10.12.1964
Efri deild: 29. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

80. mál, aðstoð við fatlaða

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar um breyt. á l. nr. 25 frá 16. apríl 1962, um aðstoð við fatlaða. Ég get í raun og veru látið nægja að vísa til framsöguræðu hæstv. félmrh. við 1. umr. málsins og til grg., sem fylgir þessu frv. En efni frv. er á þá leið að hækka 3 kr. gjaldið af innlendum tollvörutegundum. sem renna á til aðstoðar við fatlaða, í kr. 3.50, en þessi aukning, þessir 50 aurar, renni sérstaklega til aðstoðar við blinda, og er áætlað, að þetta viðbótargjald muni nema 200—300 þús. kr. á ári. Heilbr.- og félmn. hefur haft frv. þetta til athugunar, og mælir n. einróma með því, að það verði samþykkt.