02.02.1965
Neðri deild: 36. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
3. mál, launaskattur
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Eins og ég tók fram, þegar ég lagði þetta frv. fyrir, er það byggt á júnísamkomulaginu svokallaða, þ.e.a.s. samkomulagi á milli atvinnurekendasamtakanna, verkalýðssamtakanna og ríkisstj. um launamál og verðlagsmál í júnímánuði s.l. Það er því frá mínu sjónarmiði grundvallaratriði í þessari lagasetningu, að hún stangist ekki á neinn hátt við það samkomulag. Þetta frv., sem hér er lagt fram til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 30. júní s.l. um launaskattinn, er í einu og öllu í samræmi við samkomulagið. Þetta gerir það að verkum, að ég get fyrir mitt leyti ekki lagt til, að sumar þeirra brtt., sem hér hafa verið bornar fram, verði samþykktar.
Í samkomulaginu stendur t.d., að lagður verði á launagreiðendur almennur launaskattur að upphæð 1% af greiddum vinnulaunum og hvers konar atvinnutekjum öðrum en tekjum af landbúnaði. Þetta hefur verið skilið þannig og var áreiðanlega meint þannig, þegar samkomulagið var gert, að undanþegnir launaskattinum væru eingöngu þeir, sem störfuðu að landbúnaði beinlínis, en ekki þau fyrirtæki, sem ynnu úr vörum bændanna. Hv. 4. þm. Reykn, undraðist nú reyndar, að öll störf við landbúnaðinn skyldu vera undanþegin þessum skatti, og skildi ekki, hvaða rök lægju til þess, þar sem sjávarútvegurinn væri t.d. bundinn af erlendu verðlagi og þyrfti nauðsynlega miklu fremur að vera undanþeginn heldur en landbúnaðurinn. En ástæðan til þess, að landbúnaðurinn var undanþeginn þessum skatti, var einfaldlega sú, að hann rennur allur í byggingarsjóð húsnæðismálastjórnar, sem ekki hefur afskipti af byggingum í sveitum landsins. Þegar skyldusparnaðurinn var lagður á, var ákveðið, að sá skyldusparnaður, sem aflað var við sjávarsíðuna og í kauptúnum, skyldi renna til húsnæðismálastjórnar, en það, sem félli til í sveitum landsins, skyldi renna í byggingarsjóð sveitanna. Og þetta er einfaldlega ástæðan fyrir því, að launaskatturinn er ekki lagður á þá, sem við landbúnaðinn vinna beinlínis, að skatturinn rennur alls ekki til þeirra og þeir hafa engin not af honum. Þetta vænti ég, að hv. þm. skilji. En það þýðir ekki það, að þeir, sem vinna að fullvinnslu landbúnaðarafurða við sláturhús, frystihús og mjólkurbú og annað þess háttar, komi ekki hér til greina, vegna þess að þeir búa flestir í þéttbýli og koma fullkomlega til greina við úthlutun húsnæðismálastjórnarlána. Þetta var sú grundvallarhugsun, sem liggur til grundvallar fyrir þessari ákvörðun samkomulagsins. Og frv. hefur líka verið miðað við þetta.
Á þskj. 81 frá hv. 5. þm. Norðurl. v. og hv. 4. þm. Reykn. er lagt til, að tekjur skráðra sjómanna á fiskiskipum verði líka undanþegnar launaskattinum. Þetta stríðir í fyrsta lagi á móti þeirri grundvallarhugsun, sem ég lýsti hér áðan og lá til grundvallar fyrir skiptingunni og eins fyrir því, sem í samkomulaginu stendur beinlínis berum orðum, að það skuli greiddur launaskattur af hvers konar atvinnutekjum öðrum en tekjum af landbúnaði. Þetta hefur verið skilið þannig, að „hvers konar tekjur“ nái auðvitað til tekna sjómanna og ekki einasta til kauptryggingarinnar, eins og hér hefur verið orðað, heldur einnig til þess hlutar, sem þeir raunverulega fá, sem vinna fyrir meiru en kauptryggingunni, þannig að ég sé ekki, að það sé hægt að samþykkja þessa tillögu, án þess að talið verði, að það brjóti í bága við samkomulagið, raunar hvorki till. á þskj. 81 né á þskj. 222.
Um athugasemdir hv. 5. þm. Vestf. um vörubílstjórana og það, sem frsm. heilbr.- og félmn. sagði um það atriði, þá er þar náttúrlega um að ræða dálítið vandasamt atriði, sem kannske liggur ekki alveg ljóst fyrir, hvernig með skuli fara. En það hefur verið álít félmrn., að sá háttur yrði hafður á, sem lýst hefur verið hér, þ.e.a.s. að þeir, sem greiddu tryggingariðgjöldin, skyldu einnig greiða launaskattinn. Náttúrlega kemur það fram í viðskiptum sjálfseignarbílstjórans við þann, sem hann vinnur hjá, fyrr eða síðar, alveg eins og launaskatturinn er frádráttur til tekjuskatts, þá finnst mér eðlilegt, að það komi fram af hálfu vörubílstjórans sú ósk eða krafa, að þessi skattur verði tekinn inn í það samkomulag, sem gildir milli hans og vinnukaupanda hans á hverjum tíma.
En þessi tilfelli eru miklu fleiri, og að því miðar ákvæði, sem sett er í 2. gr. lagafrv. og hljóðar svo:
„Nú vinnur maður við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, og skal þá áætla skattstofn hans vegna þess starfs, eftir því sem ætla má að laun hans hefðu orðið, ef hann hefði unnið starfið í þágu annarra.“
Þetta bendir líka til þess, þó að raunar þarna sé tekið annað til meðferðar, að sá, sem þessa vinnu framkvæmir, skuli greiða skattinn, hvernig sem fer um viðskipti hans við vinnukaupandann endanlega.
Ég tel svo ekki, að ég þurfi að segja fleira um þetta, en ég vildi leggja til við hv. þdm., að eftir samkomulaginu yrði farið, sem gert var í júnímánuði s.l. og að þær till., sem fara í bága við það samkomulag, yrðu felldar.