01.03.1965
Efri deild: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

3. mál, launaskattur

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Við hv. 1. þm. Vesturl. mælum með samþykkt þessa frv., eins og nál. hv. heilbr.- og félmn. ber með sér. Ekki viljum við framsóknarmenn stofna til þess, að hið svonefnda júnísamkomulag verði ekki haldið. Svo mikilsverður er sá vinnufriður, sem þá náðist, að ekki má honum spilla eða gera neitt til þess að torvelda það með brigðum á samkomulaginu, að nýir samningar náist, þegar júnísamkomulagið rennur út á næsta sumri. Ekki veitir heldur af því að afla fjár til byggingarsjóðs ríkisins. Síður en svo viljum við standa á móti fjáröflun til hans, svo févana sem hann hefur reynzt til þess að sinna hlutverki sínu. Annað mál er það, að óeðlilegt verður að teljast og bágborið stjórnarfar, að verkalýðurinn neyðist til að blanda inn í kaupgjaldsbaráttu sína erfiði við að tosa ríkisstj. til að sýna lit á því að gera skyldu sína í húsnæðislánamálum. Þetta er ein af mörgum ónýtu fjöðrunum í hatti maddömu Viðreisnar, en sleppum því. Við mælum með samþykkt frv., þó að frv. sé miklu fremur neyðarúrræði en snjallræði og sé í raun og veru klór í bakkann, ekki meira. Þetta vil ég fyrir mitt leyti

láta koma skýrt fram. Hins vegar áskildum við okkur rétt til þess að bera fram brtt. við frv. og fylgja brtt., sem fram kæmu til lagfæringar á því.

Og nú höfum við lagt fram smávegis lagfæringartill. á þskj. 281. Í sambandi við þá till. vil ég segja nokkur orð sem grg. um hana.

Lánamálum vegna íbúðarhúsabygginga hefur nú verið þannig skipað hjá ríkinu, að stofnlánadeild landbúnaðarins er ætlað að lána til íbúðarhúsabygginga fólki, sem landbúnað stundar, en byggingarsjóður ríkisins á að lána íbúðalán fólki, sem aðra atvinnuvegi stundar. Stofnlánadeildarlöggjöf landbúnaðarins skyldar þá, er hann reka, til þess að leggja fram óafturkræft fé til stofnlánadeildarinnar í þessu skyni. Þau framlög eru tekin af aflafé bændanna, eins og þau væru þeirra persónulegu þarfir, og engin hliðsjón höfð af þeim við ákvörðun búvöruverðs frekar en týndrar pyngju eða kaupa á sparifötum. Aðrir atvinnuvegir og launagreiðendur eiga svo aftur á móti samkvæmt brbl, um launaskatt, sem með samþykkt þessa frv. á að lögfesta, að borga 1% af greiddum vinnulaunum í byggingarsjóð ríkisins. Aðalhugsunin er því þessi: Atvinnuvegirnir leggi stofnfjárframlög í húsbyggingasjóðina, landbúnaðurinn í stofnlánadeild Búnaðarbankans fyrir þá, sem þar fá lán, hinir atvinnuvegirnir eða réttara sagt atvinnugreinarnar borga í byggingarsjóð ríkisins vegna þeirra, er þar eiga að fá íbúðarlán sín. Glögg er þessi greining í sambandi við skyldusparnaðarféð. Þetta er hinn rauði þráður, þó að hann að vísu sé mjór sums staðar, því að erfitt er að fullgreina þarna á milli. Grundvallarmeiningin er samt, að hver skattgreiðandi borgi í sinn sjóð og að enginn sé tvískattaður. Og það má telja aðalatriðið.

Vitanlega kemur svona brúttóteknagreiðsla mjög misjafnlega hart niður á mönnum og fyrirtækjum eftir því, hvað borið er úr býtum í rekstrinum, enn fremur eftir því, hve auðvelt þeir eiga með að koma skatti sínum inn í verðlag framleiðslu sinnar eða verðlag þjónustu sinnar við aðra. Útgerðarmenn, sem háðir eru verðlagi erlendra markaða, geta engu þokað í þessum efnum. Þeim er markaður básinn og geta þar lent illa milli steins og sleggju. Mér verður hugsað til smábátaútgerðarinnar norðanlands í þeim kringumstæðum, sem hún er nú. í hv. Nd. báru tveir hv. þm. Framsfl. fram till. um að undanþiggja launaskatti tekjur skráðra sjómanna á fiskiskipum, sem eru minni en 100 brúttólestir. Sú till. var felld. Talið var, að hún raskaði júnísamkomulaginu. Slæmt, að þeir, sem sömdu, skyldu ekki í upphafi gera sér grein fyrir sárveikri aðstöðu þessarar útgerðar til að þola skattinn. En af því að till. þessi var felld með skírskotun til þess, að hún raskaði vinnufriðarsamningunum, þá berum við hv. 1. þm. Vesturl. ekki fram sams konar till. í þessari hv. deild.

Brtt. okkar á þskj. 281 er annars eðlis. Sams konar brtt. var að vísu felld í Nd., við sjáum enga ástæðu til, að hv. Ed. geti ekki hugsað skýrar og verið réttlátari en hv. Nd. Till. raskar ekki margnefndu júnísamkomulagi. Hún er aðeins útfærsla á því og að því er mér virðist í fullu samræmi við það og innan ramma þess og algerlega í stíl þeirrar aðgreiningar á skattgreiðslu til byggingarsjóðanna, sem álögur til þeirra hafa verið miðaðar við.

1. gr. frv. tekur fram, að launagreiðendur skuli borga 1% í byggingarsjóð ríkisins af greiddum vinnulaunum af hvers konar atvinnutekjum öðrum en tekjum af landbúnaði. Í síðustu málsgr. 2. gr. frv. segir: „Undanþegin skattskyldu eru laun eða þóknanir fyrir störf við landbúnað, jafnt vinna bóndans sjálfs og þeirra, sem hann greiðir laun. Enn fremur vinnulaun vegna jarðræktarframkvæmda og byggingarframkvæmda á bújörðum.“

Ljóst er af þessum ákvæðum báðum, hvoru fyrir sig og báðum til samans, að talið er skylt að undanþiggja landbúnaðinn launaskatti þessum til byggingarsjóðs ríkisins, þar sem bændastéttin greiðir sinn skatt samkv. öðrum lögum til stofnlánadeildar landbúnaðarins og það meira að segja í óþyrmilegum stíl, eins og kunnugt er, ekki sízt af málaferlum, sem búnaðarsamtökin eiga í við ríkisvaldið út af álagningu þessa skatts. Áreiðanlega hefur átt með þessum lögum um launaskatt að forðast, eins og skylt er, að láta bændastéttina greiða líka skatt til byggingarsjóðs ríkisins og þar með að tviskatta landbúnaðinn í húsbyggingarmálum. En þetta hefur mistekizt, og það ættu allir, sem átta sig á því, að vera sammála um að vilja leiðrétta, og það raskar alls ekki samkomulaginu, að mér skilst.

Um það er till. okkar hv. 1. þm. Vesturl. Hún er efnislega að undanþiggja laun greidd starfsfólki mjólkurbúa og sláturhúsa. Ef þetta er ekki gert og skattur þessara launa er ekki heldur tekinn inn á kostnað búskapar, þegar ákveðið er búvöruverð, þá fellur launaskatturinn á bóndann á þann hátt, að hann fær þeim mun lægra verð fyrir framleiðslu sína, sem skattinum nemur, og það kemur niður á kaupi hans í sama mæli. Félög bændanna reka, eins og allir vita, mjólkurbúin og sláturhúsin yfirleitt fyrir hönd bændanna. Enn fremur er það mjög algengt, að bændur sjálfir vinni meira og minna við þessi fyrirtæki sín, t.d. við sláturhúsin, og til er, að þau séu staðsett í sveit, þar sem ekkert þéttbýli er. Að verulegu leyti mundi skipta öðru máli, ef skatturinn væri tekinn upp sem kostnaður við framleiðsluna, þegar ákveðið er búvöruverðið, en upplýst hefur verið, að þetta var alls ekki gert s.l. haust, og engin trygging er fyrir því, að það verði gert eftirleiðis. Þess vegna teljum við fim. brtt., að eðlilegt sé, að ákvæði till. verði fellt inn í lögin og þar með komið í v eg fyrir, að bændastéttin verði tvísköttuð í þessum efnum. Læt ég svo lokið grg. með till.

En frsm. hv. heilbr.- og félmn., hv. 4. þm. Vestf., notaði tækifærið, er honum gafst sem frsm. við 2. umr. þessa máls, til þess að mæla svolítið fyrir minni svonefndrar viðreisnarstefnu í lánamálum og færa henni lof fyrir afrek hennar á þeim sviðum. Það var án efa vel meint af honum, en ekki að sama skapi raunhæft að mínu áliti.

Ég tel mér að gefnu tilefni frá hv. þm. leyfilegt að fara með örfáum orðum inn á þetta svið. Hann taldi það, að því er virtist, þakkarvert og prýðilegt, að viðreisnarstjórnin hefði hækkað lán til íbúðar úr 100 þús. kr. upp í 150 þús. kr. fyrst og síðan samkv. júnísamkomulaginu upp í 280 þús. kr., sem enn er ekki farið að framkvæma, og varð ekki annað skilið af orðum hv. þm. en að mikil væri þessi viðreisn. En hann minntist auðvitað ekkert á það, hvað kostnaður við að byggja íbúð hefur hækkað á tíma viðreisnarinnar, en án þess er sagan hálfsögð eða minna en það.

Af skýrslum hagstofunnar má sjá, að í febrúar 1960 eða um það bil, sem viðreisnarstjórnin var að skinnsokka sig, var hámark íbúðalána ekki nema 100 þús. kr. Byggingarkostnaður við að koma upp 350 m3 íbúð var þá 431 þús. kr. eða því sem næst. Í s. 1. október er byggingarkostnaður íbúðar af sömu stærð talinn vera 716 þús. kr., eða 285 þús. kr. meiri. Ekki er enn farið að veita 280 þús. kr. lánið, svo að vitað sé, heldur 150 þús. kr. lán. Þegar hér er komið viðreisninni, það er í okt. 1964, vantar því 135 þús. kr. til, að öll lánsfjárhæðin borgi dýrtíðaraukninguna eina saman. Það hafði verið reynt að smíða ausu, en einhver sat hjá. Viðreisnin sat hjá og boraði á ausuna gat, og í þetta gat hefur hún ekki stærri tappa en þetta. Hún fyllir ekki sitt eigið gat.

Niðurstaðan er sú, að húsbyggjandann nú vantar lánsfjárhæðina alla, sem húsbyggjandinn 1960 fékk, 100 þús. kr., og 135 þús. kr. að auki til þess að standa jafnt að vígi og hann. Hér er ekki um framför að ræða. Hér er um afturför að ræða, þegar rétt er á litið og þreifað á málunum raunhæft. Og alltaf er byggingarkostnaðurinn að hækka. Hann verður hærri 1965 en hann var 1964, og þegar verður farið að veita 280 þús. kr. lán á íbúð, sem ég veit ekki hvenær verður, og ég heyrði ekki í ræðu hv. 4. þ:m. Vesturl., að frá væri skýrt, hrekkur það heldur alls ekki til að fylla gatið. Lánin hafa verið hækkuð að krónutölu nefnilega, en gildi lánanna hefur samt minnkað svona stórkostlega, af því að dýrtíðin hefur vaxið meir en hækkun lánanna nemur. Einhvers staðar stendur skrifað: Viðreisnin etur börnin sín. Það er sterklega til orða tekið. En hvað hefur gerzt í þessum lánamálum? Lánsfjárskorturinn til íbúðabygginga veldur húsaleiguokri og gefur grundvöll fyrir húsasölubrask og okurgróða fyrir þá, sem það brask stunda og hafa peninga til þess, og þeir menn eru býsna margir til í þjóðfélaginu, þó að þá, sem eru að byggja fyrir sjálfa sig, skorti fé.

Það er sagt, að enginn geti sigrað skuggann sinn í kapphlaupi, sem háð er undan sól. Hæstv. viðreisnarríkisstj. hefur í þessum málum háð kapphlaup við skuggann sinn og beðið fullkomlega lægri hlut. Það þarf mikla húsbóndahollustu til að lofa þessa frammistöðu stjórnarvaldanna. Ég leyfi mér að ráðleggja hinum greinda og ágæta manni, hv. 4. þm. Vestf., að gæta fóta sinna á þessum svellum.

Ekki var hægt annað en að brosa, þegar hv. 4. þm. Vestf. var að tala um mikilvægi þess, að hæstv. ríkisstj. hefði beitt sér fyrir því, að skyldusparnaður unga fólksins hefði verið hækkaður á árinu sem leið úr 6% upp í 15%. Öðruvísi mér áður brá. Það er ekki langt síðan Sjálfstfl. vildi engan skyldusparnað samþ., taldi 6% skyldusparnaðinn áníðslu, frjáls sparnaður gæfist alltaf betur. Nú hefur Sjálfstfl. farið svona rækilega í gegnum sjálfan sig. Hann ætti sannarlega að gera það í fleiru. Að fara í gegnum sjálfan sig var leikur, sem strákar léku oft áður á baðstofubitum. Það þótti stundum fara illa með þröngar buxur. Þær vildu rifna. Tal hv. sjálfstæðismanna nú um þá framför, sem það sé að hafa hækkað skyldusparnaðinn, minnir á það, að Sjálfstfl. þyrfti að hafa buxnaskipti.

Hv. 4. þm. Vestf. gat þess, að í ráði væri að útvega húsnæðismálastofnuninni meira fé en hún hefði áður haft. Það er að sjálfsögðu gott og blessað, ef þetta verður meira en ráðagerðir einar og gerir eitthvað meira en að mæta dýrtíðarhækkuninni, sem samhliða magnast, hverfur ekki sporlaust í hít hennar eins og lánahækkanirnar síðustu ár. Ekki var mér fullkomlega ljóst, hvað tryggt er um hina auknu fjársöfnun. Frásagnir hv. þm. minntu mig dálitið á myndina eftir Kjarval, sem hann sagði að væri af Sterling í þoku. Sjálfsagt hefur það verið með ráði gert að hafa myndina þannig vegna hillinganna, sem þurfti á að halda.

Eitt af því, sem hv. þm. nefndi að til stæði, var að láta hið árlega ríkisframlag til atvinnuleysistryggingasjóðs jafnan ganga til kaupa á íbúðarlánabréfum húsnæðismálastjórnar til að efla veðlánakerfið, en þessi tekjustofn gæfi um 40 millj. kr. á ári. Í sambandi við þessa hugmynd vil ég benda á, að stofnlánadeild landbúnaðarins þarf líka á fé að halda til þess að geta lánað sómasamleg lán til íbúðarhúsabygginga í sveitum. Að réttu lagi á sú lánastarfsemi kröfu á hlutdeild í fé, sem ríkið ráðstafar beint til íbúðabygginganna. Ég vil skora á þá, sem þar standa fyrir málum, að gæta hlutfallslegs réttar stofnlánadeildarinnar í þessum efnum. Eftir því þarf að muna, að íbúðalánakerfi landsins er í tveim deildum. Brtt. okkar hv. 1. þm. Vesturl. er einn þáttur þess, sem gæta þarf í því sambandi, þ.e. að láta ekki bændastéttina greiða launaskatt til beggja lánadeildanna, og þess vegna vænti ég þess, að hv. d. geti fallizt á brtt. okkar.