08.03.1965
Efri deild: 51. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í B-deild Alþingistíðinda. (619)

142. mál, nafnskírteini

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að gefin verði út nafnskírteini af nánar tiltekinni gerð til allra einstaklinga 12 ára og eldri, sem skráðir eru hér á landi. Um alllangt skeið hefur mikið verið rætt um nauðsyn þess, að gefin væru út einhvers konar persónuskilríki til ungmenna, til þess að hægt væri að framfylgja fyrirmælum í áfengislögum, barnaverndarlögum, lögreglusamþykktum og víðar varðandi ýmsar athafnir og lífshætti ungmenna. Er það einn aðaltilgangur þessa frv. að auðvelda framkvæmd slikra ákvæða. Annar megintilgangur frv. er sá að fullnægja tilfinnanlegri þörf fyrir persónuskilríki almennt, sem menn geta notað til þess að sanna, hverjir þeir séu og hver aldur þeirra sé. Þriðji megintilgangur frv. er að skapa grundvöll fyrir fullri hagnýtingu þjóðskrárinnar eða réttara sagt hins svonefnda nafnnúmers þjóðskrárinnar.

Á síðari árum hefur notkun skýrsluvéla farið mikið í vöxt á ýmsum sviðum opinberrar starfsemi. Hagstofan tók í notkun skýrsluvélar á árinu 1949, en þær voru aðeins til töluúrvinnslu, enda ætlaðar til hagskýrslugerðar eingöngu. Á árinu 1952 komu til landsins fyrstu svokölluðu alfabetisku skýrsluvélar fyrir frumkvæði Rafmagnsveitu Reykjavikur, sem þá hafði fyrir nokkru ákveðið að hefja notkun skýrsluvéla við útreikning og útskrift á rafmagns- og hitaveitureikningum. Upp úr því gerðu ríkisstj. og Reykjavíkurborg með sér samning um sameiginlegan rekstur skýrsluvéla, og hlaut fyrirtækið nafnið Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar. Þar hefur síðan verið unnið að hvers konar úrvinnslu vélspjalda fyrir ríkið og Reykjavíkurborg og raunar fyrir ýmsa aðra aðila. Á sínum tíma var ákveðið að nota þessa nýju véltækni til að koma á fót og starfrækja framvegis vélspjaldskrá yfir alla landsmenn, þjóðskrá, eins og hún hefur verið kölluð. Hún var sett á laggirnar á árunum 1952—54. Þjóðskráin hefur svo að segja frá stofnun hennar látið í té íbúaskrár og hvers konar aðrar skrár til opinberra nota, og síðan á árinu 1954 hafa vélspjöld þjóðskrárinnar í vaxandi mæli verið notuð sem grundvöllur að vélrænum útreikningi skatta og gjalda til hins opinbera. Á árinu 1963, eftir að nýju skattumdæmin höfðu komið í stað á þriðja hundrað skattumdæma, voru í fyrsta sinn öll skattframtöl landsmanna tekin til meðferðar í vélum að því er snertir tekjuskatt og önnur iðgjöld.

Til þess að auka og bæta þjónustu þjóðskrárinnar var á árinu 1959 öllum landsmönnum, 12 ára og eldri, gefið nafnnúmer, og síðan hafa þeir, sem hafa náð þeim aldri, fengið nafnnúmer árlega. Nafnnúmerið, sem er 8 stafa tala, er auðkenni hvers manns og greinir hann frá öllum öðrum í þjóðfélaginu. Nafnnúmer var tekið upp til þess, að unnt væri að hagnýta vélarnar með meiri árangri á ýmsum sviðum, og nýlega hefur notagildi nafnnúmersins verið stóraukið með því, að bætt hefur verið við það svonefndri baktölu, sem hefur það sérstaka hlutverk að láta vélarnar segja til strax á fyrsta stigi vélaúrvinnslu, ef rangt númer er á spjaldi einstaklings. Nafnnúmerið hefur komið að miklum notum, m.a. við álagningu og útreikning opinberra gjalda og við launabókhald ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar, sem nú um nokkurra ára skeið hefur farið fram með skýrsluvélum. Þess má og geta, að Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur síðan á árinu 1962 notað nafnnúmer þjóðskrárinnar sem sjúkrasamlagsnúmer.

Hins vegar er nú komið að mörkum þess, sem hægt er að nota hið umrædda nafnnúmer, nema hver einstaklingur á starfsaldri þekki sitt númer og geti, þegar þörf krefur, sannað fyrir aðilum, sem hann á skipti við, hvert númerið sé. Svo getur því aðeins orðið, að gefið sé út nafnskírteini til hvers og eins, sem náð hefur ákveðnum aldri, og sé á skírteininu nafnnúmer skírteinishafa auk nafns hans, fæðingardags og ef til vill fleiri upplýsinga. Í athugasemdum með þessu frv. eru ýtarlegar upplýsingar um notkunarmöguleika nafnnúmersins og þýðingu nafnskírteinis í því sambandi, og vil ég vísa til þess án þess að fara frekar út í það í þessari ræðu.

Á síðustu árum hafa komið fram nýjar rafeindavélar til úrvinnslu gatspjalda, sem hafa skapað algerlega ný viðhorf að því er varðar starfsaðferðir og starfsafköst í opinberri starfsemi og raunar í hvers konar bókhalds- og skrifstofustörfum. Hér er um að ræða víðtæka vélvæðingu skrifstofustarfa, sem nú ryður sér til rúms hvarvetna. Ef rétt er á haldið, fylgir þessari nýju tækni mikill vinnusparnaður, stóraukið öryggi í störfum og ólíkt meiri vinnuhraði en áður hefur þekkzt. Almenn notkun nafnskírteinis skapar mjög aukna möguleika til þess að nota þessa nýju véltækni bæði í opinberri starfsemi og í einkarekstri, þar sem skilyrði eru til að hagnýta allar þessar nýju vélar. Þetta er aðalástæðan fyrir því, að nú er lagt til, að nafnskírteini verði gefin út til allra einstaklinga á starfsaldri. Það má fullyrða, að möguleikar séu til að hagnýta nafnskírteini með ávinningi á svo að segja öllum sviðum opinberrar starfsemi, þar sem um er að ræða samskipti borgara og opinberra aðila.

Þeir Baldur Möller ráðuneytisstjóri, Klemenz Tryggvason hagstofustjóri og Sigtryggur Klemenzson ráðuneytisstjóri hafa látið í té álít um útgáfu nafnskírteinis og er það prentað sem fylgiskjal með frv., á bls. 9 og 10. Þeir leggja eindregið til, að hafizt verði handa um almenna útgáfu nafnskírteinis. Þeir benda á, að stofnkostnaðurinn ásamt árlegum viðhaldskostnaði fyrir ríkið er hverfandi samanborið við þann ávinning, sem þeir telja að fylgi almennri útgáfu nafnskírteina. Stofnkostnaður við útgáfu nafnskírteina er áætlaður 450 þús. kr., en árlegur viðhaldskostnaður í framtíðinni 30—40 þús. kr. á ári, miðað við núgildandi verðlag.

Um einstök atriði frv. vísa ég til ýtarlegra skýringa við einstakar greinar þess. Rétt er þó að nefna ákvæði 5. gr., þar sem heimilað er, að ökuskírteini komi í stað nafnskírteinis. Þetta getur þó ekki orðið frá byrjun, heldur jafnóðum og gildistími ökuskírteina rennur út, vegna þess að í nýjum ökuskírteinum þurfa að vera þær upplýsingar flestar eða allar, sem ætlazt er til að verði í nafnskírteininu.

Ég vænti þess, að frv. fái góðar undirtektir í hv. þd., og legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.