08.04.1965
Neðri deild: 65. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (631)

142. mál, nafnskírteini

Frsm. (Sigurður Ingimundarson):

Herra forseti. Allshn. hv. þd. hefur haft þetta frv. til athugunar og m.a. rætt nokkur atriði þess við hagstofustjóra, sem hefur samið frv. í samráði við dómsmrn.

Með frv. er lagt til, að gefin verði út nafnskírteini til allra einstaklinga, 12 ára og eldri, sem skráðir eru hér á landi. Skírteini þessu er ætlað að vera almennt persónuskilríki, og er í því sambandi m.a. nauðsynlegt, svo að unnt reynist að framkvæma ákvæði í áfengislöggjöf og lögreglusamþykktum, að því er varðar takmörkun á athafnafrelsi ungmenna. Auk þess er tilgangur frv. sá að skapa skilyrði fyrir fullri hagnýtingu hins svonefnda nafnnúmers þjóðskrárinnar.

Með hinum nýju rafeindavélum og annarri nýtízku vélvæðingu við hagskýrslugerð og margs konar bókhalds- og skrifstofustörf hafa skapazt nýir möguleikar til öruggari og afkastameiri vinnuhraða og raunar möguleikar til þess að framkvæma verkefni, sem áður voru mjög torleyst. Nafnnúmer er í þessu sambandi til mikils hagræðis sem öruggt einkenni einstaklingsins og skilríki.

Frv. var afgreitt shlj. frá d. Að vísu mun þar hafa verið hreyft því, hvort ekki væri rétt að lögbjóða skyldu til þess að hafa ljósmynd á skírteinunum, a.m.k. fyrir vissa aldursflokka. Þetta atriði kom einnig til sérstakrar athugunar í allshn. þessarar hv. þd., en í n., eins og í hv. Ed., var horfið frá því ráði við nánari athugun og eftir að rætt hafði verið um málið við þá, sem undirbjuggu frv. Í frv. er heimild til þess að krefjast ljósmyndar, og má gera ráð fyrir því, að það verði gert að því marki, sem æskilegt er og nauðsynlegt verður talið í einstökum byggðarlögum, og fyrir vissa aldursflokka, eftir því sem þurfa þykir að athuguðu máli í hverju tilviki, án þess að gera það að almennri kvöð að nauðsynjalausu.

Allshn. hv. d. leggur því til, að frv. verði samþykkt óbreytt, eins og Ed. hefur þegar gert samhljóða.