01.03.1965
Efri deild: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

3. mál, launaskattur

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég get nú byrjað mitt spjall á sömu lund og hv. síðasti ræðumaður. Ég hafði ekki ætlað mér að taka þátt í þessum umræðum, en það hefur dálítið teygzt úr þeim. Þær hafa orðið dálítið almenns eðlis. Og það er það, sem hefur, auk þess sem kom fram hjá síðasta ræðumanni, gert það að verkum, að mér hefur þótt rétt að segja hér fáein orð.

Mér hefur fundizt kvörtunartónn koma fram hjá hv. ræðumönnum, bæði 12. þm. Reykv. og eins hv. 4. þm. Vestf., yfir því, að það hafi eiginlega verið stofnað til þessara umr. hér og það hafi verið stofnað til þeirra til að bera saman með einhverjum hætti það, sem gerzt hafi í þessum málum í tíð hinnar svokölluðu vinstri stjórnar og svo aftur í tíð viðreisnarstjórnarinnar. En af þessu tilefni er einmitt rétt að athuga, af hverju þessar umr. hafa sprottið og orðið jafnvíðtækar og raun ber vitni, því að það má segja, að það sé í sjálfu sér dálítið undrunarefni, af því að um það frv., sem hér er til umr., er í raun og veru ekki nokkur ágreiningur, frv. um launaskatt. Það höfðu allir nm. skrifað undir nál. og mælt með því, að það yrði samþ. Að vísu höfðu þeir áskilið sér rétt til þess að flytja brtt., og það hafa tveir hv. þm. gert við þessa umr., en slík brtt. lá alls ekki fyrir við 2. umr. málsins. Það hefði þess vegna átt að vera mjög einfalt mál af hálfu hv. frsm. n. á því stigi að fylgja frv. úr hlaði og mæla með því. En þá var það, að hv. frsm., 4. þm. Vestf., fann hjá sér hvöt og það get ég vel skilið — til þess að skruma svolitið um aðgerðir hæstv. ríkisstj. í húsnæðismálunum. Og hann tíundaði mikið þau afrek, sem hann taldi að lægju eftir hæstv. viðreisnarstjórn í þessum efnum.

Einmitt þessi ræða hv. þm. varð tilefni til þess, að hv. 1. þm. Norðurl. e. benti hógværlega í ræðu sinni í dag á nokkrar staðreyndir í þessu máli, á staðreyndir, sem þeir hv. ræðumenn, hv. 12. þm. Reykv. og 4. þm. Vestf.,

hafa ekki með nokkru móti komizt fram hjá. En þá hafa þeir bara snúizt við því þannig og sagt sem svo: Ja, það var ekki gert meira í tíð vinstri stjórnarinnar. Þessi stjórn hefur staðið sig eins vel eða betur. — Það hefur bara yfirleitt ekki verið hér til umr. og við höfum ekki stofnað til ræðuhalda um það, hvað hafi verið gert í þessum málefnum í tíð vinstri stjórnarinnar. Ég hef aldrei haldið því fram, að það hafi verið endilega gerðar fullnægjandi ráðstafanir í þessum efnum í tíð þeirrar stjórnar, því að það er laukrétt, sem hv. 12. þm. Reykv. hefur hér sagt, að þessi mál eru mikið vandamál, ekki aðeins hér á landi, heldur hvarvetna annars staðar, og það hafa margar ríkisstj. orðið við þau að glíma, og þau hafa orðið flestum ríkisstj. erfið. En mér dettur ekki í hug að halda því fram, að vinstri stjórnin hafi leyst allan vanda í þeim efnum, því fer fjarri, og ég er ekkert yfirleitt að bera hana saman við neina aðra stjórn í þessum efnum. Það eru þeir hv. 12. þm. Reykv. og 4. þm. Vestf., og þá sérstaklega sá síðarnefndi, sem hafa verið að gera það, þannig að þær umr., sem hér hafa sprottið, eiga rætur að rekja til þess, að hv. þm. fór að flytja hér skýrslu, sem að vísu er venjulegra að ráðherra flytji, um það, hvað ætti að gera í húsnæðismálunum. Og í sjálfu sér er það góðra gjalda vert, að hann hefur upplýst það, þó að hitt sé venjulegra, að þetta komi frá ráðh.

Það er náttúrlega góðra gjalda vert, að það á að gera ýmislegt til úrbóta í húsnæðismálum til viðbótar við það, sem þegar hefur verið gert, því að sjálfsagt getum við allir verið sammála um það, að á því sé fyllsta þörf. Það er nú svo með flesta menn og þá eins þessa hv. þm. og aðra, að hverjum þykir sinn fugl fagur, þótt hann sé kannske bæði fjaðralaus og magur, og þessir hv. þm. eru nú í þeirri stöðu að starfa báðir að þessum málum, að ég held, og hv. 12. þm. Reykv. formaður í húsnæðismálastjórninni. Og ég verð að segja það, að ég er dálítið hissa á því, hvað mér virtist hann vera ánægður yfir því, hvað áunnizt hefði í þessum málefnum og hvernig þau stæðu. Hann tók svo til orða, hv. þm., að það hefði stórlega mikið áunnizt í þessum málum í tíð núv. hæstv. stjórnar. Það má mikið vera, ef allir, sem við hann eiga erindi og þurfa að sækja um lán og fá afgreiðslu lána, eru jafnánægðir í þessum efnum og hann er, eða hann vill vera láta, að hann sé.

Ég held því miður, að það sé síður en svo ástæða til þess að vera með mikið yfirlæti í þessum efnum eða státa af því, sem gert hefur verið, og er ég þó ekkí á neinn hátt að draga í efa, að báðir þessir hv. þm. og hæstv. ríkisstj. hafi viljað gera vel í þessum efnum. En staðreyndirnar tala sínu máli, og á þær staðreyndir hefur hv. 1. þm. Norðurl. e. bent í ræðum sínum. Þar hefur hann sýnt, að þó að lánin hafi að vísu hækkað og hækkað þetta og þetta mikið, hefur kostnaðurinn við það að byggja íbúð á þessu tímabili hækkað þetta og þetta meira en allri hækkun lánanna nemur. Og hann hefur líka sýnt það, sem ég skal ekkert nánar fara út í af hverju stafar, að á þessu tímabili a.m.k. hafi verið fullgerðar færri íbúðir en á fyrra tímabilinu. Það kann vel að vera, að það eigi sér ýmsar skýringar, og ég skal alveg láta það liggja á milli hluta.

En nú kemur hér áðan hv. 10. þm. Reykv. og ætlar gersamlega að afsanna þetta, ætlar að sýna, að það hafi verið mikill miskilningur hér á ferð, og tekur ákveðnar tölur og gefur sér ákveðnar tölur í því sambandi og reiknar fyrir okkur eitt litið og einfalt og auðreiknað reikningsdæmi. Og hann segir, að það skipti í raun og veru engu máli, þó að byggingarkostnaðurinn hafi hækkað, ef lánin hafi hækkað prósentvís að sama skapi, þá megi það einu gilda fyrir húsbyggjendur. Ég er nú ekki alveg viss um það, að ef þessi ágæti þm. ætlaði að fara að byggja hús, teldi sig standa alveg jafnt að vígi eftir eins og áður var, eftir að þessi breyting hefði orðið. Að vísu sagði hann með sinu dæmi þetta, sem er sérstaklega athyglisvert, og í því er mikil játning fólgin, hann sagði, að 1960 hafði íbúðin kostað 300 þús., skulum við segja, og þá hefði fengizt 150 þús. kr. lán, 1965 kostaði íbúðin 600 þús. og þá hefði fengizt 300 þús. kr. lán, og þá sagði hann: Byggjandinn stendur alveg jafnt að vígi. Krónurnar eru bara allt aðrar. — Hann sagði að vísu, að það væri ekki til neitt sérstakt metrakerfi á þetta, því að þessar krónur í dag, 600 þús. kr., væru allt aðrar krónur en 300 þús. kr. 1960. Á þetta má fallast út af fyrir sig, að viðreisnarkrónurnar eru allt aðrar. En ég held þó, að fyrir þann, sem byggir, skipti þetta verulegu máli, sú breyting, sem orðið hefur. Forsendan fyrir því, að það skipti hann ekki máli, er það, að hann eigi eins auðvelt nú með að afla sér 300 þús. kr., sem hann þarf að leggja fram af eigin fé eða afla sér annars staðar í lán, eins og hann átti áður auðvelt með að afla sér 150 þús. kr. Því aðeins er þetta sama, því aðeins er aðstaða hans hin sama. Ég held þess vegna, að þó að það sé ekki á neinn hátt ástæða til þess að gera lítið úr því, að lánin hafi verið hækkuð, og það sé sjálfsagt að viðurkenna, að það sé gott, svo langt sem það nær, þá stendur eftir sem áður þessi staðreynd, að á sama tímabili hefur byggingarkostnaðurinn hækkað svo og svo mikið. Það geta sumir sagt þetta, hækkun lánanna nemur ekki hækkun byggingarkostnaðarins, eða menn geta farið þessa leið, eins og hv. síðasti ræðumaður fór, að bera þetta prósentvís saman, en þá varð samt niðurstaðan hjá honum þessi, að mér skildist, hann að vísu gefur sér þessar tölur, en það getur aldrei orðið betri útkoma en það, að þetta stæði eins, ekki betur en áður. Og þegar nú litið er á það, þá finnst manni tiltölulega lítil ástæða hafa verið til að halda þá sjálfshólsræðu, sem hv. 4. þm. Vestf. hélt hér á sinni tíð við 2. umr. þessa máls.