02.02.1965
Neðri deild: 36. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (491)
3. mál, launaskattur
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Hér liggur fyrir frv. til staðfestingar brbl. um launaskatt. Í 1. gr. þess segir, að almennan launaskatt skuli leggja á launagreiðendur, og um það virðist enginn ágreiningur, að þeir eigi að borga þennan skatt.
Þessi skattur og álagning hans hlýtur að minna okkur á annan skatt, sem á var lagður fyrir tæpum 3 árum. Það var skatturinn, sem lagður var á bændur með 1. nr. 75 frá 27. apríl 1962, um stofnlánadeild landbúnaðarins. Þessi skattur á bændur nemur 1% af söluverði landbúnaðarvara, og bændur verða að bera hann sjálfir. Þeim er bannað að hækka verð á framleiðsluvörum sínum sem skattinum nemur. Þannig er öðruvísi að þeim búið en öðrum mönnum. Þetta er eina stéttin í þjóðfélaginu, sem hefur orðið fyrir slíku. Hjá þeim launagreiðendum, sem borga launaskatt samkv. þessu frv., telst skatturinn með launum og öðrum kostnaði við atvinnurekstur þeirra. En eins og áður segir, verða bændur að borga sinn skatt af þeim launum, sem þeir fá fyrir sína vinnu við búskapinn, eða sínum persónulegu tekjum, og nemur hann um 2% af þeim. Engir aðrir þurfa að borga slíkan skatt.
Launaskatturinn, sem frv. þetta gerir ráð fyrir, væri ekki á lagður, ef móttakendum launanna væri ætlað eins og bændum að borga hann af sínum persónulegu tekjum. Um það munum við allir sammála. Það ætti þá að vera mönnum ljósara en áður, að skatturinn á bændur er óhæfilegur, eins og hann er á lagður. Eins og ég sagði áður, hefur hann numið um 2% af þeirra persónulegu tekjum, sem þeim eru ákveðnar í verðlagsgrundvellinum fyrir eigin vinnu til framfæris sér og sínum. Upphæðin, sem þannig var innheimt af bændum s.l. ár, 1964, nam alls um 11.6 millj. kr.
Bændastéttin hefur séð sig til neydda að höfða mál gegn ríkisvaldinu til að reyna á þann hátt að fá hnekkt þeim rangindum, sem hún er beitt með þessum skattaálögum, og þau málaferli standa yfir. Sem betur fer mun það einsdæmi í okkar þjóðfélagi, að fjölmenn stétt þurfi að eiga í málaferlum við hið opinbera til þess að hnekkja augljósum órétti, sem hún er beitt með löggjöf frá Alþingi. Þetta ber löggjafarvaldinu ekki fallega sögu, því að því ber skylda til að gæta þess, að einstakir menn eða hópar manna séu ekki órétti beittir í lögum, sem sett eru.
Það verður ekki talið skynsamlegt að skattleggja landbúnaðarvörur til að safna fé í lánasjóði. En verði slíku áfram haldið, ber að krefjast þess, eins og þegar hefur verið gert, að slíkur skattur sé lagður á vöruverðið, eins og aðrar slíkar álögur, en ekki innheimtur af launum einnar stéttar í þjóðfélaginu.