27.10.1964
Neðri deild: 7. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (530)
31. mál, leiklistarstarfsemi áhugamanna
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég skal með ánægju svara þeim fsp., sem hv. þm. báru fram til mín, um leið og ég vil þakka góð orð þeirra í garð þessa frv., sem ég vona að sé fyrirboði stuðnings af hálfu þeirra og flokks þeirra við málið.
Hv. 5. þm. Norðurl. e., Ingvar Gíslason, spurði, hversu mörg félög mundu geta notið styrks samkv. reglunni, sem gildir um A-flokk leikfélaga, og hversu mörg muni geta notið styrks samkv. reglunum, sem gilda um B-flokk leikfélaga í 1. gr. frv. Miðað við skýrslur, sem til eru um þetta efni frá árinu 1962—1963, en af eðlilegum ástæðum eru ekki til nýrri skýrslur, er þetta að segja:
Samkv. þeim hefðu 7 leikfélög getað hlotið styrk samkv. reglunum um A-flokk. 7 leikfélög, sem þá störfuðu, hefðu m.ö.o. getað talizt til A-flokks, en 31 leikfélag til B-flokks. Heildarstyrkveitingin til þessara 7 félaga í A-flokki hafði minnst getað orðið 210 þús. kr., en mest 700 þús. kr. En félögin í B-flokki. hefðu minnst getað fengið samtals 310 þús. kr., en mest 930 þús. kr. Nú er það hins vegar áreiðanlegt, að í framkvæmd yrði það ekki svo, að félögin fengju öll jafnan styrk, heldur færi það auðvitað eftir starfi þeirra á undangengnu ári, hvaða styrkur þeim væri ætlaður, og eins mætti búast við því, að félög flyttust á milli flokka frá ári til árs. En á þessu ári hefði skiptingin orðið þessi.
Það er rétt hjá hv. þm., að í þessu frv. er ekki gert ráð fyrir því, að leikskólar verði styrktir af því fé, sem veita á samkv. frv., heldur er gert ráð fyrir því, að leikskólar séu styrktir áfram með sérstökum fjárveitingum á fjárlögum, sem Alþingi tekur ákvörðun um hverju sinni. Þetta er ekki vegna þess, að málefni leikskólanna hafi gleymzt, né heldur að starf þeirra sé með nokkru móti vanmetið, heldur er ástæðan til þess, að þetta frv. var ekki látið taka til leikskólanna, sú, að ekki þótti fært að þessu sinni a.m.k. að setja neinar fastar reglur um það, hvernig styrkja ætti leikskólana. Það þótti ekki fært að þessu sinni a.m.k. að flokka leikskólana þannig, að um styrk til þeirra gætu gilt nokkuð hliðstæðar reglur og athugun sýndi að fært virtist vera að láta gilda um styrk til hinna einstöku leikfélaga. En ég tel sjálfsagt að taka það til athugunar. Það mætti gjarna taka það til athugunar í þeirri n., sem um málið fjallar, hvort menn treystu sér til þess að taka leikskólana í frv., láta frv. þannig taka til leikskólanna. En þá yrði að sjálfsögðu að auka heildarfjárveitinguna, sem ætluð er til þessara þarfa í fjárlagafrv.
Hv. 4, þm. Reykn., Jón Skaftason, spurði um skýringu þess, að Bandalagi íslenzkra leikfélaga er ætlaður óbreyttur styrkur á fjárlagafrv. 1965, þó að gert sé ráð fyrir því, að styrkveitingar til leikfélaga almennt verði á næsta ári meir en 100% hærri, helmingi hærri, en þær voru 1962.
Skýringin á þessu er sú, að þegar fjárlagafrv. var samið á s.l. hausti, lágu ekki fyrir menntmrn. upplýsingar um fjárhagsáætlun Bandalags íslenzkra leikfélaga fyrir næsta ár og raunar ekki um árlega fjárþörf þess. Þessar upplýsingar liggja hins vegar nú fyrir í menntmrn., bárust því fyrir nokkrum vikum, og rn. hefur þegar skrifað fjvn. varðandi fjárhag Bandalags íslenzkra leikfélaga og mælt með því, að fjárstyrkur til þess yrði hækkaður í sama hlutfalli og sú hækkun er, sem gert er ráð fyrir á styrk til leikstarfsemi almennt.
Félagið hafði óskað eftir hækkun upp í 350 þús. kr. úr 125 þús. kr., og hefur menntmrn. mælt með því, að sú styrkbeiðni yrði tekin til greina, eða þá a.m.k. að styrkurinn til Bandalags íslenzkra leikfélaga hækki í sama hlutfalli og hinn almenni styrkur til leiklistarstarfsemi áhugamanna á að hækka, ef frv. og fjárlagatill. nær fram að ganga.
Með þessu vona ég, að spurningum hv. þm. sé svarað.