-deild Alþingistíðinda. (482)

3. mál, launaskattur

Jón Skaftason:

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr. og flutt er til staðfestingar á brbl., sem sett voru í sumar og byggðust á samkomulagi, sem gert var í byrjun júnímánaðar á s.l. ári á milli ríkisstj., Vinnuveitendasambands Íslands og Alþýðusambands Íslands, er eitt af mörgum skattalagafrv., sem lögð hafa verið fyrir hv. Alþingi s.l. 6 ár. Eins og hv. alþm. eflaust rekur minni til, hefur það verið margupplýst í umr. hér, að fjárl. hafa hækkað meira en fjórfalt síðan 1958. Mjög verulegur hluti af þessum álögum hefur verið lagður á útgerðina í landinu, sem býr við algera sérstöðu umfram aðra atvinnuvegi í landinu að því leyti, að þeir, sem í útgerðinni vinna, verða að sæta erlendu markaðsverði á hverjum tíma sem greiðslu fyrir þá vinnu og þá fjármuni, er lagðir eru fram í þeim atvinnuvegi.

Frv. þetta er, eins og ég sagði áðan, byggt á allvíðtæku samkomulagi atvinnurekenda og launþega í landinu. Þó hefur frv, þetta aldrei verið borið undir Landssamband ísl. útvegsmanna, sem ekki á aðild að Vinnuveitendasambandi Íslands, og í ræðu hv. frsm. heilbr. og félmn. hér áðan var lesið upp mótmælabréf, sem stjórn L.Í.Ú. hafði sent Alþingi, dags. 22. des. s.l., en barst ekki fyrr en málið hafði verið afgreitt úr heilbr.- og félmn. Ég vil láta það koma fram í sambandi við þá brtt., sem ég er að mæla fyrir á þskj. 81, að ég reyndi ítrekað í heilbr.- og félmn, að reyna að fá samkomulag um það á milli nefndarmanna, að launaskatturinn af launatekjum sjómanna á fiskiskipum yrði miðaður við tryggingu þeirra, og bauðst til þess í samráði við 1. flm. brtt. á þskj. 81 að draga hana til baka, ef samkomulag gæti um þetta fengizt í heilbr.- og félmn. En það tókst hins vegar ekki.

Ég vil benda á, að enn þá stendur yfir verkfall á bátaflotanum hér við Suðvesturland, sem búið er að standa í rúman mánuð, út af skiptakjörunum á bátaflotanum. Þetta langvinna og harða verkfall segir skýra sögu um ástandið í útgerðinni og gefur ótvírætt til kynna, að nýjar álögur á þennan atvinnuveg, sem þegar hefur tekið við mörgum nýjum álögum á stjórnartímabili hæstv. ríkisstj., fær ekki staðizt. Útgerðin er ekki fær um, miðað við það ástand, sem ríkir núna, að greiða þennan skatt til viðbótar. Ég fæ ekki heldur skilið, á hverju það er byggt, að launaskatturinn er lagður á útvegsmenn og sjómenn, en hins vegar eru öll störf í þágu landbúnaðarins undanþegin þessum skatti. Ég er ekki að lasta það, þótt landbúnaðurinn sé undanþeginn greiðslu launaskattsins, en ég fæ með engu móti skilið, hvers vegna hið sama eigi þá ekki að gilda um útgerðina, því að eins og ég sagði áðan, býr hún við algjöra sérstöðu umfram alla aðra atvinnuvegi í landinu að því leyti, að hún verður að sæta erlendu markaðsverði, sem er misjafnlega hagstætt á hverjum tíma fyrir framleiðsluna.

Hv. fyrri flm. brtt. á þskj. 81 hafði ætlað að mæla hér fyrir henni, en þar sem hann er enn þá ókominn til þings, hef ég hér hlaupið í skarðið og fylgt henni úr hlaði með örfáum orðum.