11.03.1965
Neðri deild: 53. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (595)

40. mál, girðingalög

Frsm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Frv. þetta er komið hingað í hv. d. frá hv. Ed., og hv. landbn, þeirrar d. flutti nokkrar brtt. við frv., sem voru samþ. þar í deildinni shlj. og frv. samþ. shlj. þar, eins og það liggur nú hér fyrir.

Þegar landbn. þessarar d. tók málið fyrir, gátu ekki mætt á fundinum þrír af nm., en við fjórir nm., sem undirritum nál. á þskj. 317, leggjum til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur nú fyrir.